Morgunblaðið - 22.06.1963, Page 24
r
Buðingaf
137. tbl. — Laugardagur 22. júní 1963
Alvarlegasta stjórnmála-
kreppa í Noregi í rum 20 ár
Vanræksla olli dauða 21 manns d Svalbarða í fyrra;
Holler iðnaðarmdlardðherra segir af sér
Osló, 21. júní (AP-NTB)
í DAG kom til alvarlegustu
stjórnmláaátaka í Noregi frá
stríðslokum. Fylgja þau í
kjölfar skýrslu, sem gerð hef-
ur verið um orsakir náma-
slyss í Kings Bay námunum
á Svalbarða. Slysið var í nó-
vember í fyrra, og lét 21 mað-
ur lífið.
í skýrslunni er því haldið
fram, að slysið hafi orðið
vegna ítrekaðrar vanrækslu,
og hafi nauðsynlegar varúð-
arráðstafanir ekki verið hafð-
ar um hönd um langt skeið.
Námurnar eru ríkiseign, og
hefur iðnaðarmálaráðherr-
ann, Kjell Holler, lagt fram
lausnarbeiðni sína.
Norska stjómin hefur í dag
rætt, hvaða ráðstafana skuli
gripið til, vegna skýrslunnar uin
ástandið í Kings Bay námunum,
í þann mund, er slysið bar að
höndum.
Hefur þremur ráðuneytum, at-
vinnumála-, iðnaðar- og dóms-
xnáiaráðuneytinu verið fyrirskip
að að athuga þá hlið málsins. Er
ætlunin að -ráðuneytin skili á-
liti einhvern næstu daga. Stjórn-
in hefur ákveðið að stöðva alla
vinnu í Kings Bay námunum, þar
til nýju ljósi verður varpað á mál
ið.
Stjórnin hefur verið beðin um
að leggja fram yfirlýsingu um
málið. Er hún liggur fyrir, er
talið sennilegt, að þingnefndir fái
málið til meðferðar.
Mál þetta er talið mjög alvar-
legt, en samkvæmt skýrslunni, er
hér um að ræða vanrækslu, er
valdið hefur dauða tveggja tuga
manna.
Er fréttamaður MTB-fréttastof
unnar ræddi við Einar Gerhard-
sen forsætisráðherra, í dag, sagð-
ist ráðherrann ekki geta sagt til
um, hvenær skýrslu stjórnarinn
ar um málið væri að vænta. Hins
vegar kvað hann henni mundu
verða hraðað, svo sem tök væru
á.
Flestir ráðherrar komu saman
til fundar í dag, ásamt allmörg-
um þingmönnum. Leiðtogi full-
trúa Verkamannaflokksins á
þingi, Nils Hönsvald, skýrði |
fréttamanni NTB frá því eftir
fundinn, að málið hefði verið
rætt í 4 stundir. Hann skýrði enn
fremur frá því, að ríkisstjórnin
vildi fá úr því skorið hvort hún
gæti talizt bera ábyrgðina á van-
rækslu þeirri, er olli dauða náma
mannanna. „Hafi dkkur orðið eitt
hvað á“, sagði hann, „þá kemur
til okkar kasta að reyna að bæta
fyrír það“.
Stjórnarandstaðan hefur rætt
málið á sérstökum fundi. Að hon
um loknum var gefin út yfirlýs-
ing þar sem þvi var lýst yfir,
að málið yrði að koma til kasta
Stórþingsins, eins skjótt og unnt
væri.
Leiðtogar norsku stjórnmála-
flokkanna hafa rætt mál þetta í
sjónvarpi og útvarpi í dag.
Samkomulag með fyrir-
vara við Dagsbrún
í GÆR náðist samkomulag með
fyrirvara milli Vinnuveitenda-
sambands Íslands og Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar í
Reykjavík um kaup og kjör.
Samkomulagið er háð þeim fyrir-
vara, að það verði samþykkt á
fundi framkvæmdanefndar vinnu
veitendasambansins og félags-
fundi Dagsbrúnar.
í fyrrakvöld var samninga-
fundur með félagi skipasmiða í
Raykjavík. Stóð hann til kl. eitt
um nóttina, án þess að nokkurt
samkomulag næðist.
Sigurður Sigurðsson fyrr-
verandi sýslumaður látinn
SIGURáDUR Sigurðsson, fyrrver-
ai.di sýslumaður í Skagaíirði,
andaðist sl. fimmtudagsikvöld að
hjúkrunarheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði. Hafði hann legið
rúmfastur á sjúkrahúsi síðan í
nóvember sL
Sigurður Sigurðsson var fædd-
ur í Vigur á ísafjarðardjúpi 19.
septemiber árið 1887. Voru for-
eldrar hans frú I>órunn Bjarna-
duttir frá Kjaransstöðum á Akra-
nesi og sr. Sigurður Stefánsson,
prestur og alþingismaður í Vig-
ur. Lærði hann undir skóla hjó
föður sínum en fór síðan í
menntaskólann og lauk þar stúd-
entsprófi árið 1908. Lagði hann
síðan stund á lögfræði, fyrst við
háskólann í Kaupmannahöfn og
síðan við Háskóla íslands og
lauik þaðan embættisprófi árið
1014.
Að loknu embættisprófi gerð-
ist Sigurður Sigurðsson héraðs-
dómslögmaður á ísafirði og va'r
þar til ársins 1921. Þá varð hann
fulltrúi 1 fjármálaráðuneytinu
en stundaði jafnframt málflutn-
ing fýrir HæstaréttL Árið 1924
var hann settur bæjarfógeti í
Vestmannaeyjum um hálfs árs
skeið, en 1. desember það ár var
hann skipaður sýslumaður í
Skagafjarðarsýslu og gegndi því
embætti til ársins 1957, er hann
páði aldurshámarki embættis-
manna. Fluttist hann síðan ti'l
Reykjavíkur og átti þar heimili
siðan.
Sigurður Sigurðsson naut vin-
sælda og virðingar í héruðum
sínum. Hann var ágætlega greind
ur maður og skáld gott.
Kvæntur var Sigurður Sigurðs
son Stefaníu Arnórsdóttur, prests
að Hvammi í Laxárdal, list-
fengri og merkri konu. Eignuð-
ust þau 9 mannvænieg börn, sem
öll eru á lífi.
Þessa merka manns verður
nánar getið síðar hér í blaðinu.
Klu'kkan fjögur á mánudag hef
ur verið boðaður fundur með
Vinnuveitendasambandi íslands
og Vinnuveitendafélagi Hafnar-
fjarðar annars vegar og samn-
inganefndum Verkakvennafélags
ins Framsóknar í Reykjavík og
Verkakvennafélagsins Framtíðar
innar í Hafnarfirði hins vegar.
í gærkvöldi var fundur með
Vinnuveitendasambandi íslands
og Vinnuveitendafélagi Hafnar-
fjarðar annars vegar og Verka-
mannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði
hins vegar.
Oft veltir
Bítij þúfa..
KL. FIMM síðdegis í gær ráik
ust tveir strákar á reiðihjólum
saiman á Borgartúni og féll
annar þeirra á hnakkann í göt
una. Öfoumaður á stórum vöru
bdl, sem ók skamrnt á etftir
nam staðar spölkorn frá
drengjunum, en þeir sem að
komu og sáu vörubílinn rétt
hjá þeirn, héldu að um stór-
slys væri að ræða. Á staðinn
kiam sjúlkrabíll, lögregla bif-
reiðaeftirlit og rannsóiknarlög
regla, en þegar til kom var
Iannar strákurinn ómeiddur, og
hinn Mtið meiddur. Var hann
þó fluttur í slysavarðstotfuna
til örygigis.
14,17 % hafa synt
á Akranesi
Akranesi. 21 júní.
MIÐAÐ við fólksfjölda eru íbú-
ar hér hæstir í norrænu sund-
keppninni. 67 manns, yngri og
eldri, voru búnir að synda 200
m. á slaginu 11 í morgun. For-
stjóri Bjarnalaugar er Helgi
Hannesson, íþróttakennari. Hér
hafa synt 14.17% íbúanna, og
er þá miðað við alla í bænum frá
órnálga börnum til nær hundrað
ára gamalmenna. — Oddur.
Á sýningu í Nauthólsvík í gær hvolfdi björgunarfleka með 6
mönnum í. Hér sést þegar tveimur þeirra er bjargað upp á
bryggjuna áður en flekanum hvolfdi alveg. Hinir fjórir fóru á
bólakaf, enda sneri tjaldið niður. Sjá bls. 3.
— Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Valhöll á Þingvöll-
um opnuð í dag
Breytingar hafa verið gerðar
VALHÖLL á Þingvölilum verður
opnuð í dag kl. fjögur e.h. Nokkr
ar breytingar hafa verið gerðar
á veitinagstaðnum, og spurði
Morgunblaðið Þorvald Guðmunds
son, forstjóra, að þvi í gær, í
hverju þær væru fólgnar. Honum
fórust svo orð:
— Þetta er adJrt breytingar, sem
gera þurfti, svo að hægt væri
að opna. Áætlað er, að reist veirði
Mýr flugvöll-
ur á Kjalar-
nesi
Va'ldastöðum í Kjós, 20 júni.
Á VEGUM Ræktiuinarsambands
Kjalarnesiþings hefur verið unn
ið að því að g©ra flugvöll sunnan
Hvalifj'arðar, fyrir innan Norður
kot, en hann er með innstu bæj
um á Kjalarnesi.
Verki þessu er nú lokið. Lengd
vallarins mun vera um 350 fet.
' Fhiigvöflllur þessi er gerður í
samibandi við dreifingu tiilbúins
áburðar á nærliggjandi beitilönd
Mun ætlunin vera sú að dreifa
aðafllega í tvo staði. Eyjafjall og
Bfeikdal, sem er vestan í Esj-
unni. — St.G.
Dregið í gær
í GÆRKVÖLDl var dregið i
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins
um bílana fimm. Þar sem síðustu
skil höfðu ekki en borizt í gær-
kvöldi, voru vinningsnúmerin inn
sigluð, og verða þau í vörzlu
borgarfógeta, þar til á fimmtu-
dag, að innsiglin verða rofin og
númerin birt.
ný Valhöll innan fárra ára, svo
að ekki þótti skynsamlegt að
'kosta fé tii stórvægilegra breyt-
inga. í stuttu máli batnar að-
staða til snyrtingar og allt, sem
viðkemur matvælageymslu og
hreinlæti. — Gömlu snyrtilheir-
bergdn, sem á,föst voru Vallhiöilil,
hafa verið jöfnuð við jörðu, og
ný, stærri og fulilkomnari reist
á sama stað. Hefur Þingvalla-
nefnd staðið fyrir þeim fram-
kvæmdum. Aftur á móti hafa eig
endur Vallhalilar byggt nýjar mat
vælageymslur og nýtt eldihús,
Dyttað hefur verið að veitinga-
sölum, en hótedberbe rgin eru að
mestu, eins og þau hafa verið.
Ilumarveiðar
Akranesi, 21 .júní.
HUMARBÁTAR lönduðu hér I
gær, sex að tölu. Aflalhæstiir
voru Óflafur Magnússon og Fram
með sdn þrjú tonn hvor.
i— Oddur.
Kvikmynda-
sýning
á vegum
D-listans
íD-LISTINN efnir U1 kvik-
| myndasýningar fyrir unglinga
I er aðstoðuðu á ýmsan hátt við
[ kosningastarfið við alþingis-
I kosningarnar. Kvikmyndasýn-
lingin verður í Gamla Bíói í
| dag kl. 3. Miðar verða afhent
iir í skrifstofu Sjálfstæðis-
[flokks við Austurvöll fram til
'hádegis í dag.