Morgunblaðið - 03.04.1963, Qupperneq 11
Miðvikudagur 3. apríl 1963
MORCVTSBLAÐÍÐ
11
Katrín Jónsdóttir
Hinn 24. marz sl. andaðist hér
í bænum Katrín Jónsdóttir frá
Húsavik. Hún var fædd 9. júni
1899 og því taeplega 64 ára að
aldri: Faðir hennar var séra Jón
Arason (d. 1927) Jochumssonar
bónda í Þorskafirði, en móðir
hennar Guðríður (d. 1960)
Ólafsdóttir bónda í Mýrarhúsum
á Seltjarnarnesi, Guðmundsson-
ar. Eru það þjóðkunnar ættir.
I>að var fríður hópur barna,
sem ólst upp á prestsetrinu á
Húsavik á fyrstu árum þessarar
aldar. Systkinin voru sex, fjórir
bræður og tvær systur, efnileg
og gáfuð eins og þau áttu kyn
til. En nú er þar orðið skarð
fyrir skildi, því að auk Katrínar
eru þrir bræðurnir látnir: Ólaf-
ur læknir í Reykjavik, Rútur
vélvirki í Reykjavík, og Kristinn
kaupmaður á Húsavík. Eftir eru
á lífi Karitás, kona Ara Arason-
ar bankamanns, og Ari, fyrrv.
héraðslæknir, bæði búsett í
Reykjavíik.
lælkni, bróður sínum, á Fljóts-
dalsihéraði, en þó lengstum hjá
Kristni kaupmanni, bróður sin-
um I Húsavik. Starfaði hún þá
bæði að nuddlækningum hjá
héraðslækni, og við verzlunar-
störf.
Árið 1946 fluttist hún til
Reykjavíkur með móður sinni,
sem þá hafði verið ekkja um
mörg ár; og réðist sem bókihald-
ari oig gjaldikeri hjá Ingó-lfsapó-
teki, og starfaði þar síðan til
dauðadags, fyrst hjá P.O. Mog-
ensen og síðan hjá Guðna Ólafs-
syni. Gat hún sér þar fullkomið
traust fyrir hæfileika, ráðvendni
og húsbóndahollustu.
Eftir því sem á ævina leið á-
gerðist /sjúkdómur hennar, og
leiddi hana að lokum til bana
hinn 24. marz sl.
Þetta er aðeins stutt yfirlit um
ævi mikilhæfrar og góðrar konu
sem aldrei barst neitt á f lífinu.
Hitt er ótalið, sem ekki er unnt
að lýsa, og vinum hennar ein-
um kunnugt: hlýtt hjartalag
hennar, tryggð og drengskapur
og vammlaus breytni frá vöggu
til grafar.
Á. Ó.
Prestsetrið í Húsavík var ann-
álað fyrir hve skemmtilegt væri
að koma þar. Þar skipaði gest-
risnin öndvegi og snyrtimennska
í smáu og stóru gerði heimilið
aðlaðandi. Presturinn var hæg-
gerður maður, en skrafhreifinn
og fjölfróður og kunni góð skil
á öllum þeim umræðuefnum sem
bar á góma. Húsfreyjan glaðlynd
og reif og gamansöm í orðum.
Börni# prúð og einlæg í við-
móti og báru með sér að þau
höfðu fengið gott upþeldi.
Aldrei var þar auður í garði, en
heimilisbragur var öllum auði
betri. Sá, sem varð þar heimilis-
vinur, var vinur fjölskyldunnar
ævilangt.
í þessu umhverfi liðu æsku-
og þroskaár Katrínar og mun
það hafa mótað nokkuð skap-
lyndi hennar og lífsviðhorf.
Annars hafði hún tekið að erfð-
um nokkuð af skapgerðareigin-
leikum beggja foreldra sinna,
drenglund og hógværð, rólega I-
hugun ásamt meinlausri glettni,
sem varpaði birtu á smámuni
hins daglega lífs. Fyrir þetta var
hún vinsæl af öllum, sem henni
kynntust. Hún var líka fríðleiks-
kona og flest vel geíið, bæði til
munns og handa.
Rúmlega tvítug fór hún til
Reykjavíkur að læra nuddlækn-
ingar hjá Jóni Kristjánssyni
lækni,. en rétt áður en hún lauk
því námi, veiktist hún og varð
að hverfa heim aftur. (Nokkrum
árum síðar lauk hún þó prófi
sem nuddlæknir). Þessi sjú’k-
dómur, sem greip hana á feg-
ursta þroskaskeiði, yfirgaf hana
aldrei síðan, og gekk hún því
sjaldan alheil til skógar. Næstu
ár dvaldist hún fyrst hjá Ara
TIL LEIGU
Skrifstofuhúsnæði
Gott, stórt skrifstofuherbergi er til leigu í Brautar-
holti 20. — Nánari upplýsingar á staðnum eða í
síma 19717.
Verkfræðingafélag íslands.
Sklpstjóii — StýrinnuSur
Regiusamux stýrimaður eða skipstjóri, sem er vanur
togveiðum, getur fengið framtíðarstarf á togara í
Kanada. — Þeir, sem hafa hug á þessu, leggi nöfn
sín og heimilisfang inn á afgr. Mbl. fyrir 14. apríl
n.k. merkt: „KANADA — 6684“.
ARÉVALO
Hákarlinn og sardínumar
Lesið bók Arévalos, fyrrum forseta í Guatemala.
Ein af félagsbókum Máls og menningar 1962.
HflÁL og IVflEIMiVIING
Laugavegi 18.
TÆKIFÆRISKAUP
Se//um þessa viku kjóla verð kr. 100,oo, 200,oo og 350,oo
PHs frá kr. lOO.oo
Poplinjakka kr. 350,oo
Apaskinnskápur kr. 500,oo
> :
Nœlonsloppa kr. 150,oo
Plastregnkápur kr. 350,oo
Ýmsar aðrar vörur mjög ódýrar
Klapparstíg 44.
Stýrimann vantar
á bát, sem rær með net úr Grindavík. —
Upplýsingar í síma 34580.
Lœkningastofa mín
er flutt að Aðalstræti 16. — Viðtalstími kl. 1—2,
nema miðvikudaga kl. 5—6 og iaugardaga kl. 11—12.
Btagnar Arinbjarnar
IVýkomnar eru á markaðinn
tvær EP hljólmplötur með
íslenzkum kórsöng:
ALÞfDUKðRINK
Söngstjóri: Dr. Hallgrimur Helgason, með íslenzkum
þjóðlögum og lögum eftir dr. Haligrím Helgason og
Sigursvein D. Kristinsson.
.———1
Lð«l»ai.UKA« RCYKitvíxua
KALDALONSKVIDA
Lög eftir Sigvalda Kaldalóns sungin af Lögreglukór
Reykjavikur undir stjórn Póls Kr. Pálssonar.
FÁLKINN
Hljómplötudeild.