Morgunblaðið - 22.06.1963, Side 4
4
MORCVISBLAÐIÐ
Lau?ardagur 22. júnl 1963
| Rauðamöl
Gott ofaníburðar- og upp
fyllingarefni. Vörubílastöð-
in Þróttur, símar 11471 til
11474
Keflavík — Suðurnes
Tek að mér raflagnir og
viðgerðir á raflögnum.
Hörður Jóhannsson, raf-
virkjameistari Mávabr.
12B Keflavík Sími 1978.
SÆNGUR
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Seljum æðardúns-
og gæsadúnssængur — og
kodda af ýmsum stærðum.
Oún- og fiðurhreinsunln
Kirkjuteigi 29. Sími 33301.
Trésmiður
Trésmiðúr vanur verk-
stæðisvinnu. óskar eftir
vinnu. Hef bíl, margt kem
ur til greina. Uppl í síma
35832.
Rafvirki óskast
Astvaldur Jónsson löggilt-
ur rafvirkjameistari sími
35158.
Brunagjall
Reykjavík - Keflavík. Upp
fyllingar- og ofaníburðar-
efni. — Sími 14, Vogar.
íbúð
Læknastúdent óskar eftir
snoturri íbúð nú þegar eða
í haust. Tilb. merkt: „Góð
umgengni — 5034“, sendist
afgr. Mbl.
íbúð
Oska eftir að leigja góða
íbúð nú þegar eða með
haustinu. Uppl. í síma
22480 eða 12904.
Keflavík
Stofa til leigu uppl. í sima
1539, Keflavík.
RAFMAGNSELDAVÉL
til sölu. Uppl. í síma 38462.
Gangstéttarhellur
Fyrirliggjandi. Uppl. i
sima 50578.
Stúlka vön afgreiðslu
óskast í vefnaðarvörubúð
írá 1 eða 8 júlí.
Þorsteinsbúð
DODGE WEAPON SPIL
Spil, gírkassi (P.T.O) og
hjörulager til sölu. Uppl.
í síma 13156 e.h.
Stúlka
með 2ja ára barn óskar
eftir ráðskonustöðu úti á
landi. Uppl. í síma 1748.
Keflavik.
Bifreiðastjóri
með fullkomið meirapróf
óskast í sumar. Tilb. með
símanúmeri sendist Mbl.
fyrir hádegi, mánudag,
merkt: „5033“.
En þótt þér skylduð líða illt fyrir
réttlætis sakir, þá eruð þér sælir.
(1. Pét. 3. 14).
í dag er laugardagur 22. júní
173. dagur ársins
Árdegisflæði er kl. 06:45
Síðdegisflæði er kl. 19:09.
Næturvörður í Reykjavík vik-
una 22. til 29. júní verður í
Reykjavíkur Apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði vik.
una 22. til 29. júní verður Jón
Jóhannesson, sima 51466.
Næturlæknir í Keflavík verður
í nótt Kjartan Ólafsson.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgldaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavikjr eru opin alla
virka daga ki. 9-7 .augardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
FRETTASIMAR MBL.
— eftir lokun —
; Erlendar fréttir: 2-24-85
/ Inniendar fréttir: 2-24-84
Orð lifsins svara í sima 10000.
n EDDA 59636246 — 1
Félag austfirzkra kvenna: Skemmti-
ferð austur i Laugardal 25. júní kl. 9
f.h. Upplýsingar í síma 33448 og 15835.
Kvenfélag Kópavogs fer í skemmti-
ferð 30. júni. Upplýsingar í símum:
fyrir Austurbæ: 16424 og 36839; fyrir
Vesturbæ: 16117 og 23619.
i
A VÍGSLUDEGI hinnar nýju
Skálholtskirkju, 21. júlí 1963
mun pósthús verða opið í
Skálholti og sérstakur dag-
stimpill notaður.
Frímerkjasalan mun taka
á móti umslögum með álímd-
um gildandi frimerkjum til
stimplunar og pöntunum á frí-
merkjum til álímingar og
stimplunar. Slíkar pantanir
þurfa að berast fyrir 7. júlí
1963.
i
Leiðrétting
í frétt á bls. 2 Mbl. í gær urðu
þau mistök, að sagt var að hið
nýja skip Hraðfrystistöðvarinnar
í Reykjavík, Engey, hafi í
reynsluför sinni gengið 8.9 sjó-
mílur. í stað þess átti að standa
10.9 jómilur.
Eimskipafélag Reykjavíkur: Katla er
á leið til íslands. Askja losar á Norð-
urlandshöfnum.
JÖKLAR: Drangajökull fer væntan-
lega frá Eskifirði 1 kvöld til Lenin-
grad og London. Langjökull er í Hafn-
arfirði. Vatnajökull fór frá Grimsby
20. til Vaasa Yxpihlaja og Helsinki.
Hafskip: Laxá er í Wick. Rangá er
í Kaupmannahöfn.
Skipadeild SÍS: Hvassafell fór 17.
frá Reyðarfirði til Leningrad. Arnar-
fell er á Raufarhöfn. Jökulfell fór 19.
þ.m. frá Vestmannaeyjum til Camden
og Gloucester. Dísarfell kemur í dag
til Ventspils frá íslandi. Litlafell fer
dag frá Rvík til Siglufjarðar. Helga-
fell er í Rvík. Hamrafell kemur til
Rvíkur 27. frá Batumi. Stapafell er í
Rendsburg.
Loftleiðir: í>orfinnur karlsefni er
væntanlegur frá NY kl. 09:00. Fer til
Luxemborgar kl. 10:30. Eiríkur rauði
er væntanlegur frá Stafangri og Oslo
kl. 21:00. Fer til NY kl. 22:30. Snorri
Sturluson er væntanlegur frá Ham-
borg, Kaupmannahöfn og Gautaborg
kl. 22:30. Fer til NY kl. 23:30.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá
Rvík kl. 18:00 í dag til Norðurlanda.
Esja fer frá Rvík kl. 20:00 í kvöld
austur um land í hringferð. Herjólfur
fer frá Hornafirði 1 dag til Vestmanna-
eyja. Þyrill er á Norðurlandshöfnum.
Skjaldbreið er á Norðurlandshöfnum.
Herðubreið er í Rvík.
Eimskipafélag Islands: Bakkafoss
fór frá Bolungarvík 18. til Norrköp-
ing, Turku og Kotka. Brúarfoss er 1
NY. Dettifoss fer 1 dag frá Hamborg
til Dublin og NY. Fjallfoss er í Rvík.
Goðafoss er í Rvík. Gullfoss fer í dag
frá Kaupmannahöfn til Leith og Rvík-
ur. Lagarfoss er 1 Rvík. Mánafoss fer
frá Akureyri í dag til Siglufjarðar og
Keflavíkur. Reykjafoss fer frá Ham-
borg í dag til Antwerpen og Rvíkur.
Selfoss er í Rvík. Tröllafoss fer frá
Kristiansand í dag til Hull og Rvíkur.
Tungufoss er í Hafnarfirði Anni Nii-
bel fór frá Hamborg 20. til Rvíkur.
Rask er i Rvík.
Flugfélag íslands — Millilandaflug:
Skýfaxi fer til Bergen og Kaup-
mannahafnar kl. 10:00 í dag. Væntan-
legur aftur til Rvíkur kl. 16:56 á morg-
un. Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, ísafjarðar, Sauðárkróks,
Skógasands og Vestmannaeyja (2
ferðir). Á morgun er áætlaö að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), ísafjarðar og
Vestmannaeyja (2 ferðir).
Messur á morgun
Laugarneskirkja: Mesea kl. 11. f.h.
Séra Magnús Runólfsson
Reynivallaprestakall: Messað að
Reynivöilum kl. 2 e.h. Sóknarprestur.
Bústaðasókn: Messa í Réttarholts-
skóla kl. 11. Séra Gunnar Árnason.
Langholtsprestakall: Messa kl. 11.
Séra Árelíus Níelsson.
Hafnir: Messað kl. 2. Sóknarprestur.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Séra
Jakob Jónsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Séra Ósk-
ar J. JÞorláksson.
Það ýrði úr lojtinu smáum ó-
gagnsœjum dropum, þegar ég
lauk upp hliðinu og labbaði mig
beinustu leið að tvílyfta timbur-
húsinu, sem hýsir myndlistar-
séní vort á tuttugustu öld.
Það vár nokkrum kvöldum
fyrir kosníngar og trén farin að leitast við að graenka öðru sinni,
(Það er munur en Tíminn, hann er alla tíð jafngrænn).
Auðvitað renndi ég grun í, að Sumarliði Tagl (en hann er
séníið sem ég er að tala um) byggi sem nœst himintúllum og
gervihnöttum atómaldar, og það tór að líkum. Gömul kona með
broderaða eldhussvuntu eins og þær notuðu á Krókknum í den~
tíð kom til dyra og vísaði mér upp stiga brattan og mjóan, og ég
þræddi framhjá þvottábölum og gömlum árgaungum af Hjemm~
et og Fam.ilísjúrnal og stóð allt í einu fyrir dyrum Tagls.
Nafnspjald hékk ekki á dyrum, en atturámóti grœnt tagl (á
mynd áltso) og þarfyrirneðan úrklippa úr hinum merku tillögum
Jobba, sem Helgisœm hefur ekki viljað líta við kvað þámeira,
um mannúðlega meðferð á lystamönnum pg öðru slíku.
Við drepum á dyr. Og upp lýkur Sumarliði Tagl í eijin per-
sónu og býður okkur velkomna í nágrenni Andans manna alIra
Alda, svo og sputníka og könnuða vorrar aldar.
Það er einn gluggur á verelsi snillíngsins og veit til himna. Þar
að auki eru fjórir veggir á herberginu og einar dyr (þ.e.a.s. þœr
sem ég kom innum). Einn dívan er á miðju gólvi og málaratrön~
ur við vegg. Það er ekki annað húsgagna utan krukkur ýmiskon-
ar og flöskur með aðskiljanlegu inniháldi.
En á dívani snillíngsins sitja þrjár ungar skvísur og ein afgöm-
ul skutla, líklega síðan laungu fyrir stríð.
Ég býð gott kvöld. Sú gamla umlar á móti, hinar steinþegja.
— Þú býrð hér, seiji ég við Tagl
— Ójú. þessu húsi hlotnast sá heiður að hafa innan dyra
mesta snillíng, sem ísaland hefur alið. Góði seztu hjá ástkonum
vorum.
— Og þú er náttúrlega að drepast úr hugmyndaflugi.
— Mín fantasía byggist á innlivun í náttúruna með tilliti til
meðbræðra minna x andanum, Remmubrands og Salvadórs úr
Dölum
— O þú hefurða gott.
— Alltílagi meðan maður hefur sona fjórar konur og á fyrir
kaffi á Mokka. Annars vantar mig kjölturakka. Eða kött.
Also sprach Tagl..........
Keflavíkurkirkja: Messa kl. 2 s.d.
Séra Björn Jónsson.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Messa kl. 5
s.d. Séra Björn Jónsson.
Neskirkja: Ekki messað. Sóknar-
prestur.
Elliheimilið: Guðsþjónusta með alt-
arisgöngu kl. 10 árd. Séra Hjalti Guð-
mundsson. — Heimilispresturinn.
Fríkirkjan, Hafnarfirði: Messa kl.
10.30. Athugið breyttan messutíma.
Séra Kristinn Stefánsson
Læknar fjarverandi
Árni Guðmundsfon verSur fjarver-
andt frá 5. júni til 8. júli. Staðgengill
Björgvln Finnsson.
Arinbjörn Kolbeinsson verður fjar-
verandi frá 3. maí um öákveðinn tima.
Staðgengill: Bergþór Smárl.
Gunnlaugur Snædal, verður fjar-
verandl þar tii um miðjan júlí.
Guðmundur Eyjólfsson verður fjar-
verandi til 19. júlí. StaðgengiU er
Erlingur Þorsteinsson.
Hannes Finnbogason verBur fjar-
verandl frá XI. júní til 1 júli. Stað-
gengill er Víkingur Arnórsson.
Hannes t'órarin.sson verður fjarver-
andi um óákveðinn tíma. Staðgengill
er Bagnar Arinþjarnar.
Jón Nikulásson fjarverandl júnimán-
uð. Staðgengill er Ólafur Jóhannsson.
Jónas Sveinsson verður fjarverandi
júnímánuð. StaðgengiU er Haukur
Jónasson.
Kristin E. Jónsdóttir verður fjar-
verandi frá 31. maí um áókveðinn
tíma. Staðgengill Ragnar Arinbjaro-
ar.
Kristjana Helgadóttir verður fjar-
verandi til 3. ágúst. Staðgengill er
Einar Helgason. Lækjargötu 2, kl.
10—11 nema fimmtudaga kl. 6—7.
Símaviðtalstími kl. 11—12 (£ sim»
20442), og vitjanabeiðnir i síma
19369.
Kristján Hannesson verður fjarver-
fjarverandi frá 15. júni til júliloka,
Staðgengill er Erlingur borsteinsson.
Skúli Thoroddsen verður fjarverw
andi 24. þm. tU 30 júni. Staðgenglar;
Ragnar Arlnbjarnar, heimalæknir og
Pétur Traustason, augnlæknlr.
Stefán Ólafsson verður fjarverantH
til 1. júlí. Staðgengill: Ólafur Þor-
steinsson.
Sveinn Pétursson verður fjarverandl
um óákveðinn tíma. StaðgengiU w
Kristján Sveinsson.
JUMBÓ og SPORI
•4<- — 4<'
—K— ~
Teiknari J. MORA
Spori var ennþá fullur af vantrausti
á vingjamlegt útlit höfðingjans, en
kveðja hans, þegar hann heilsaði
þeim, virtist vera nógu sönn. — Kom-
ið endilega inn. Það var ekki á hverj-
um degi, sem ég hef þá ánægju að
tala við ókunnuga. — Þakka yður
fyrir, þér eruð alltof vingjarnlegur,
sagði Júmbó.
— Það er ekkert til að tala um,
svaraði höfðinginn. Þið eruð eðillega
hissa á að rekast á fólk, sem býr inni
í miðju fjalli. Það kemur til af því,
að forfeður okkar flúðu hingað undan
gullræningjum, þegar ....
.... forfeður ykkar heimsóttu þá
fyrir mörgum öldum síðan, stálu fjár-
sjóðum okkar, rændu heimili okkar
og brenndu þorpin.