Morgunblaðið - 22.06.1963, Blaðsíða 12
12
toORGVNBLAÐIÐ
Eaugarclagur 22. júní 1963
V.
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sjgurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakió.
ÖFUGUGGAHA TTUR
Ctjórnarsamstarf Sjálfstæð-
^ isflokksins og Alþýðu-
flokksins sl. fjögur ár hefur
sem kunnugt er gengið mjög
vel, og skal hér ekki rifjað
upp, hve miklu Viðreisnar-
stjórnin hefur áorkað. Það
vita allir landsmenn, enda
vottuðu þeir stjórninni traust
í kosningunum 9. júní.
En þrátt fyrir þetta góða
stjórnarsamstarf, sem fyrst
og fremst liefur miðað að því
að koma hér á heilbrigðu og
frjálsu efnahagskerfi, líkt og
er í öllum nágrannaríkjunum,
hvort sem þeim er stjómað
af íhaldsmönnum, sósíaldemó
krötum eða frjálslyndum, þá
hefur alltaf öðru hvoru skotið
upp kollinum í Alþýðublað-
inu afturhaldssjónarmiðum,
sjónarmiðum sem eru í fullri
andstöðu við þann anda og
tilgang stj órnarstefnunnar að
koma hér á fi-jálsu og heil-
brigðu efnahags- og við-
skiptalífi.
Ritstjóri Alþýðublaðsins
hefiir ekki getað stillt sig um
að koma á framfæri aftur-
haldssömum einkasjónarmið-
um sínum, þó að ráðherrar
flokksins hafi staðið að fram-
kvæmd frjálslyndrar stefnu.
Allmörg dæmi mætti nefna
um þennan öfuguggahátt Al-
þýðublaðsins, enda reyndist
frumhlaup blaðsins flokkn-
um dýrkeypt í borgarstjórn-
arkosningunum í fyrra, og
vafalaust hefði flokkurinn
unnið meiri sigur í Alþingis-
kosningunum, ef Alþýðublað-
ið hefði aldrei ymprað á hin-
um úreltu sjónarmiðum.
VERÐLAGS-
EFTIRLÍT
¥ gær ræðir Alþýðublaðið
í ritstjórnargrein um
verðlagseftirlit og fer um það
mörgum fögrum orðum og
segir síðan:
„En það er lítið gagn í verð-
lagseftirliti, ef það er ekki
öflugt og vel vakandi. Nokk-
uð hefur skort á það hér, að
verðlagseftirlitið væri nægi-
lega öflugt. Má vera, að það
hafi ekki yfir nægilega mikl-
um starfskröftum að ráða til
þess að geta rækt hlutverk
sitt nægilega vel. Ef svo er
þarf úr því að bæta.“
Og ritstjórnargreininni lýk
ur með þessum orðum:
„Mun Alþýðuflokkurinn
leggja mikla áherzlu á það í
stjómarsamstarfinu, að verð-
lagseftirlitið verði eflt.“
Það er mál út af fyrir sig,
að í vinnuaflsskortinum vill
ritstjóri Alþýðublaðsins taka
herskara manna frá fram-
leisðlustörfum til að snuðra
og þrengja að athafna- og
viðskiptafrelsi. Hitt er þó al-
varlegra, að hann segist tala
fyrir munn Alþýðuflokksins,
þegar hann gefur yfirlýsingu
um að auka beri verðlagseft-
irlit. í bæklingnum Yiðreisn,
sem ríkisstjórnin gaf út
1960, er mörkuð stefna stjórn-
ariílnar. Þar segir m.a.:
„Ætlun ríkisstjórnarinnar
er, að halda valdsviði og fyr-
irkomulagi verðlagseftirlits-
ins óbreyttu frá því, sem nú
er, með þeirri einu breytingu
á yfirstjórn verðlagsmála,
sem nánar er getið hér á eft-
ir. Telur ríkisstjórnin verð-
lagseftirlitið eiga þýðingar-
miklu hlutverki að gegna í
sambandi við framkvæmd
þessara efnahagsráðstafana.
Hitt er svo annað mál, að
þegar frá líður, getur betra
jafnvægi í efnahagsmálum og
meiri samkeppni í innflutn-
ingi leitt til þess, að þýðing
verðlagseftirlitsins verði
minni en hún verður nú fyrst
um sinn.“
Viðreisnarstjómin náði
þeim markmiðum sínum að
koma á heilbrigðum utanrík-
isviðskiptum og treysta svo
gjaldeyrisstöðu þj\ðarinnar,
að unnt var að gefa innflutn-
ing til landsins að mestu
frjálsan, þannig að vörufram-
boð er nú meira hér á landi
en nokkru sinni áður. Þannig
er skapaður grundvöllur fyr-
ir frjálsum viðskiptaháttum
og samkeppni, sem bezt þjón-
ar hag neytenda.
Eftir því sem segir í „Við-
reisn“ er verðlagseftirlitið nú
þýðingarminna en áður og
raunar er það því til trafala,
að íslenzk alþýða búi við
beztu hugsanlegu viðskitpa-
kjör. Þessar hömlur vill Al-
þýðublaðið efla andstætt yf-
irlýsingu stjórnarinnar og
virðist á þessu sviði a.m.k.
hafa meiri trú á yfirsýn póli-
tískra sendisveina og nefnd-
armanna en dómgrein fólks-
ins, sem velur sér .vörur.
SKYLDA KAUP-
SÝSLUMANNA
lVaupsýslumenn hafa mikl-
ar skyldur við þjóðina.
Starf þeirra er eitt hið mikil-
vægasta. Á dugnaði og ár-
vekni þeirra byggist hagur
þjóðarinnar ekki hvað sízt,
því að það er ekki nægilegt
að afla verðmæta til lands og
sjávar, heldur þarf líka að fá
sem bezt verð fyrir afurðirn-
Fyrir skömmu var gert nýtt hlið á Berlínarmúrinn og á myndinni sjást tveir austur-þýikir
landamæraverðir gæta þess að engum takist að nota tækifærið til þess að flýja. Hlið þetta er
nálægt Schönfeld-flugvellinum í Austur-Berlin og styttir leiðina frá Vestur-Berlín til hans.
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, fengu tveir blökku-
stúdentar inngöngu í háskólann í Tuscaloosa í Alabama í
Bandaríkjunum. Ríkisstjóri Alabama vamaði þeim inngöngu
í skólann, þar til Kennedy Bandaríkjaforseti lét sambands-
stjórnina taka við yfirráðum hers Alabama. Blökkustúdent-
arnir, James Hood og Vivian Malone, bæði 20 ára, eru nú
sezt á skólabekk með hvítum nemendum og hefur skólaganga
þeirra verið árekstralaus til þ essa. Hér sézt Vivian á leið
milli húsa á skólalóðinni.
ar erlendis og kaupa sem bezt
ar og ódýrastar vörur.
Um langt skeið hefur rík-
isvaldið staðið að ráðstöfun-
um, sem oft á tíðum hvöttu
innflytjendur til þess að gera
óhagstæð innkaup. Úthlutun
smárra innflutningsleyfa
leiddi til þess að kaupa varð
lítið í einu fyrir hátt verð í
stað þess að kaupa meira fyr-
ir lægra verð. Verðlagshöml-
ur beindu fjármagninu að
viðskiptum með óþarfa-
varning, sem há álagning var
á, en frá nytsamari viðskipt-
um, sem í sumum tilfellum
gátu alls ekki borgað sig.
— Hundraðshluta-álagningin
gaf þeim kaupmanni meiri
hagnað, sem keypti dýrara
o.s.frv. •
Allt þetta kerfi þekkja
landsmenn af langri og
slæmri reynslu. Þess vegna
hafa þeir kosið frjálsræði.
Þeir hafa vottað þeirri stjórn
traust, sem leysti af innflutn-
ingshömlurnar og lofaði ,að
afnema verðlagseftirlitið.
Þeir, sem greiddu Alþýðu-
flokknum atkvæði í kosning-
unum fyrra sunnudag, hafa
trúað því að hann stæði við
þessa stefnu og því skal ekki
að óreyndu trúað að flokkur-
inn ætli að yfirgefa hana,
þrátt fyrir frumhlaup Alþýðu
blaðsins.
Kaupsýslumenn hafa nú
fengið að mestu leyti það
frjálsræði til innflutnings,
sem þeir hafa barizt fyrir.
Þeim er þess vegna skylt að
leggja sig alla fram um að
flytja inn sem beztar og ódýr-
astar vörur og hafa líka á
mörgum sviðum þegar gert
það. Hins vegar háir verð-
lagseftirlitið enn eðlilegri
samkeppni og er þannig til
tjóns. En þegar því verður
aflétt, verða kaupmenn að
gera sér fulla grein fyrir því„
að þeir mega enga tilraun
gera til að hafa samstöðu um
að halda uppi verði.
Ef í ljós kæmi að slíkt væri
reynt bæri að gera ráðstafan-
ir til að unnt væri að refsa
slíkum mönnum. Það er gert
víða erlendis.
Morgunblaðið efast ekkl
um hollustu kaupsýslu-
manna, ef þeir fengju að
starfa frjálsir, þótt lengi sé
búið að hefta þá og draga úr
afrekum þeirra í þágu landa
og þjóðar.