Morgunblaðið - 25.04.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.04.1963, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 25. apríl 1963 MORCl’NBLAÐIÐ 17 Margrét Fredriksen ÞAÐ MUN hafa verið sumarið 1927, að faðir minn byggði sér hús í Skerjafirði, sem á þeim tíma var ekki komið í alfara- leið. Ég var þvi hálfhraeddur um að ég yrði frekar einmana þar, en sú var ekki reyndin, því í næsta húsi við hliðina hjá okk- ur bjuggu þau hjónin frú Mar- grét og Aage Fredriksen vélstjóri ósamit 7 börnum sínum. Tókst brátt mikil vinátta á milli heim- ilis okkar og Fredriksensfjölskyld unnar. Sú vinátta var ekki byggð á sandi, hún var gagn- kvæm og hefur haldizt til þessa dags, og hafa þar bæði ég og znínir mikið að þakka. Á þeim tima, sem frú Margrét var að ala upp sinn stóra barna- hóp, þá voru kjörin ekki þau sömu og tíðkast nú til dags. í þann tíma voru ekki þvottavélar og önnur heimilistæki, sem nú eru húsmæðrum til hjálpar og létta henni störfin. Geta húsmæð ur nú til dags varla gert sér í hugarlund, hvílíka vinnu og strit húsmæður á þeim tíma urðu við að búa. En frú Margrét var mikil hús- móðir, og þó pyngjan væri kannski ekki alltaf full, þá kunni hún að gera mikið úr litlu. Börnin fóru fljótt að vinna fyrir sér og vegarnestið að heiman var gott. Var þeim kennd trú- mennska og heiðarleiki, og sá hún öll sín börn vaxa upp og kom- ast vel áfram í lífinu. En frú Margrét gekk ekki heil til skógar, og öll þau ár sem ég þekkti hana þá leið hún af sjúkdómi sínum, en fór þó dult með og vildi ekkert um það tala. Voru börnin mjög samhent við að létta henni erfiðustu stund irnarj og gerðu allt er gat verið henni til hjálpar. Aldrei kom ég svo til hennar að hún ekki að skilnaði blessaði mig og óskaði mér fararheilla, er mér í fersku minni, þegar hún varð 60 ára 29. október 1945, er hún var umvafin kærleika barna sinna og nánustu skyldmenna. Brá hún þá heldur ekki út af vana sínum og spurði hvernig mér gengi og liði, og er ég sagði henni að nú ætlaði ég að gifta mig eftir 2 daga, þá sagði hún um leið og hún óskaði mér gæfu og gengis: „Mér finnst þið strák arnir mínir vera orðnir svo stór- ir.“ Hef ég þá trú, að blessunar- orð hennar hafi heldur gert mér gott frekar en hitt. Síðustu árin bjó frú Margrét hjá Ásgeiri, yngsta syni sínum, þar til hún fluttist á Elliheimil- ið. Hefur hún eflaust verið bú- in að fá nóg af þessa heims gæð- um, en örugglega sátt við allt og alla, en það er alltaf mikils virði. Útför hennar var gerð frá Dóm kirkjunni þann 4. apríl s.l. en vegna fjarveru minnar birtast þessar línur fyrst í dag. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra, þó að um frú Mar- gréti mætti segja miklu meira. Hún var húsmóðir og móðir í orðsins fyllstu merkingu, dugleg og ósérhlífin, hreinlunduð og vildi öllum vel, og svo traustur vinur vina sinna að slíkt mun einsdæmi. Og nú er komið að því að engu að kvíða, frú Margrét fær örugglega þá heimkomu, sem hún.svo sannarlega átti skilið. Börnum hennar, tengdadætr- um og barnabörnum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur, minningin um góða konu, sem ekki lét mikið yfir sér, mun óska henni fararheilla. >að er | ekki gleymast, miklu og góðu sagt, að hver uppskeri það, sem starfsverki er lokið. hann sáir, sé það rétt, þá þurf- I Kaupmannahöfn 17. apríl. um við, sem þekktum hana bezt, I H. VEITUM ÞJÓNUSTU VIÐ ÁSETNINGU Vatnsfráhrindandi. Hindrar vatnsskaða á skeljuðum, hraun hraunuðum og öðrum húðuð- um veggjum. Verksm. KÍSILL, Lækjargötu 6 B Sírnar 15960, 20236 og 15555. Gunnar Randers forstjóri kjarnorkustofnunar Noregs, heldur fyrir- lestur í hátíðasal Háskóla íslands, föstudaginn 26. apríl kl. 5,30 s.d. Efni: Kjarnorka og vatnsorka. Öllum heimill aðgangur. Stjórn félagsins ísland — Noregur. Skrifstofuvinna Þekkt og stórt innflutningsfyrirtæki óskar að ráða stúlku til starfa við vélabókhald. Vélritunarkunn- átta nauðsynleg. Uppl. veittar í skrifstofu félagsins í Tjarnargötu 14. Félag ísl. stórkaupmanna. VIKAi VIKAN býður gleðilegt sumar. I blaðinu í dag hefst ný BÍLAGETRAUN: Við gefum lesendum kost á að velja um VOLKSWAGEN eða LAND-ROVER í þessari viku 9 Smásaga eftir Pearl S. Buck. • 2 spennandi fram- haldssögur. • Myndasögur. • MARGT fleira er í hlaðinu. • VIKAN er 52 síður. í ALDARSPEGLI. Við bætum enn einu sinni grein við þennan vinsæla flokk og að þessu sinni er Einar ríki í Vestmannaeyjum í aldar- spegli. Einar er landskunnur athafnamaður, en um leið mjög sérkennileg persóna sem fróðlegt er að kunnast. FJÁRFESTING í STEINSTEYPU. Vikan hefur kynnt sér fast- eignamarkaðinn í Reykjavík. Við birtum myndir af fjölda húsa og fasteignasalar hafa frætt okkur um verðlagið á hinum ýmsu gerðum íbúða og húsa. Grein og myndir. Hollenzki daf-bíllinn er allur ein nýjung: 'Á' Sjálfskiptur enginn gírkassi. engin gírstöng, aðeins benzín og bremsur. ★ Þarf aldrei að smyrja. 'A' Kraftmikill 30 ha. vél — staðsett frammí. ★ Sparneytinn - Eyðsla: 6—7,5 1. pr. 100 km. ★ Loftkældur (Enginn vatnskassi). ★ Kraftmikið. stillanlegt lofthitakerfi. ■jr Fríhjóladrif. •jc Rúmgóð farangursgeymsla. '5^- Örugg viðgerðaþjónusta. > ^ Varahlutabirgðir fyrirliggjandi. Verksmiðjulærðir viðgerðamenn. flllir dásama .bilinn sem nú fer sigurför um ulla Evrópu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.