Morgunblaðið - 03.04.1963, Qupperneq 3
Miðvikudagur 3. apríl 1963
VORGVNBlAfílh
3
SjúkraSiús-
ið á Akra-
nesi sfækk-
að
A AKRANESI er gott sjúkra-
hús, rekið af Akranesbæ, en
með réttindi fjórðungssjúkra-
húss. Þessa sjúkrahúss er oft
getið í fréttum, einkum þar
sem þar eru góðir skurðlækn-
ár og oft flutt þangað slasað
fólk úr bílslysum, sem verða
í sveitunum sunnan Holta-
vörðuheiðar
Teikning af nýju sjúkrahúsálmunni. Neðar er suðurhliðin,-sem er á 3 hæðum, og ofar vest-
urhlið. Þar sér á tveggja hæða álmuna, þar sem veiða skuiðstofur og eldhús niðri.
Viðbótarrúm
ny skurðstofu
Sjúkrahúsið á Akranesi er
alltaf fullskipað og þó hvfer
smuga sé' notuð fyrir sjúkl-
inga, er það fyrir löngu orðið
of lítið. Því hefur verið á-
kveðið að stækka sjúkrahúsið
að miklum mun, þannig að í
staðinn fyrir rúm fyrir 33
sjúklinga rúmi sjúkrahúsið 93,
og einnig verði komið upp
nýrri skurðstofudeild, gert
nýtt eldhús fyrir sjúkrahúsið
en gamla eldhúsið notað til að
stækka þvottahús og auk þess
verði á neðstu hæð rúm fyrir
heilsuverndarstöð. Fréttamað-
ur blaðsins ræddi við Pál
Gíslason, yfirlækni sjúkra-
hússins, um þetta mál fyrir
skömmu.
Hann sagði að bæjarstjórn
Akraness hefði samþykkt
þessa stækkun í febrúarmán-
uði og væri Guðmundur Þór
ir. En þegar spítalabygging-
unni er lokið, verða starfandi
þrjár deildir í spítalanum,
handlæknisdeild, lyflæknis-
deild og öryrkjadeild, sem
verður í núverandi spítala-
byggingu. Þangað munu koma
öryrkjar, sem þurfa sérstakr-
ar hjúkrunar og umönnunar
við. Fyrir utan það að sjúkra
rúmum fjölgar og rýmkar í
stofunum, verður á allan hátt
betri aðbúnaður og vinnuskil-
yrði þegar nýi spítalinn er
kominn upp. í tveggja hæða
álmunni verður aðeins eldhús
ið niðri og skurðstofurnar
uppi, en það er hagkvæmara
vegna hreinlætis og sótthreins
unar að hafa þær nokkuð sér.
Þar fáum við tvær nýjar
skurðstofur með öllu því sem
þeim tilheyrir, sótthreinsun-
arklefa, stofur til að svæfa
A stofugangi í sjúkrahúsinu á Akranesi. Á myndinni eru talið
frá vinstri: Bragi Nielsen, læknir, Sigurbjörg Jóhannsdóttir,
jrfirhjúkrunarkona, Óli Björn Hannesson, læknakandidat og
Páll Gíslason, yfirlæknir.
Pálsson á teiknistofu húsa-
meistara ríkisins að ljúka
teikningum. Ánýjaviðbygging
in að ganga í vestur frá sjúkra
húsinu og loka Heiðarbraut-
inni. Sú álma verður á þrem
hæðum, eins og spítalinn sem
fyrir er, með tveggja hæða
útbyggingu. — Framkvæmdir
eiga að hefjast í vor og bygg-
ingin þá steypt upp. Stendur
til að bjóða út verkið. Síðan
verður húsið innréttað í á-
föngum, þannig að fljótlega
verði hægt að fá eina 30 rúma
sjúkradeild í notkun ásamt
nýja eldhúsinu.
Sérstök lyflæknisdeild
— Þegar þeim áfanga er
náð, er ætlunin að ráða sér-
fræðing í lyflæknisifræði, sem
yrði yfirmaður sérstakrar lyf-
læknisdeildar, segir Páll lækn
sjúklinga í og að láta þá vakna
og öðru sem tilheyrir skurð-
stofum. Núna höfum við að-
eins eina litla skurðstofu.
Menn eru svo framsýnir
hér, bætir Páll við, að þeir
bugsa sér að með þessu fyrir-
komulagi megi eftir ca 15 ár
enn stækka spitalann í vestur
án þess að raska neinu, og þá
yrðu eldhús og skurðstofur í
miðri byggingu.
Þannig hagar til í hinni fyr-
irhuguðu byggingu að allir
sem erindi eiga í spítalann að
utan, koma þar inn á neðstu
hæðina. Þar verða röntgen-
stofa, tvær slysastofur, skrif-
stofur lækna og aðstaða fyrir
heilsuverndarstöð. Hingað til
höfum við aðeins haft litla
kytru, sem notuð er fyrir
mæðravernd og berklaéftirlit.
Það er að vísu orðið lítið. sem
betur fer. Og þó, allt það fólk
sem fær vinnu við neyzluvör-
ur innan bæjar er gegnumlýst
einu sinni á ári.
Á efri hæðunum tveimur í
nýju álmunni verða svo tvær
sjúkradeildir fyrir 30 sjúkl-
inga, sem fyrr er sagt og þar
verður dagstofa og bókasafn.
— Þrengslin eru gífurleg
hjá ykkur, skilst mér. Hvað
hafið þið rúm fyrir marga
sjúklinga núna?
— Það er ætlazt til að við
höfum 33 sjúkrarúm, en þó
við höfum alltaf a.m.k. 40
sjúklinga með því að hafa 6
rúm í fjögurra manna stof-
um, sjúkling í baðherbergi,
sem flytja verður út á gang-
inn á baðdögum, og þess hátt-
ar, þá líður ekki sá dagur að
maður sé ekki í vandræðum
með að koma fyrir sjúklingi.
Sl. ár voru lagðir inn 702
sjúklingar, 344 Akurnesingar
og 356 aðrir. Vegna stöðugra
þrengsla hafa langlegusjúkl-
ingar ekki komizt að hjá okk-
ur, þar eð þeir ganga fyrir
sem hægt er að lækna. Við
höfum ekki nema 20 með-
allegudaga á sjúkling. Á
Landspítalanum eru meðal
legudagar að vísu 15, en þar
er völ á þægilegri þjónustu,
t. d. á Hrafnistu og Sólvangi,
þangað sem hægt er að koma
langlegusjúklingum. Þetta hef
ur okkur vantar tilfinnanlega
og vonandi rætist úr með nýju
álmunni.
Þjónusta við sjúkiinga
stóraukin
Annars er lögð á það á-
herzla að auka með hinni
nýju byggingu þjónustuna við
sjúklinga ekki síður en að
stækka spítalann, sérstaklega
með tilliti til heilsuverndar-
starfsemi, sem ætlunin er að
efla, einkum með ungbarna-
eftirliti og umönnun aldraðs
fólks.
Talið berst að rekstri sjúkra
hússins. Hlutur Akranesbæjar
af gömlu byggingunni var
greiddur með ágóða af bíó-
hölljnni. Rekstur sjúkrahúss-
ins hafa Akurnesingar einir,
en utanbæjarfólk greiðir
nokkurt aúkagjald þar.
— Fjárhagsörðugleikar
sjúkrahúsa eru mjög miklir,
segir Páll, þar sem daggjöld-
in hafa lítið hækkað, eða rétt-
ara sagt hækkun kemur allt-
af of seint miðað við hækkun
á kostnaði, svo við erum ætíð
á eftir. Nú er kostnaðurinn
287 kr. per legudag á hvern
sjúkling, en daggjöld hafa
verið 180 kr. og 25 kr. viðbót
frá ríki. Þarna þarf að brúa
bilið. Um áramót komu 20 kr.
til viðbótar, en þá var komin
hækkun á kvennakaupi og
fæði. Þetta veldur stöðugum
erfiðleikum í rekstri sjúkra-
húsanna.
Sl. haust var stofnað Lands-
samband sjúkrahúsa undir
forystu sjúkrahússtjórnar á
Akranesi og er Björgvin Sæm
undsson, bæjarstjóri, formað-
ur hennar. Þetta samband á
að koma fram fyrir sjúkra-
hús sem ekki eru í ríkiseign,
og m.a. beita sér í þessu máli.
I lok viðtals þessa um stækk
un sjúkrahúss á Akranesi,
sagði Páll: — Því miður hef-
ur ekki skapazt einhugur í
bæjarstjórn um þetta mál.
Hafa framsóknarmenn og
kommúnistar með Daníel
Ágústínusson í fararbroddi
talið þetta óþarfa fram-
kvæmd. Spítalinn sé nú þeg-
ar nógu stór fyrir Akurnes-
inga. Þeir gera sér þó ekki
íjóst, að ekki er hægt að
flokka sjúklinga eftir neinu
öðru en sjúkdómum eða þörf
þeirra fyrir sjúkrarúm, en
ekki eftir lögheimili eða dval-
arstað og því útilokað að neita
að taka við t. d. Borgfirðing-
um eða Snæfellingum sem
sjúkrahúsvist þurfa og þess
óska hjá okkur. Þannig að
þörfin fyrir sjúkrarúm verð-
ur jafnmikil meðan allra
vandi er ekki leystur. Sjálf-
sagt er að leita samstarfs við
alla þessa aðila. Það má bara
engan tíma missa nú, til að
framkvæmdir geti hafizt.
— E. Pá.
STAKSTEINAR
Fölswiarrðlið
fordæmanlegt
íslenzk dagblöð gera sér í vax-
andi mæli grein fyrir því, að þau
eiga að fiytja réttar og óbrengl-
aðrar fréttir, hvort sem þeim lika
þó ein undantekning, þar sem er
þær betur eða ver. Frá þessu er
fréttafölsunarblaðið Tíminn.
Naumast liður sá dagur, að það
blað falsi ekki fregnir, beint eða
óbeint. Oft fer það með bein ó-
sannindi, stundum segir það hálf
sannleika og oft stingur það und
ir stól mikilvægum fréttum, af
því að þvi finnst ekki heppilegt
fyrir málstað Framsóknarflokks
ins að birta þær. Sem betur fer
gera menn sér nú orðið grein
fyrir hinum mikla mun, sem er á
Tímanum að þessu leyti og öðrum
iýðræðisblöðum. Þess vegna er
framferði þeirra, sem blaðinu
ráða, fordæmt og
Hópar fólks
á sœluviku
SAUÁRKRÓKI, 2. apríl — Ynd-
islegt veður er hér það sem af
er sæluvikunni og vegir færir í
allar áttir, nema hvað verið er
að ljúka við að ryðja Siglufjarð-
arskarð. Ef tíðin helzt svona, má
búast við rneira fjölmenni á sælu
vikuna en áður, en kollhríðin er
alltaf þegar líða tekur á vikuna.
Von er á mörgu fólki frá Ólafs
firði á morgun, og komið hefur
til tals að heilir hópar fólks
feomi frá Akureyri. Uppselt er á
leik leikfélagsins,
nú næstu kvöld.
námsmeyjar og
Kvennaskólanum
Fjalla-Eyvind,
í kvöld hafa
kennarar af
á Blönduósi
pantað miða. Mánudagurinn sl.
var helgaður börnuunm að venju
og kom þá fjöldi barna víðsveg-
ar að úr sýslunni á Sauðárkrók
— jón.
AKRANESI, 2. apríl — Vélbát-
urinn Skírnir fékk 50C tunnur
af síld í nótt. Sigurfari reif nót
sina í botni. Heildarafli bátanna
hér í gær var 133 lestir. Afla
hæstur var Sigurður með 15 lest-
ir, annar Ólafur Magnússon með
14 lestir. — Oddur.
fordæmt
minnkandi.
áhrif blaðsins
Ekki skynsamlegt
En jafnvel þótt siðferði þeirra
Framsóknarmanna, sem yfirráð
hafa yfir málgagni flokksins, sé
ekki á hærra stigi en svo, að þeir
telji sæmandi að falsa fréttir, hve
nær sem svo ber undir, þá er hitt
ekki síður furðulegt, að þeir skuli
vera svo skammsýnir að halða, að
þessi iðja beri mikinn árangur,
þegar tii lengdar lætur. Þvert á
móti veldur hún því, að menn
fyrirlíta þetta blað og taka ekk
ert trúanlegt, sem þar stendur,
jafnvel þótt það slysaðist til að
segja sannleikann. Þetta er ein
meginástæðan fyrir því, að nú
hallar undan fæti fyrir Fram-
sóknarmönnum.
Ganga Iengra
en kommúnistar
Menn hefðu ekki að óreyndu
trúað því, að málgagn lýðræðis-
flokks gengi lengra í fölsunum og
ofsafengnum áróðri en málgagii
kommúnista, en svo hefur þó far
ið. Síðasta dæmið skal hér nefnt.
Tíminn hefur haldið því fram, að
tollalækkanirnar, sem Viðreisnar
stjórnin hefur ákveðið, nemi að-
eins 42 millj. kr., þótt upplýst sé
að þar sé um nálægt 100 millj.
kr. lækkun að ræða og jafnvel
kommúnistamálgagnið hafi birt
fregn um það, 5 dálka á forsíðu.
Kommúnistar treystu sér þannig
ekki til að falsa þessa fregn, en
Tíminn gerði sér lítið fyrir og hélt
fram hreinum og augljósum ó-
sannindum. Reynt var að rök-
styðja þessi ósannindi með því að
niður féllu ákveðnar tekjur, sem
sveitarfélögin hafa haft af inn-
flutningsgjöldum. Samt stendur
skýrum orðum í greinargerð frum
varpsins, að sveitarfélögunum
verði bætt þetta tjón á kostnað
ríkisins. Þannig er það óumdeil-
anlegt, að lækkanirnar nema um
100 milljónum og þær koma allar
niður á ríkissjóði, því að í engu
á að skerða tekjur sveitarfélag-
anna. Menn kynnu að halda, að
það væri af mistökum, sem Tím-
inn hefur haldið fram þessum ó-
sannindum, blaðamönnum hans
hafi sézt yfir ákvæðið í greinar-
gerðinni; en svo er ekki. Eftir
að Morgunblaðið hafði birt mynd
af þessu ákvæði eru ósannindin
endurtekin í fréttafölsunarblað-
inu. Það er til mikillar minnkun
ar fyrir íslenzkt stjórnmálalíf, að
annar stærsti flokkur landsins
skuli standa að slíku málgagni,
enda getur ekki hjá því farið, að
fréttafaisanir Tímans komi illa
við heiðarlega Framsóknarmenn,
þótt þeirri klíku, sem flokknunj
ræður, líki þær ágætiega.