Morgunblaðið - 22.06.1963, Síða 6
6
MORCVTSBLÁÐ1Ð
Laugardacrur 22. júnf 1963
Úr Austur-Skagafirði
JÓN KALDAL, Ijósmyndari, er
nú að leggja síðustu hönd á nýja
Jjósmyndastofu á Laugavegi 22,
efstu hæð, en svo sem kunnugt
er brann ljósmyndastofa hans fyr
ir einum mánuði og fór þar for-
görðum mikið af Ijósmyndapiöt-
um Kaldals, myndavél hans o. fl.
Kaldal er nú byrjaður að taka
myndir aftur eftir að hafa fengið
gert við myndavélina í Kaup-
mannahöfn, og býst við því að
geta hafið ljósmyndun aftur af
fullum krafti innan fárra daga.
Mbl. átti í gær tal við Kaldal.
Kvaðst hann hafa farið til Kaup-
mannahafnar með myndavélina
þremur dögum eftir brunann, en
belgur hennar hafði eyðilagst, og
lokarinn hefði bilað. Auk þess
hefði þurft að hreinsa linsurnar.
Myndavélina kvað Kaldal vera
frábært tæki, sem hann hefði
fengið fyrir mörgum árum, og
„við erum orðin vön saman“,
eins og hann orðaði það.
Kaldal sagði að hann og kona
hans, frú Guðrún Sigurðardóttir,
hefðu unnið að því sleitulaust að
undanförnu að hreinsa til, skoða
ljósmyndaplötur, taka frá það
sem e.t.v. væri hægt að bjarga
og kasta hinu. Allt þyrfti þó að
meðhöndlast, því reykhúð væri
4 öllum plötum og gríðarmikil
vinna væri að hreinsa þær. Ekki
væri byrjað á því starfi enn, en
einn og einn kassi væri athugað-
ur til þess að sjá hvað hægt væri
að gera.
Kaldal kvað ljósmyndastofuna
nýju að Laugavegi 22 vera komna
í lag, og sagðist vera byrjaður að
taka myndir. Færi hann sér hægt
í fyrstu meðan hann væri að
venjast hinum nýja stað. „En ég
held að þetta verði gott hér“,
sagði hann.
„Eg er ákveðinn í því að safna
ekki miklu af ljósmyndaplötum
hjá mér í framtíðinni, heldur
koma þeim á öruggan stað jafn-
hraðan“, sagði Kaldal. Hann bað
að lokum að þess yrði getið að
þau hjónin hefðu fengið ómetan-
lega hjálp við að flytja og bjarga
því, sem bjargað varð. Ef ekki
hefði notið þeirrar aðstoðar væri
hann vart farinn að taka myndir
aftur.
• Spegilmynd
af samtíðinni
Borgari skrifar:
Við hugsandi fólk úr öllum
stéttum verðum að taka á okk-
ur ábyrgðina af hinum geig-
vænlega drykkjuskap ungling-
anna, því hegðun unglinga hef-
ur verið og er aðeins spegil-
mynd af samtíðinnL
• Skemmtiferðir
fyrirtækja
Nú fer sá tími í hönd að ýms
fyrirtæki fara með starfsfólk
Bæ, Höfðaströnd, 13. júní: —
Þá er nú blessað sumarið komið
eftir slæman harðindakafla um
og upp úr páskum. Hefur nú skift
um til bóta og er nú hver dagur
öðrum betri og gróðri fleygir
fram. Þegar er farið að láta út
kýr víðast hvar og sumsstaðar
eru kýr látnar liggja úti í blíð-
viðrinu.
Þessi tími er einna mesti anna
tími fyrir bændur, verið er að
koma áburði á tún, kartöflur í
garða o. þ. h., en auk þess hafa
menn verið uppteknir við sauð-
burð, sem sagður er hafa gengið
vel víðast hvar.
Börnin flykkjast í sveitina.
Og nú fjölgar óðum á heimilun
um, kaupstaðabörnin eru að
flykjkjast í sveitina full eftir-
væntingar og gleði yfir nýjum
viðfangsefnum. Mörg koma í
fyrsta skipti en önnur eru orðin
heimavön, og tilhlökkun áreiðan
lega bæði hjá þeim og sveitafólk
inu að hittast aftur. Síðan ég man
fyrst hafa alltaf verið fleiri og
færri sumardvalarbörn á mínu
heimili, mjög mörg af þeim verða
manni kær og bindast okkur lífs
tíðarvináttu.
Það er mikil breyting frá því
að sitja á skólabekk og vera að •
eins hjá pabba og mömmu, en
vera svo allt í einu komin upp
í sveit, í eggjaleit, fjárrekstra,
gefa kálfum, bera af og velta sér
í heyi. Fæst af þeim hafa tíma
til að láta sér leiðast, en þó kem
ur það fyrir eins og eðlilegt er.
Ef til vill er það lika að einhverju
leyti þroskandi og gott, því þá
finna þau betur hvað þau eiga
heima.
Þó vitanlega sé alltaf nokk
ur fyrirhöfn og breyting á heim
ilunum, þegar þessir ungu borgar
ar koma, þá hlökkum við einnig
til, og af heilhuga viljum við að
þeim líði vel í sveitinni.
Búferli.
Nokkur breyting mun vera á
jarðnæðum hér um slóðir. Á
Krossi í Óslandshlíð hefur orðið
skipti, fjölskylda Jóhanns heitins
Gunnarssonar seldi jörðina en
flutti til Sauðárkróks. Kross
keypti tengdasonur Ólafs, Mikla
bæ í Óslandshlið, og er byrjaður
sitt í smá ferðalög um helgar,
áður en hin eiginlegu sumar-
frí byrja. Það er á allra vitorði
að þessar „skemmtiferðir“ eru
nær eingöngu fylliríisferðir.
Fólkið ekur í smá ferð um ná-
grenni bæjarins, en sezt síðan
að drykkju, oft á hótelum í ná-
grenninu, þar sem hver og einn
getur drukkið eins mikið vín
og hann þolir sér að kostnaðar-
lausu, þar sem fyrirtækið
greiðir allan kostnaðinn.
Fyrir tilviljun var ég vitni
að einni slíkri hópferð. Starfs-
fólk opinbers fyrirtækis úr
Reykjavík kom í „skemmtiferð“
þar búskap. Sagt er, að feðgar
á Kýrholti í Viðvíkurhreppi flytji
á Sauðárkrók, en við þá jörð er
enginn tilnefndur. Friðrik Pét-
ursson, bóndi á Hofi, hættir bú-
skap en jörðina tekur á leigu með
einhverjum bústofni Þorvaldur
Þórhallsson, bóndi á Þrastar-
stöðum. Nýr bóndi er kominn að
Hugljótsstöðum. Nokkrar breyt-
ingar eru þegar orðnar og fyrir
hugaðar á jörðum í Hjaltadal og
Fljótum.
V egaf amk væmdir.
Miklar framkvæmdir eru nú
fyrirhugaðar í vegagerð, sérstak
lega í Strákavegi til Siglufjarð
ar, þar mun vera um að ræða stór
virka vélavinnu, aðstaða til vinnu
er þó talin mjög erfið á þessum
slóðum, en mikið kapp á að
leggja við framkvæmdir þessar.
Meira og minna er svo unnið víð-
ar í héraðinu, enda mikil þörf á
vegabótum, því að alltaf eykst
umferðin um vegina af stórum
og smáum farartækjum.
Nautgriparækt fer vaxandi.
Eg býst við að sauðfjárrækt hér
í firðinum aukizt ekki á næstunni
og jafnvel eru sumir bæ»dur að
skipta að mestu yfir í nautgripa-
ræktina.
Nú er farið að flytja mjólk
utan úr Fljótum í Samlag á
Sauðárkróki. Er þá helftin af sýsl
unni komin í mjólkursölusvæði
Samlags K.S. á Sauðárkróki,
enda eykst mjólkurmagnið mikið
sem kemur þangað, og töluverðar
birgðir af óseldum vörum.
Við sjávarsíðuna hefur gengið
heldur erfiðlega í vor, fiskafli ver
ið tregur fram að þessu. Vertíðar
fólk er komið heim. Sumir karl-
menn eru farnir aftur á síldveiðar
en aðrir eru að byrja útgerð á
trillubátum sínum, en eins og fyrr
segir er afli ennþá mjög rýr.
Tveir dekkbátar eru gerðir út frá
Hbfsósi, annar um 18 tonn en
hinn um 50. Hafa þeir fengið reyt
ingsfisk — en langt sótt.
Ró komin á.
Kveffaraldur með miklum hita
hefur gengið um héraðið, sér-
staklega leggst þessi faraldur á
börn og unglinga.
Eftir allt moldviðrið, sem þyrl
að eins vistlegasta sumarhóteli
þessa lands. Fyrirtækið hafði
tekið á leigu skip sem flutti
fólkið hálfa leið á áfangastað.
Síðan var því ekið í langferða-
bílum að hótelinu. Maður skyldi
ætlað að blessað fólkið væri
komið á þennan fagra stað til
þess að hressa sig á fjallgöngu
eða annarri útivist, en svo var
ekki. Markmið ferðarinnar virt-
ist vera aðeins eitt: vindrykkja.
Og ekki að orðlengja það, að
upphófst hin ferlegasta drykkju
veizla, sem stóð fram á nótt.
Síðan var hinu dauðadrukkna
fólki ekið aftur að skipinu, sem
flutti það til borgarinnar. En
...með kvöldkaffinu
ÞEGAR ÞÉR gistið í Kaup-
mannahöfn, getið Jtér iesið
Morgunblaðið samdægurs, —
með kvöidkaffinu í stórborg-
inni.
FAXAR Flugfélags íslands
flytja blaðið daglega c<T það
er komið samdægurs i blaða-
söluturninn í aðaljárnbrautar-
stöðinni við Ráðhústorgið —
IJovedbanegardens Aviskiosk.
FÁTT er ánægjule.gra en að
lesa nýtt Morgunblað, þegar
verið er á ferðalagi vtra eða
dvalizt þar.
JflcrcgtmWaMíi
að var upp við kosningarnar, er
nú ró komin yfir og lítið minnst
á pólitík. Við sveitafólkið, og
raunar flestir aðrir, höfum líka
nóg annað um að hugsa og sýsla,
þar sem vorstörf byrjuðu seint
og sólarhringurinn endist varla
til að anna þeim störfum, sem
fyrir liggja.
Nýr prestur og læknir.
Og svo má ekki gleyma okkar
andlegu velferð. Síðastliðinn vet
ur höfum við i Hofs-, Hofsós-
og Fells-prestaköllum verið
prestslaus síðan sr. Árni Sigurðs
son flutti til Norðfjarðar austur.
Nú hefir einn prýðis maður,
sr. Oddur Thorarensen, prestur
að Hofi í Vopnafirði sótt um þessi
brauð. Prestskosning hefur farið
fram með mikilli þátttöku sókn
arbarna. Einnig hefur héraðslækn
ir okkar, Valgarð Björnsson, sem
þjónað hefur Hofsóslæknishéraði
síðan 1. október sl. nú fengið
veitingu fyrir héraðinu. Ættum
við því að vera vel á vegi stödd
með þjónustu til sálar og lík-
ama. — Björn í Bæ.
ekki voru allir þannig á sig
komnir andlega eða líkamlega
að þeir væru ferðafærir og urðu
þeir eftir á hótelinu.
• Sami leikur í hópi
jafnaldra?
Nær er mér að halda að
Þjórsárdalsæfintýrið sé hreinn
barnaleikur í samanburði við
hópdrykkju starfsfólks ým*
issa fyrirtækja borgarinnar,
Kannski þeir unglingar, sem
þar voru, séu starfandi hjá
ýmsum fyrirtækjum í Reykja-
vik, sem fara þessháttar
„skemmtiferðir" og vilji nú
leika sama leikinn í hópi jafn-
aldra sinna.
Væri ekki ærið verkefni að
rannsaka á hvern hátt t. d.
opinber fyrirtæki eiga í drykkju
skap almennings, og gaman
væri að fá að sjá hvaða upphæð
opinberar stofnanir verja til
vínkaupa fyrir starfslið sitL
BOSCH
Dynamóar
í báta
1.5 kw 32 volt og 3 kw 32 volt
P €
BRÆÐURNIR ORMSSON HF.
Sími 11467. BOSCH