Morgunblaðið - 12.09.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.09.1963, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 12. sept. 1963 * Heysátur standa sums staðar hálfar í vatni Hflikið úrfelli á Höfðaströnd Bæ, Höfðaströnd, 11. sept. HÉR hefur rignt og snjóað frá því á laugardag og er allt á floti niður við sjóinn, en ökla- djúpur snjór í dölunum og upp við fjallið. Töluverð hey hafa verið úti og sums staðar standa bólstrar (sátur) hálfir í vatni. í afrétt- unura er kominn þó nokkur snjór og í gær var farið fram eftir og sleppt niður fyrir af- réttargirðingar mörg hundruð fjár, sem stóð niður við girð- ingarnar. ins og er er þó ekki haglaust, en ef áfram snjóar má skollinn vita hvað verður. Siglufjarðarskarð hefur annað slagið verið lokað en er opnað fyrir áætlunarbílnum með ýtu. Jafnvel eldri menn muna ekki eftir svo mikilli rigningu og úrkomu í svona langan tíma. Á túnum eru svo stórar tjarnir, að synda má í sumum þeirra. — Bjöm HÉRAÐ8IVIÓT Frá frumsýningu danska baUettsins í Þjóðleikhúsinu á þriðjudagskvöld. Sjálfstæðismanna Höfn Hornafirði HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Austur-Skaftafellssýslu verður haldið í Sindrabæ, Höfn, Hornafirði, laugardaginn 14. september klukkan 9 síðdegis. Jónas Pétursson, alþingis- maður, og Sverrir Hermanns- son viðskiptafræðingur flytja ræður. Til skemmtunar verður einsöngur og tvísöngur. Flytj- endur verða óperusöngvar- arnir Guðmundur Guðjóns- son og Sigurveig Hjaltested, undirleik annast Skúli Hall- dórsson, píanóleikari. Enn- fremur skemmtir Brynjólfur Fétursson Jóhannesson, leikari. Dansleikur verður um kvöldið. Jónas Sverrir Hermannsson Glæsileg frumsýning danska ballettsins í Þjððleikhúsinu S.L. þriðjudagskvöld hafði kon- unglegi danski ballettinn frum- sýningu í Þjóðleikhúsinu. Hófst sýningin kl. 20 með því að leikn ir voru þjóðsöngvar Danmerkur og íslands. Dansaðir voru ball- ettarnir Skógardísin og Sinfónía í C. 1 fyrri ballettinum dönsuðu sólódans þau Margrethe Schanne, Anna Lerkesen, Frið- björn Björnsson og Ole Fatum. Ballettsýningin þótti takast ágæta vel og var listafólkinu ákaft fagnað í lok sýningar. Að henni lokinni ávarpaði Guðlaug ur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri Kynningarstarfsemin ber góðan ávöxt M J Ö G gestkvæmt hefur verið hjá Flugfélagi íslands í sumar að því er Sveinn Sæmundsson, full- trúi félagsins, tjáði blaðamönn- um á fundi í fyrrakvöld. Á veg- um félagsins hafa komið hingað margir hópar útlendinga, ýmist starfsmenn ferðaskrifstofa, ann- arra flugfélaga eða blaðamenn og sjónvarpsmenn. Þaxuiig hafa bæði brezka sjón- varpið og Berlínarsjónvarpið tek- ið myndir hér í sumar, blaða- menn hafa komið frá Ítalíu og munu þeir skrifa greinar um ís- land í 12 blöð þarlend, svissnesk- ir ferðaskrifstofumenn hafa ver- ið hér — svo og starfsmenn ým- issa flugfélaga í París — og er þá aðeins hluti af gestunum talinn. Sölustjóri Air France í París og N-Frakklandi, Jean-Louis LeMarie, hefur verið hér með 12 manna hóp starfsmanna flugfé- laga — en meðal þeirra er fólk frá ýmsum stærstu flugfélögum heims. Vinnur það allt að samn- ingu ferðaátaelana hjá viðkom- andi félögum, ferðaáætlana fyrir almenna farþega — svo að gagn- legt getur orðið að gefa þessu fólki tækifæri til þess að skoða sig um hér, enda þótt félög þeirra haldi ekki uppi ferðum til íslands. Þetta er í þriðja sinn, að Jean Louis LeMaire kemur með hóp manna hingað til lands — og í för með honum núna var Jóhann Sigurðsson, forstjóri íslenzku ferðaskrifstofunnar í London,-en það er Jóhann, sem einna drýgst- an þátt hefur átt í því að afla ís- lenzkum ferðamálum sambanda í í’rakklandi og á Ítalíu. Árangurinn af ferðum Jean Louis LeMaire og hans fólks hing að er þegar farinn að kóma í ljós, því að aldrei hefur verið meira af frönskum og ítölskum ferða- mönnum hér en einmitt í sumar. Blaðamenn ræddu við hinn franska ferðalang og sagði hann, að það, sem kæmi fólki hans mest á óvart hér væri tvímæla- laust náttúra landsins — hve allt væri ósnortið og framandi suður- landabúum — en samt sem áður væru hér hótel og annar aðbún- aður ágætur. Hér væru miklar andstæður, sem ekki gleddu að- eins augað, heldur væru skemmti legar í mörgu öðru tilliti. Hann kvaðst ætla að koma hingað aft- ur næsta sumar — og ætla þá aftur að komast á hestbak — því íslenzku hestarnir væru eitt af því, sem gæfu íslandsferðinni mikið gildi. Hér gætu ínenn farið á hestbak eins og þeir stæðu, eða því sem næst — og væri það út af fyrir sig skemmtileg reynsla, því suður í Evrópu þætti ófært að fara á hestbak nema eiga all- an útbúnað — á svipaðan hátt og skíðafólk. Jóhann Sigurðsson upplýsti það, að á undanförnum þremur árum hefði farþegatala Flugfé- lagsins milli London og Reykja- víkur tvöfaldazt. Árleg aukning hefði verið 25—35% og væri allt útlit fyrir að sama þróun mundi haldast. Fararstjóri ballettsins, Jens Louis Petersen flytur ávarp eftir að þjóðleikhússtjóri hefur afhent honum lárviðarsveig aft sýningu lokinni. Lengst t. v. Guðlaugur Rósinkranz þjóð- Ieikhússtjóri, en t. h. Niels Björn Larsen, ballettmeistari, sem heldur á lárviðarsveignu m. listafólkið og afhenti fararstjóra ballettsins, Jens' Louis Petersen fagran lárviðarsveig. Petersen þakkaði með snjallri ræðu. Geysileg aðsókn er að sýning- um ballettsins. Voru aðgöngu- miðar í gær uppseldir á þrjár næstu sýningar. Listdómur um ballettinn mun birtast hér í blað inu á morgun. Landsfundur barnu- verndarfélaga hefst í dag LANDSFUNDUR Landssam- bands íslenzkra barnaverndarfé- laga verður haldinn fimmtudag- inn 12. og föstudaginn 13. þ. m. í Góðtemplarahúsinu. Auk venju- legra aðalfundarstarfa verður rætt um uppeldismál og samfé- lagsmálefni, er varða ungmenni Jean Louis LaMairo (fjórði írá vinstri) ueð síðasta hóp sinn við raetur Vatnajokuls. landsins. Verður fundurinn að þessu sinni helgaður verkefninu: Vandamál æskunnar í samfélagsbyltingu nútímans. Flutt verða fimm fram söguerindi á fundinum, og síðan verða almennar umræður á eftir, Sérstök athygli skal vakin á því, að öilu áhugafólki er velkomið að sækja fundinn og taka þátt í um- ræðum. Fundinum lýkur með samkomu í hátíðasal Háskóla íslands. Þar flytur Þórarinn Björnsson, skóla- meistari á Akureyri, erindi, er hann nefnir: Rótleysi nútímans, Gísli Magnússon leikur á píanót Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Dagskrá landsfundarins er ann ars þessi: 2 togarar seldu erlendis í gær TVEIR íslenzkir togarar seldu afla sinn erlendis ígærmorg- un, aimar í Englandi en hinn I Þýzkalandi. Júpiter seldi í Hull 143 tonn fyrir 9.737 sterlingspund og Ask- ur í Cuxhaven 118 tonn fyrir 107.508 mörk. ^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.