Morgunblaðið - 16.05.1963, Page 13
Fimmtudagur 16. maí 1963
MORCVNBLAÐ1Ð
13
DAF kominn á markaðinn
■CNDANFARIN ár hafa horizt til
íslands fregnir af fjöLskyldubíl,
sem framleiddur er í Hollandi og
hefur ýmislegrt það til að bera,
sem er svo frábrugðið því, sem
áður hefur þekkzt í bílaiðnað-
inum, að sérstaka athygli hefur
vakið. Bíltegund þessi, sem her
xnerkið DAF, er framleidd af
Van Doorne’s Automobielfabriek
N. V. í Eindhoven í Hollandi.
Sá eiginleiki, sem hvað mesta
athygli hafa vakið, er ganghraða-
skiptingin. I hifreiðinni er
hvorki að finna gírkassa, „kúþl-
ingu“, eða girhjól. I stað þess
kemur svokallað rennidrif.
Á milli fremri hjólanna og
þeirra aftari liggja 2 reimar.
Keimahjólin hafa þann eigin-
leika að raufar þeirra geta víkk-
®ð og þrengst, þannig að reimin
er ýmist staðsett inn við ás, lang-
leiðina út við hjólbrún eða ein-
hvers staðar þar á milli. Þarna
liggur grundvallarskýringin. Tök
um dæmi: Þegar tekið er af stað,
er stilling V-reimarhjólanna
þannig, að beltið liggur inn við
ós á fremri hjólunum en nálægt
hjólabrún á þeim aftari.
Variomatic velur sjálfkrafa
hagkvæmasta hraðahlutfall milli
vélar og hjóla og fyrirbyggir
þannig óþarfa benzíneyðslu, vél-
arslit og vinnslutap, sem oft or- I
sakast af ónákvæmri gírsikipt-
ingu, þegar hún er handvirk.
Auk þeirra eiginlei'ka Daf bíls-
ins, sem að framan voru taldir,
mætti nefna eftirfarandi. Vélin
er 750 cc — 30 hestafla. Bíllinn
hefur sérfjöðrun á öllum hjólum
og er sérstaklega stöðugur, þýð-
ur og öruggur í akstri, eins og
flestir bílar með slíkum útbún-
aði. Bíllinn er rúmgóður og út-
sýn til beggja hliða.
Framsætin, sem eru aðskilin,
er hægt að færa fram og aftur og
stöðu sætisbaksins er hægt að
stilla, eins og hverjum hentar.
Varahjólbarðinn er staðsettur
lóðrétt vinstra megin í farangurs-
geymslu, þar sem hann tekur lít-
ið rúm og auðvelt er að ná til
hans.
Daf bíllinn var í upphafi sér-
staklega þaulreyndur við hinar
erfiðustu aðstæður. Reynslubílar
voru sendir t^ Spánar, ekið á lág-
lendi í steikjándi hita og beint úr
þessum akstursskilyrðum upp um
fjöll og firnindi, um bratta og
grýtta vegi. Einnig voru þeir
reyndir í Lapplandi. í hörku-
frosti, snjó og rigningu, á vegum
þöktum aur og slyddu var svo
haldið til baka um norðurhluta
Noregs.
Tvær gerðir eru fáanlegar af
Daf bílum, DAFfodil og Daf 750.
Daffodil bíllinn er á ýmsan máta
frábrugðinn Daf 750, en einkum
þó hvað snertir útlit og íburð.
Daf verksmiðjurnar hafa sett
sér þá meginreglu, að útflutniiig-
ur skuli eigi hefjast til neins
lands, fyrr en tryggt hefur verið
að viðgerða-, viðhalds- og vara-
hlutaþjónusta verði í fullkomnu
lagi.
Fyrsta sendingin af Daf bílum
er væntanleg til landsins um
miðjan maímánuð og gert er ráð
fyrir að Daffodil muni kosta um
kr. 126.000,— en Daf 750 hér um
bil kr. 118.000,—.
Söluumboð Daf bflanna hér á
landi er hjá O. Johnson & Kaaber
hf. að Sætúni 8, Reykjavík, og
hafa faglærðir' menn í þjónustu
umboðsins nú þegar fengið sér-
staka þjálfun í verksmiðjunum í
Hollandi í viðhaldi, viðgerðum og
skipulagi varðandi þjónustu við
eigendur Daf bíla hér á landi.
Stofnað hefur verið til fullkom-
ins bílaverkstæðis að Sætúni 8 og
verður haldin sölusýning á fyrstu
Daf bílunum strax og þeir koma
til landsins.
Þröngt mega sáttir sitja — Þ.e-a.s. ef sætið er traust stendur í
textanum, sem fylgir þessari mynd í Hesturinn okkar. Hestur-
inn heitir Nasi og er 22ja ára og fyrsti kennari barnanna í
Holtakotum í Biskupstungum í hestamennsku-
„Hesturinn okkar“ með
hestamyndum og greinuin
VETRARHEFTIÐ af riti Lands-
sambands hestamanna, Hestur-
inn okkar, er komið út með
fjölda af skemmtilegum hesta-
myndum og fróðlegum greinum
Öflugt starf Hrings-
ins í Hafnarfirði
Jónas PéturSson alþm í i'æðustól. T.v. er Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, en t.h. Axel V. Tuliníus, sýslumaður.
Kosningabaráttan hafin
í Austurlandskjördæmi
KVENFELAGIÐ Hringurinn í
Hafnarfirði hélt nýlega aðalfund
sinn. Formaður félagsins, frú
Kristín Kristj án.sdóttir, setti fund
inn og flutti skýrslu stjórnar,
og kom fram í henni að starf-
semi félagsins hefði verið öflug
og mörgum til góðs .Endurskoð-
aðir reikningar voru lagðir fram
og sajniþykiktir.
Við stjórnarkjör báðust þœr
frú Kristón, frú Sjöfn Sigurðar-
dóttir og Björney Hallgrímsdótt-
ir eindregið undan endurkosn-
ingu, og voru þeim þökkuð mikil
og góð stönf i þágu félagsirus.
Núverandi stjórn skjpa: Frú
Sjöfn Magnúsdóttir formaður,
frú Hulda Sigurðardóttir ritari,
frk. Þórunn Pétursdóttir gjald-
keri og meðstjórnendur frú
Sveiribjörg Auðunisdóttir og frú
Þorbjörg Ólafsdtóttir.
Starfsemi fólagsinis í suimar
verður með liku sniði og áður
að greiða fyrir og kosta börn
á suimardvalarheimili þar sem
heimilisástæður eru bágar. Hring
urinn heldur bazar í Sjálfstæðis-
húsinu 17. maí, og er ekki að
efa að Hafnfirðingar styðja nú
sem fyrr mannúðarstarfsemi
Hringkvenna.
Ritstjóraskipti hafa orðið við
blaðið og hefur sr. Guðmundur
Óli Ólafsson á Torfastöðmn tek-
ið við ritstjórninni.
í þetta hefti ritar Jóhann Haf-
stein. bankastjóri grein er nefn-
lækjarkoti — Hestamaður horf-
ir um öxl, Páll A. Pálsson, yfir-
ist Nýir áfangar, ritstjóri ritar
frásögn Eiríks Jónssonar í Sand-
dýralæknir ritar um gamla ferju
staði og vöð, Guðmundur Guð-
jénsson skrifar um Hrekk frá
Fljótsdal, Jón Bjarnason frá Sel-
fossi um snillinginn Bógatý, Har
aldur Jónsson frá Miðey ritar
greinina Farið yfir Markarfljót
1930, Jóhanna Blöndal skrifar
um Glótopp, ritstjórinn grein er
hann nefnir Heimþrá eða hvað?
og svo er frá 13. ársþingi Lands-
sambands hestamanna. Auk þess
er að venju hestavísnaþáttur,
gamlar myndir og smágreinar í
ritinu og margar mýndir af hest-
um, folöldum og börnum.
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
hélit fund í Valhöll á Eskifirði
B.l. föstudagskvöld. Þar með var
kosningabaráttan í Austurlands-
ikjördæmi hafin. Ingólfur Fr.
Hallgrímisson setti fundinn, en
Axel V. Tuninlíus, sýslumaður
var fundaretjóri.
Á fundinum, sem var v-él sótt-
ur af Sjálfstæðismönnum og flá,-
einum gestum. Flutti Gunnar
Thoroddiseri, fj á rmál ará ðher r a,
ýtarlega framsöguræðu um stjórn
imiálaviðlhorfið, störf ríikisstjórn-
arinnar, einikum á sviði fljármála
og efnahagsmála, baráttuna
framundan og verkeflni næsta
kjörbímaibiLs. Var ráðherranum
vel fagnað.
Aðrar framsöguræður flluttu
Jónas Pótursson alþm. og Sverrir
Hermannisison viðlskiptafræðing-
ur, en þeir eru í tveim etfstu
sætum á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Austurlandskjördæmi við
allþingiskosningarnar 9. júní n.k.
Fyrirspur.n kom fram frá-Vii-
hjálmi Jónssyni, sem fjármála-
ráðherra svaraði.
í fundarlok flubti fundarstjóri
fjármálaráðherra og öðrum komu
mönnum þakkir og sleit fundi
með stuttri hvatningarræðu.
Með þessuim fyrsta fundi í Aust
urlandskjördæmi er kosningabar-
átta Sjálfs'tæðistfiokksinis í kjör-
dæminu hafin og sýndi fundur-
inn einhug Sjálfstæðismanna á
Eskifirði um að gera sigur Sjálf-
stæðisfllokksins í kosningunum
sem mestan og glæsilegastan.
„Islondske Moanedstidende"
seldust fyrir 30 þús. kr.
7 7 bátar með riál.
77 þús. tunnur
SÆMILEG síldveiði var aðfara
hótt þriðjudags. Morgunblaðinu
fer kunnugt um afla sautján báta,
tsem fengu alls 10.960 tunnur.
Þessir bátar voru (afli mæld-
tur í tunnum í svigum): Jón á
Stapa (900), Stapafell (150), Sól
irún (250), Guðmundur Þórðar-
Bon(700) — þessir fjóriir framan
töldu lönduðu í Reykjavík —
Strákur 560, landaði í Hafnar-
árði), Skarðsvík (700), JökuU
'(1Ö0), Höfrungur (600), Sæúlfi r
(160), Sæþór (300), Fiskaskagi
(900), Steingrímur trölli (450),
Akraborg (850), Pétur Sigurðs-
son (300), Sigurpáll ( 1,800),
Jón Garðar (1,100) og Víðir II.
(1.100)-
Á þriðjudagskvöld um kl. hálf
tólf voru bátar farnir að kasta
bæði vestur undir Jökli og fyrir
sunnan. Vb Gullfaxi hafði þá
fengið 12—1400 tunnur og Haf-
rún 200. Guðmundur Þórðarson
var að kasta fyrir vestan. Síldin
var góð.
Á BÓKAUPPBOÐI Sigurðar
Benediktssonar í gær fóru 96
bókanúmer undir hamarinn. —
Hæsta verð var greitt fyrir „Is-
landske Maanedstidender", eða
30.000 krónur. Var eintakið þó
eigi heilt; seinustu blaðsíðurnar
handskrifaðar.
Af öðrum bókum má nefna
(verð í svigum): Ættarskrá
Bjarna Þorsteinssonar (1300),
Mannamunur eftir Jón Mýrdal,
Akureyri 1872, sérlega gott ein-
tak (1700), Ari Jónsson: Sigríð-
ur Eyjafjarðarsól, Akureyri
1879 (800), Tímarit bókmennta-
félagsins allt, innbundið (2100),
Sturlunga-Saga I.—II., Khöfn
1817—1820, ekki heilt eintak
(600), Safn til sögu íslands, III.
bindið vantaði (1200), Islands
Kortlægning (4200), Kongs
Christians þess Fimta Norsku-
Lög, Hrappsey 1779 (1500).
Historisk Indledning til den
gamle og nye Islandske Rætter-
gang, Khöfn 1762, var m.a. í
eigu Páls Briems, Finns Jóns-
sonar og Lárusar H. Bjarnason-
ar, (2500), Forordninger og
aabne Breve (Magnús Ketils-
son), Hrappsey og Khöfn 1776
—1787 (9500), Sig. Breiðfjörð:
Frá Grænlandi, Khöfn 1836,
mjög gott eintak, bundið við
Svar hinna katólsku presta,
Reykjavík 1866 (800), Einn
Lijtill Iðrunar-Spegill, Hólum
1775, mjög fallegt eintak (600),
Almanak 1874, áritað frá Jóni
Sigurðssyni til Bjarnar M. Ól-
sens og með minnismiðum hins
síðarnefnda (250), Tuttugu söng-
lög, Bjarnf Þorsteinsson safnaði,
Reykjavík 1892 (250), H. K.
Laxness: Nokkrar sögur, sér-
prentun úr Morgunblaðinu,
Reykjavík 1923 (1600), Guð-
brandsbiblía ljósprentuð (3600),
Gráskinna I.—IV., skrifpappírs-
eintak (700), íslenzkar gátur,
skemmtanir, vikivakar og þul-
ur I.—IV., vel bundnar í góðu
standi (4000), Snót, 1. útg.,
Khöfn 1850 (700), Svartar fjaðr-
ir, Kvæði, Kveðjur, Að norðan,
eftir Davíð Stefánsson, frumútg.
(650), Safn Fræðafélagsins I.—
XIII. í skinnbandi (2700), Sigfús
Sigfússon: íslenzkar þjóðsögur
og sagnir I.—XVI. í góðu bandi
(2600) og hin svonefnda „Heiðna
biblía“ með nafni Matthíasar
Jochumssonar árituðu (4100).
Barnareiðhjól
hverfur
SVO bar við sl. föstudag, eftir
hádegi, að tvær litlar stúlkur
voru að leik með rautt barna-
reiðhjól í bakgarði við húsið nr.
39 við Laugaveg. Nokkrir ungir
drengir munu hafa verið þar
nærri.
Skömmu síðar vóru stúlkurnar
kallaðar inn til sín. Er þær komu
til baka, var hjólið horfið. Grun-
ur mun hafa fallið á einn drengj-
anna, að hann væri valdur að
hvarfinu. Ekki hefur hann þó
viljað viðurkenna, að svo sé.
Eins og fyrr greinir, er hér um
að ræða rautt barnareiðhjól, lít—
ið, með brúnu sæti. Það er ný-
legt, og lítur vel út. Það eru
vinsamleg tilmæli, að þeir, sem
kunna að verða þess varir, geri
rannsóknarlögreglunni aðvart.
NÝ ELDFLAUG
Moskvu, 13. maí (A).
RÚSSAR hafa tilkynnt að þelr
muni á tímabilinu 15. mai til
15. júlí gera tilraunir með
nýja eldflaug, sem ætluð eir
til geimrannsókna. Hefur rúss
neska stjórnin lokað tveimur
svæðum á Kyrrahafi.
_ Vegur lugður lyrir
Ólulsvíkurenni í sumur
Á LAUGARDAG voru opnuð til-
boð í vegargerð fyrir Ólafsvíkur
enni, milli Hellissands og Ólafs-
vSkur, á skrifstofu vegamála-
stjóra.
Tvö tilboð bárust. Annað var
frá fyrirtækinu Efra-Fall og
hljóðaði upp á 9.8 milljónir kr.
Hitt var frá Björgvini Halldórs-
syni, Gunnari Gunnarssyni, Lár-
usi Magnússyni og Magnúsi
Ólafssyni. Hljóðaði það upp á
16.4 milljónir króna. Er því 6.6
milljóna króna munur á tilboð-
unum.
Vegagerðin hefst eins fljótt og
kostur er á, og er áætlað, að
henni verði lokið fyrir haustið.
Verður þá komið á góðu og
mikilvægu vegasambandi milli
Sands og Ólafsvíkur, og hægt að
aka umhverfis Snæfellsnes allt.