Morgunblaðið - 25.09.1963, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.09.1963, Blaðsíða 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 25. sept. 1963 Kópavogur — Vinna Nokkrar stúlkur óskast í vinnu strax. IMiðursuðuverksmiðjan Ora hf. Símar 17996 og 22633. Sendisveinn óskast á skrifstofu vora. HF. HAIVIAR Sendill Óskum að ráða pilt eða stúlku til sendiferða í vetur. Ólafur Gíslason & Co. hf. Skeytaútburður Drengi eða stúlkur vantar við skeytaút- burð á ritsímastöðina í Reykjavík. Upp- lýsingar gefnar á skeytaútsendingu rit- símastöðvarinnar. — Ekki svarað í síma. 5 herb. íbúðir Til sölu eru glæsilegar 5 herbergja íbúðir í sam- býiishúsi, sem verið er að reisa stutt frá gatna- mótum Hringbrautar og Kaplaskjólsvegar. Stærð 135 ferm. auk sameignar í kjallara. Seljast tilbúnar undir tréverk með tvöföldu verksmiðjugleri, húsið fullgert að utan, sameign inni múrhúðuð o. fl. Sér kynding. Bílskúrsréttur. Sér þvottahús á hæð fyrir hverja íbúð. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur — Fasteignasala Suðurgötu 4 — Sími: 14314. Sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn. Uppl. á skrifstofunni. r ARNI CEfiTSSON Afgreiðslustúlka og unglingspiltur óskast. Blóm & Ávexfir Sími 23317. Innritun fer fram í Miðbæjarskólanum 25.—30. þ. m. kl. 5—7 og 8—9 s. d. Innritunargjald sem greiðist við innritun er kr. 75.— fyrir hverja bóklega grein og kr 150.— fyrir hverja verk- lega grein. — Nánari upplýsingar við innritun. Dansskóli Hermc:.:is Ragnars Um daginn og veginn MÁNUDAGINN 26. febrúar sL talaði í útvarpið Gísli Halldórs- son verkfræðingur um daginn og veginn. Undirritaður var þá undir stýri á bíl á langleið heim til sín og hafði ekki allan hugann við að hlusta eins og gefur að skilja, en telur sig nokkurn veginn hafa náð í kjarnann í erindi Gísla og skildist hann vera þessi: Afköst þeirra síldarverksmiðja, sem nú eru á Islandi, eru hað afköstum síldarpressanna, sem svo eru háð ásigkomulagi þess efnis er þær eiga að pressa hverju sinni og fer eftir því hvort síldin er feit eða mögur og hve mikill vökvi er í efninu. Aðferðinní að láta soðið síld- armaukið fara strax í pressurn- ar vill Gísli breyta og hafa þá tilhögun á, að láta soðið síldar- maukið fara strax í stór kör eða tanka, sem tækju eftir aðstæð- um hundruð eða þúsund mál eða tonn og væru vel einangraðir gegn hitatapi. Væri þá hægt að nota moðsuðuaðferðina gömlu og við það sparast vitanlega mikil hitaorka. Ef síldarmaukið fengi að malla 80—90 gr. heitt með lítilli eða engri hreyfingu í 12—24 tíma, þá væri hægt að fleyta eða dæla lýsingu ofan af maukinu og færi það lýsi ekki gegnum pressurn- ar og skilvindurnar. Þegar lýsinu hefir verið fleytt ofan af maukinu væri hægt að ná mestu af vatninu úr maukinu með lágþrýstieiningu (vacuum- distillation) í sjálfu kerinu, og eftir eininguna væri maukið lát- ið fara í pressurnar, sem þá mundu skila miklu betri afköst- um eins og skiljanlegt er, þegar mestu af lýsinu og vatninu hefir verið náð úr maukinu á annan hátt. Þessi hugmynd eða aðferð Gísla Halldórssonar verkfræð- ings er svo athyglisverð og aug- ljós að það væri óskandi að þeir, sem ráða mestu í síldariðnaðih- um gæfu henni hið allra fyrsta fyllsta gaum og leggðu jafnvel nokkrar milljónir króna fram í því skyni að gefji honum aðstöðu til þess að sannfæra þá, sem ekki trúa, — um að moðsuðuaðferðin er hagkvæmust. Reykjavík tekur til starfa 4. október. Kennt verður í Skátaheimilinu við Snorrabraut. KENNSLU GREIN AR: H Gamlir og nýjir barnadansar. ® Sígildir samkvæmisdansar Suður-Amerískir dansar. Gamlir samkvæmisdansar. Heimskerfið (10 hagnýtir sam- kvæmisdansar ). Byrjendur og framhaldsflokkar fyrir börn, unglinga og íuliorðna. Innritun hefst mánudaginn 23. september í síma 33222 og 36024 frá kl. 9-12 f.h og 1-6 e.h. Framhaldsnemendur eru hvattir til að tala við okkur sem fyrst. — Verið með frá byrjun. Undirritaður þakkar Gísla Halldórssyni verkfræðingi fyrir útvarpserindið og trúir og veit að hann hefir á réttu að standa, og sannar þar að auki að tíminu er peningar. ísafirði, 29. ágúst 1963 Samúel Jónsson. ..með kvöldkaffinu ÞEGAR ÞÉR gistið í Kaup- mannahöfn, getið Jiér lesið Morgunblaðið samdægurs, — með kvöldkaffinu í stórborg- inni. FAXAR Flugfélags íslands flytja blaðið daglega cg það er komið samdægurs í blaða- söluturninn í aðaljámbrautar- stöðinni við Ráðhústorgið — Hovedbanegardens Aviskiosk. FÁTT er ánægjulegra en að lesa nýtt Morgunblað, þegar verið er á ferðalagi vtra eða dvalizt þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.