Morgunblaðið - 16.05.1963, Blaðsíða 24
sparíð og
notið Sparr
m
40 í sótt-
kví í Stokk-
hólmi
vegna ótta við
bólusétt
Stokkhólmi, 15. maí — NTB.
UM Það bil 40 mann$ hafa nú
verið settir í sóttkví í Stokk-
hólmi, vegna bólusóttar þeirr
ar, sem talið er víst, að nú
sé komin upp. Fjórir sjúkl-
ingar, sem allir bera mjög
grunsamleg einkenni bólu-
sóttar, hafa verið fluttir í sér-
stakt sjúkrahús.
Tveir þeirra sjúklinga eru
konur, sem eru skyldar konu
þeirri, er lézt af bólusótt í
fyrra mánuði. Önnur kven-
anna er afgreiðslustúlka. Var
hún flutt í sjúkrahús af ör-
yggisástæðum, þótt einkenni
hinnar konunnar séu hins veg
ar mjög grunsamleg. Hún
hafði umgengizt náið konuna,
sem lézt, og áður er getið.
Yfirmaður Sýklarannsóknar-
stofnunarinnar í Stokkhólmi,
Holger Lundhæck, prófessor, tel
ur nú víst, að tekizt hafi að finna
smitibérann — hægt sé að rekja
öll grunsamleg tilfelli til einnar
og sömu persónunnar- Hér er
um að ræða sænskan sjómann,
sem kom flugleiðis frá Indónes-
íu í apríl.
Er til Stokkhólms kom, heim-
sótti sjómaðurinn 80 ára konu,
honum skylda. Þannig barst sótt
in til konu þeirrar, er nú er lát-
in.
Lund'bæck lýsti því yfir, að
heilbrigðisyfirvöldin færi í einu
og öllu að, eins og um bólusótt
væri að ræða, enda slíkt mjög
líklegt, þótt endanlegar niðurstöð
ur sýklarannsókna liggi ekki fyr
ir, fyrr en eftir 1—2 daga.
Prófessorinn tók jafnframt
fram, að ekki yrði gripið til víð
Frh. á bls. 23
TOLLAR á dráttarvélum hafa nú verið lækkaðir úr 34—35% í 1 0%, sem þegar virðist ætla að verða til mikillar örvunar á inn-
flutningi þeirra. Nýlega er komin til landsins stærsta sending af d ráttarvélum, sem til landsins hefur komið, og er mynd þessi tekin,
er henni hafði verið sikipað á land- (.Ljósm. Mbl. Ól. K. M.j.
Veruleg verðlækkun á landbdnaöar-
vélum vegna tollalækkunarinnar
Innflutningsfrelsið bændum
til mikils hagræðis
+ SAMKVÆMT hinni
nýju tollskrá, sem gekk í
gildi 1. maí s.I. hefur orðið
veruleg lækkun á land-
búnaðartækjum. Hefur t.d.
tollur á hjóladráttarvélum
verið lækkaður úr 34—35%
í 10%. Þannig kostar drátt-
arvél, sem áður kostaði 126
þúsund kr., nú 105 þúsund
kr. og dráttarvél, sem áður
kostaði 70 þúsund kr., kost-
ar nú 60.2 þúsund kr.
AF ýmsum öðrum
landbúnaðarvélum og tækj
um hafa tollar verið lækk-
aðir úr 20—21% niður í
10%. Á þetta t.d. við plóga
herfi, áburðardreifara,
mjaltavélar, sláttuvélar,
upptökuvélar fyrir kart-
öflur, rakstrar- og snún-
ingsvélar. Þannig kostar
mykjudreifari, sem áður
kostaði 37.5 þús. kr., nú
34.9 þús. kr., heyblásari,
sem fyrir tollalækkunina
kostaði 11.8 þús. kr., kost-
ar 10.2 þús. kr. eftir hana,
og moksturstæki, sem áður
kostaði 15.9 þús. kr., kost-
ar nú 14 þús. kr.
ir Á valdaárum viðreisnar-
stjórnarinnar 1960—62 hefur inn
flutningur á jarðyrkju- og upp-
skeruvélum numið 56.4 millj. kr.
en á valdaárum vinstri stjórnar-
innar nam þessi innflutningur
44.3 millj. kr. Eru báðar þessar
tölur miðaðar við gengi ársins
1962.
ir Þá hefur hið aukna frelsi í
innflutningsmálum landsins orð-
ið bændum landsins til mikils hag
ræðis, eins og öðrum landsmönn-
um. Áður þurftu þeir að panta
landbúnaðartæki með allt að árs
fyrirvara, og var jafnvel tvi-
sýnt um það oft og tíðum, hvort
vélarnar yfirleitt fengjust. Nú
má hins vegar nærri segja, að
innflutningsfyrirtækin eigi þess
ar vélar og tæki á lager og
Framh. á bls. 23
60—70 Vesfur-íslending-
ar ráÖnir fil íslands
"4
pyeifuiw
* Ik,
m ftjór/
<sr
/
^Kg held þvert á móti, að 238. gr. í Rómarsáttmálanum sé sett þar inn til þess, að þau lönd þurfi
»kki að slitna úr tengslum, sem ekki geta gengið inn á grundvallaratriði Rómarsamningsins“.
(Eysteinn Jónsson í ræðu 27- jan. 1962). Nú segja Framsóknarmenn hinsvegar, að samningur
ikv. 238. gr. jafngildi landráðum.
Verkalýðsfélag Vestmannaeyja vill
binda atvinnuleyfi v/ð 6 mánudi
RÁÐSTAFANIR hafa verið gerð
ar til að fá til landsins frá Kan-
ada menn af íslenzkum ættum,
sem vildu vinna á íslandi, því
mikill skortur er á fólki til
starfa. Höfðu fengizt 60—70
manns á aldrinum 20—56 ára,
þar af 6—7 konur, mest ein-
hleypt fólk, annar eða þriðji lið-
ur islenzkra útflytjenda, sem
skilur eða talar islenzku. Var
talað um að fólkið yrði ráðið
til tveggja ára, en ráðningin þó
þeim skilyrðum háð að nauð-
synleg leyfi fengjust til að flytja
inn þennan vinnukraft.
Meiri hluti hópsins átti að fara
til Vestmannaeyja, þar sem er
fyrir hendi húsnæði fyrir fólkið.
í fyrrakvöld var fundur um mál-
ið í verkalýðsfélaginu í Eyjum
og stjórninni falið málið til af-
greiðslu. Á stjórnarfundi í gær-
kvöldi samþykkti stjórnin svo
að mæla með að 30 manna hóp-
ur fengi atvinnuleyfi, en aðeins
til 6 mánaða til að byrja með.
Sr. Robert Jack ferðaðist um
tslendingabyggðir.
Það var sr. Robert Jack, sem
fór á vegum nokkurra íslenzkra
fyrirtækja, til að leita að mönn-
um af íslenzkum ættum, er vildu
koma í atvinnu á Islandi. Er
Mbl. kunngt um að hann hefur
ráðið með ofangreindum fyrir-
vara 60—70 manns, flest fiski-
menn, nema 3 logsuðumenn.
Ferðaðist sr. Robert Jack um all«
ar byggðir íslendinga í Manitoba
og hafði hvarvetna tal af fólki,
Naut hann stuðnings Grettis Jó»
hannessonar, ræðismanns. Einnig
setti hann auglýsingar í útvarp
og sjónvarp vestra og óskaði þar
eftir Kanadamönnum, sem kynnu
íslenzku, því þar í landi er ekki
heimilt að auglýsa eftir íslend-
ingum. Mbl. er kunnugt um að
um 1000 manns hafi gert fyrir-
spurnir um atvinnumöguleika á
íslandi og hægt hefði verið að
ráða mun fleira fólk til starfj
hér á landi. i
Blaðið hefur fregnað að þeir
aðilar, sem vilja fá þetta fólk
til landsins, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsánna, Síldarverksmiðjur
ríkisins, Landssamband útvegs-
manna, Sölusamband isl. fisk-
framleiðenda og fleiri, muni
leggja út fyrir ferðakostnaði. En
Framhald af bls. 23.