Morgunblaðið - 12.09.1963, Page 6
8
tHORCUN BLAÐID
Fimmtudagur 12. sept. 1963
væntanlega ráðizt 1 byggingu
annars áfangans í uppbyggingu
héraðsskólans, en það er stækk-
un heimavistarinnar og síðan
bygging tveggja kennaraíbúða til
viðbótar.
Áður en þessar framkvæmdir
hófust í Reykjanesi hafði mynd-
arlegur íþróttasalur verið byggð-
ur við sjálft skólahúsið.
Mikil aðsókn
Mikil aðsókn hefur verið að
Reykjanesskólanum undanfarin
ár og hefur ekki verið mögulegt
að taka nema nokkurn hluta
þeirra nemenda, sem sótt hafa
um dvöl í héraðsskólanum.
Skólastjóri Reykjanesskólans
er eins og kunnugt er Páll Aðal-
steinsson. Á sl. vetri voru kenn-
arar auk hans: Ingimundur Magn
ússon frá Bæ, frú Guðrún Jóns-
dóttir, sr. Baldur Vilhelmsson í
Vatnsfirði, Níels Bjarnason og
ICarl Björnsson.
Mikill áhugi ríkir á uppbygg-
ingu Reykjanesskólans við fsa-
fjarðardjúp og víðar á Vestfjörð-
um.
jueraossKoiinn í HeyKjanesi við isafjarðardjúp, skóiahúsið t. h. en hin nýja heimavist og kenn-
araíbúðir t. v.
Uppbygging héraðsskóians í
Reykjanesi heldur áfram
2 kennaraíbúðir byggðar í sumar
f FYRRAVOR hófust miklar
framkvæmdir við héraðsskól-
ann í Reykjanesi við ísaf jarð-
ardjúp. Var þá hafizt handa
um byggingu nýrrar heima-
vistar, ásamt matsal og lestr-
arsölum. Gengu þessar fram-
kvæmdir svo greiðlega, að
mögulegt reyndist að taka
hina nýju heimavist í notkun
fyrir áramót, enda þótt
henni væri þá ekki fulllokið.
Tvær kennaraíbúðir
í sumar hefur verið unnið að
því að mála, dúkleggja og full-
gera að öðru leyti heimavistar-
húsnæðið. En jafnframt var í vor
byrjað á byggingu tveggja rúm-
góðra kennaraíbúða við hið nýja
heimavistarhús. Er hér um að
ræða fyrri áfangann í endurbygg
ingu Reykjanesskólans. Bygging
kennaraíbúðanna hefur gengið á-
gætlega. Er stefnt að því, að a.
m. k. önnur þeirra verði íbúðar-
hæf fyrir áramót. Þessar íbúðir
eru 140 ferm hvor og hinar vist-
legustu. Munu þær bæta veru-
lega aðstöðu skólans til þess að
fá kennara. í kjallara kennara-
íbúðanna, sem eru á tveimur
35mm landkynn-
ingarkvikmynd
KVIKMYNDAFÉLAGIÐ Geysir
hefur nú hafið töku nýrrar kvik-
myndar. Þetta er alhliða kynn-
ingarmynd af landi og þjóð og
atvinnuháttum. Myndin er tekin
í cinemascope á 35 mm Eastman
Color. Stjórnandi er Reynir
Oddsson, en myndatökumaður
William Lubschansky, og aðstoð-
armyndatökumaður Gísli Gests-
son.
Myndataka hófst á sunnudag
á síldarmiðunum fyrir Austur-
landi á síldarskipinu Hannesi
Hafstein.
Sveinn Benediktsson, útgerðar-
maður og síldarsaltandi, veitti
leiðangrinum höfðinglega fyrir-
greiðslu fyrir austan.
Framlög og lán til myndatök-
unnar koma frá ýmsum aðilum,
sem hafa áhuga á landkynningu,
svo sem flugfélögunum, utanríkis
ráðuneytinu, ýmsum sölusan.tök-
um útgerðarmanna og fiskfram-
leiðenda, SÍS, skipafélögum,
ferðaskrifstofum og sérleyfishöf-
um. Bílaleigan Bíllinn leggur
fram bíla til afnota meðan á
tökunni stendur, og framkvæmd-
arstjórinn, Guðbjartur Pálsson,
hefur tekið að sér að skipuleggja
og undirbúa þá ferð, sem nú er
að hefjast um öræfi landsins.
Guðbjartur verður sjálfur leið-
angursstóri, en fylgdarmaður
verður Halldór Eyjólfsson á
Rauðalæk. Lagt var af stað á
Framhald á bls. 23.
nrsss. .......... .....
Skólastjóri Reykjanesskólans,
Páll Aðalsteinsson (t.h.) og Sig
urður Bjarnason, alþingismað-
ur. Myndin var tekin á tröpp-
um hinnar nýju heimavistar.
hæðum, verða einnig geymslur og
böð fyrir nemendur.
Á næsta sumri verður svo
Kennaraíbúðirnar í byggingu.
Bægisárh ylur
sprengdur upp?
FYRIR rúmri viku fannst mik
ið magn af dauðum silungi í
svonefndum Bægisárhyl í Öxna-
dalsá. Benda allai líkur til að
hér hafi veiðiþjófar verið að
verki og drepið silunginn, sem
var mjög falleg bleikja, með
sprengiefni. Ekki hefir ?tekizt að
upplýsa málið enn.
Fréttamaður Mbl. átti í dag
tal við Herbert Sigurbjörnsson á
Ytri-Bægisá og Einar Sigfússon
í Staðartungu, en þeir bæir eiga
land að þessum stað í ánni. Þeir
kváðu mikinn silung hafa sést
í hylnum miðvikudaginn 21.
ágúst, en laugardaginn hinn 24.
hefði maður nokkur gert aðvart
um hinn dauða silung í hylnum.
Herbert fór þá á vettvang og sá
dauða bleikjuna fljóta þar í
hundraðatali. Margar voru þá
líka sokknar til botns og eitt-
hvað hefir flotið niður ána.
Hringsvið er mikið í hylnum og
því hefir silungurinn haldizt þar
svo lengi.
Menn hallast eindregið að
þeirri skýringu á þessum silunga
dauða, að dynamit eða annað
sprengiefni hafi verið sprengt
í ánni af einhverjum óboðnum
en stórtækum veiðimönnum.
Þetta var göngusilungur, sem
hrygnir að nokkru á þessum
slóðum.
Mikið magn hrygnir ofar 1
ánni, en hefir ekki komist upp
fyrir hylinn á gotstöðvar sínar
enn vegna þess hve lítið vatns-
magn hefir verið í ánni að und-
anförnu.
Má af þessu marka, að hér
er um stórfellt tjón að ræða á
silungastofninum, sem iriun
sennilega gæta langt fram í
tímann.
Sv. P.
/
Illt er að gera svo öllum líki.
Hér hafa birzt bréf frá fólki,
sem hefur verið harðánægt
með hina opinberu garða í
í Reýkjavík í sumar. Eins hafa
birzt bréf frá fólki, sem hefur
rætt um breytinguna á Austur-
velli og þakkað fyrir hana,
þótt sumir ættu erfitt með að
sætta sig við han'a í fyrstu.
Aðalatriðið er, að fleira fólk
getur nú notið vallarins en
áður, því að bekkjum hefur
verið stórlega fjölgað.
Nú birtist hins vegar bréf
frá konu, sem kallar sig „Gaml
an Reykvíking". Þar kveður
við annan tón, og er bezt að
kynnast því sjónarmiði líka:
• Hallargarðurinn
„Fyrir 8—9 árum var Hallar-
garðurinn einhver fegursti
bletturinn í Reykjavík. Ég hef
séð myndir af honum í erlend-
um tímaritum í íslenzkum land
kynningarbókum, einnig á jóla
kortum og póstkortum. Svo,
þegar komið er að skoða garð-
. inn, er hann svo vanhirtur, að
skömm er að; það er mikið, að
börn skuli ekki vera búin að
eyðileggja hann meira, þegar
þau sjá hirðuleysið.
Ég hef tekið eftir meiri
sparnaði og vanrækslu við þenn
an garð ár frá ári, en nú keyrir
fram úr hófi, þegar hinni
fallegu myndastyttu með gos-
brunninum hefur ekki einu
sinni verið komið í lag. Nú er
ekkert hirt um steinabeðið,
sem fyrst var allt með allavega
blómum og jurtum og nöfnin
á þeim smáspjöldum, sem fólk
hafði auðsjáanlega gaman af að
athuga.
• Austurvöllur
Það var afsakanlegt, þó að
ekki hefði unnizt tími til að
sinria þessum garði fyrir 17.
júní, þar sem þeir höfðu svo
mikið að gera að steinleggja
Austurvöll, úr því það er svona
mikill sperringur að vera alltaf
að reyna gera eitthvað úr þess-
um litla velli, mér fannst hann
þó skömminni til skárri með
öllu því hrúgatildri og rafljós-
um, sem voru þar fyrir nokkr-
um árum.
Þessar breiðu gangstéttar
með þessum skörpu hornum,
sem ganga inn í grasflötinn,
eru auðvitað ágætar fyxir þá
sem þurfa að stytta sér leið
yfir völlinn, manni finnst það
anzi sniðugt fyrst, en svo verð-
ur það ákaflega leiðingjarnt.
Það væri auðvitað bezt að
ryðja styttunni alveg í burtu,
svo að bllstjórar gætu líka
stytt sér leið yfir völlinn, eða
kannske að Austurvöllur verði
bara gerður allur að bílastæði
næst
í stórborgum erlendis eru
svona litlir fletir innan um
verzlunarbyggingar miðbæj-
anna látnir vera mjög einfald-
ir, aðeins vel hirtir, svo að þeir
séu sem mest hvíld fyrir augu
og taugar.
Gamall Reykvíkingur",