Morgunblaðið - 03.04.1963, Blaðsíða 15
MiðviKudagur 3. apríl 1963
15
U O R C V IV B L 4 0 I B
Höfum til sölu
steypumottur
Sölunefnd varnarliðseigna
SumarhústaBur
í nágrenni Reykjavíkur óskast til kaups eða leigu.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 8. apríl, merkt: —-
„Áreiðanlegur — 1808“.
Afgreiðslustarf
Kvenmaður, ekki yngri en 30 ara, óskast til
afgreiðslustarfa á
Sérleyfistöð Steindórs
Vaklaskipti. — Upplýsingar í síma 18585.
E.A.BERG
Verkfærin
sem endast
- OLFUSA
Frambald af bls. 13.
undir hafnargerð í Þorlákshöfn,
þar sem Sunnlendingar eygja nú
í fyrsta sinn vísi til ssemilegrar
hafnairstöðu á Suðurlandsundir-
llendi. En þingið leggur áherzlu
é það, að möguleikar til hafnar-
gerðar annars staðar á Suður-
landi séu ekki vanræktir. í því
sambandi bendir þingið á þau
miklu útflutningsverðmæti, sem
aflað er frá Stokkseyri og Eyr-
arbakka við mjög erfið skilyrði,
og telur því augljóst, að keppa
beri að því að auka þar útgerðar-
skilyrði og lendingarbætur eftir
föngum, því að þau muni skila
sér aftur í stórauknum aflaverð-
mætum.“
Manni verður á að spyrja:
Hvað hefur gerzt og hvað er að
gerast? Nú er ekki minnzt á
brú á Ölfusárósa, þetta óskabarn
Framsóknar, sem Jörunduir
Brynjólfsson kom inn á brúar-
3ög 1953 og alitaf hefur verið
Jclifað á síðan. Nú er ekki minnzt
á að hin fyrirhugaða brú sé bjarg
vættur' þessarra þotrpa, heldur
alveg sleppt og þess í stað verði
byggðar hafnir bæði á Eyrar-
bakka og Stokkseyri og í Þykkva
bæ og Dyihólaey að auki!
Hvers konar skrípaleikur er
þetta eiginlega? Um mörg ár hef-
ur því verið haldið fram, að um
bafnarbætur væri ekki að ræða
á Suðurlandi nema í Þorláks-
Ihöfn og brú á Ölfusárós væri
eina lausnin til þess að bjarga
fólkinu hér um slóðir. Hafa ein-
hver þau náttúrufyrirbæri gerzt,
sem skapað hafa allt í einu mögú-
leika á hafnargerðum á öllum
þessum stöðum? verður manni
á að spyrj a. Nei, vissulega hefur
ekkert slíkt gerzt, nema þá það
eð menn eru farnir að hugsa
um þessi mál. Þessjr staðir hafa
allir verið til frá fyrstu tíð og
bar tvímælalaust að rannsaka
þá alla ýtarlega að ógleymdri
Ölfusá, sem kunnugasti og at-
huglasti maður á þessum slóð-
um hefur sagt í mín eyru og ann-
arra, að fyrst og fremst hefði
átt að athuga ýtarlega, þegar um
tiafskipahöfn hefði verið að ræða
og það áður en lagt var í hinar
fjárfreku og tvísýnu hafnarfram-
ikvæmdir í Þorlákshöfn.
Ég fagna því sannarlega, að
þessi ályktun er komin fram og
hefði mátt koma fyrr. En
kannske eru augu manna farin
að opnast fyrir þvú, að á Stokks-
eyri og Eyrarbakka hafa komið
fleiri verðmæti en fiskurinn úr
sjónum (og ætla ég engan veg-
inn að gera lítið úr honum),
verðmæti, sem verða ekki látin
í askana, en sem þjóðin viidi
kannske sízt án vera, og hafa
þessi tvö þorp á hinni brimgnauð
andi strönd ekki látið sitt eftir
liggja í þeim efnum, en út í
þá sálma ætla ég ekki lengra í
þetta sinn.
Nafni minn lýkur grein sinni
með þessum orðum:
„Björgvin Þorsteinsson hefur
unnið óþurftarverk með grein
sinni. En af því að ég þekki
hann að öðrum verkum og betri
og í trausti þess, að hann láti
slíkt ekki henda sig aftúr, fyrir-
gef ég honum frumhlaup þetta“.
Ég veit ekki til að ég þurfi
að biðja þig fyrirgefningar á
neinu, nafni mirm, og seinast
mun ég biðja þig fyrirgefningar
á umræddri grein, en þetta grein-
arkorn mitt hefur þó komið þessu
umdeilda máli á hreyfingu. Og
ef það yrði að einhverju leyti til
að bjarga þessum þorpum frá
auðn og eyðileggingu þá er ég
ánægður og tilgangi mínum náð.
Selfossi, 25. marz 1963
BjörgVin Þorsteinsson.
BOLZANO - RJLKBLÖÐIN
rtka jafnvel og þau beztu-en eru ntikið ódýrari
Verb: 10 stk. pakkar
mm
G Y L L T
30.00
25.00
B L A
16.00
Umboðs- og heildsala:
* Þórður Sveinsson & Co. h.f
B L A
Reykjavík
Aðeins eitt simtal
og flugferðin — skipsferðin —
gistingin og ferðalagið — allt
er tryggt.
Við seljum yður flugfarseðlana
við lága verðinu og önnumst
alla ferðaþjónustu innan
lands sem utan.
ATH.: Nú er rétti tíminn til að
ákveða sumarferðalagið.
LORID & LEIÐIR HF.
Aðalstræti 8.
Fulltrúaráö S jálf stæði sf élaganna í
Fundur verður haldinn í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í kvöld kl. 20,30
í Sjálfstæðishúsinu.
Fundarefni: Tillaga kjörnefndar um framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins við
Alþingiskosningarnar.
i
Fulltruar eru beðnir að mæta stundvíslega og sýna skírteini sín við innganginn.
_____________________________________________ Stjórnin.