Morgunblaðið - 26.11.1963, Blaðsíða 31
Þriðjudagur 26. nóv. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
31
Útför Kennedys
Framh. af bls. 20
dy gengu í hjónaband. AS ein-
söngnum loknum lék lúðrasveit
hersins fyrir utae kirkjuna, ein-
kennislag Bandaríkjaforseta
„Hail to the Chief“, en að því
búnu báru hermenn kistuna í
kirkju.
Athöfnin í kirkjunni var mjög
hátíðleg og var henni jafnharðan
sjónvarpað um þver og endilöng
Bandaríkin, eins og raunar allri
útförinni. Philip Hannan, biskup
í Washington, las kafla úr em-
þættistökuræðu hins látna for-
seta og síðan eftirlætiskafla hans
úr biblíunni. Richard Cushing,
kardínáli frá Boston, heimilis-
vinur Kennedy-fjölskyldunnar,
messaði. Honum mæltist m.a. svo:
„Algóði guð. Megi þessi fórn
verða til þess að hreinsa af allri
synd sál þjóns þíns, Johns, sem
nú hefur kvatt þennan heim, og
megi hann þannig öðlast frá þér
fyrirgefning og eilífan frið.“
Frú Kennedy kraup við háalt-
arið og þáði úr hendi kardínál-
ans oblátur, en samkvæmt
kaþólskri trú voru þær orðnar
hold Krists.
Úti fyrir stóðu tugþúsundir
Washingtonbúa og annarra Banda
ríkjamanna, sem flykkzt hqfðu til
höfuðborgarinnar til að kveðja
forsetann í hinzta sinn. Ekki
hafði verið komið fyrir hátölur-
um, en fjöldi manns hafði með
sér lítil ferðáútvarpstæki. Fylgd-
ust þannig allir með því, sem inni
gerðist.
Kvaddi föður sinn
Að hinni hátíðlegu athöfn lok-
Inni var kista forsetans borin
fyrst úr kirkju. Á eftir fylgdi frú
Kennedy og leiddi börn sín tvö,
John junior, sem ekkert virtist
skilja hvað var að gerast, enda
ungur að árum. Einhver órói var
á John litla, og beygði móðir
hans sig yfir hann og talaði við
hann. Hann hélt á bók í hend
jnni, og rétti móður sinni hana.
Síðan lyfti hann hendinni og
kvaddi föður sinn. Caroline sýnd
ist föl, en virtist að öðru leyti
róleg. Sama var að segja um
móður hennar, frú Kennedy. Við
sáum síðast þá Harry S. Truman
og Dyyigh Eisenhower ganga nið-
ur kirkjutröppurnar. Tóku þeir í
hendur frú Kennedy og nóinna
ættingja og mæltu við þá nokk-
ur huggunarorð. Á eftir fylgdu
erlendir þjóðhöfðingjar, en bíla
lest þeirra var mörg hundruð
metra löng. Voru kirkjugestirnir
lengi að komast í bíla sína, en
ekki kom það að sök, því langt
er til Arlington frá Mattheusar-
kirkju og hægt var farið. Náðu
bílarnir líkfylgdinni á þeiryi leið.
Gröf Kennedys er í grænum
hæðarslakka í kirkjugarðinum og
veit hún að miðborg Washington.
Aðeins fáum fréttamönnum var
leyft að vera við sjálfa greftrun-
ina, en vel mátti fylgjast með
henni í sjónvarpi. í kirkjugarð-
inum skaut sveit manna heiðurs
skotum, og flugvél sú, sem flutti
hinn þróttmikla forseta um víða
veröld meðan hann lifði, flaug
lágt yfir í kveðjuskyni. Jacque-
line Kennedy hélt á fána þeim,
sem sveipað hafði kistu manns
hennar og þrýsti honum að
brjósti sér, er hún gekk á brott.
Var það áhrifamikil sjón.
Ferðamenn víða að
Útför forsetans hér í dag verð-
ur öllum þeim, sem við hana
voru staddir, ógleymanlegur at-
burður, ekki aðeins vegna manns
þess, er nú var kvaddur í hinzta
sinn, heldur einnig vegna fólks-
ins, sem við sáum kveðja hann.
Er þá átt við óbreytta borgara
ekki síður en þjóðhöfðingja.
Blaðamenn Morgunblaðsins hittu
f. d. tvo unga stúdenta, sem ferð
azt höfðu „á þumalfingrinum"
alla leið frá Detroit til Washing-
ton til þess að vera viðstaddir.
Þeir hugðust ieggja af stað til
baka í kvöld og ferðast á sama
hátt. Við heyrðum sögur um
marga aðra slíka ferðamenn.
Þá verður og minnisstæður
hinn gífurlegi fjöldi fréttamarma
frá útvarpi, blöðum og sjónvarpi.
Sjónvarpsmenn höfðu hreyfan-
legar sendistöðvar meðfram
allri þeirri leið sem líkfylgdin
fór. Þegar þetta er ritað er enn
verið að sjónvarpa jafnharðan frá
ýmsum atburðum. Móttaka stend
ur nú yfir í utanríkisráðuneyt-
inu og heilsar Johnson forseti
þar gestum. Fyrir örskömmu sá-
um við Guðmund í. Guðmunds-
son, utanríkisráðherra, heilsa for
setanum. Skiptust þeir á nokkr-
um orðum og forsetinn brosti
augnablik. Orðaskil heyrðust
ekki, en okkkur datt í hug að for-
setinn hefði e.t.v. minnzt á ís-
landsferð sína í september sl.
Og í dagsins önn virtist sá
maður gleymdur, seon kom öllu
þessu af stað. Það er lítið talað
um Oswald í dag. En þeir, sem
fréttamenn Morgunblaðsins
spurðu að fyrna bragði, éru reið-
ir lögreglunni í Dallas fyrir
frammistöðuna. En þótt unnið
hafi verið á Oswald þessurn á
sama hátt og hann var talinn
hafa grandað Kennedy, gætti á-
rrifa hans engu að síður hér í
dag. Sá sem þetta ritar hefur
aldrei fyrri séð slíkan sæg lög-
reglumanna, einkennisklæddra
sem óeinkennisklæddra, og þann
sem gat að líta um alla Washing-
tonborg í dag. Er Johnson for-
seti ók frá kirkju var bíll hans
umsetinn leyniþjónustumönnum,
sem skimuðu í allar áttir. Lög-
reglumenn sáust á húsaþökum,
innan um mannfjöldann, bók-
staflega um allt, enda mun
aldrei fyrr hafa gist Washington
jafn mikill fjöldi verðmætra
mannslífa og í dag. Lögreglu-
menn voru fengnir að láni hjá ná
grannaríkjunum, jafnvel alla
leið frá New York. Umferðinni
víða í borginni var stjórnað af
herlögreglumönnum, sem mun
næsta fátítt.
Merkið stendur
Blöð hér segja ag sjaldan eða
aldrei hafi ríkt meiri taugaveikl
un embættismanna en þessa dag
ana. Ofan á öryggisvandamálið
vegna erlendra þjóðhöfðingja,
bætist við, að nýr forseti hefur
setzt að völdum og enginn veit
hvað kann að gerast. Þrátt fyrir
harmleikinn og alla þá sorg, sem
hér hefur ríkt, örlaði þó á bjart-
sýni varðandi framtíðina. Merk
ið stendur þótt maðurinn falli
og bandaríska þjóðin hættir ekki
að vera til, þótt hér hafi verið
grafinn einn glæsilegasti full
trúi hennar og leiðtogi.
Gamanþátturinn saminn: Karl Guðmundsson, Loftur Guð-
mundsson og Jón Gunnlaugsson.
Fullveldisfagnaður
Stúdentafélags
STÚDENTAFELAG Reykjavík-
ur efnir til fullveldisfagnaðar
laugardaginn 30. nóvember að
venju. Verður fagnaðurinn hald
inn að Hótel Borg og hefst rrieð
borðhaldi kl. 7. s.d.
Dagskráin er á þá lund að
Gunnar Thoroddsen fjármálaráð
herra flytur ræðu og formaður
félagsins dr. Gunnar G. Schram
stutt ávarp. Jón Sigurbjörnsson
óperusöngvari syngur og þeir
Karl Guðmundsson og Jón Gunn
laugsson flytja skemmtiþátt.
Þann þátt hefur Loftur Guð-
mundsson rithöfundur sérstak-
lega samið fyrir fagnaðinn og
kennir þar margra grasa.
Veizlumatur verður á borðum,
m. a. humar og rjúpur en að
borðhaldi loknu verður stiginn
dans þar tii kl. 2 eftir miðnætti.
Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagið EDDA
í Kópavogi heldur aðalfund í
kvöld, þriðjudaginn 26. nóv., að
Borgarholtsbraut 6, og hefst
hann kl. 20,30. — Venjuleg aðal-
fundarstörf. — Stjórnin.
Heimdallur
MÁLFUNDAKLÚBBUR Heim-
dallar heldur starfsemi sinni
áfram í Valhöll í kvöld kl. 20,30,
og verður rætt um . kynþátta
vandamálin.
Athygli er vakin á þvi, að
klúbburinn, sem einkum er ætl-
aður byrjendum, er opinn öllum
félagsmönnum og nýir þátttak-
endur geta ætíð bætzt við.
Stjórnin.
*“*■»*« ♦
• v;- * :-.v: , .ý ,, -y
BANDARÍKJAMENN á Kefla
víkurflugvelli minntust í gær-
morg’un hins látna forseta
síns. Minningarathöfn fór
fram. í Andrews Theater kl. 10
árdegis og kl. 11.30 hófst
katólsk sálumessa í kapellu
varnarliðsins.
í kapellunni hafði verið
komið fyrir líkikistu til tákns,
en við hana stóðu heiðursvörð
fulltrúar flotans, flughersins,
landhersins og landgönguliða
flotans.
Síra S. E. Almasy annaðist
sálumessuna
Eftir sálumessuna var skotið
af byssum í heiðursskyni við
hinn látna forseta og lúðrar
þeyttir.
Viðstaddir athöfnina voru 3
prestar katólska safnaðarins í
Reykjavík, svo og ýmsir aðrir
meðlimir hans. ~v.
Að venju verður fagnaði Stú
dentafélagsins útvarpað að
kvöldi hins 1. desember. Mun
dr. Benjamín Eiríksson banka-
stjóri fytja erindi á vegum fé
lagsins það kvöld í útvarpssal.
Stúdentar, eldri og yngri, eru
hvattir til þess að fjölmenna á
fagnaðinn. Aðgöngumiðar verða
seldir að Hótel Borg í dag kl.
5—7 e.h. og næstu daga í bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
Togarasölur
TVEIR togarar seldu í Eng-
landi á mánudagsmorgun, bv.
Hvalfell í Grimsby 115 tonn fyrir
10.500 sterlingspund og bv. Þor-
kell máni í Hull fyrir 9.795 ster-
lingspund.
— Uppboð
Framh. af bls. 2
Dýrasta málverkið, sem sleg-
ið hefur verið á uppboðum þess-
um, var Þingvallamynd eftir
Kjarval, er seld var á 49 þúsund
krónur. Eitt sinn áður hélt Sig-
urður uppboð á myndum, ein-
göngu eftir Kjarval, og yfirleitt
hafa verið Kjarvalsmálverk
á hverju uppboði. Kjarval
sagði við fréttamenn í gær, að
nauðsynlegt væri að hafa milli-
göngumann eins og Sigurð til
að koma listinni „í samband við
þá næmi, sem innsveitirnar og
fráfærurnar, hafa blásið í þá,
sem búa í borgum niður við sjó-
inn“.
Hundraðasta uppboðið nefnist
Annálsbrot í myndum eftir Jó-
hannes S. Kjarval. Myndirnar
eru til sýnis í Súlnasalnum í dag
kl. 2—6, miðvikudag kl. 10—6 og
fimmtudag kl. 10—4.
Bíóhúsið á Norð-
firði brennur
NORÐFIRÐI, 25. nóv.
í dag kl. um 15.30 kviknaði í
gamla bíóhúsinu hér. Slökkviliðið
kom þegar á vettvang, en þá var
geysimikill elduir uppi í húsinu.
Tók rúman klukkutíma að ráða
niðurlögum hans. Þá var húsið
allt brunnið að innan, stólar,
bekkir og loft að mestu, en það
hangir þó uppi. Sýningarvélum
tókst að bjarga, en þær voru í
sérstökum klefa. Um tíma var
mjög óttazt, að eldurinn næði til
húss, sem er rétt hjá bíóhúsinu,
og var byrjað að flytja þaðan
ýmis skjöl o. fl., en þarna hefur
m. a. Drífa hf skrifstofu sína.
Eldurinn náði þó aldroi þanigað.
Eldsupptök eru enn ókunn, og er
málið í rannsókn. — Þetta bíó-
hús var um langan tíma eitt
aðals£imkomuhús Norðfirðinga,
e-ða þar til Félagsheimilið tók
við. Bíóhúsið má nú heita alveg
ónýtt, þótt veggir standi uppi.
— Asgeir.
Kennedys minnzt
um heim allan
London, 25. nóv. — NTB
FÓLK um allan heim, í austri
og vestri, syrgði í dag hinn
látna forseta Bandaríkjanna,
J. F. Kennedy. í kirkjum og
í skólum, á þjóðþingum og
ráðstefnum, létu menn í ljós
samúð sína með ekkju for-
setans og handarísku þjóð-
inni.
Haldinn var stuttur hátíðafund
ur í Neðri málstofu brezaa þings
ins, þar sem samþykkt var ein-
róma, að fela drottningunni að
votta Lyndon Johnson, forseta,
og ekkju Kennedys dýpstu sam-
úð fyrir hönd þingsins.
I Moskvu var haldin minning-
arguðsþjónusta um Kennedy í
hinni rómversk-kaþólsku kirkju
borgarinnar, og voru þar mættir
ýmsir fuíltrúar úr rússneska ut-
anríkisráðuneytinu, svo og sendi-
herrar erlendra ríkja og fleiri.
Frú Nina Krúsjeff kom til banda-
ríska sendiráðsins í Moskvu og
skrifaði nafn sitt í bók til minn-
ingar um Kennedy. Fólk safnað-
ist við sjónvarpstækin, en endur-
varpað var sjónvarpi Bandaríkj-
anna frá útför forsetans. Sjón-
varpið náði til 24 Evrópuríkja,
þar af 7 kommúnistaríkja.
í Kaupmannahöfn var öllum
leikhúsum lokað vegna jarðar-
fararinnar og Friðrik konungur
og Ingiriður drottning tóku þátt
i minmngarguðsþjónustu.
1 Sviþjóð tóku konungshjóxún
einnig þátt í minningarguðsþjón-
ustu um Kennedy, svo og helztu
ráðherrar og sendiherrar, þar á
meðal sá bandaríski og rússneski.
í Vestur-Berlín var torgið fyr-
ir framan ráðhúsið skýrt upp
og heitið eftir hinum látna for-
seta. Fjöldi fólks hafði safnazt
þar saman og hélt forseti borg-
arráðsins þar minningarræðu. —
Hann sagði, að Kennedy hafi ver-
ið tákn öryggisins fyrir alla þá,
sem byggju vestanmegin Berlín-
armúrsins, en vonarinnar fyrir
Austur-Berlínarbúa. Varaborgar-
stjórinn sagði, að Berlínarbúar
bæru fyllsta traust til Johnsons
forseta og hefði brúin milli Ber-
línar og Washington aldrei verið
traustari en nú.
í Róm var Segni forseti við-
staddur minningarguðsþjónustu,
auk fjölda kardínála. Meðal
þeirra var Francis Spellmann,
kardínáli frá New York.
í París hélt fastaráð Atlants-
hafsbandalagsins fund til að
minnast Kennedys.
í Alsír var torg skírt eftir
Kennedy.
Víðast annars staðar, þar sem
til fréttist, var hins látna forseta
minnzt með söknuði og virðingu.
Frá Leopollville til Helsingfors,
frá Spáni til Indlands.