Morgunblaðið - 22.06.1963, Síða 23
TT \ y
)• Laugardagur 22. júní 19G3
MORCPfllBnBIÐ
23
Síðasti hvítahjörn-
inn skotinn 1932
í GÆR hringdi til Mbl. Guð
mundur Guðni Guðmundsson
og skýrði frá því að ekki hafi
verið alls kostar rétt sem stóð
í blaðinu í gær, að síðasti
hvítabjörninn, sem skotinn
var á íslandi þar til nú, hafi
verið felldur við Hornbjarg
1920. Síðasti björninn hafi ver
ið unninn í Drangavík af Guð-
mundi Guðbrandssyni bónda
þar., 8. apríl 1932. í sömu viku
hefði rekið dautt bjarndýr í
Veiðileysu í Strandasýslu, en
þar bjó þá Guðbrandur, bróð-
ir Guðmundar Guðbrandsson-
ar. Guðmundur Guðni ritaði
grein um bjarndýrsdráp nafna
síns í Lesbók Mbl. fyrir sex
árum, en björninn var drep-
inn með all sögulegum hættL
Er stuðzt við grein Guðmund-
ar í frásögn þeirrL sem hér
fer á eftir:
Þann 8. apríl voru tveir
synir hjónanna í Drangavík,
11 og 14 ára gamlir, að renna
sér á sleða í fjallshlíðinni
austur af bænum. Var kallað
í þá um sjöleytið að koma
heim, sem þeir gerðu. Stuttu
síðar fór faðir þeirra til fjár-
húsanna og síðan til lambhús-
anna, sem voru austar á tún-
inu. Hafði hann meðferðis
fötu með síld, og leiddi 4 ára
gamlan son sinn.
Er Guðmundur var kominn
miðja vegu milli fjárhúsanna,
sá hann hvítabjörn koma nið-
ur hlíðina á móti sér og fara
greitt. Tók hann þá barnið
undir hönd sér og hljóp til
fjárhúsanna sem hann kom
frá, skildi þar síldarfötuna
eftir fyrir utan og hljóp síðan
heim.
Ekki hafði Guðmundur ann-
að liðsmanna á bænum en
aldraðan mann og geðbilaðan
miðaldra mann, sem var niður
setningur á bænum. Hins veg-
ar átti hann tvíhleypta hagla-
byssu, áður ágætt vopn, en nú
var annað hlaupið ónýtt orð-
ið og útdragarinn á hinu bil-
aður þannig að tómu skotin
gengu ekki úr byssunni nema
ýtt væri á þau með krassa
niður hlaupið. Guðmundur
hlóð nokkur skot með sela-
höglum og hafði þau svo stór
sem hann þorði. Eitt var sett
í byssuna, hinum stakk hann
í vasann.
Niðursetningnum fékk Guð-
mundur krassann til að losa
skothylkið eftir að hleypt
hefði verið af, og auk þess
beittan ljá, vel vafinn að ofan.
Á meðan undirbúningurinn
fór fram, var fylgzt með bjarn
dýrinu úr glugga. Hafði það
augsýnilega fundið slóð drengj
anna frá því fyrr um daginn,
rakið hana heim að hlöðunni,
sem stóð á bak við fjárhúsin.
Stökk það upp á hlöðumæninn
sem ekkert væri, og renndi
sér svo niður á fjárhúsþakið,
siðan niður af því og rölti að
dyrunum. Þar sá dýrið síldar-
fötuna og fór að slafra í sig
síldina.
Lögðu þá mennirnir af stað
þrír saman, gengu fyrst um-
hverfis bæinn og allstóran
sveig við dýrið. Bar þeim sam
an um að það hafi fljótlega
tekið eftir þeim, en hélt þó á-
fram að háma í sig síldina.
Gengu mennirnir fyrir hlöðu-
hornið og upp á hlöðuna. Það-
an fór Guðmundur niður á
nyrzta fjárhúsið og er björn-
inn sá hann tók hann undir
sig eldsnöggt stökk í áttina til
hans. Guðmundur hleypti þá
af, beint framan I dýrið, sem
féll aftur fyrir sig, en brölti
þó á fætur og hopaði nokkra
faðma út á túnið. Skaut Guð-
mundur þá aftur, og hæfði að
þessu sinni í hjartastað. Til
vonar og vara skaut hann
þriðja skotinu.
Þetta reyndist fullorðinn
hvítabjörn, rauðkinnungur, en
þeir voru jafnan taldir grimm
astir og hættulegastir allra
bjarndýra.
Drangavík hefur nú verið í
eyði um árabil.
SIS vill breytingu á
iánafyrirkomulaginu
Jakob Frímannsson endurkjörinn formaður
Sambandsins
— Nýr páti...
Framhald af bls. 1.
Um 100.000 manns stóðu á Pét-
urstorginu í Róm, er hvíti reyk-
urinn steig til himins frá kapell-
unni. Þá var hádegi.
Er tilkynnt hafði verið um úr-
slit kjörsins, sté Páll páfi frám
á svalir Péturskirkjunnar, en
fólksfjöldinn fagnaði, veifaði
klútum og hrópaði: „Lengi lifi
páfinn."
Páll páfi stóð frammi fyrir fólk
T ugþrautin
hófst í gær
TUGÞRAUT meistaramófcsins
hófst í gærkvöldi. Eftir fyrri
hlutann er Valbjörn Þorláksson
KR með 3566 stig. Páll Eiríksson
FH, er með 2827, en Kjartan Guð
jónsson KR, hætti eftir fyrstu
greinina vegna meiðsla.
Afrek Valbjarnar voru 10,9 sek.
f 100 m, 6,48 í langstökki, 12,63 í
kúlu, 1,75 í hástökki og 53,0 sek
í 400 m hlaupi.
Þá var keppt í 4x800 m boð-
hlaupi. A-sveit KR hljóp á 8.26,6
mín., en unglingasveit KR setti
Unglingamet, 8.35,2 mín.
Kristján Mikaelsson hljóp 800
m á 2.02,0 mín. en hikaði mjög
í byrjun þannig að ætla má að
hann geti náð mun betri tíma
hvenær sem er.
f GÆR var aðalfundi Sam-
bandsins haldið áfram að Bifröst
í Borgarfirði.
í fundarlok daginn áður voru
reikningar Sambandsins teknir
fyrir. Voru þeir samþykktir sam-
hljóða.
Þá var samþykkt tillaga frá
sambandsstjórn, um að greiða
Sambandskaupfélögunum 2 Vz %
tekjuafgang af viðskiptum þeirra
við Sambandið á árinu 1962-
í framhaldi af fyrri umræðum
um fjármál Sambandsins og kaup
félaganna mælti forstjóri fyrir
svohljóðandi ályktun frá Sam-
bandsstjórn:
„Nútíma búskaparhættir eru
mjög fjárfrekir. Aukin notkun
véla, áburðar og fóðurbætis bind
ur í landbúnaðinum fjárhæðir,
sem fara vaxandi ár frá ári.
Einkum í sauðfjárbúskapnum
binzt þetta fé til mjög langs tíma
meira en tvö ár líða frá því að
borið er á til heyöflunar og þar
til sauðfjárafurðir eru að fullu
seldar. Þetta langa bil hefur
m.a. verið brúað með fyrirfram-
rekstrarlánum og lánum út á
birgðir frá Seðlabankanum. Árið
1960 voru gerðar breytingar á
lánareglum, sem leitt hafa til
mjög verulegrar hlutfallslegrar
inu í þrjár mínútur. Blessaði
hann borgina og heiminn.
Það var á miðvikudag, að
kardínálarnir 80 komu saman í
Sixtusarkapellunni til að velja
nýjan páfa, í stað Jóhannesar
XXIII. Gengið var til atkvæða-
greiðslu tvisvar á dag, og er tal-
ið, eins og fyrr segir, að Páll VI.
hafi verið kjörinn við sjöttu at-
kvæðagreiðslu.
Talsmaður Vatikansins lýsti
því yfir í dag, að nýkjörinn páfi
myndi senn flytja heiminum boð-
skap. Eitt fyrsta verk páfans var
að skipa Amleto Cicognani fyrsta
ríkisritara, þ.e. forsætis- og ut-
anríkisráðherra Vatikansins.
í fréttum frá Róm í dag segir,
að Páll páfi VI., sem nú er 65 ára,
hafi alla ævi verið veikbyggður,
og ekki talinn heilsuhraustur.
Eitt af fyrstu verkefnum Páls
páfa verður að taka afstöðu til
tveggja þýðingarmikilla mála:
1) Hvort hann kallar kirkju-
þingið saman á nýjan leik.
2) Hvort hann heldur áfram á
braut Jóhannesar XXIII. og reyn
ir að bæta samskipti kirkjunnar
og kommúnískra landa.
Páfinn nýi hefur áður lýst því
yfir, að hann sé fylgjandi stefnu
síðasta páfa í öllum meginatrið-
um, þ.e. fyrst og fremst samein-
ingu allra kristinna manna, þ.e.
kaþólskra og mótmælenda.
Allir helztu ráðamenn heims
sendu þegar kveðju til Vatikans-
ins og fögnuðu kjörinu. Tilkynn-
ing var gefin út í Moskvu, en
þaðan barst engin yfirlýsing um
afstöðu til Páls páfa VI.
Japanir bjóða
423 tría ferð til
Japan
JAPÖNSK íþróttayfirvöld
hafa tilkynnt að 423 af beztu
íþróttamönnum víðsvegar nm
heim verði boðið til að taka
þátt i einskonar generalprufu
fyrir Olympíuleikana 1964 og
verður þessi iþróttahátið í okt,
n.k. Japanir greiða allan ferða
kostnað og uppihald fyrir
þessa 423 iþróttamenn.
Að auki bjóða þeir 99 erl.
íþróttamönnum Ul að taka
þátt í mótinu en þeir verða
að greiða ferðakostnað sinn.
Mótið í október stendur í
viku, hefst 11. október og fer
fram á hinum ýmsu olympíu
ieikvöngum í Japan.
Boðskort verða send út sið
ari hluta júlímánaðar.
Sjóstangaveiði-
mót í Ketlavík
ANNAÐ sjóstangaveiðimótið á
vegum The Rod Fishing Club of
Keflavík Airport verður háð dag
ana 29. og 30. júní nk.
Gert er ráð fyrir að taka á
móti 50 il 60 keppendum, körl-
um og konum, sem munu gista
á Flugvallarhótelinu.
Róið verður laugardag og
sunnudag frá Keflavíkurhöfn á
10 til 12 bátum.
Morgun- og kvöldverður verð-
ur framborin í einum af klúbb-
unum, og nesti fá keppendur með
sér á sjóinn.
Á sunnudagskvöld, að afloknu
móti, verður sameiginlegt borð-
hald þar sem úrslit verða kunn-
gjörð og verðlaunaafhending fer
fram. Keppt verður um marga
fagra og eigulega gripi, gefna af
veiðiklúbb Keflavíkurflugvallar
og bæjarstjórn Keflavíkur.
En sérstaklega er þó vandað
til þeirra verðlauna, sem ætluð
eru sigurstrengilegustu kvenna-
sveitinni, en í hverri sveit eru
fjórir keppendur.
Nú þegar hafa 35 keppendur
skráð sig til keppni frá Vest-
mannaeyjum og Reykjavík. —
Nýir keppendur verða skráðir til
kl. 6 á miðvikudagskvöld nk.
Keppendur leggja upp frá
Reykjavík í langferðabílum kl.
6 e. h. föstudaginn 28. júní nk.
Leiðré
veiðifrétt
étting á lax-
FRÁ því var sagt béðan í frétt-
um að 19. júni væru konmir á
lamd úr Laxá í Kjós 52 laxar, en
áfcti að vera 59. Og í dag fyrir
hódegi, böfðu veiðzt 5 laxar.
Einnig var sagt frá því, að veiði
væri ekki byrjuð í Bugðu, en
þar máitti byrja að veiða, þann
1. júní. Etoki mun bafa veiðzt
þar liax að kunnugt sé. Aftur á
móti, hefir veiðzit þar töluvert
atf silungi. Allmikill lax er nú
genginn í Laxá að sögn eftir-
liitsmanns við ána.
— SLG.
frá Aðalbílasölunni Ingólfsstræti
11.
Þátttökukostnaður, svo sem
ferðir, gisting, fæði, bátar o. fl.
er áætlað um kr. 1600,00.
Síðastliðið sumar í ágúst var
fyrsta mótið haldið frá Keflavík,
á vegum sama félags, og voru
þátttakendur þá um 40 talsins.
Mótið tókst með afbrigðum vel
og rómuðu keppendur fram-
kvæmd alla og fyrirgreiðslu. Þá
báru Reykvíkingar sigur úr
býfcum.
14 laxar úr Ölfusá
SELFOSSI, 21. júní. — Laxveiði
hófst í ölfusá og Hvítá miðviku-
daginn 19. júní. Þann dag veidd-
ust hér á Selfossi 4 laxar í fjórar
lagnir og hafa síðan veiðzt 10
laxar. Má telja að veiðihorfur
séu allsæmilegar — Ó. J.
Bátur íeigður til
sjóstangaveiða
SJÓSTANGAVEIÐIFÉLAG
Reykjavíkur hefur nýlega tekið
á leigu bátinn Farsæl, sem er 7
tonn, frambyggður þannig, að
gott athafnarými er á afturþil-
fari fyrir veiðimennina. Þrjár
fastar ferðir út á Svið eru nú í
hverri viku, og er farið skömmu
eftir hádegi föstudaga, laugar-
daga og sunnudaga. Farið er frá
hryggjunni við Slysavarnafélags-
húsið á Grandagarði, og kostar
farið 250 kr. á mann. Nánari upp-
lýsingar um ferðirnar er hægt að
fá í síma 1 56 05.
lækkunar á lánum þessum. Sam
vinnufélögin hafa eigi að síður
haldið óbreyttum reglum sínum
um útborganir til bænda fypir
afurðirnar og um reikningslán til
þeirra vegna kaupa á rekstrar-
vörum, en til þess hafa orðið að
koma til sívaxandi fjárhæðir
umfram afurðalánin.
Nú er svo komið, að fjáröflun
til þessa er orðin óviðráðanlegt
vandamál og verður annað hvort
að ske, að uppigreiðslur og
rekstrarvörulán samvinnufélag-
anna til bænda lækki stórlega,
eða veruleg lagfæring fáist á
lánafyrirkomulaginu.
Þess vegna skorar 61. aðal-
fundur SÍS, haldinn í Bifröst 20.
og 21. júní 1963, á ríkisstjórnina
og Seðlabankann að beita sér
fyrir því, að bankakerfið í land-
inu leysi þetta vandamál með
því:
1. að nægileg afurðalán verði
tryggð til þess að samvinnu-
félögin geti borgað bændum
90% verðsins strax við mót-
töku afurðanna, og
2. að fyrirframlánin verði hækk-
uð á ný upp í 67% af áætluðu
útborgunarverði til bænda.
Jafnframt lýsa SÍS og Sam-
bandsfélögin sig reiðubúin til
þess að taka sanngjarnan þátt í
heildarlausn þessa vandamáls".
Ályktun þessi var samþykkt
samhljóða.
Formaður Sambandsins flutti
Vinnmálasambandi samvinnufé-
laganna þakkir fyrir störf þess að
lausn vinnudeilunnar á Norður-
landi og tóku fundarmenn undir
þær þakkir samhljóða.
Mjög miklar umræður urðu
um félagsmál og tóku margir til
máls. Síðari hluta dags fór fram
stjórnarkjör. Úr stjórn gengu að
þessu sinni formaður Sambands-
stjórnar. Jakob Frímannss., kaup
félagsstjórL og þeir Þórður
Pálmason kaupfélagsstjóri og
Skúli Guðmundsson alþingismað
ur. Voru þeir allir endurkjörnir
tii þriggja ára. f varastjórn voru
kjörnir Guðröður Jónsson, kaup-
félagástjórL Páll Hallgrímsson
sýslumaður var kjörinn annar
endurskoðandi til tveggja ára.
Varaendurskoðendur voru end-
urkjörnir þeir Guðbrandur Magn
ússon forstjóri, og séra Svein-
björn Högnason.
Formaður þakkaði fulltrúum
starfsmönnum og gestum góða
fundarsetu og árnaði þeim og
samvinnumönnum um land allt
heilla í störfum og sleit síðan
þessum 61. aðalfundi Sambands
íslenzkra Samvinnufélaga.
Samverunni í Bifröst lauk með
sameiginlegu borðhaldi fundar-
manna og hóps starfsmanna og
gesta Sambandsins.
(Frá SfS).
Frá Laxá í
Leirársveit
Akranesi 21. júní
STANGAVEIÐI hófst í Laxá í
Leirársveit 12. júní sl. Þrir laxar
veiddust fyrsta daginn og tveir
amnan daiginn. Báða dagana flaut
18 punda lax með í aiflanuim.
Fyrsti laxinn er á land toom
fétokst á flugu. — Oddur.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
ÞORKELS GUÐMUNDSSONAR
Fríða Lárusdóttir og börn hins látna.