Morgunblaðið - 25.09.1963, Síða 23
Miðvikudagur 25. scpt. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
23
Helga Valtýsdóttir og Gisli Halldórsson í hlutverkum sínum í
Hart í bak.
Fyrsta sýning
LR á fimmtudag
Fé þykir vœnna en áður
en minna sett á en vant er
Réttað i Hreppunum á morgun
L,EntFÉLAG Reykjavíkur mun
hefja vetrarstarfsemi sína n.k.
fimmtudagskvöld með sýningu í
Iðnó á hinu vinsæla leikriti
Jökuls Jakobssonar, Hart í bak.
I»etta verður 131. sýning á leik-
ritinu og hefur sýningarfjöldi
slegið öll fyrri met. Var það sýnt
85 sinnum í Reykjavík á sl. vetri
og í sumar var það leikið 45
Sinnum úti á landi, hvarvetna
Við mjög góða aðsókn.
Enn er ekki endanlega ákveð-
ið, hvaða leikrit verða sýnd á
leikárinu, sem nú er að hefjast,
en á fuhdi með fréttamönnum í
gær sagði Sveinn Einarsson, leik
hússtjóri, að sennilega yrðu tek-
in fyrir þrjú eða fjögur ný er-
lend leikrit og eitt íslenzkt.
Allmiklar breytingar verða í
vetur gerðar á starfsemi Leikfé-
lags Reykjavíkur og er enn unn-
ið að undirbúningi þeirra.
Sveinn Einarsson, hefur verið
ráðinn fyrsti leikhússtjóri fé-
lagsins á þeim 66 árum, sem það
hefur starfað. Sveinn hefur
stundað nám í bókmenntum og
leikhúsvísindum í Stokkhólmi og
París og er kunnur fyrir ágæta
Kringlukast:
1. Magnús Guðmundsson A 34,57
2- Reynir Lútherson B 33,63 m.
Spjótkast:
1. Reynir Lúthersson B 40,45 m
2. Gylfi Sveinsson B 33,70 m.
Langstökk:
1. Reynir Lúthersson B 4,89 m.
2. Sveinn Frímannss. A 4,69 m.
Kúluvarp:
1. Magnús Guðmundsson A 11,46
2. Gylfi Sveinsson B 10,51 m.
Bástökk:
1. Sveinn Frímannsson A 1,35 m.
2. Pétur Pétursson A 1,25 m.
Konur: 80 m hlaup:
1. Kristín Jónsdóttir B 12,5 sek.
2. Arnþrúður Jónsd. B 12,6 sek.
Kringlukast:
í. Dröfn Guðmundsd. B 30,30 m.
2- Arndís Björnsd. B 17,62 m.
Hástökk:
1. Rannveig Garðarsd. B 1,18 m.
2. Arnþrúður Jónsd. B 1,13 m.
Spjótkast:
1. Arndís Björnsd. B 22,88 m.
2. Guðrún Einarsd. B 18,33 m.
Kúluvarp:
1. Dröfn Guðmundsd. B 9,46 m.
2. Arndís Björnsd. B 7,03 m.
Langstökk:
1. Arnþrúður Jónsd. B 3,92 m.
2. Erla Reynisdóttir B 3,84 m.
þætti sína um leikhúsmál.í út-
varpinu. Mun Sveinn sjá um all-
an daglegan rekstur leikhússins,
sem hingað til hefur verið auka-
starf í höndum þriggja manna.
Skipað hefur verið Leikhúsráð
og eiga í því sæti þrír stjórnar-
menn Leikfélags Reykjavíkur
auk leikhússtjórans og fimmta
manns, er borgarstjóri tilnefnir.
Þá er ætlunin að fastráða leik-
stjóra og leikara og halda uppi
kennslu í leikskóla. Allar þessar
breytingar munu stuðla að því,
að gera starfsemi Leikfélags
Reykjavíkur að atvinnuleikhúsi.
í fyrra voru gerðar miklar og
nauðsynlegar breytingar á saln-
um í Iðnó og nú hefur hússtjórn
þess látið hefja framkvæmdir
við byggingu nýrrar aðgöngu-
miðasölu og skrifstofu við húsið
sunnanvert. Verða og gerðar
breytingar á núverandi fata-
geymslu til aukinna þæginda
fyrir leikhúsgesti.
í stjórn Leikfélags Reykjavík-
ur eiga nú sæti þeir Helgi Skúla
son, form., Steindór Hjörleífsson
og Guðmundur Pálsson, sem er
framkvæmdastjóri þess.
Framh. af bls. 1
hins vegar tapað, og kommún-
istar misst mikið af fylgi því,
sem þeir höfðu, og var þó ekki
mikið.
Það er mál fréttaritara, að
baráttan hafi verið mjög hörð
fyrir þessar kosningar, og megi
það fyrst og fremst rekja til
átaka þeirra, sem átt hafa sér
stað í landsmálum að undan-
förnu. Kom það greinilega fram
í síðustu ræðum flokksformanna
fyrir kosningamar, að þeir ósk-
uðu eftir, að kjósendur tækju
fyrst* og fremst tillit til þeirra
mála nú, ekki til málefna ein-
stakra byggðarlaga og kjör-
dæma, þótt ekki væri verið að
kjósa til þings.
Þó eru þeir, sem gerzt hafa
fylgzt með úrslitum, á því máli,
að baráttan um landsmál spegl-
ist fyrst og fremst í úrslitunum
í þéttbýlinu, t.d. Oslo og nokkr-
um fleiri borgum. í dreifbýlinu
hafi menn frekar látið stjórnast
af þeim málum, sem þar hafa
verið efst á baugi, að undan-
förnu.
Verkamannaflokkurinn hefur
verið í stjórn frá 1935, eða í
28 ár, ef frá eru taldar þær
þrjár vikur, sem stjórn Lyngs
var við völd í haust.
Úrslitin nú, þ.e. sigur Verka-
mannaflokksins, er að mörgu
leyti talin traustsyfirlýsing við
Gerhardsen, sem nú tekur við
stjórnartaumunum á ný.
HEYFENGUR í Hreppunum
varð í minna lagi í sumar en
nýting heyja var mjög góð,
betri en oftast áður. En eigi að
síður má búast við að bændur
setji minna á en venjulega. Þann
ig fórust fréttámanni Mbl. Jóni
Ólafssyni í Geldingaholti orð á
dögunum.
— Snjókoma
Framh. af bls. 24
fé leitað nær byggð vegna snjó-
komu hátt til fjalla. Ég talaði
við Djúpavík í dag og til Stein-
grímsfjarðar og var mikil snjó-
koma á Ströndum og sett niður
snjó á Djúpavík í dag. í vestan-
verðum fjórðungnum hefur lítið
snjóað undanfarið. — H.T.
Vatnsbólin fylltust krapi
SAUÐÁRKRÓKI, 24. sept —
Árla dags í dag gerði hér versta
veður, norðan hvassviðri með
snjókomu og hefur gengið í sjó-
inn eftir því sem hefur liðið á
daginn. Allmargir bátar héðan
voru á sjó, en eru nú komnir
að landi heilu og höldnu. Einn
þeirra tók höfn í Hofsósi.
Göngur og fjárréttir standa
yfir í Skagafirði þessa dagana
og er óvíst hvernig leitarmönn-
um hefur vegnað síðustu
daga í fjallgöngum svo,
sem að Stafnsrétt. Svo mikil
fannkoma varð seinni hluta dags
í dag, að vatnsból bæjarins fyllt
ust af krapi, svo bærinn varð
vatnslaus og slátrun 1 sláturtiús-
unum stöðvaðist. Vonast er til að
þetta lagist með morgninum.
— jón.
í göngum í hríð
BÆ, HöFÐASTRÖND, 24. sept
— Hér er grenjandi stórhríð sem
nær alveg niður að sjó. Hlýtur
því að vera slæmt upp til dala.
í gær voru fyrstu göngur og
gekk allt vel, en í dag má búast
við að illa gangi, þó ekki hafi
borizt neinar fregnir af því.
— Björn.
Siglufjarðarrútan sneri við
SIGLUFIRÐI, 24. sept. — Hér
er komin stórhríð og grátt ofan
í fjöru og Siglufjarðarskarð er
teppt enn einu sinni. Áætlunar-
bíllinn fór frá Siglufirði kl. 7 í
morgun og komst í efsta sneið-
inginn Siglufjarðarmegin og sat
þar fastur í fönn, enda komin
stórhríð á Skarðinu. Beggja
vegna vegarins eru gamlir snjó-
ruðningar og því fljótt að skafa
í veginn.
Um 30 farþegar voru í bílnum,
en í honum er talstöð. Bílstjór-
inn lét fljótt vita hvernig komið
var og fór ýta frá Siglufirði og
var komin á staðinn kl. um
12.30. Ekki var talið fært að
hjálpa bílnum yfir Skarðið eins
og var og kom áætlunarbíllinn
til Siglufjarðar kl. 3.30. —
— Stefán.
Keðjufærð á Vaðlaheiði
og Öxnadalsheiði
AKUREYRI, 24. sept. — f morg-
un var hvítt ofan að sjó hér, en
tók upp á láglendi um miðjan
daginn. Nú gránar aftur í rót og
hiti er við frostmark.
Skv. upplýsingum frá vegaferð
inni, er lítil umferð á fjallvegum
í dag. Þó var einn bíll að koma
vestan yfir öxnadalsheiði. Þar
var keðjufært og vont veður. En
heiðin átti að heita fær öllum
bílum.
Annar bíll var nýkominn yfir
Vaðlaheiði og sagði bílstjórinn
að heiðin væri engan veginn fær
litlum bílum. Skafrenningur er
og snjókoma, en vegurinn slark
fær á stórum og sterkum bílum
enn. — Sv. P.
Gangnamenn sneru við
GRÍMSSTÖÐUM í Mývatns-
sveit, 24. september. — Stórhríð
er hér í dag. Gagnamenn lögðu
í Hreppum hefur verið all-
mikið um framkvæmdir í sum-
ar. Nýbýli er í smíðum að Haga
og 6 súrheystumar hafa verið
byggðir. í undirbúningi er einn-
ig bygging nýbýlis að Sandlæk.
Hrútasýning var haldin 15. sept.
að Steinsholti í Gnúpverja-
hreppi. Sýndir voru 65 hrútar
og hlutu 30 þeirra 1. verðlaun,
26 2. verðlaun, 6 3. verðlaun og
3 hlutu engin verðlaun.
Hreppamenn eru í göngum og
verður réttað í Skafthólsrétt og
Hrunamannarétt á morgun,
fimmtudag. Er gert ráð fyrir að
þar verði réttað um 5000 fjár.
Áður höfðu Hreppamenn sótt fé
af stað í morgun, en sneru við
heim aftur, því ekkert var hægt
að athafna sig. Ekki á þó að vera
hætta með kindur, ef þetta
stendur ekki lengL Snjókoman
er mikil nú sem stendur og ef
þessu heldur áfram í nótt, verð-
ur orðið slæmt á morgun.
Innansveitarvegir eru enn
færir, en hætt við að fjallvegir
séu að teppast — Jóhannes.
Möðrudalsfjallgarður ófær
GRÍMSSTÖÐUM á Fjöllum, 24.
september. í gærkvöldi fór að
snjóa hér og hefur verið hríð
síðan. Ekki er kominn mikill
snjór hér í kring, en umferð lok
aðist um Möðrudalsfjallagarð-
inn, frá Möðrudal og yfir í Jökul
dal strax í nótt, og voru bílar
varaðir við að leggja í hann.
Áætlunarbíllinn milli Akureyrar
og Austfjarða stanzaði í Reykja-
hlíð á Ieið austur og bíður þar
eftir að fært verði austur yfir.
Fyrstu göngur eru afstaðnar
hjá okkur og gengu vel. í þeim
fundust 3 veturgamlir hrútar úti
gengnir á Búrfellsheiði. Ekki var
þó hægt að koma nema einum
til bæja í fyrstu göngum. Hrút-
amir eru allir úr Axarfirði.
Slátrun úr fyrstu göngum er lok
ið úti á Kópaskeri.
Aðrar göngur eiga að hefj ast
á morgun, en það lítur illa út
með þær, ef veður ekki batnar.
— B. S.
Oddsskarð og Fjarðarheiffi ófær.
vEGILSSTöÐUM, 24. sept.: —
Krapaveður var hér í nótt og
snjór til fjalla. Nú má þó heita
að autt sé upp í hlíðar. Göngur
voru í gær á Fljótsdalsafrétt, en
réttinni í dag var frestað vegna
illveðurs. Veður var ágætt með
an á göngunum stóð. í morgun
átti að fara í göngur í Fellum, en
því var frestað vegna veðurs.
Oddsskarð og Fjarðaheiði
munu vera orðin ófær. ■— Jónas.
— Listasafnið
Framh. af bls. 2
forstjóri í dánarbúi Sesselju Stef
ánsdóttur, og hefur hann til-
kynnt dr. Selmu Jónsdóttur, for-
stöðumanni Listasafns fslands
um efni fyrrgreindrar erfða-
skrár.
Eftirlifandi systkin hinar
látnu, frú Guðríður Stefánsdóttir
Green og Gunnar Stefánsson stór
kaupmaður, viðurkenna form-
legt gildi erfðaskrárinnar.
Gera má ráð fyrir, að hús-
eignin Austurstræti 12 verði seld
þegar að loknum skiptum dánar-
búsins, og kemur í ljós, hver
hlutur Listasafnsins verður.
Þess skal getið, að minningar-
gjöfin er gefin í því skyni að
varðveita höggmyndir Nínu Sæ
mundsson myndhöggvara innan
vébanda Listasafns íslands.
Safnráð lét í ljós ánægju og
þakklæti yfir þessari rausnar-
legu minningargjöf, sem hlýtur
að verða til þess að hraða mjög
byggingu yfir Listasafn íslands.
Frétt frá Listasáfní ísiands.
Gnúpverja, Flóa- og Hruna-
manna með afréttargirðingum.
Fé þykir vænna nú en í fyrra.
— Ástralir
Framh. ai bls. 13
opinberlega, nema sérstakt til-
efni komi til. Óstaðfestar fregnir
í fyrra mánuði hermdu, að -
Frakkar væru þá að undirbúa
nýjar tilraunir í eyðimörkinni.
Ástralski utanríkisráðherrann
sagði, að stjórn hans væri þess
fullviss, að hún nyti stuðmngs
alls almennings í Ástralíu, í þessu
máli. Sir Garfield lýsti því enn-
fremur yfir, að hann hefði orðið
þess var að ákvörðun franskra
ráðamanna hefði vakið mikinn
óróa víða um lönd. Það væri
stefna flestra ríkja heims nú,
þar á meðal stærstu kjarnorku-
velda, að fella niður frekari
tilraunir með gereyðingarvopn.
Benti ráðherrann á, að rúmlega
100 þjóðir hefðu gerzt aðilar að
tilraunarbanni því, sem gert var
í Moskvu fyrir nokkrum vikum.
Afstaða stjórnar Alsír til til-
rauna Frakka hefur vakið nokkra
athygli. Er Evian-samkomulagið,
sem leiddi til sjálfstæðis AlSír,
var gert, fól það í sér, að Frakk-
ar mættu reyna kjarnorkuvopn
í Sahara.
í marz sl. gerðu Frakkar svo
tilraun með slíkt vopn þar. Þá
gætti andmæla stjórnar Alsír.
Nú heyrist ekkert frá henni um
þetta mál, annað en það, að
engra yfirlýsinga sé um það að
vænta.
Frakkar hafa haldið því fram,
að andmæli stjórnar Alsír nú séu
tilgangslaus. Öllum hafi verið
ljóst, hvers vegna þeir hafi vilj-
að fá umráðarétt yfir eyðimörk-
inni. Því fæst engin staðfesting
á því, hvort það er ætlun Frakka
að halda áfram tilrau^ jm með
kjarnorkuvopn á Sahara, eða
hvort tilraunir á Kyrrahafi verða
látnar nægja.
— Öldungadeildin
Framh. af bls. 1
ugt varð um úrslitin. Taldi
hann hér vera um skref að
ræða í rétta átt, eitt skref
að vísu, en sagði, að fleiri
kynnu að verða stigin í
sömu átt.
Undanfarið hafa staðið miklar
umræður í Bandaríkjunum um
Moskvusáttmálann. Hafa marg-
ir þingmenn og aðrir, sem virk-
an þátt taka í stjórnmálum, hald-
ið því fram, að með staðfestingu
samningsins væri verið að stefna
öryggi Bandaríkjanna í hættu.
Þeir, sem haldið hafa við þessa
skoðun, hafa þó greinilega verið
í minnihluta. Þrátt fyrir það,
vakti andspyrna þessi það mik-
inn ugg, að Kennedy þótti sjálf-
um rétt að hafa afskipti af mál-
inu. Kvaddi hann á sínum tíma
leiðtoga þingflokka demokrata
og repúblikana á sinn fund til
að afla fylgis við sáttmálann á
þingi.
Samkomulagið kveður svo á,
að ekki megi gera tilraunir með
kjarnorkuvopn í geimnum, and-
rúmsloftinu og neðansjávar. Hins
vegar er leyfilegt að gera til-
raunir neðanjarðar, og verður
þeim m. a. haldið áfram í Banda-
ríkjunum.
Bandaríkjamenn munu þó gera
ýmsar ráðstafanir til að tryggja
öryggi varna sinna, enda er
hægt að segja samningnum upp.
M. a. verður unnið að gerð til-
raunastæðis á Johnston-eyju á
Kyrrahafi, og verður hægt að
hefja þar tilraunir, ef þörf gerist.
Samningurinn hefur hlotið
fylgi ráðamanna mjög margra
landa, og hafa nú um 100 þjóðir
gerzt aðilar að honum. Af hálfu
Bandaríkj amanna er nú aðeins
eitt formsatriði eftir; Kennedy
þarf sjálfur að staðfesta sap-
komulagið.
- íbróttir
Framh. af bls. 22
Norska stjórnin