Morgunblaðið - 26.11.1963, Síða 13
Þriðjudagur 26 nóv. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
13
Lee Harvey Oswald á lögreglustöðinni í Dallas.
sjárstöð í Bandaríkjunum með
an hann gegndi herþjónustu.
14. nóvember 1959 sagði Os-
wald, að sovézk yfirvöld
hefðu neitað að veita honum
ríkisborgararétt, en sagt hon-
um að hann gæti búið í land-
inu þó að hann væri erlendur
borgarL
Fregnir herma, að Oswald
hafi fengið vinnu í verksmiðju
í Minsk, en ekki hafi liðið á
löngu þar til hann varð ó-
ánægður með að búa við
stjóm kommúnista. Hann
kvæntist í Minsk Mariu
Nikolayevnu, starfsstúlku í
sjúkrahúsi þar. Maria er nú
22 ára.
í janúar 1962 barst John C.
Tower, öldungadeild-arþing-
manni frá Texas, eftirfarandi
bréf frá Oswald: ,,Kæri Tow-
er öldungadeildarþingmaður.
Ég heiti Lee Harvey Oswald
og er 22 ára. Ég átti heima í
Fort Worth þar til í október
1959, en þá fór ég til Sovét-
ríkjanna með það fyrir aug-
um að setjast þar að. Ég fékk
dvalarleyfi í Sovétríkjunum,
en ekki ríkisborgararétt
Sendrráði Bandaríkjanna í
Moskvu er kunnugt um mál
mitt
Frá 20. júlí 1960 hef ég
viljað fara frá Sovétríkjunum
og sótt án árangurs um vega-
bréfsáritun fyrir mig og konu
mína, en yfirvöldin neita okk
ur um fararleyfL (Kona mín
sendi Sendiráði Bandaríkj-
anna í Moskvu umsókn
um innflytjendaleyfi til
Bandaríkjanna 8. júli 1960).
Ég er bandarískur ríkisborg-
ari og ég bið yður þess herra
öldungadeildarþingmaður, að
ræða mál mitt við Sovétstjórn
ina, þvi að hún heldur banda
rískum þegn í landi sínu gegn
vilja hans og óskum. Yðar
einlægur,
l.ee Harvey Oswald."
ítrekuð ósk
Tower, öldungadeildarþing-
maður, skýrði Fredrick G.
Dutton, aðstoðarutanríkisráð-
herra, bréflega frá ósk Os-
walds. Hann sagðist hvorki
þekkja Oswald né mál hans
og ekki vita hvað stjórnin
vildi gera honum til aðstoð-
ar.
Ein af aðstoðarstúlkum öld-
ungadeildarþingmannsins seg-
ir, að 1. febrúar 1962 hafi hon-
um borizt tilkynning frá utan-
ríkisráðuneytinu varðandi Os-
wald. Stóð í tilkynningunnL
að Oswald óskaði eftir að fá
að snúa aftur til Bandarikj-
anna ásamt konu sinni, sem
ætti von á barni. Móðir hans,
sem byggi í Vernon í Texas,
gæti ekki borgað far hans
heim og hugsazt gæti að utan-
ríkisráðuneytið tæki að sér að
lána Oswald fyrir ferðakostn-
aðinum. Það er ekki óalgengt,
að utanríkisráðuneytið veiti
Bandaríkjamönnum, sem eru
févana erlendis, slíka aðstoð
og endirinn varð sá, að Os-
wald, kona hans og nýfætt
barn þeirra komu til Banda-
ríkjanna með aðstoð ráðu-
neytisins. Skýrslur stjórnar-
innar sýna, að þau fóru frá
Moskvu í maílok 1962. Ekki
er ljóst hvort Oswald hefir
endurgreitt lánið.
í júlí s.l. gekk Oswald á
fund Carlos Bringimers, for-
manns stúdentafélags kúb-
anskra útlaga. Sagðist hann
vilja aðstoða Kúbubúa í bar-
áttunni gegn kommúnisman-
um. Vildi hann leggja fram
10 dali (430 ísl. kr.) til starf-
seminnar og benti hann á, að
sem fyrrverandi landgöngu-
Iiði hefði hann þekkingu, sem
gæti komið að góðu gagni ef
innrás yrði gerð á Kúbu.
Bringuier segist hafa tortryggt
Oswald og jafnvel talið, að
hann væri fulltrúi alríkislög-
reglunnar (F.B.Í.) eða leyni-
þjónustunnar (C.I.A.), sem
ætlaði að reyna að komast að
áætlunum félagsskaparins. Os
wald fékk Bringuier pappírs-
poka og í honum var kennslu
bók landgönguliða. Nafn Os-
walds var ritað með blýanti á
titilblað bókarinnar.
Framh. á bls. 20
Fæddur í New
Orleans
Samkvæmt upplýsingum,
sem bandarískar fréttastofur
hafa aflað sér, var æfiferill
Oswalds sem hér segir.
Hann fæddist í New Or-
leans 18. október 1939. Barna-
skólanám stundaði hann í
Fort Worth, og í september
1956 innritaðist hann í gagn-
fræðaskóla á Arlington hæð-
um skammt fyrir utan Dallas.
Hann stundaði ekki nám þar
nema 23 daga, en sagði sig þá
úr skólanum og gekk i flot-
ann.
Hann var þrjú ár landgöngu
liði í flotanum. Þegar hann
hafði verið leystur úx her-
þjónustu heimsótti hann má-
konu sína, frú R.C. Osw£ild
í Fort Worth. Segir hún, að
hann hafi þá sagzt hafa löng-
un til þess að ferðast víða og
m.a. talað um að fara til
Kúbu.
í stað þess að láta verða af
KúbuferðinnL hélt Oswald til
Moskvu og kom þangað með
ferðamannavegabréf 13. okt.
1959. Þá sagðist hann vera
fulltrúi í útflutningsfyrirtæki
og búsettur í Forth Worth. 31.
október 1959. Gekk Oswald
sem þá var tvítugur, inn í
bandaríska sendiráðið í Moskvu
kastaði vegabréfi sínu á af-
greiðsluborðið og sagðist hafa
sótt um sovézkan ríkisborg-
ararétt. Starfsmaður sendi-
ráðsins ráðlagði Oswald, að
undirrita engin skjöl fyrr en
hann væri viss um að sovézk
yfirvöld myndu samþykkja
umsókn hans.
Bróði-r Oswalds, Robert,
mjólkurpóstur í Fort Worth,
sendi honum símskeyti og
bað hann um að draga um-
sóknina um sovézkan ríkis-
borgararétt til baka. Robert
Oswald sendi einnig símskeyti
til Christians A. Herter utan-
ríkisráðherra og bað hann að
reyna að ná sambandi við Lee
Oswald og telja honum hug-
hvarf. En allt kom fyrir ekki
og 2. nóvember 1959 sór Os-
wald Sovétrikjunum hollustu-
eið. Bandaríska sendiráðið tók
þá við vegabréfi hans og
sendi það dómsmálaráðuneyt-
inu i Washington.
„Eins og að sleppa
úr fangelsi“
Fregnir frá Moskvu hermdu
að Oswald hefði lýst sig sann
trúaðan kommúnista og sagzt
hafa lesið bækur um stefnu
kommúnista frá því að hann
var 15 ára. Hann sagðL að
koma frá Bandaríkjunum til
Sovétríkjanna hefði verið eins
og að sleppa úr fangelsL
Hann kvað aðalástæður þess
að hann sneri baki við föður-
landi sínu vera „heimsvalda-
stefnu,“ (Bandaríkjanna) og
fátækt í bernsku. Hann bætti
við: „Meðan ég var í land-
gönguliðssveitum Bandaríkja-
hers gafst mér tækifæri til
þess að kynnast hersetu Banda
ríkjamanna erlendis, en hún
er það, sem Rússar nefna
„hernaðarlega heimsvalda-
stefnu.“
Sagt er að Oswald hefði til
kynnt starfsmönnum sendi-
ráðs Bandaríkjanna í Moskvu
að hann hygðist skýra Rúss-
um frá öllu, sem hann varð
vísan, er hann starfaði í rad-
Leynilögreglumaður heldur á byssunni, sem Kennedy for-
seti var skotinn með.
LEE HARVEY OSWALD,
sem í gær var skotinn til
bana í Dallas, hafði áður
verið ákærður fyrir morð
á John F. Kennedy, forseta
Bandaríkjanna, lögreglu-
manninum J. D. Tippitz og
tilraun til þess að myrða
John B. Connally, ríkis-
stjóra í Texas. Hér á eftir
fer grein, sem birtist í
„New York Times“ og fjall
ar um Oswald og ævi hans.
Ef utanríkisráðuneyti Banda
ríkjanna hefði ekki lánað Lee
Harvey Oswald 437 dali og 71
cent fyrir hálfu öðru ári,
hefði hann ekki getað snúið
aftur til heimalands síns frá
Sovétríkjunum. Ferill hans
var einkennilegur eins og
áður hefur verið vikið að í
fréttum. Hann var landgöngu
liði í bandaríska flotanum í
þrjú ár, til 1959, þá hélt hann
til Sovétríkjanna og sótti um
sovézkan rikisborgararétt, en
umsókn hans var synjað. Síðar
bað Oswald bandarískan öld-
ungadeildarþingmann um að-
stoð við að komast aftur til
Bandaríkjanna og hélt því
fram að Rússar vildu ekki
leyfa honum og sovézkri konu
hans að fara úr landi.
Kúbanskir flóttamenn í
Bandaríkjunum segja, að Os-
wald hafi í júlí sJ. reynt að
fá inngöngu í samtök þeirra,
en þau miða að því að frelsa
Kúbu úr höndum kommún-
ista. Hann fékk ekki inngöngu
þvi að formann samtakanna
grunaði, að hann hygðist
vinna gegn málstað þeirra.
Síðar kom Oswald fram sem
formaður New Orleans-deild-
ar nefndar, sem gengur undir
nafninu „Fair Play for Cuba“.
Útbreiddi hann áróður fyrir
Castro. Formaður nefndar
þessarar hefur lýst því yfir
að engin deild hennar sé starf-
andi í New Orleans. Kveðst
hann ekki hafa þekkt Oswald.
Fyrir nokkru fékk Oswald
vegabréf, þar sem hann var
skráður atvinnuljósmyndari.
Hafði hann skýrt frá því að
hann ætlaði til útlanda og
myndi dveljast þar í október
og nóvember. Sagðist hann
ætla að heimsækja Sovétrík-
in, Bretland, Frakkland,
Þýzkaland, Holland, Finnland,
Italíu og Pólland.
Maður frá Buffaló, Allen D.
Graf, sem var í sömudeild
flotans og Oswald 1954 og
1955, segist minnast hans sem
„einmana innhverfs drengs“,
sem alltaf hefði sagzt hata
herþjónustuna og verið bitur
vegna þess að móðir hans
átti í erfiðleikum og hann gat
ekki verið hjá henni. „Við
héldum að hann þjáðist af
heimlþrá eins og margir aðrir
ungir menn í herþjónustu.
Hann gaf sig lítið að félög-
um sínum og virtist hálfgerð-
ur vandræðadrengur," sagði
Graf.
Frú Howard Green, sem
kenndi Oswald í síðustu tveim
ur bekkjum barnaskóla, minn
ist hans einnig sem innhverfs
drengs. Hún segir, að Oswald
hafi farið einförum og lesið
mikið, en þrátt fyrir það hafi
hann ekki tekið framförum í
skólanum og verið fyrir neð-
an meðallag á barnaskóla-
prófL
Fréttamenn, sem sáu Os-
wald á lögreglustöðinni í
Dallas segja, að hann hafi
virzt hrokafullur maður, and-
litsdrættir hans hafi verið
skarpir, augun dökk og hárið
skolleitt. Aðeins hafi mótað
fyrir skalla.
Einkennilegur æviferill
Lán frá Bandarikjastlárn gerði Lee
Harvey Oswald kleift að snúa heim