Morgunblaðið - 26.11.1963, Blaðsíða 24
24
MOfíGUNB! AðfÐ
Þriðjudagtir 26. nóv. 1963
Síldarverksmi&ja
á Eskifirði
Hreppsnefnd Eskifjarðar hefur nú um skeið unnið
ao því, að reist verði síldarverksmiðja á Mjóeyri við
Eskifjörð. — Á fundi sínum þann 11. þ.m. sam-
þykkti hreppsnefndin að bjóða síldarsaitendum og
síldarútvegsmönnum þátttöku í verksmiðjubygg-
ingunni.
Eru þeir, sem kynnu að hafa áhuga á þessu máli,
beðnir að snúa sér til skrifstofu Eskifjarðarhrepps,
sem gefur allar nánari upplýsingar.
Eskifirði, 16. nóvember 1963.
Þorleifur Jónsson, sveitarstjóri.
Aivinna óskast
Danskur maður er dvalið hefur á íslandi í 3 ár ósk
ar eftir atvinnu við skrifstofustörf. — Er vanur
bréfaskriftum á ensku, dönsku og þýzku. — Einn-
ig verðútreikningum. Tilboð sendist afgr. Mbl., —
merkt: „Atvinna — 3426“.
Kjörbarn — Fósturharn
Ung hjón utan af landi óska að taka að sér barn,
helzt sem yngst. Fósturbarn kemur til greina. Til-
boð sendist afgr. Mbl., merkt: „Ung hjón — 3291“.
Skrifstofustúlka — Vélabókhald
Stórt fyrirtæki hér í bænum óskar eftir að ráða
skrifstofustúlku, helzt vana vélritun og sem hefur
einhverja þekkingu á vélabókhaldi. Framtíðarstarf.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist afgr.
Mbl. merkt: „Vélabókhald — 3019“ fyrir 1. des. n.k.
GLIFF
MYNDIS
i mörgum stærðum
Ný Cliff bók
með 71 mynd af Cliff.
Frímerkjasalan
Lækjargata 6 A.
Húseign i Austur-
bænum
Til sölu er gott timburhús á
eignarlóð á hitaveitusvæði. —
Tvær íbúðir eru í húsinu og
undir því rúmgóður kjallari,
sem nota mætti sem verk,
stæði. Uppl. gefur
Ingi Ingimundarson
hæstaréttarlögmaður
Klapparstíg 26.
Sími 24753.
Mercury ‘55
Mercury Montcleair ’55, faileg-
ur bíll, er til sýnis og sölu að
Ljósheimuim 4. Bíllinn er
sjálfskiptur með nýuppgerð-
uim 8 cyl. mótor, vökvastyri,
loftbremsum o. fL Uppl. í
síma 37358.
Hriztgskostur Hafnarfirði
Fundur í Sjálfstæðishúsinu þriðjudaginn 26. nóv.
kl. 8,30 e.h. — Frú Sigurveig Guðmundsdóttir les
upp og fleira. — Konur fjölmennið.
Stjórnin.
Fatabreytingar
Breytum tvíhnepptum jökkum í einhneppta. —
Þrengjum jakka og buxur.
Klæðaverzlun BRAGA BRYNJÓLFSSONAR
Laugavegi 46. — Sími 16929.
Drengjaúlpur
Ódýrar, japanskar drengjaúlpur. Svampfóðraðar
úr nælon. — Verð kr. 485,00.
Klæðaverzlun BRAGA BRYNJÓLFSSONAR
Laugavegi 46. — Sími 16929.
Tilkynning
til kaupmanna
Að gefnu tilefni skal athygli vakin á ákvæðum
152. gr. Brunamálasamþykktar fyrir Reykjavík um
sölu á skoteldum, svohljóðandi:
152. grein:
„Sala skotelda er bundin leyfi slökkviliðs-
stjóra, er ákveður, hve miklar birgðir megi
vera á hverjum stað og hvernig þeim skuli
komið fyrir“.
Reykjavík, 23. nóv. 1963.
Slökkviliðsstjóri.
Stúlka
óskast til afgreiðslustarfa í sérverzlun í Miðbæn-
um. Umsóknir sendist í pósti, merktar: „Pósthólf
— 502“.
Húsvörður
Húsvörður óskast. Skriflegar umsóknir, sem til-
greini aldur, fyrri störf og fjölskyldustærð, send-
ist til Húsfélagsins Sólheimum 27, Reykjavík, fyrir
5. des. n.k.
Einkaflugmenn
Félagsfundur að Hótel Borg, miðvikudaginn 27.
nóv. kl. 20,30.
DAGSKRÁ:
1. Framkvæmdir við félagsheimili. ,
2. Erindi: Sigurður Benediktsson,
flugvélaverkfræðingur.
3. Kvikmynd.
Stjórnin.
Fiskbúð
Af sérstökum ástæðum er til sölu nú þegar góð
fiskbúð í fjölmennu hverfi. Tilboð leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir 1. des. n.k., merkt: „Fiskbúð — 3262“.