Morgunblaðið - 10.04.1963, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.04.1963, Qupperneq 1
24 síður 56 árgangur 84. tbl. — Miðvikudagur 10. apríl 1963 Prentsmiðja Morgunblaðslns FYRIR Bátar farast annarra saknað í GÆRMORGUN skall skyndilega á óveður yfir Norður- land og í veðrinu urðu mannskaðar. Trillubáturinn Valur E 110 frá Dalvík sökk og fórust tveir menn, og saknað er 9 smálesta Dalvíkurbáts, Hafþórs EA 102 með 5 mönnum. Þá sukku tvær trillur frá Dalvík, en mannbjörg varð. — Einnig er saknað tveggja trillubáta frá Þórshöfn með 4 niönnum og var verið að leita þeirra í gærkvöldL Fjöldi annarra báta áttu í erfiðleikum með að ná til hafnar, og í gærkvöldi lágu víða bátar í vari eða stórir bátar með minni báta í togi. Úti fyrir Skagaströnd lónuðu tveir Hólmavíkurbátar, sem ekki treystu sér inn. Óveður þetta kom frá Norður-Grænlandi og var ekki búizt við því fyrr en degi síðar. Svo skyndilega skall það yfir, að klukkan 9 um morguninn var blíðskaparveður um land allt, Iygnt og gott, en 3 tímum síðar var hríðarveggur- inn kominn suður yfir Vestfirði. Fór veðurhæðin allt upp í 11 vindstig og írost niður í 11 stig á Vestfjörðum. Fylgdi dimmur hríðarbylur og mikill snjór. Daivíkurbátar farast Dalvik, 9. apríl. — Það er nú vit- að að vélbáturinn Valur, EA 110, 6 smáiestir að stærð, héðan frá Dalvík, fórst í dag á Grímseyjar- Bundi Tveir menn voru á bótn- um. Strandferðaskipið Esja kom að bátnum um kl. 3 og var í fylgd með honum er hann sökk.Tákst að ná öðrum Biannkium um borð meðvitundarlausum, en hinn fannst ekki. Fór Esj a með hinn meðvitundarlausa mann til Akureyrar, en þegar þangað var komið, var hann örendur. Nöfn sjðmannanna er ekki hægt að birta, sikv. ósk aðstandenda, en þeir eru báðir frá Dalvík. Er nánar sagt frá slysinu í frétt frá Akureyri á bls. 2. Framhald á bls. 2. Mynd þessi var tekin í rokinu i gær, er hafns ögubátur var á leiðinni inn i Reykjavíkurhöfn síðdegis. — Ljósm.: Ól. K. M. Tveggja Þdrshafnarbáta með fjórum mönnum saknað Þórshöfn, 9. apríl. STÓRIfRÍÐIN skall á hér upp úr hádeginu og þá voru þrjár trill- ur héðan á sjó. Ein þessara trilla kom heilu og höldnu í höfn um kl. 7 í kvöld. Hafði hún séð til hinna tveggja um kl. 5 í dag, önnur var þá henni en hin á eftir. á undan Georg Ragnarsson er formaður á trillunni sem náði landi og ætlaði hann að bíða þeirrar, er var á eftir, en skyggni var þá Hagsfæðas jöfnuður frá Vaxandi framleiðsia og útflutningur >* ^ IJr ársskýrslu Seðlabanka Islands ÁRSSKÝRSLA Seðlabanka íslands, fyrir árið 1962, var birt f gær. Þar kemur m.a. í ljós, að: ★ Samkvæmt bráðabirgðaáætlunum Efnahagsstofnunar- innar er talið, að aukning þjóðarframleiðslunnar á ár- inu 1962 hafi nnmið 5%. en var 3% 1961. ★ Viðskiptajöfnuður var hagstæður á árinu, sem nemur 88 millj. kr. Er þá inn- og útflutningur reiknaður á fob-yerðL Áætlanir sýna, að greiðslujöfnuður — sem sýnir raun- verulega afstöðu þjóðarinnar gagnvart útlöndum — var hagstæður. Er afstaðan betri en 1961, en aðeins þessi tvö ár, frá stríðslokum hefur greiðslujöfnuður verið hagstæður. ★ Gjaldeyrisstaðan hatnaði um 623 millj. kr. á árinu, og var gjaldeyriseign í árslok 1150 millj. kr. 1 greiðslu- stríðslokum Spariinnlan jukust mcira á árinu, en nokkru sinni fyrr, eða um 762 millj. kr., Heildarlánaaukning bankanna nam hins vegar 633 ínillj. kr., þar með talin 55 millj. kr. lán Stofnlánadeildar sjávarútvegsins. 'k Afborganir af löngum, erlendum lánum námu á árinu 447 millj. kr., en lántökur til langs tíma 370 millj. kr. Erlendar skuldir til langs tíma lækkuðu því um 77 milljónir króna. ★ Greidd hafa verið til fulls yfirdráttarlán hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og Evrópusjóðnum, að upphæð 595 millj kr., tekin 1960. ★ Heildarverðmæti útflutnings jókst um 538 millj. kr., eða 17%. Innflutningiu: jókst um tæp 20%, ef skip og flug- vélar eru frátalin. ★ Aðstaða banka og peningastofnana við Seðlabankann batnnði um 592 millj. kr. ★ Þenslu gætir nú í efnahagskerfinu, og liggja aðallega til þess tvær orsakir: Tekjuaukning í sjávaiútvegnum og óeðlilegar launahækkanir. Sjá nánar ræðu Jóns G. Maríassonar, bankastjóra, for- manns bankastjórnar Seðlabanka íslands, á blaðsíðu 13. — svo lélegt ' að hann tapaði af henni. Fyrst eftir að Georg kom að landi taldi hann eðlilegt að nokkuð drægist að hinar trill- urnar kæmu, þær hefðu getað farið lengri leið, þar sem <jýPra var. En svo kom að þetta gat ekki verið eðlilegt og var þá far- ið að leita fjörur og stóð svo enn um kl. 10 í kvöld. Var þá ekkert vitað um afdrif bátanna. Á trillum þessum voru fjórir menn, tveir á hvorri. Er trillan Georg kom að var sjór enn ekki mikill. en fór mjög versnandi. — Einar Raufarhafnarhátar í höfn FRÉTTARITARINN á Raufar- höfn símaði: Hér er þreifandi stórhríð og hefur verið síðan kl. 12 á há- degi. Er þetta fyrsta hríðin að talizt geti í vetur og langt síðan við höfum séð snjó. Allir bátar héðan voru á sjó, en eru komnir að. Einn komst ekki heim, en er kominn að I Þyrstilfirði. Arnarfellið var að losa hér, og slapp frá undan veðrinu. Esjan var hér í nótt á vesturleið og var farin áður en hríðin skall á. Síldarbátarnir í vari SÍLDARBÁTARNIR við Suð vesturlandið fengu margir sílc í gær út af Reykjanesinu, ei eftir að hvessti og óveðrið gekl á, treystu þeir sér ekki inn fyria og lágu í vari. Mun mörgum sílc arskipstjóranum hafa þótt súrt . brotið að koma ekki aflanum ; lancL \

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.