Morgunblaðið - 10.04.1963, Síða 2
2
MORCVNBLÁÐIB
Miðvikudagur 10. apríl 1963
Bát hvolfir rétt við Esju
Báðir bátsverjar fórust
AKUREYRI — Ms. Esja fór frá
Húsavík kl. rúmlega 12 í dag.
Var þá gott veður, en aðeins
farið að kula á norðaustri og
þyngdi óðum að. Frá skipinu
sást til margra smábáta og voru
þá menn settir á vörð til að
gefa þeim gsetur því að séð var,
að óveður var í aðsigi, enda skall
það á mjög snögglega.
Er komið var út af Þorgeirs-
— Dalvík
Framhald af bls. 1.
Tveir bátar yfirgefnir
I>á voru tveir bátar héðan,
Helgi og Sæbjörg, yfirgefnir, er
þeir voru á heimleið skammt
norðan við Gjögur, og munu þeir
báðir hafa sokkið. Tveir menn
voru á hvorum þeirra, og björg-
uðust þeir um borð í vélbátinn
Ármann frá Ólafsfirði, sem síðan
hélt til Akureyrar, en hann
treysti sér ekki inn hér. Á Helga
eru Gylfi Björnsson og Guð-
mundur Jónsson, báðir frá Dal-
vík; og á Sæbjörgu Ingimar Lár-
usson og Ragnar Jónsson, einnig
frá Dalvík.
Óttast um bát með
5 mönnum.
Þá er einn bátur, Hafþór,
EA 102, sem er 9 smálestir,
ókominn að landi, en til hans
sást síðast kl. 1.30 í dag frá
vélbátnum Ármanni. Hafði
bann þá stefnu á Dalvik. Þá
var Ármann að bjarga mönn-
unum af hinum bátunum. Er
farið að óttast um afdrif hans.
Á bátnum eru 5 menn. Haf-
þór hefur síðustu daga stund-
að loðnuveiðar. Mcnnirnir eru
frá Dalvík. Fréttir eru enn ó-
Jjósar af þessum atburðum.
En reynt hefur verið að fylgj
ast með því sem gerzt hefur í
dag í gegnum talstöð, og af
samtölum þeirra skipa, sem
aðstoðað hafa bátana, en þau
eru togskipið Björgúlfur og
Snæfell, svo og varðskipið
Ægir.
Þá hafa tveir opnir vélbátar
héðan, Þorleifur og Skíði, en á
honum var einn maður, leitað
hafnar í Hrísey.
Gott veður um morguninn.
í morgun var hið bezta veður
hér og voni því allir bátar á sjó.
Byrjaði að hvessa um kl. 11 i
morgun og snjóa og um hádegi
var komin stórhríð, sem haldist
hefur í allan dag. Eftir því sem á
daginn hefur liðið, hefur frost
harnað og snjór aukizj. Ekkert
iát er á veðrinu enn.
Dýptarmælirinn sýndi aðeins
öðru hvoru.
Eg átti tal við skipstjórann á
Faxa, Sverri Sveinbjörnsson, en
hann kom seinastur að landi í
dag um kl. 6. Segist honum svo
frá, að hann hafi "lagt línu sína í
nótt 4—5 mílur út af Fjörðum.
Kl. eitt fór áð hvessa, en samt
hélt hann áfram að draga línuna
og lauk því stuttu síðar. En kl.
2,30 var komið aftakaveður. Varð
hann að sigla hægustu ferð í
land. Sýndi dýptarmælirinn hjá
honum aðeins öðru hvoru vegna
veltings.
Kl. 4 fór hann fram hjá Sæ-
björgu, en þá höfðu mennirnir yf
irgefið hana. Sagði Sverri'r að
hann hefði talað við Hafþór síð-
ast kl. 10 í morgun, en þá hefði
hann lagt af stað heim. Hafði Haf
þór kastað í morgun í botni
Sjálfandaflóans, en ekkert svar
fengið. Sá hann síðast til hans kl.
1. Þá fór hann fram hjá honum.
Sagði Sverrir að lokum, að hann
hefði kallað í Hafþór nokkrum
sinnum síðar, en ekkert svar feng
ið. — K.S.
firði kl. 14.00 var siglt fram á
þilfarsibátinn Val EA 110 frá Dal-
vík. Þá var komið ofsaveður og
mikil hríð. Esja sveigði að bátn-
um og bauð fram aðstoð, ef á
þyrfti að halda. Bátsverjar ósk-
uðu að Esja fylgdist með sér
fyrir Gjögrana og var svo gert.
Var Valur jafnan til hlés við
Esju, er hélt mjög hægri.ferð.
Kl. 15.08, í því oeygt var
fyrir Gjögrana komu tvö
brot, voðaleg ólög og skipti
þá engum togum að Val
hvolfdi og maraði hann í kafi.
Var hann þá um bátslengd
aftan við Esju, sem setti á
fulla ferð, sigldi í sveig og
kom aftan að bátnum. Sást
þá annar bátsverja á floti í
sjónum, en til hins sást aldrei,
enda hefur hann sennilega
verið í stýrishúsinu og ekkí
komizt þaðan.
Þegar var skotið út gúmmí-
bát, en ekki farið í hann, sem
betur fór, því hann slitnaði óð-
ar frá og hvarf í, sortann. Mann-
inum var náð upp í Esju kl. 15.12
eða aðeins 4 mínútum eftir að
bátnum hvolfdi. Voru þegar
hafnar lífgunartilraunir og þeim
haldið áfram án afláts alla leið
til Akureyrar.
Ljóst er að skipstjórinn á
Esju, Tryggvi Blöndal, og skips-
VEÐRIÐ kom suður yfir Breiða-
fjörð um 1 leytið í gaer. Ekki er
vitað til að neinir bátskaðar hafi
orðið á Suðvesturlandi, en ýms-
ir smábátar áttu þó í erfiðleik-
um í veðrinu, og var óttast um
suma þeirra fram eftir degi.
Eina trillu vantaði af Akra-
nesi, en hún kom til Reykja-
víkur um kl. 5. Mummi frá Sand
gerði bilaði við Eldey og fór
Oðinn honum til hjálpar og var
með hann í eftirdragi í gær-
kvöldi.
Bátar af Hellissandi og Ólafs-
vík komu flestir inn snemma.
Trillubáturinn Sætindur frá
Sandi hitti bátinn Sæborgu, sem
tók trilluna aftan í og lá með
hana sunnan undir Svörtuloftum
í gær, en komst ekki inn.
Farið var að óttast um Krist-
leif frá Ólafsvík, sem er trilla.
Fóru bátar út að leita að henni
Húsvíkinga
að lengja
Húsavfk, 9. apríl. — Hér náðu
allir bátar heilir í höfn. í nótt
reru héðan flestir bátar og þar á
meðal 20 trillur. En í morgun,
strax og veðrið fór að versna,
héldu trillurnar til lands og voru
allar komnar áður en hríðin
skall á. En þá var orðið all-
hvasst. Dekkbátarnir voru líka
komnir fyrir hríðarveðrið nema
tveir, Andvari, 17 lesta, og Grím-
ur, 8 lesta. Andvari var út með
Tjörnesi, en Grímur út við
Grímsey. Talsamband náðist
strax við Andvara, en í Grími
heyrðist síðast kl. 12, og var hann
þá að leggja af stað frá Grimsey
og áætlaði að vera kominn heim
kl. 4. Menn var þvi farið að
lengja mjög eftir bátnum kl.
höfn hans, hafa hér sýnt mikið
snarræði.
LEITAÐ Á SLYSSTAÐ
Vélskipið Björgúlfur frá Dal-
vík var statt rétt hjá slysstaðn-
um. Var kallað í hann og hann
beðinn að halda áfram leitinni,
en Esja hélt af stað áleiðis inn
Eyjafjörð kl. 15.15 með fullu
vélaafli, nema hvað draga varð
úr ferðinni annað veifið vegna
stórsjóa og ólaga. Ráðgert var
að fá lækni út 1 Esju frá Dalvík,
en það voru engin tiltök, svo
haldið var til Akureyrar.
Skömmu síðar sá Esja trill-
una Helga frá Dalvik, sem var
mannlaus á reki, en í ljós kom,
að af henni hafði mönnunum ver
ið bjargað.
Kl. 16.45 var komið að Víði
ÞH 210 frá Grenivík, sem stadd-
ur' var austur af Hrísey. Bað hann
um fylgd til Akureyrar, sem ekki
var unnt að veita eins og á stóð,
en honuim fylgt upp undir
bryggju í Hrísey.
MAÐURINN LÁTINN
Þegcir Esja kom tii Akureyrar
kl. 7 í kvöld, var lögregla mætt
með sjúkrabifreið á bryggjunni.
Reyndist maðurinn þá látinn.
Skipverjar á Esju sögðu veðrið
ha'fa verið afskaplegt og sjald-
an séð verra sjólag eða meiri
sjó á Eyjafirði.
Allt var á tjá og tundri í í-
búð skipverja eftir veltinginn.
og eins var landhelgisflugvélin
Síf farin að svipast um eftir
henni, þegar hún kom inn af
sjálfsdáðum um 6 leytið. Þá var
snarvitlaust veður, en engin
snjókoma norðan við Snæfells-
nesið.
Fréttaritari blaðsins átti tal
við Steindór Arason á Krist-
leifi. Hann sagði að þeir hefðu
verið staddir 14 sjómílur NA af
Rifjum, þegar veðrið skall á og
hefði hvesst úr logni á 10 min-
útum. Var eins og hendi væri
veifað þarna úti. Átti hann þá
4 balla ódregna af línu. En þeir
náðu línunni og komu að landi
með 3 lestir af fiski. Á bátnum,
sem er 9 lestir að stærð, eru
tveir menn. Segist Steindór hvað
eftir annað hafa beðið landssím-
ann um talstöð og hefur ekki
fengið hana enn. Gat hann því
ekki látið vita af sér.
var farið
eftir báti
18.30, en þá kom hann heilu og
höldnu.
Á bátnum eru 2 menn, for-
maður Þormóður Kristjánsson,
og sagði hann ferðina hafa geng-
ið vel þó haugasjór og blindbyl-
ur hefði verið mestan hluta leið-
arinnar. Landkenningu hafði
hann aldrei fyrr en hann kom
rétt upp undir höfnina hér. Or-
sök þess, að þeir létu ekki heyra
til sín í talstöðinni var sú, að hún
er frammi í lúkar, og formaður-
inn vildi ekki yfirgefa stýris-
húsið.
Hér í höfninni sökk í dag ein
trilla, og önnur slitnaði upp og
rak á land. Ókunnugt er hve
mikið þær eru skemmdar.
— FréttaritarL
llvessli úr logni
á 10 mínútum
¥ Snjókoma 9 Ú&i «** \7 Skúrir K Þrumur W!%, Kuldoakil Hitothii H H»$ * L*Lmoi\
I NA /S hnútor
| y SVSQhnútor
I GÆR á hádegi var að skella
á hvöss norðan átt með snjó-
komu um norðanvert landið.
Ennþá var hægviðri og 4—5
stiga hiti í innsveitum á Norð
urlandi, en komið frost á an-
nesjum nyrðra og á Vestfjörð
um. Á sunnanverðu landinu
var V-gola, bjart og 5—8 stiga
hiti.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
SV-land og miðin: Hvass NA
og léttskýjað, heldur hægari á
morgun.
Faxaflói og miðin: Hvass NA
og él norðan til í nótt, heldur
hægari og léttskýjað á morgun
Breiðafjörður og miðin: NA
stormur og víða él í nótt, held
ur hægari og úrkomulaust á
morgun.
Vestfirðir til Norðurlands
og miðin: NA hvassviðri, stinn
ingskaldi eða allhvass á morg-
un. minnkandi snjókoma.
NA-land og miðin til Aust-
fjarðamiða: NA hvassviðri,
snjókoma.
Austfirðir: Hvass NA, snjó-
koma norðan tiL
SA-land og miðin: Norðaust
an átt, sums staða rstormur,
léttskýjað.
Horfur á fimmtudag:
Norðlæg átt, él norðan lands
en léttskýjað á SuðurlandL
Hólmavíkurbátar and-
æfa við Skagastrand
FRÉTTARITARINN á Skaga-
strönd símaði: — Okkar bátar
komu allir að skömmu eftir að
óveðrið skall á. En tveir bátar
frá Hólmavík náðu ekki landi
heima og freistuðu að koma
hingað.
Guðmundur frá Bæ, sem er
36 lestir að stærð, er hér fyrir
framan, en treystir sér ekki til
að taka land vegna dimmviðris.
Hann kastaði ljósbauju og and-
æfir við hana, og hefur gert það
síðan kl. 3 í dag.
Hilmir frá Hólmavík, sem rær
frá Steingrímsfirði, mun hafa
verið staddur út af Bjarnarfirði
er óveðrið skall á og treystist
ekki til að taka Steingrímsfjörð.
Hélt hann því austur yfir Húna
flóa. Hann vissi ekki í kvöld ná-
kvæmlega hvar hann var stadd-
ur,'en hann hafði einnig kastað
ljósbauju og andæfði við hana og
'hugðist gera það meðan hann
sæi ekki til.
Báðir bátarnir eru í talsam-
bandi við land. Þegar bátanna
var von var bifreið ekið upp á
Höfðann og ljósum hennar beint
á haf út, ef bátarnir kynnu að
sjá þau ef rofaði tiL Er grenjandi
stórhríð Og hífandi rok með
frosti.
IVieð úfblásinn
gúmbát á dekki
FRÉTTARITARL bíaðsins
Flateyri símar:
Hér brast á með norðaustan-
stormi í morgun. Tveir bátar
voru á sjó. Annar báturinn, Ein-
ar Þveræingur, varð fyrir sjó 4
sjómílur út af Barða. Sendi bát-
urinn út neyðarskeyti, þar sem
sagði að hann væri að sökkva.
Nokkru seinna kom önnur
orðsending frá bátnum, sem
sagði að ástandið væri ekki eins
slæmt og litið hefði út í fyrstu
og mundi báturinn komast í
land.
Báturinn kom svo að landi kl.
4.25 með útblásinn gúmmíbát á
dekki. Skemmdir urðu ekki telj-
andi á bátnum. Þó brotnaði skjól
borð aftan til á bakborðssíðu.
María Júlía var hér á firðin-
um og einnig Goðafoss. Brugðu
þau skjótt við og voru reiðubú-
in til aðstoðar, ef með þyrfti.
Eins var landhelgisflugvélin far-
in að svipast um eftir bátnum,
eftir fyrsta neyðarkallið.
★
FRÉTTARITARINN á ísa-
firði símaði:
Undanfarna daga hefur verið
ágætisveður hér á Ísafirði, sól-
skin og logn, en í morgun gerði
norðan hvassviðri og upp úr há-
á i deginu var kominn bilur og
versta veður.
IMÍðuðu
• •
Onnu frá
Ólafsfirði
Frá Ólafsfirði gímaði fréttaritari:
HÉR var blíðlskaparveðux kL
10 í miorgun, en klukkan 11 var
komin mikil veðurhæð og grenj«
•andi stórhrið. Trillubátar eru all
ir komnir að landi. dekbbátar
eru úti, en heyrzt hefur í þeim
öllúm. Eru þeir vestur og út
af Skaga og út við Grímsey,
Þetta er langversta veðirr vetrar-
ins.
í gærkvöldi bárust svo fregnir
um að varðskipið Ægir og tog-
arinn Björgúlfur væru að leita
að þilbátnuim Önnu frá Ólafs-
firði. Heyrðist í hennL og taldi
hún sig vera út af EyjafirðL
Tókst skipunum loks að miða
Önnu út. Var hún þá stödd milii
Héðinsfjarðar og Ólafstfjarðar.
Tók Guðbjörg hana í tog og var
á leið með hana inn til Akur-
eyrar í gærkvötldL