Morgunblaðið - 26.11.1963, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.11.1963, Blaðsíða 31
Þriðjudagur 26. nóv. 1963 MORGUNBLAÐIÐ 31 Útför Kennedys Framh. af bls. 20 dy gengu í hjónaband. AS ein- söngnum loknum lék lúðrasveit hersins fyrir utae kirkjuna, ein- kennislag Bandaríkjaforseta „Hail to the Chief“, en að því búnu báru hermenn kistuna í kirkju. Athöfnin í kirkjunni var mjög hátíðleg og var henni jafnharðan sjónvarpað um þver og endilöng Bandaríkin, eins og raunar allri útförinni. Philip Hannan, biskup í Washington, las kafla úr em- þættistökuræðu hins látna for- seta og síðan eftirlætiskafla hans úr biblíunni. Richard Cushing, kardínáli frá Boston, heimilis- vinur Kennedy-fjölskyldunnar, messaði. Honum mæltist m.a. svo: „Algóði guð. Megi þessi fórn verða til þess að hreinsa af allri synd sál þjóns þíns, Johns, sem nú hefur kvatt þennan heim, og megi hann þannig öðlast frá þér fyrirgefning og eilífan frið.“ Frú Kennedy kraup við háalt- arið og þáði úr hendi kardínál- ans oblátur, en samkvæmt kaþólskri trú voru þær orðnar hold Krists. Úti fyrir stóðu tugþúsundir Washingtonbúa og annarra Banda ríkjamanna, sem flykkzt hqfðu til höfuðborgarinnar til að kveðja forsetann í hinzta sinn. Ekki hafði verið komið fyrir hátölur- um, en fjöldi manns hafði með sér lítil ferðáútvarpstæki. Fylgd- ust þannig allir með því, sem inni gerðist. Kvaddi föður sinn Að hinni hátíðlegu athöfn lok- Inni var kista forsetans borin fyrst úr kirkju. Á eftir fylgdi frú Kennedy og leiddi börn sín tvö, John junior, sem ekkert virtist skilja hvað var að gerast, enda ungur að árum. Einhver órói var á John litla, og beygði móðir hans sig yfir hann og talaði við hann. Hann hélt á bók í hend jnni, og rétti móður sinni hana. Síðan lyfti hann hendinni og kvaddi föður sinn. Caroline sýnd ist föl, en virtist að öðru leyti róleg. Sama var að segja um móður hennar, frú Kennedy. Við sáum síðast þá Harry S. Truman og Dyyigh Eisenhower ganga nið- ur kirkjutröppurnar. Tóku þeir í hendur frú Kennedy og nóinna ættingja og mæltu við þá nokk- ur huggunarorð. Á eftir fylgdu erlendir þjóðhöfðingjar, en bíla lest þeirra var mörg hundruð metra löng. Voru kirkjugestirnir lengi að komast í bíla sína, en ekki kom það að sök, því langt er til Arlington frá Mattheusar- kirkju og hægt var farið. Náðu bílarnir líkfylgdinni á þeiryi leið. Gröf Kennedys er í grænum hæðarslakka í kirkjugarðinum og veit hún að miðborg Washington. Aðeins fáum fréttamönnum var leyft að vera við sjálfa greftrun- ina, en vel mátti fylgjast með henni í sjónvarpi. í kirkjugarð- inum skaut sveit manna heiðurs skotum, og flugvél sú, sem flutti hinn þróttmikla forseta um víða veröld meðan hann lifði, flaug lágt yfir í kveðjuskyni. Jacque- line Kennedy hélt á fána þeim, sem sveipað hafði kistu manns hennar og þrýsti honum að brjósti sér, er hún gekk á brott. Var það áhrifamikil sjón. Ferðamenn víða að Útför forsetans hér í dag verð- ur öllum þeim, sem við hana voru staddir, ógleymanlegur at- burður, ekki aðeins vegna manns þess, er nú var kvaddur í hinzta sinn, heldur einnig vegna fólks- ins, sem við sáum kveðja hann. Er þá átt við óbreytta borgara ekki síður en þjóðhöfðingja. Blaðamenn Morgunblaðsins hittu f. d. tvo unga stúdenta, sem ferð azt höfðu „á þumalfingrinum" alla leið frá Detroit til Washing- ton til þess að vera viðstaddir. Þeir hugðust ieggja af stað til baka í kvöld og ferðast á sama hátt. Við heyrðum sögur um marga aðra slíka ferðamenn. Þá verður og minnisstæður hinn gífurlegi fjöldi fréttamarma frá útvarpi, blöðum og sjónvarpi. Sjónvarpsmenn höfðu hreyfan- legar sendistöðvar meðfram allri þeirri leið sem líkfylgdin fór. Þegar þetta er ritað er enn verið að sjónvarpa jafnharðan frá ýmsum atburðum. Móttaka stend ur nú yfir í utanríkisráðuneyt- inu og heilsar Johnson forseti þar gestum. Fyrir örskömmu sá- um við Guðmund í. Guðmunds- son, utanríkisráðherra, heilsa for setanum. Skiptust þeir á nokkr- um orðum og forsetinn brosti augnablik. Orðaskil heyrðust ekki, en okkkur datt í hug að for- setinn hefði e.t.v. minnzt á ís- landsferð sína í september sl. Og í dagsins önn virtist sá maður gleymdur, seon kom öllu þessu af stað. Það er lítið talað um Oswald í dag. En þeir, sem fréttamenn Morgunblaðsins spurðu að fyrna bragði, éru reið- ir lögreglunni í Dallas fyrir frammistöðuna. En þótt unnið hafi verið á Oswald þessurn á sama hátt og hann var talinn hafa grandað Kennedy, gætti á- rrifa hans engu að síður hér í dag. Sá sem þetta ritar hefur aldrei fyrri séð slíkan sæg lög- reglumanna, einkennisklæddra sem óeinkennisklæddra, og þann sem gat að líta um alla Washing- tonborg í dag. Er Johnson for- seti ók frá kirkju var bíll hans umsetinn leyniþjónustumönnum, sem skimuðu í allar áttir. Lög- reglumenn sáust á húsaþökum, innan um mannfjöldann, bók- staflega um allt, enda mun aldrei fyrr hafa gist Washington jafn mikill fjöldi verðmætra mannslífa og í dag. Lögreglu- menn voru fengnir að láni hjá ná grannaríkjunum, jafnvel alla leið frá New York. Umferðinni víða í borginni var stjórnað af herlögreglumönnum, sem mun næsta fátítt. Merkið stendur Blöð hér segja ag sjaldan eða aldrei hafi ríkt meiri taugaveikl un embættismanna en þessa dag ana. Ofan á öryggisvandamálið vegna erlendra þjóðhöfðingja, bætist við, að nýr forseti hefur setzt að völdum og enginn veit hvað kann að gerast. Þrátt fyrir harmleikinn og alla þá sorg, sem hér hefur ríkt, örlaði þó á bjart- sýni varðandi framtíðina. Merk ið stendur þótt maðurinn falli og bandaríska þjóðin hættir ekki að vera til, þótt hér hafi verið grafinn einn glæsilegasti full trúi hennar og leiðtogi. Gamanþátturinn saminn: Karl Guðmundsson, Loftur Guð- mundsson og Jón Gunnlaugsson. Fullveldisfagnaður Stúdentafélags STÚDENTAFELAG Reykjavík- ur efnir til fullveldisfagnaðar laugardaginn 30. nóvember að venju. Verður fagnaðurinn hald inn að Hótel Borg og hefst rrieð borðhaldi kl. 7. s.d. Dagskráin er á þá lund að Gunnar Thoroddsen fjármálaráð herra flytur ræðu og formaður félagsins dr. Gunnar G. Schram stutt ávarp. Jón Sigurbjörnsson óperusöngvari syngur og þeir Karl Guðmundsson og Jón Gunn laugsson flytja skemmtiþátt. Þann þátt hefur Loftur Guð- mundsson rithöfundur sérstak- lega samið fyrir fagnaðinn og kennir þar margra grasa. Veizlumatur verður á borðum, m. a. humar og rjúpur en að borðhaldi loknu verður stiginn dans þar tii kl. 2 eftir miðnætti. Kópavogur Sjálfstæðiskvennafélagið EDDA í Kópavogi heldur aðalfund í kvöld, þriðjudaginn 26. nóv., að Borgarholtsbraut 6, og hefst hann kl. 20,30. — Venjuleg aðal- fundarstörf. — Stjórnin. Heimdallur MÁLFUNDAKLÚBBUR Heim- dallar heldur starfsemi sinni áfram í Valhöll í kvöld kl. 20,30, og verður rætt um . kynþátta vandamálin. Athygli er vakin á þvi, að klúbburinn, sem einkum er ætl- aður byrjendum, er opinn öllum félagsmönnum og nýir þátttak- endur geta ætíð bætzt við. Stjórnin. *“*■»*« ♦ • v;- * :-.v: , .ý ,, -y BANDARÍKJAMENN á Kefla víkurflugvelli minntust í gær- morg’un hins látna forseta síns. Minningarathöfn fór fram. í Andrews Theater kl. 10 árdegis og kl. 11.30 hófst katólsk sálumessa í kapellu varnarliðsins. í kapellunni hafði verið komið fyrir líkikistu til tákns, en við hana stóðu heiðursvörð fulltrúar flotans, flughersins, landhersins og landgönguliða flotans. Síra S. E. Almasy annaðist sálumessuna Eftir sálumessuna var skotið af byssum í heiðursskyni við hinn látna forseta og lúðrar þeyttir. Viðstaddir athöfnina voru 3 prestar katólska safnaðarins í Reykjavík, svo og ýmsir aðrir meðlimir hans. ~v. Að venju verður fagnaði Stú dentafélagsins útvarpað að kvöldi hins 1. desember. Mun dr. Benjamín Eiríksson banka- stjóri fytja erindi á vegum fé lagsins það kvöld í útvarpssal. Stúdentar, eldri og yngri, eru hvattir til þess að fjölmenna á fagnaðinn. Aðgöngumiðar verða seldir að Hótel Borg í dag kl. 5—7 e.h. og næstu daga í bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar. Togarasölur TVEIR togarar seldu í Eng- landi á mánudagsmorgun, bv. Hvalfell í Grimsby 115 tonn fyrir 10.500 sterlingspund og bv. Þor- kell máni í Hull fyrir 9.795 ster- lingspund. — Uppboð Framh. af bls. 2 Dýrasta málverkið, sem sleg- ið hefur verið á uppboðum þess- um, var Þingvallamynd eftir Kjarval, er seld var á 49 þúsund krónur. Eitt sinn áður hélt Sig- urður uppboð á myndum, ein- göngu eftir Kjarval, og yfirleitt hafa verið Kjarvalsmálverk á hverju uppboði. Kjarval sagði við fréttamenn í gær, að nauðsynlegt væri að hafa milli- göngumann eins og Sigurð til að koma listinni „í samband við þá næmi, sem innsveitirnar og fráfærurnar, hafa blásið í þá, sem búa í borgum niður við sjó- inn“. Hundraðasta uppboðið nefnist Annálsbrot í myndum eftir Jó- hannes S. Kjarval. Myndirnar eru til sýnis í Súlnasalnum í dag kl. 2—6, miðvikudag kl. 10—6 og fimmtudag kl. 10—4. Bíóhúsið á Norð- firði brennur NORÐFIRÐI, 25. nóv. í dag kl. um 15.30 kviknaði í gamla bíóhúsinu hér. Slökkviliðið kom þegar á vettvang, en þá var geysimikill elduir uppi í húsinu. Tók rúman klukkutíma að ráða niðurlögum hans. Þá var húsið allt brunnið að innan, stólar, bekkir og loft að mestu, en það hangir þó uppi. Sýningarvélum tókst að bjarga, en þær voru í sérstökum klefa. Um tíma var mjög óttazt, að eldurinn næði til húss, sem er rétt hjá bíóhúsinu, og var byrjað að flytja þaðan ýmis skjöl o. fl., en þarna hefur m. a. Drífa hf skrifstofu sína. Eldurinn náði þó aldroi þanigað. Eldsupptök eru enn ókunn, og er málið í rannsókn. — Þetta bíó- hús var um langan tíma eitt aðals£imkomuhús Norðfirðinga, e-ða þar til Félagsheimilið tók við. Bíóhúsið má nú heita alveg ónýtt, þótt veggir standi uppi. — Asgeir. Kennedys minnzt um heim allan London, 25. nóv. — NTB FÓLK um allan heim, í austri og vestri, syrgði í dag hinn látna forseta Bandaríkjanna, J. F. Kennedy. í kirkjum og í skólum, á þjóðþingum og ráðstefnum, létu menn í ljós samúð sína með ekkju for- setans og handarísku þjóð- inni. Haldinn var stuttur hátíðafund ur í Neðri málstofu brezaa þings ins, þar sem samþykkt var ein- róma, að fela drottningunni að votta Lyndon Johnson, forseta, og ekkju Kennedys dýpstu sam- úð fyrir hönd þingsins. I Moskvu var haldin minning- arguðsþjónusta um Kennedy í hinni rómversk-kaþólsku kirkju borgarinnar, og voru þar mættir ýmsir fuíltrúar úr rússneska ut- anríkisráðuneytinu, svo og sendi- herrar erlendra ríkja og fleiri. Frú Nina Krúsjeff kom til banda- ríska sendiráðsins í Moskvu og skrifaði nafn sitt í bók til minn- ingar um Kennedy. Fólk safnað- ist við sjónvarpstækin, en endur- varpað var sjónvarpi Bandaríkj- anna frá útför forsetans. Sjón- varpið náði til 24 Evrópuríkja, þar af 7 kommúnistaríkja. í Kaupmannahöfn var öllum leikhúsum lokað vegna jarðar- fararinnar og Friðrik konungur og Ingiriður drottning tóku þátt i minmngarguðsþjónustu. 1 Sviþjóð tóku konungshjóxún einnig þátt í minningarguðsþjón- ustu um Kennedy, svo og helztu ráðherrar og sendiherrar, þar á meðal sá bandaríski og rússneski. í Vestur-Berlín var torgið fyr- ir framan ráðhúsið skýrt upp og heitið eftir hinum látna for- seta. Fjöldi fólks hafði safnazt þar saman og hélt forseti borg- arráðsins þar minningarræðu. — Hann sagði, að Kennedy hafi ver- ið tákn öryggisins fyrir alla þá, sem byggju vestanmegin Berlín- armúrsins, en vonarinnar fyrir Austur-Berlínarbúa. Varaborgar- stjórinn sagði, að Berlínarbúar bæru fyllsta traust til Johnsons forseta og hefði brúin milli Ber- línar og Washington aldrei verið traustari en nú. í Róm var Segni forseti við- staddur minningarguðsþjónustu, auk fjölda kardínála. Meðal þeirra var Francis Spellmann, kardínáli frá New York. í París hélt fastaráð Atlants- hafsbandalagsins fund til að minnast Kennedys. í Alsír var torg skírt eftir Kennedy. Víðast annars staðar, þar sem til fréttist, var hins látna forseta minnzt með söknuði og virðingu. Frá Leopollville til Helsingfors, frá Spáni til Indlands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.