Morgunblaðið - 22.06.1963, Side 2
2
TU O R C V IV B L A Ð 1 Ð
Laugardagur 22. júnl 1963
Frá fundi Flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í Sjál fstæðishúsinu í gær. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
-Stjórnarsamstarfið
Framhald af bls. 1.
„Þar sem lýst var yfir því
af hálfu beggja stjórnarflokk-
anna fyrir kosningar, að þeir
mundu halda áfram samstarfi
um ríkisstjórn, ef þeir hlytu
nægilegt fylgi til þess, þá tel-
ur flokksráðið það rökrétta
afleiðingu kosningaúrslitanna
að samstarfið haldi áfram á
sama grundvelli í meginatrið-
um og lagður var á síðasta
kjörtímabili".
Síðan ræddi formaður ýtarlega
úrslit alþingiskosninganna.
Miklar umræður
Eftir ræðu Bjarna Bene-
diktssonar hófust umræður, og
tóku þessir til máls: Hermann
Þórarinsson, hreppstjóri, Blöndu-
ósi; Birgir Gunnarsson, borgar-
fulltrúi, Reykjavík; Jón Pálma-
son, fyrrv. bóndi, Akri; Sigurður
Bjarnason, alþ.m., frá Vigur;
Karl Friðriksson, vegaverkstjóri
Akureyri; Ólafur Bjarnason,
bóndi, Brautarholti; Ólafur Thors^
forsætisráðherra; Bjarni Bene
diktsson, dómsmálaráðherra, og
Sigurjón Sigurðsson, bóndi Raft-
holtL
Að umræðum loknum var bor-
in undir atkvæði framangreind
tillaga formanns flokksins og var
hún samþykkt í einu hljóði með
atkvæðum allra fundarmana.
Formaður sleit síðan fundL
Dregur úr gagnrýni Ihalds-
manna á stjórn Macmillans
— því veldur hræðsla flokksmanna við kosningar nu
London, 21. júní. — (AP) —
A L L T þykir nú benda til
þess, að Macmillan, forsætis-
ráðherra, og stjórn hans
muni sitja áfram. Telja stjórn
málafréttaritarar í dag, að
margir íhaldsmenn, sem und-
anfarið hafa gagnrýnt for-
sætisráðherrann, séu nú að
snúast til fylgis við hann á
nýjan leik.
f gærkvöld var haldinn sér-
stakur fundur íhaldsmanna. —
Höfðu hægrisinnar í flokknum
spáð því, að þar myndi gerð hörð
hríð að Macmillan. Þeir spá-
dómar rættust þó ekki. Kom ekk
Þoka á miðunum
LÍTIÐ sem ekkert var að
frétta af síldveiðunum í gær-
kvöldi. Á fimmtudag var svarta-
þoka á miðunum, og fékk þá að-
eins einn bátur síid, Halldór
Jónsson, 250 mál út af Digranesi.
í gær hélzt sama þokan, en veð-
ur var að öðru leyti gott. Flotinn
er aðallega á tveimur stöðum, 60
mílur austur af Langanesi og 60
mílur norð-austur af Grímsey. Á
fyrri staðnum fékk Sigurpáll
100 mál í gær. Þar hafði orðið
allmikið vart við kolmunna. Á
seinni staðnum fékk Oddgeir 500
mál í gær.
Fanney leitaði í Húnafióa í gær
og varð lítið vör við yfirborðs-
síld. Svo til engin áta var þar.
ert fram á þeim fundi, sem var
forsætisráðherranum og stjórn-
inni sérstaklega í óhag. Þvert
á móti héldu nokkrir ræðumenn,
þá sérstaklega Derek Walker
Smith, fyrrverandi heilbrigðis-
Cróðursetning
trjáplantna í Kjós
Laxveiði í
Borgarfirði
Akraneisi, 21. j ún f
FREKAR treg laxveiði hefur ver
ið í Hvítá það sem af er, en þó
skárri vestan megin árinn-
ar, sagði Kristján Fjeldsted bóndi
í Ferj ukoti mér í kvöld. Stamga
veiði hetfur verið sæmileg i Norð
urá .Þeir hafa orðið svona varir
í Grímisá. Minnkað hefur stórlega
í ánum fyrir norðanáttina, sem
varað hetfir undanfarna daga. Lax
inn hefur gengið nokkuð snemima
en aðalgöngumar eru þó etftir.
— Oddur
Profumo-málið fyrir
rannsóknarnefnd
— Wilson telur það ófullnœgjandi,
enda verða vitni ekki eiðsvarin
málaráðherra, því fram, að frá-
för Macmillans nú væri óhugs-
andi. Kvað hann slíkt myndu
leiða mikinn ósigur yfir flokk-
inn, því að kosningar nú væru
ótímabærar.
Skýrði Smith mál sitt með því
að benda á, að segði stjórnin
af sér nú, mætti búast við, að
bráðabirgðastjórn tæki við fram
yfir kosningar. Dæmin sýndu,
að stjórnarandstaðan hefði áður
átt aðild að slíkri stjórn. Við
slíkar aðstæður myndi Verka-
mannaflokkurinn fá sterkari að-
stöðu. Þar til kynni að bætast
klofningur innan íhaldsflokksins,
en allt þetta yrði mjög til að
veikja aðstöðu hans í kosningum
yrðu þær haldnar á næstunni.
Er það nú almennt álit stjórn-
málafréttaritara, að stjórn Mac-
millans hafi heldur styrkzt í
sessi, a.m.k. hvað viðvíkur gagn-
rýni sjálfs íhaldsflokksins.
London, 21. júní — (NTB)
E N N kom til umræðu um
Profumo-málið á fundi neðri
málstofunnar brezku í dag.
Þá tilkynnti Macmillan, for-
sætisráðherra, að stjómin
hefði ákveðið að skipa sér-
staka rannsóknarnefnd, er
rannsaka skyldi málið í smá-
atriðum. Skýrði forsætisráð-
herrann svo frá, að formað-
ur nefndarinnar yrði Denn-
ing, lávarður, sem er einn
þekktasti lögfræðingur Breta.
Harold Wilson, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, mælti gegn þess
ari ráðstöfun, sem hann sagði
vera allsendis ófullnægjandi. —
Krafðist hann þess, að skipuð
yrði rannsóknarnefnd, sem fúll-
trúar allra stjómmálaflokkanna
ættu aðild að. Aðeins einn kostur
annar kæmi til, þ.e. að láta dóm-
stól taka málið til sín. Þá lagði
Wilson áherzlu á, að ekki væri
hægt að kalla til öll nauðsynleg
vitnL væri málið tekið fyrir á
þann hátt, sem stjórnin hugsar
sér.
Macmillan skýrði þá frá því,
að Denning, lávarði, yrði í sjálfs
vald sett, hvaða vitni hann kall-
aði fyrir. Þau yrðu þó ekki eið-
svarin.
Wilson skýrði þá frá því, að
veita yrði formanni rannsóknar-
nefndarinnar fullt og óskorað
vald, þar eð hann myndi eiga við
að glíma nokkra mestu lyga-
laupa, sem nú væru uppi á Bret-
landseyjum.
Ekki er enn ljóst, hvort nið-
urstöður þær, sem rannsóknar-
nefndin kann að komast aS,
verða birtar opinberlega.
Franskar sýningar
stúlkur í Sögu
FRANSKAR sýningarstúlkur
sýndu í gærkvöldi 50 klæðnaði
frá París í Súlnasal Hótel Sögu.
Var tízkusýningin einn liðurinn
í „franska“ kvöldinu, sem ferða-
skrifstofan Sunna stendur fyrir
í samvinnu við aðra aðila.
Var þetta fyrsta kvöldið af
þremnr, en hin verða í kvöld og
á sunnudag. Tízkusýningarstúlk-
urnar fara aftur utan á mánu-
dag og sýna á þriðjudaginn á
Ítalíu.
Franski sendiherrann var við-
staddur, og franski sendikennar-
inn flutti ræðu um samband ís-
lands og Frakklands. Salurinn
var allur skreyttur blómum, og
ilmvatnsgjafir voru á hverju
borði frá franska fyrirtæikinu
Coryse Salone. Skólastjóri tízku-
skóla þess fyrirtækis kynntl
snyrtivörur milli þess, sem sýn-
ingarstúlkurnar komu fram.
Evrópuför Kennedys
er ótímabær nú
segir „The Times“ í London
London, 21. júní — NTB
„The Times“ í London, sem er
óháð blað, heldur því fram í dag,
að fyrirhuguð heimsókn Kenne-
dys Bandaríkjaforseta til Evrópu,
sé ótímabær.
Telur blaðið, að kynþáttaó-
eirðirnar í Bandaríkjunum, vænt
anleg kanzlaraskipti í V-Þýzka-
landi, og erfiðleikar þeir, sem
brezka stjórnin á nú í, muni
verða mjög til að draga úr ár-
Yfirlýsing IUansholts
hagstæð Íslendingum
angri af ferðinni. Þó telur blaðið
rétt, að reyna að stuðla að því að
sem mestur árangur náist.
Blaðið víkur ennfremur að
stjórnmálaástandinu á ítaliu, og
óvissunni, sem ríkir á því sviði.
Ekki vill blaðið þó að heimsókn
forsetans til Evrópu verði frestað
héðan af. Samstarf ríkjanna
beggja vegna Atlantshafsbanda-
lagsins krefjist alltaf náins sam-
starfs, og því megi alltaf vænta
nokkurs árangurs af heimsókn
Kennedys, þótt hann kunni að
verða minni, en orðið hefði,. ef
betur hefði staðið á.
Valdastöðum í Kjós
20 júnL
TJM fimm þúsund trjáplöntur
voru gróðursettar hér um sl.
helgi. Mest var sett niður í landi ®
Neðra-Háls og Valdastaða, eða
um 3 þús. plöntur, þar næst á
lóð barnaskólans að Ásgarði.
Auk þess var sett niður við nokk
ur heimili, sem eru með gróður-
reitL — St G.
segir Jónas Haralz
Morgunblaðið hafði í gær tal
af Jónasi Haralz, forstöðumanni
Efnahagsmálastofnunarinnar,
vegna eftirfarandi fréttar, sem
birtist þá í MbL.:
Brússel 19. júní (NTB).
VARAFORSETI stjórnarnefndar
Efnahagsbandalags Evrópu, Sicco
Mansholt, sem fjallar um land-
búnað og fiskveiðar innan banda
lagsins, sagði í dag, að banda-
lagslöndin ættu ekki að stefna
að því að verða sjálfum sér nóg
sviði fiskveiða og fiskfram-
leiðslu.
Hann sagði, að bandalagsríkin
ættu að flytja inn fisk frá öðrum
löndum.
Spurðist Mbl. fyrir um það,
hvort þessi yfirlýsing hefði eitt-
hvert sérstakt,
ísland.
Jónas kvað þetta að vísu ekki
vera neina óvænta yfirlýsingu,
en þetta mætti samt teljast góð
yfirlýsing og hagstæð Islandi,
ekki sízt þar sem mikill áhrifa-
maður gæfi hana.
Efnahagsbandalagslöndin hefðu
ekki verið sjálfum sér næg um
fisk og fiskafurðir. Þeir, sem
sjávarútveg stunda í EBE-lönd-
unum, vilja, að löndin verði sjálf
um sér næg, en til þess yrði að
auka mjög fiskiflota þeirra. Tæk-
ist þeim það ekki, yrði EBE að
lækka hinn háa íisktoll. Hins
vegar hlyti fiskur alltaf að verða
dýrari, sem framleiddur væri í
þessum löndum, heldur en fisk
ur frá Noregi og Islandi.
Innan Efnahagsbandalagsins
gætti tveggja tilhneiginga, vernd
nýtt gildi fyrirunartilhneiginga og fríverzlunar-
tilhneiginga. Margt væri enn í
verndunaranda í bandalaginu, en
almennt sjónarmið þess yrði að
teljast í fríverzlunaranda, enda
væri það beinlínis tekið fram
í fyrstu greinum sáttmála þess.
Verndaráhrifa gætti einkum á
sviði landbúnaðar og fiskveiða,
sem eðlilegt væri. Fisktollurinn
væri t.d. nú óskaplega hár, 18%,
og yrði að lækka hann, ef EBE
gæti ekki orðið sjálfu sér nægt
um fisk, eða fríverzlunarsjónar-
miðin yrðu ofan á.
Sicco Mansholt er fyrrverandi
landbúnaðarmálaráðherra Hol-
lendinga. Kvað Jónas að lokum
ekki undarlegt, þótt hann héldi
fram tilvitnaðri skoðun, því að
Hollendingau: væru nú helztu
málsvarar frjálsrar verzlunar í
Evrópu, auk Svia.
V arðbergsf undur
um samvinnu
Evrópuríkja
VARÐBERG, félag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
efnir til fundar í Þjóðleikhús-
kjallaranum laugardaginn 22.
júní kl. 12 á hádegi. Þar mun for
stöðumaður upplýsingadéildar
Evrópuráðsins, Paul M. G. Levy,
halda erindi um viðhorfin í sam-
vinnu rikjanna í Vestur-Evrópu
og hlutverk Evrópuráðsins. Eins
og kunnugt er af fréttum, er hér
um að ræða tímabært efni. Hafa
ýmsir stjórnmálamenn undanfar-
ið látið í Ijós þá skoðun, að eftir
slit viðræðnanna í Briissel um að
ild Breta að EBE sé Evrópuráði8
öðrum stofnunum líklegra til að
geta fjallað um vandamálin með
árangri. — Paul M. G. Levy er
Belgíumaður. Hánn er staddur
hér á landi í þriggja daga heim-
«ókn. _