Morgunblaðið - 26.11.1963, Side 3

Morgunblaðið - 26.11.1963, Side 3
r 3 Þriðjudagur 26. nóv. 1963 MORGU N BLAÐIÐ ---------------------- -----------------------------------—H-------------:--- MINNINGARATHÖFN um John F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna, fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Hófst athöfnin klukkan 5 síðdegis og stóð yfir um klukkusftund. Athöfnin hófst með því, að dr. Páll ísólfsson lék orgel- forleik, Benedictus, eftir Max Reger, dómkirkjukórinn söng sálminn „Vér stöndum á bjargi, sem bifast ei má“, biskupinn yfir Islandi, herra Sigurbjörn Einarsson, flutti ritningarorð, minntist hinn látna forseta og fór því næst með bæn. Björn Ólafsson, lék einleik Handhafar forsetavalds við minningarathöfnina í Dómkirkjunni, frá vinstri: Birgir Finnsson, forseti Sameinaðs Alþingis, Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, Þórður Eyjélfsson. forseti Hæstaiéttar. — Ljósm.: Ól. K.M. „Heimurinn hefur misst einn sinn mesta og bezta mann“ Kennedy Bandaríkjaforseta minnzt í Bamkírkjunni í gær á fiðlu, Litanei eftir F. Schu- bert og dómkirkjukórinn söng sálminn „Bjargið alda, borgin mín.“ Ambassador Bandarikjanna á íslandi, James K. Penfield, flutti sorgarávarp frá Dean Rusk, utanríkisráðherra Banda ríkjanna. Séra S. E. Almasy flutti bæn. Dómkirkjukórinn isöng sálminn „Faðir and- anna“ og biskup íslands flutti blessun. Dómkirkjukórinn söng þjóð söng Bandaríkjanna og loks þjóðsöng íslands. í lok minningarathafnarinn ar lék dr. Páll ísólfsson sorg- arlag eftir G.F. Handel. Minningarræða biskups. í minningarorðum sínum sagði biskupinn yfir íslandi m.a.: „Hvað brast svo hátt? var spurt í tvísýnni orustu forð- um. Einn bogastrengur brast og úrslitin ultu á því, að ein- mitt hann héldi. Það er ólíku saman að jafna um atvik og örlög, en þó komu þessi fornu orð í hug, þegar hinn mikli vábrestur barst úr Vest urheimi, þegar þau ótíðindi flugu um heiminn, að hinn ungi og reifi forseti Banda- ríkjanna hefði fallið fyrir launmorðingja.“ „En hitt er víst, að heim- urinn hefur misst einn sinn mesta og bezta mann. Og hann missir hann með slíkum atvikum, að það fyllir oss ógn og hryllingi. Þar bætist enn- þá ein svört málsgrein í ann- ál ofstækis, blindni, haturs og hermdarverka, sem þessi öld vor lætur eftir sig. Sú þjóð, sem hefur misst dáðan for- ingja, sem sameinaði í per- sónu sinni svo marga ágæt- ustu kosti hennar sjálfrar, er þannig lostin tvöföldum harmi. Vér íslendingar, ein hin minnsta grein á meiði mannkyns, kennum dýpstu samúðar. Það viljum vér láta í ljós m.a. með þessari at- höfn hér. Vér viljum segja við hina stóru bróSurþjóð: Það sem þér hafið misst er einnig vort tjón, vor harmur.“ „Hann hafði ritað í bók um pólitískt hugrekki, það eru þættir úr ævisögu manna, kunnra landa hans, sem höfðu reynzt menn til þess að hlýða samvizku sinni á örlagastund um framar en kröfum svo- nefndra pólitískra hygginda eða flokksmanna. Bókin er hvatning, brýning. Hvax sem þú ert á svið settur í lífinu, segir hann að lyktum, kemur að því, að hugrekki þitt verð- ur prófað, það verður spurt hverju þú viljir fórna fyrir það að fylgja samvizku þinni, hvort þú þorir að missa vini þína, eignir, þægindi, jafnvel álit samferðamanna þinna. Dæmi annarra geta leiðbeint, vakið von, orðið innblástur og örfun. En þau geta ekki gefið kjarkinn. Hans verðu-r hver að leita í eigin sál. Kennedy forseti fékk ekki lengi að sýna það í æðstu ábyrgðarstöðu, hvaða trygg- ing persónulegra eiginda var á bak við þessi orð, og þó er saga hans öruggt vitni um hugrekki samvizkunnar. Hann fékk ekki heldur frest til þess að velja með ógnun dauðans yfir höfði sér, en það mun þjóð hans vita og það er henni styrkur og harmabót, að hún átti mann, forseta, sem hefði heldur dáið, fús og hiklaus, en að níðast á samvizku sinni og afneita því, sem hann vissi rétt og skylt. Slíkir menn eru sterkir í lífi þjóðar, gildir einu hvort ævin er löng eða skömm. Ég lýsi friði og bless- un Drottins yfir minningu Kennedys forseta frá dóm- James K. Penfield, ambassa- dor, flytur sorgarávarp frá Dean Rusk við minningar- athöfnina í Dómkirkjunni. (Ljósm. Mbl. ÓL K. M.) kirkju íslands. Þjóð vor bið- ur góðan guð að hugga og styrkja konu hans og börn og aðra ástvini, leiða og blessa landið hans og þjóðina, líkna þeim, sem blindir eru og vita ekki hvað þeir gjöra, misk- unna oss, öllum mönnum og þjóðum og leiða oss á rétta vegu sakir trúfestu sinnar. Já . . . „alheimsvald, vort eilíft líf og kraftur, sem eftir hverja nóttu sendir dag, þín heilög ásján lýsi aftur-aftur á efti-r þetta blinda reiðarslag." í Jesú nafni. Amen.“ Framhald á bls. 30. kirkjunnL — Ljósm.: Ó1.K.M. SIAKSTEINAR Heimur í sorg Tíminn minnist Kmnedy for- seta í grein undir þessari fyrir- sögn s.l. sunnudag. Er þar mx komizt að orði á þessa leið: „Það er ljóst af fréttum, sem berast hvaðanæva úr heiminum, að þess munu ekki dæmi, að mannslát hafi valdið slikum harmi og fráfall Kennedys for- seta. Á hinum stutta valdaferli sinum hafði hann unnið sér slíkt álit og tiltrú að ekki voru bundnar meiri vonir við annan mann um farsæla leiðsögn til ör uggari friðar og betri heims. Hann var ekki aðeins mikill foringi heldur réttsýnn og góð- gjarn maður. Þeir kostir hans munu tryggja honum sæti með- al beztu manna sögunnar. Um ýmsa þá menn, sem hlot- ið hafa svipuð öriög og Kenn- edy hefur verið sagt, að þeir hafi oft áorkað meira með dauða sínum en lífi, þótt þeir hafi unn- ið hið mikilvægasta starf. Þetta hefur ekki sízt verið sagt um annan mikinn fyrirrennara hans, Abraham Lincoln. Það er ekki óliklega tilgetið, að þetta eigi eftir að rætast um Kennedy." Uppskera hatursins Alþýðublaðið kemst þannig að orði í forystugrein sinni sJ. sunnudag: „Fréttin um lát Kennedys Bandaríkjaforseta vakti ekki að- eins undrun, hún vakti einnig skelfingu. Það sýna viðbrögð al- mennings og stjórnmáialeiðtoga um víða veröld. Þegar þetta er ritað er ekki vitað með vissu, hverjir haturs eða öfgamenn frömdu þennan hryllilega verkn- að. Víst má þó telja að þar hafi öfgaöfl í einhverri mynd verið að verki. Öfgaöfl, sem sá hatri og uppskera dauða. Öfgaöfl, sem svo fá ruglað dómgreind manna, að ekki er lengur gerður grein- armunur á réttu og röngu. Kennedy forseti barðist gegn þessum öflum. Sú barátta skap- aði honum hatursmenn. Þótt hann hefði ekki lengi setið á stjórnarstóii hafði hann samt unniö hug og hjörtu heillar þjóð ar. Barátta hans fyrir jafnrétti allra kynstofna gerði það að verkum, að hann var dáður og virtur af milljónum manna nw allan heim. Upp frá þessu munn hann og Lincoln forseti oft nefndir í sömu andrá. Það eitt segir meira um hann og lífsstarf hans en mörg orð fá lýst.“ Einhuga fordæming „Þjóöviljinn“ kemst þannig að orði í forystugrein sinni á sunnudaginn: „Ekki einungis Evrópa heldur allar álfur lieims hrukku við á föstudaginn, þegar skotið heyrð ist vestan úr heimi, sem varð John F. Kennedy Bandaríkjafor seta að bana. Um allan heim hafa menn fyllzt reiði og harmi vegna þessa svívirðilega morðs á þjóðhöfðingja og forystu- manni hins bandaríska stórveld- is. Án alls tillits til skoðana- munar og þjóðernismunar hittir fordæmingin einhuga og misk- unnarlaus þá morðhugsun og morðhönd, sem valdið hefur é- dæðisverkinu.“ * % #

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.