Morgunblaðið - 03.04.1963, Síða 24
Sjópróf vegna Höegh Aronde-slyssins:
Skipsmenn töldu sig öruggari í
skipinu, en í björgunarbátunum
Þegar Guðmundur Helgason æflaði
i bjorgunarbát, bað stýrimaðurinn
skipsmenn að biða átekta
EINS os skýrt hefur verið frá
í fréttum sökk norska flutninga
skipið „Höegh Aronde“ undan
strönd Marokkó um miðjan marz
sl. og fórust 19 menn af áhöfn-
inni. Meðal þeirra, 13 skii>s-
Ingvar Jóhann Sigurð'sson
manna, sem björguðust var, sem
kunnugt er, Keflvíkingurinn Guð
mundur Helgason, en hann var
vélamaður á skipinu.
í fréttum frá norsku frétta-
stofunni NTB í gær, segir, að
sjópróf vegna slyssins hafi farið
fram í Osló í gærmorgun og var
Guðmundur meðal þeirra, sem
báru vitni. í skeytinu frá NTB
segir m.a.: Yfirheyrslur sem
fram fóru í sjórétti í Osló vegna
sjóslyssins undan Marokkóströnd
er flutnigaskipið „Höegh Aron-
de“ sökk, virtust benda til þess
að orsök slyssins væri sú, að
loftræstingarrör, sem gekk nið
ur í fremsta hluta 1. lestar hafi
brotnað og sjór komiat í lestina.
Mjög vont veður var, er slysið
varð. Sex þeirra, sem komust
lífs af er skipið sökk báru vitni
við sjóprófin. Þeirra á meðal i
var fyrsti stýrimaður Martinius J
Mork. Hann sagðist hafa tekið
við vaktinni á miðnaetti nóttina, !
sem siysið varð. Hafði hann þeg
ar veitt þvd athygli að skipið var
Banaslys í Hafnarfirði
ÞAÐ slys varð í verksmiðjunni
Eýsi & Mjöl skömmu eftir há-
degi á mánudag, að 13 ára pilt-
ur slasaðist mjög illa á höfði og
var fluttur meðvitundarlaus í
Landsspítalann í Reykjavík.
Andaðist hann þar síðdegis í
gær.
Nafn hans var Ingvar Sigurðs
son til heimilis að Hólabraut 12
í Hafnarfirði. Varð slysið með
þeim hætti, að hann ásamt fleiri
mönnum var að vinna í mjöl-
skemmu, þegar um þriggja
metra há mjölpokastæða hrundi
skyndilega. Sneri haim baki við
pokunum, en talið er að missig
hafi valdið hruninu. Varð Ingvar
fyrir pokunum með fyrrgreind-
um afleiðingum en hinir menn-
irnir sluppu vð meiðsli utan einn,
sem skrámaðist nokkuð.
farið að hallast dálítið á bak-
borða. 45 mínútum síðar var
dregið úr ferð skipsins, dekkljós
tendruð og hafin athugun á því
hvort allt væri með felldu. >á
kom í Ijós, að mið-loftræstingar
rörið framarlega á 1. lest, hafði
Framh. á bls. 23
KLUKKAN rúmlega tíu í gær-
kvöldi hóf sig til flugs á Kefla
víkurflugvelli, fhigvél frá hol-
lenzka flugfélaginu KLM, með
13% tonn af lifandi íslenzkum
hestum innanborðs. Hestamir
vom 48 að tölu, flestir lítt eða
ótamdir folar ættaðir norðan
úr Skagafirði.
Flugvélin, Arabian Sea, sem
er af gerðinni DC-7G, lenti á
Keflavíkurflugvelli laust fyrir
MYND þessi sýnir þegar verið var að girða af f jrystu sex
hestana, sem settir voru um borð í hollenzku flugvélina.
Sérstakir krókar eru í veggjum vélarinnar sem tengja má
í, þannig að mjög fljótlegt er að ganga frá hestunum í
vélinnL
48 íslenzkir hestar flutt-
ir flugleiöis til Sviss
klukkan hálf sjö, og biðu henn
ar þá fimm yfirbyggðar vöru-
bifreiðar fullar af hestum, lyft
ari frá varnarliðinu með gripa-
stíu frá Eimskip og' nokkrir
menn, sem komnir voru til að
aðstoða áhöfn vélarinnar við
ferminguna.
Þegar vélin var komin upp
að farþegaafgreiðslunni var
ekið stiga að framhluta vél-
arinnar, og þar gengu fimm
einkennisklæddir flugmenn
niður, en á miðju vélarinnar
var opnuð mikil hurð, og þar
birtust fjórir gallaklæddir
menn úr áhöfninni. Lyftaran-
um með gripastíunni var ekið
að vélinni og fyrsti vörubíllinn
bakkaði að stíunni og fyrsti
folinn rekinn inn í hana.
Síðan var stíunni lyft upp að
hurðinni á vélinni og folinn
gekk inn í vélina.
Við fórum um borð til að
forvitnast um hvernig færi um
dýrin. Fyrstu folarnir voru
teymdir fremst í vélina, og
þegar 6 voru komnir um borð
var girðingu úr teygjanlegum
ólum spennt þvert yfir vélina
svo að hún lokaði hestana
gersamlega af. Síðan var bætt
6 hestum þar aftan við, þeir
girtir af og svo koll af kolli.
Alls fóru 48 hestar í vélina,
en útflytjendurnir voru mætt-
ir með þrjá til viðbótar á vell-
inum ef með þyrfti. Flugvélin
flýgur beina leið til Ziirich í
Sviss, en þaðan verður folun-
um dreift um Norður-Sviss,
einn til fjórir á hvern stað.
Við tókum flugstjóra vélar-
innar, Van Steyn, tali, og hann
byrjaði að segja okkur, að
hann hefði einu sinni áður
Framh. á bls. 23
Enn jarðskjálftakippir
Vikuaflahrota í Eyjum:
Frystigeymslur að fyllast
VESTMANNAEYJUM, 2. apríl
— Undanfama viku hefur verið
mjög góður afli hjá Vestmanna
eyjabátum. Oft hafa að vísu kom
ið aflameiri dagar hér, en aflinn
hefur verið jafnari og stcðugri
en mörg undanfarin ár. Þessa
Fulltrúardðs-
fundur um frum-
boðslisfann
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðis
iélaganna í Reykjavík heldur
iund í kvöld 3. apríl kl.
20.30 í Sjálístæðishúsinu.
Fundarefni: Tillaga kjör-
neíndar um íramboðslista
Sjálístæðisflokksins í Reykja
viku hafa komið 800—1200 lest-
ir á Iand á dag, bátarnir verið
með 20—40 lestir í róðri og sum
ir meira. Þó virðist ætla að verða
heldur minni afli í dag, en bátarn
ir eru ekki komnir að.
Mannekla er hér mikil, færra
vertíðarfólk í vetur en undan-
farin ár. Gagnfræðaskólinn hef-
ur gefið vinnufrí síðan fyrir
helgi, svo nemendur gætu unn-
ið í frystihúsunum, en nú munu
þeir eiga að koma aftur í skól-
ann,
Bátamir í aðrar verstöðvar
í aflahrotunni að undanförnu
hafa fiskvinnslustöðvar orðið að
senda viðskiptabáta sína í aðrar
verstöðvar af því þær gátu ekki
tekið við meiru. T.d. þurfti ís-
félag Vestmannaeyja í dag að
senda 4 af sínum bátum til Þor
lákshafnar og Grindavíkur og
aðra tvo í gær. Einnig hefur
Fiskiver þurft að senda frá sér
báta.
Annað alvarlegt mál er að
geymslurými frystihúsanna er að
fyllast og stendur á flutningum
úr frystigeymslunum. Lítur alvar
lega út með það ef ekki lagast
fljótlega.
Flenzan veldur erfiðlcikum
Undanfarna daga hafa ýmsir
bátaformenn átt í því að kom-
ast illa út vegna manneklu Og
veikinda. Flenzan hefur verið að
stinga sér niður undanfarna daga
þrátt fyrir það að fiskiðjuverin
og útgerðarmennirnir létu bólu-
setja þá sem vildu fyrir 3—4
vikum. Veldur það erfiðleikum,
þó ekki liggi nema maður og
maður á bát, þar sem engan má
missa. Veit ég til að bátar hafa
legið 1 einn dag og bjargast svo
á lánsmönnum eða með færri
skipsmenn en lög gera ráð fyrir.
ENN fundust jarðskjálftul-.ippir
í gærmorgun og fyrrinótt á norð
urlandi milli Húnaflóa og Eyja
fjarðar. Kom snarpur kippur um
9 leytið í gærmorgun og sums
staðar fundust fleiri vægir kipp
ir nóttina áður. Blaðið hafði sam
band við nokkra fréttaritara í
gær, sem símuðu:
Bæ, Höfðaströnd
— f morgun kom hér jarð-
skjálftakippur og í nótt, líklega
kl. 2—3, vaknaði fólk við jarð-
skjálfta. Þessir kippir sem núna
kcma, eru litlir og skemma ekk-
ert. Þó hreyfast hlutir og rúður
skjálfa. Þetta gerir fólk hrætt og
órólegt að geta alltaf átt von á
þessu.
Siglufjörður
Klukkan rúmlega 9 í morgun
varð vart við allsnarpan jarð-
skjálftakipp hér á Skagaströnd.
Kippurinn var svo snarpur að
fólk vaknaði af svefni. Hér er
hálfgerður geigur í fólki enn, og
dæmi eru til þess að fólk hafi
fengið taugaáfalL
Siglufjörður,
Skagaströnd
Rúmleiga 9 í morgun varð hér
vart við jarðskjálftakipp, sem
ekki fór hjá að menn yrðu var-
ir. í gær urðu tveir smákippir
og hefur orðið vart við kipp á
hverjum deigi, síðan þeir hófust
,Fólk tekur þessu með ró og
sem eðlilegum hlut, og telur sig
ekki eiga von á neinum stórum
jarðskjálftum.
Vonir Siglfirðinga standa nú
til að skarðið verði rutt fyrir
páska, enda er mjög lítill snjór
orðinn etftir. Hér er blíðalogn
eins Og á bezta sumardegi og
dásamlegt veður og 6—8 stiga
hitL
Ólafsfjörður
Klukkan rétt rúmlega níu f
morgun varð hér vart við jarð
skjálftakipp, sem mönnum ber
saman um að hafi verið sá snarp
asti, sem komið hefur síðan nótt
ina, þegar ólætin dundu yfir.
Hér er annars blíðskaparveður
sólskin og logn.