Morgunblaðið - 26.11.1963, Blaðsíða 30
30
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. nóv. 1963
Landsleikur viö
Skota og Finna
— ©sj e.t.v. við Bermuda
ÁRSÞING Knattspyrnusambands
ins var haldið um heigina. Var
þetta fjörugt þing og miklar um-
ræður um mörg mál er hæst ber
hjá knattspyrnuhreyfirtgunni. —
Fram kom á þinginu að tveir
landsleikir eru ákveðnir næsta
sumar og möguleikar á hinum
þriðja, en það mál er í athugun
og bréfskipti standa yfir út af
málinu. Ákveðnir eru landsleikir
við Finna í Reykjavík 23. ágúst
og einnig við Skota (áhuga-
mannalið) í Reykjavík í júlílok.
Í athugun er leikur við landslið
Bermudaeyja, en ráðgerð er Ev-
rópuför þess og hugsanlegt að
það komi hér við.
Á þinginu voru samþykktar
margar tililögur og ályktanir m.a.
reglugerð fyrir knattspyrnumót
þar sem m.a. eru strangari á-
Guðjóni Jóns-
syni vel íngnnð
GUÐJÓN Jónss«íi hinn kunni
handknattleiiksmaður Fram og
landsliðsins og jafnframt knatt-
spymukappi lék nú aiftur með
Fram á simnudaginn eftir lang-
varandi meiðsli er hann hlaut í
kattspyrnuleik sneanma í sumar.
Guðjón varð að ganga undir upp-
skurð og var miánuðum saman
ýmist á sjúikrahúsi eða í göngu-
giipsi.
Guðjóni var hjartanlega fagn-
að að hann skuli aftur vera orð-
inn heill og virðist vera til mik-
illa afreka líklegur sem fynr.
kvæði um rétt leikmanna ann-
ars aldursflokks til þátttöku í
meistaraflokki og breytingar á
leiktíma. yngri flokkanna.
Þá var ákveðið að 5 menn
skyldu skipa landsliðsnefnd KSÍ
héðan í frá í stað þriggja sem nú
er og jafnframt að 2 nefndar-
manna skuli vera utanbæjar-
menn.
Samþykkt var að fela stjóm
KSÍ að koma á bikarkeþpni 2.
flokks og jafnframt að koma á
landsleikjum unglingaliðs.
Nokkrar umræður urðu um
hið svokallaða Siglufjarðarmál
og samþykkt tillaga þar sem vítt
voru blaðaskrif um dómstól KSÍ
o. fl. —
Hagur KSf stendur með blóma,
hagnaður á liðnu ári var 76 þús.
kr. og ií sjóði nú nær 130 þús. kr.
Stjórnin var öll endurkjörin.
Björgvin Schram, formaður, en
með honum í stjórn Axel Einars-
son, Jón Magnússon, Sveinn
Zoega, Ragnar Lárusson, Guð-
mundur Sveinbjörnsson og Ingv-
ar N. Pálsson.
Við komu norsku sundmannanna til Armanns. Frá vinstri: Guðm. Þ. Harðarson,
Matthildur Guðmundsdóttir, W engen og Davíð Valgarðsson.
Erik Kosvald,
Metaregn á sundmóti
Armanns í gærkvöldi
IHótinu lýkur í kvöld
ÞAÐ var mikið metraregn á sund
móti Ármanns í gærkvöldi — og
mótinu lýkur í kvöld. Þetta var
regn af íslandsmetum, sveina-
og unginga og telpnametum.
Tveir ungir Norðmenn eru gest-
ir Ármenninga og veittu þeir ísl.
sundfólkinu harða keppni og
unnu eina grein 400 m skrið-
sund.
Hrafnhildur Guðmundsdótt
ir setti glæsilegasta metið í
200 m. bringusundi 2.54.5 en
gamla metið hennar var
2.58.3. Hrafnhildur gerir met-
tilraun á 50 m í kvöld og er
það aukagrein á mótinu.
KR-ingar náðu stigi af
Islandsmeisturum rram
Úr leik Fram og Þróttar í m.fl. kvenna.
Ársþing FRI
ÁRSÞING Frjálsíþróttasam-
bandsins var haldið um helgina
og var stjórnin að mestu endur-
kjörin. Starf FRÍ á liðnu sumri
var umfangsmikið og margþætt
og var rækilega skýrt í skýrslu
Inga Þorsteinssonar formanns
FRÍ.
Fjárhagur sambandsins er
mjög þröngur og þarf stórátak
til að kippa honum í lag og hafa
skuldir vaxið á liðnu ári.
Ingi Þorsteinsson var endur-
kjörinn form. og aðrir í stjórn
Björn Vilmundarson, Jón M.
Guðmundsson, örn Eiðsson, Þor
björn Pétursson, Svavar Markús
son og Höskuldur Goði Karlssom.
UM helgina fóru fram 12 leikir
í Reykjavíkurmótinu í hand-
knattleik og mesta athygli vakti
leikur KR og Fram í m.fl. karla.
Framarar Islands- og Reykja-
víkurmeistarar urðu að láta sér
nægja annað stigið eftir æsi-
spennandi og harða viðureign á
siðustu mínútum leiksins er KR-
ingar unnu upp 5 marka forskot
Fram og breyttu stöðunni úr
11—6 í 11—11 sem urðu úrslit
leiksins.
KR — Fram 11—11
Það var einstaklega klaufa
legt hjá Framliðinu að missa
sigurinn úr höndum sér. En
það kastar engri rýrð á KR-
inga. Þeir léku af miklu fjöri
og ákveöni og átti Karl Jó-
hannsson frábæran leik síð-
ustu mínúturnar og skoraði 4
af 5 síðustu mörkum leiksins,
og jafnaði með góðu skoti úr
mjög erfiðri stöðu á síðustu
sekúndunum. Reynir Ólafs-
son átti og góðan leik, en
bæði hann og Karl voru
nokkuð grófir.
Framarar höfðu góð tök á
leiknum lengst af. í leikhléi var
staðan 8 mörk gegn 3 fyrir Fram
og sýnir það bezt hve vörn liðs
ins átti þá góðan kafla. En þetta
átti eftir að molast niður og
í siðari hálfleik skoruðu ís-
landsmeistararnir aðeins 3 mörk.
Ármann — Þróttur 18—11
Leikur Ármanns og Þróttar
var alljafn framan af og í hléi
hafði Ármann aðeins 2 mörk
yfir. En í síðari hálfleik náðu
Ármenningar algerlega yfirhönd
inni og sigri þeirra var aldrei
ógnað. í þessum leik gerðust
m. a. þau tíðindi að Guðmundur
Gústavsson varði vítakast frá
Herði Kristinssyni en það eru
ekki margir markverðir sem
geta státað af þvL
Valur — Víkingur 10—8
Valsmenn og Víkingar háðu
harða og tvísýna baráttu í 3.
meistaraflokksleiknum. Lemgst
af mátti ekki á milli sjá og
7 sinnum var markatalan jöfn
í leiknum en þá tókst Valsmönn-
um að tryggja sér sigurinn 10—8
og átti Sigurður Dagsson mestan
heiður af því með þremur glæsi-
iegum mörkum undir leikslok.
í öðrum leikjum yfir helgina
urðu úrslit þessi:
Meistarafl. kvenna
Fram — Þróttur
12—4
2. fl. kvenna
Valur — Víkingur 16—3
Ármann — Fram 4—2
1. fl. karla
Fram — Ármann 5—5
KR — ÍR 12—8
2. fl. karla
KR — Valur 9—8
Vikingur — Ármann 10—9
ÍR — Fram 9—7
3. fl. karla
Fram — Ármann
11—4
Guðmundur Gíslason vann
báðar greinamar er hann
keppti í 100 m skriðsundi á
57.8 sek og 200 m fjórsund á
nýju meti 2.23.3 og bætti það
eldra um 2 sek.
eldra um 2 sek. Með þessa
meti hefur Guðmundur sett
57 íslandsmet eða jafnt og
Jónas metakóngur Halldórs-
sonar gerði á sínum tima.
Jónas er þjálfari Guðmund-
ar.
t 200 m skritðsundi setti
Hrafnhildur nýtt ísl. met
2.28.2 en það eldra átti
Ágústa Þorsteinsdóttir 2.28.6.
Bringusundsmet Hrafnhid-
ar er bezta kvennamet hér-
lendis gefur 821 stig samkv.
stigatöflu.
Sveit Ármanns í 4x50 m fjór-
sundi setti nýtt ísl. met 2.51.2.
Matthildur Guðmundsdóttir og
Guðmundur Grímsson Á settu
bæði telpna og sveinamet.
Keppnin var mjög lífleg og
skemmtileg og ánægjulegt að
sundfólkið skuli sýna slíka getu
í upphafi keppnistímabils.
— Minningarathöfn
Framh. af bls. 3
James K. Penfield ambassa
dor, flutti eftirfarandi sorgar
ávarp frá Dean Rusk, utan-
ríkisráðherra:
„Mikill forseti er látinn á
hormulegan hátt.
Á tvísýnu andartaki verald-
arsögunnar vakti hann meðal
sinnar eigin þjóðar og meðal
manna, sem bera í brjósti sér
ást á mannlegu frelsi og friði
hvar sem er, traust og trú til
að sækja áfram.
í persónuleika hans var ofið
hugrekki, tign, og skilningur
á þeirri ábyrgð sem valdi
fylgir. Ennfremur sterk til-
finning fyrir því hvað er fá-
tækt, ótti og óréttur og vilji
til að uppræta þá þætti
í þrjú ár markaði hann þá
stefnu heima fyrir og erlend-
is, sem greinilega styrkti þá
von manna að frelsið gæti
sigrað án styrjaldar og að
frjálsir menn gætu af eigin
rammleik lyft á hærra stig
eigin tilveru og barna sinna.
Hann sótti styrk sinn í beztu
erfðavenjur þjóðar sinnar. Er
vér í sorg lítum til framtiðar-
innar sækjum vér styrk í
minninguna um tryggð hans
við þessar erfðavenjur og X
hið ógleymanlega hugrékki
hans sækjum vér viljan til
að halda áfram.“