Morgunblaðið - 22.03.1963, Síða 2

Morgunblaðið - 22.03.1963, Síða 2
2 MORCVNBT4Ð1Ð Föstudagur 22. marz 1963 Heilsuspillandi húsnæði að mestu útrvmt á 2 árum Kostnaður verður 75 milll. kr. — en fjárhagsgrundvöllur framkvæmdarnna tryggður N.hluti Lækjargötu breikkaður á næsta ári TILLÖGUR borgarráðs Reykjavíkur frá 15. marz sl. um ráðstafanir til útrýming- ar heilsuspillandi húsnæði voru endanlega samþykktar á fundi borgarstjórnar í gær. Svo sem skýrt var frá hér í blaðinu sl. þriðjudag, eru ráð- stafanir þessar í því fólgnar, að Reykjavíkurborg mun byggja og kaupa 168 íbúðir, sem aðallega verða leigðar þeim, er verst eru staddir. Er hér um að ræða kaup á 48 íbúðum, sennilega við Kapla- skjólsveg, byggingu 12 hæða húss við Austurbrún með 66 íbúðum, byggingu 54 íbúða í þriggja hæða f jölbýlishúsum við Kleppsveg og loks lán til einstaklinga, sem búa í heilsu spillandi húsnæði, í því skyni, að þeir geti lokið við íbúðar- húsnæði, sem þeir eiga í smíðum eða gengið frá kaup- um á íbúðum. Á borgarstjórafundinum í gær upplýsti Gísli Halldórs- son, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, a*ð ráðstafanir þessar muni væntanlega kosta u.þ.b. 75 millj. kr. og að fjárhagslegur grundvöllur þeirra sé tryggður. Er gert ráð fyrir, að framkvæmdum þessum verði lokið eftir u.þ.b. 2 ár. Sérstaka athygli vöktu á fundinum í gær hinar góðu undirtektir minnihlutaflokk- anna í borgarstjórn við þess- ar fyrirhuguðu ráðstafanir, en Guðmundur Vigfússon (K) kvað það álit sitt, að hér væri um merka samþykkt að ræða, Einar Ágústsson (F) taldi hér um að ræða stórt spor í húsnæðismálum borg- arinnar og Soffía Ingvarsdótt ir (A) lýsti sérstakri ánægju sinni með tillögurnar og hin- ar miklu og glæsilegu bygg- ingarframkvæmdir, sem þær gerðu ráð fyrir. Umrædd samþykkt borgar- ráðs og borgarstjórnar var á þessa leið: „Borgarráð leggur til, að borg- arstjórn samþykki eftirfarandi ráðstafanir í byggingarmálum fyrst og fremst til útrýmingar herskálum, svo og til útrýmingar öðru heilsuspillandi húsnæði og endurnýjunar á leiguhúsnæði borgarinnar: 1. Borgaráði verði heimilað að neyta forkaupsréttar að 48 íbúð- um sem íslenzkir aðalverktakar eiga í smíðum við Kaplaskjóls- veg. Ef samningar takast ekki er borgarráði heimilað að semja við önnur byggingarfyrirtæki um kaup á jafnmörgum íbúðum, en láta að öðrum kosti byggja fjöl- býlishús með jafnmörgum íbúð- um. 2. Hafin verði bygging 12 hæða húss við Austurbrún með ca. 66 íbúðum, og verði gerð hússins í aðalatriðum áþekk húsunum nr. 2 og 4 við Austurbrún. 3. Hafin verði bygging 54 2—4 herb. íbúða í þriggja hæða fjöl- býlishúsum við Kleppsveg. 4. Heimilað verði að veita lán úr Byggingarsjóði Reykjavíkur- borgar til einstaklinga, sem búa í heilsuspillandi húsnæði, í því skyni, að þeir geti lokið við íbúð- arhúsnæði, sem þeir eiga í smíð- um eða gengið frá kaupum á íbúðum. Lán þessi verða 60—100 þús. krónur til 10—15 ára. Borg- arráði er falið að setja nánari reglur um lánveitingar þessar, og leita samvinnu við húsnæðis- málastjórn um fyrirkomulag. Miðað skal við, að allar íbúð- irnar í húsi því, er um ræðir í 2. lið, og a. m.k. helmingur þeirra íbúða, sem um ræðir í 1. og 3. tl., verði í eigu borgarinnar og leigð- ar út, en borgarráði falið að kveða nánar á um málið, m. a. ákveða söluskilmála þeirra íbúða, sem kunna að verða seld- ar einstaklingum. Að því skal stefnt, að íbúðir, skv. 1.—3. tl., verði allar fullgerðar, nema borg- arráð telji sérstaka ástæðu til að víkja frá því að einhverju leyti um íbúðir, sem kunna að verða seldar. Borgarráði er falið að ganga frá reglum um ráðstöfun leigu- íbúða borgarinnar og ásamt borg- arstjóra að sjá nánar um fram- kvæmdir allar“. ik Miðast við að útrýma herskálunum Gisli Halldórsson (S) gerði á fundinum í gær grein fyrir þeirri samþykkt borgarráðs, sem lýst er hér að framan. Skýrði hann m. a. nokkuð einstaka liði sam- þykktarinnar. Tillögurnar gru lokatillögur um framkvæmdir á hinni stórhuga byggingaráætlun borgarinnar frá árinu 1957 til útrýmingar heilsu- spillandi húsnæði og eru í raun- inni þríþættar. 1. og 3. liður eru beinlínis mið- aðir við það, að öllum herskála- íbúðum verði útrýmt' með þeim framkvæmdum. En þegar flutt hefur verið í Álftamýrarhúsin verða aðeins 65 barnafjölskyldur í herskálum. Reikna verður með að einhleypir menn og barnlaust fólk muni geta hjálpað sér að mestu sjálft, enda hefur hagur þessa fólks batnað til muna að undanförnu sem annarra borg- ara. Á" Fyrir aldrað fólk 2. liðurinn gerir ráð fyrir því að byggt verði háhýsi við Austur- brún, 12 hæðir með 66 íbúðum. Allar þessar íbúðir eru mjög litlar og ætlaðar að mestu fyrir barnlaust fólk eða því sem næst. Er gert ráð fyrir því, að á neðstu hæðum hússins verði aðallega aldrað fólk, sem getur að öllu eða mestu leyti séð um sig sjálft. Á efri hæðum hússins væri svo fólk af öllum aldri, en þó mætti gera ráð fyrir, að verulegur hluti þess yrði ungt fólk eða einstæðar mæður. Á Til þess að ljúka íbúðum 4. liðurinn er til þess að hægt sé að hjálpa þeim, sem skortir nokkurt fjármagn til að ljúka við íbúðir sínar. Getur slík starfsemi mjög flýtt fyrir því, að menn Ijúki við hálfgerðar íbúðir. Þá gerði Gísli nokkra grein fyrir framkvæmdum Reykjavík- urborgar á undanförnum árum samkvæmt fyrrnefndri bygging- aráætlun frá 1957. í upphafi var samþykkt að byggja 600 íbúðir í því augna- miði að útrýma herskálum og öðru heilsuspillandi húsnæði, en síðar var sú áætlun aukin í 800 íbúðir, er sýnt þótti, að ástæða væri. til að hjálpa fleiri fjölskyld um úr lélegu húsnæði. Til þess að tryggja framgang þessara miklu byggingarframkvæmda ákvað Horgarstjórnin að stofna Framhald á bls. 23. Verið að rannsaka skemmdir Gullfoss í gær kom framkvæmdastjóri Eimskipafélagsins Óttar Möller heim frá Kaupmannahöfn. Blaðið spurði hann hvað félagið hefði í hyggju að gera í sambandi við Gullfossmálið. Óttarr sagði að ekki vaeri neinu við að bæta fyrri fregnir á þessu stigi málsins. Enn væri ekki Iokið rannsókn á hve skemmdirn- ar á skipinu væru miklar og þvi ekki hægt að segja hve við- gerðin tæki langan tíma. Fyrr en það lægi fyrir væri ekki hægt að taka ákvarðanir um hvað gera skuli til lausnar þeim flutningavandræðum sem skapast meðan á víðgerðinni stendur. Aðalfundur Neyt- endasamtakamia Aðalfundur Neytendasamtakanna var haldinn á fimmtudagskvöld. stjómarkjör fór þannig: Aðalstjóm: Sveinn Ásgeirsson hagfr., Arinbjörn Kolbeinsson, læknir, Knútur Hallsson, löigfr., Magnús Þórðarson, blaðamaður, Þórir Einarsson, viðskfr., Lárus Guðmundsson, stud. theol. og Kristjana Steingrímsdóttir, hús- mæðrakennari. Alþingi hefur samþylekt, að eftir- töldum mönnum skuli veittur ísLenzk- ur ríkÍ9borgararéttur: Andersen, Orla Preben, Teigi 1 Mosfellssveit. Benke, Veronika Erzsébet, Reykja- vík. Bischoff, Ingeburg (Eiríksson) Reykjavík. Bjartmars, Kristen Fritzie, f. Mor- tensen, Reykjavík. Csillag, Erzsébet Eszter, £. Varga, Reykjavík. Csillag, György, Reykjavík. Csillag, Józef, Reykjavík. Dam, Jörgen Kulmbak, Hraunprýði, Engidal, Garðahreppi. Davidsen. Thea Frida, Reykjavík. Einarssonar, Lucie, Bolungarvík. Fivelsdal, Harald Undertun, Dala- sýslu. Frederiksen, Kristian Emil, Akra- nesi Gottsbacher, Leonilla, Seltjamar- nesi. Green, Dora, Reykjavík. Gærdbo, Finn, Olafsvík. Hansen, Benny Martin, Reykjavík. Hansen, Jörgen Christian, Selfossi. Hegediis, Béla, Akranesi. Hentze, Carmen Edith Ruth, f. Heinze. Hentze Jens Paui Konrad, Salivik á Kjalarnesi. Á FUNDI borgarstjórnar Reykja víkur í gær skýrði Geir Haligríms son borgarstjóri frá því, að á næsta ári mætti gera ráð fyrir, að Lækjargata norðan Banka- strætis verði gerð í sömu breidd og gatan er í sunnan Bankastræt is. Búizt er við, að skipulag þessa Kofi brennur í Hraunsholti SLÖKKVILIÐIÐ í Hafnarfirði var kvatt út tvívegis í gærdag. Kl. 16,30 var það kvatt út að skipasmíðastöðinni Dröfn. Þar hafði kviknað í vélibátnum Sæ- bongu í slippnum. Fljótlega tókst að slökkva og urðu litlar sem engar skemmdir. Nokkru síðar eða kl. 16.45 var slökkviliðið kvatt að litlum timb urkofa, Brautarholti, Garðahr. sem stendur austan til í Hrauns holti. Brann kofinn næstum allur. Hann var notaður áður fyrr sem mannabústaður, en hætt var að nota hann fyrir mörgum mánuð um. Engin verðmæti voru þar inni. Kofinn mun hafa vegið eign Garðahrepps. Hvöf HINN árlegi afmælisfagnaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat- ar verður í Sjálfstæðishúsinu á mánudagskvöld og hefst með sam eiginlegu borðhaldi kl. 19.30. Til skemmtunar syngur negrasöngv- ari'nn Marchel Achille. Félagskonur eru hvattar til að fjölmenna og taka með sér gesti, en afmælisfagnaðurinn hefur ævinlega tekizt mjög vel og verið fjölsóttur. Forsölu á aðgöngu- miðum og upplýsingar hafa Gróa Pétursdóttir, öldugötu 24 (sími 14374), Kristín Magnúsdóttir, Hellusundi 7 (15768) og María Maack, Þingholtsstræti 25. Óseld- ir aðgöngumiðar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu niðri á laugar- dag kl. 2—6. Horváth. Józef C., Keflavik. Horváth, Mária T„ Keflavík. Hausler, Margot Helga, Hólmavík. Jacobsen, Sommer Thorstein, Reykja vfk. Jensen, Aage Christian, Reykjavík. Jensen, Marianne Sjurðadóttir, Vest mannaeyjum. Joensen, Asbjörg Alfrida Efri- Brúnavöllum. Joensen, Hans Sigurd, Reykjavík. Johannesen, Gudrun Todnæs, Reykja vík. Johannsen, Ingeborg, Reykjavík. Johnsen Langeiyth, Sigrún Dagbjört, Reykjavík. Józsa, Eva, Reykjavík. Kiimits, Erzébet, Reykjavík. Klimits, János, Reykjavik. Klimits, Lajos, Reykjavik. Larsen, Kaj Flemming, Höfn I Hornafirði. Læu, Betti Meta Frieda Karla, Garða hreppi. Marten, Margarete Ida Marta (Guð- jónsson), Þorlákshöfn. Mágyár, Ferenc, Ytri-Njarðvflc. Midjord, Johan Andrew Elmar, Búð- um í Fáskrúðsfirði. Moen, Nils, Ölfusi. Munro, Leo, Reykjavík. Niclasen, Níels Jaoob, Akureyrl. Nieisen, Bent, MosfeUissveit. svæðis verði ákveðið í sumar, þegar niðurstöður umferðakönn- unarinnar liggja fyrir, en fyrr er að sjálfsögðu ekki unnt að taka ákvörðun um það, hvernig gatan verði breikkuð. En naumast er við því að búast, að framikvæmd- ir hefjist fyrr en á næsta ári, þó að skipulag svæðisins verði samþykkt í sumar. Þessar upplýsingar bomu fram, er borgarstjóri svaraði fyrirspurn frá Birni Guðmundssyni vara- borgarfulltrúa Framsóknarflokks ins um þetta efni, en Björn hafði einnig spurt, hvort fyrir lægi nokkur áætlun um kostnað af þessum framkvæmdum. Svaraði borgarstjóri því til, að hún hefði eðlilega ekki verið gerð enn þá, þar sem óljóst væri, hvernig framkvæmdum yrði hagað. — Hitaveíta Framh. af bls. 24. hverfi til bráðabirgða, ef þörf verður hitunar í haust. Er borgarstjóri hafði gefið fyrrgreinar upplýsingar lagði hann fram svohljóðandi tillögu: „Með því að ráðstafanir hafa þegar verið gerðar til þess að leggja hitaveitu í nýskipulögð hverfi austan Háaleitisbrautar og undirbúningur er miðaður við, að framkvæmdir hefjist í vor og hús á þessu svæði verði tengd hitaveiunni jafnóðum og hitunar er þörf, er tillaga borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins óþörf og vía að frá.“ — Samþykkti borgar- stjórn tillögu þessa. • Guðmundur reiddist. Guðmundur Vifffússon borgar- fulltrúi kommúnista tók þessum upplýsingum mjög illa og gat ekki dulið reiði sína, er hann kvaddi sér hljóðs eftir ræðu borg arstjóra. Spáði hann illu um fram kvæmdir þessar og kvað óvarlegt að trúa upplýsingum hitaveitu- stjóra og borgarstjóra. Benti borg arstjóri GV á, að ástæðulaust væri fyrir hann að láta í ljóa slíka óánægju, þó að mál það, sem tillaga hans fjallaði um, væri svo vel á veg komið. Það hefði honum mátt vera Ijóst eftir viðtöl við borgarstarfs- menn, en tillöguflutningur þesst væri gott dæmi um sýrndar- mennsku minnihlutaflokkanna í borgarmálum, því að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem þeir flyttu tillögur um mál, sem þeim mætti vera ljóst, að unnið væri að. Nlasen, Lilja, f. Bjamadóttir, Reykj* vík. Nissen, Ursula (Sigurðsson), Tjörn í Aðaldal. Pal, Joli, Reykjavík. PescUel, Max, Kópavogl. Petersen, Jens Arae, Stokkseyrl. Reiners, Dora Reykjavík. Reiss, Margarete Herta, Kópavogi. Schmidt, Kjerstine Andrea, Vest- mannaeyjum. Sohrader, Harry Wilhebn, Reykja- vík. Sohultz, Helene, Selfossi. Schuiz, Johanna, Vifilsstöðum. Sólrún Hervör Jónsdóttir, f. Hein- esen, Neskaupstað. Stephensen, Gunnlaugur Hana, Reykjavík. Strömmen, Bjami Jóhann Akureyrk Strömmen, Grétar Sævar, Akureyrl, Strömmen, Margrét, Akureyri. Strömmen, Robert, Akureyrt Svensson, Ingeborg Lucie Seime (Björnsson), Siglufirði. Tausen, Tryggvi, Bifröst í Borgar- firði. Thomsen, Björk, Reykjarvik. Thomsen, Lisa, Reykjavík. Toftum, Torgrim, Móum á Kjalar- nesi. Töczik, Mihály, Húsavík. Tölgyes Miklos, Reykjavík. Zsibók, Jozsef, AkranesL Nýir íslenzkir ríkisborgarar I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.