Morgunblaðið - 26.11.1963, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 26.11.1963, Qupperneq 20
20 MORGUNBLADID Þriðjudagur 26. nóv. 1963 r Framhald af bls. 1. Avenue fyrir írarnan Hvíta húsið, og voru aðeins örfáa metra frá syrgjandi ættingj- um forsetans, þar á meðal frú Kennedy, sem bar svarta slæðu fyrir andliti, svo ekki urðu séð á henni svipbrigði. Gekk hún á milli bræðranna Roberts og Edwards Kenn- edy, en á eftir fylgdi hinn nýi forseti, Lyndon B. Johnson, ráðherrar, erlendir þjóðhöfð- ingjar og fulltrúar a.m.k. 53 erlendra ríkja og fleiri. Þar á meðal var Guðmundur í. Guðmundsson, utanríkisráð- herra. Fremstur í þessum fríð- asta flokki, sem gengið hefur uni götur þessarar höfuðborg- ar fyrr og síðar, fór de Gaulle, Frakklandsforseti, hermann- legur að vanda. Bar hann höf- uðið hátt, en var alvarlegur á svip. í hópnum mátti einnig sjá Ludwig Erhard, kanslara Vestur-Þýzkalands, Haile Selaissie Eþíópíukeisara, Philip, eiginmann Breta- drottningar, Dean Rusk, utan- rikisráðherra Bandaríkjanna, Einar Gerhardsen, forsætis- ráðherra Norðmanna og marga fleirL Einkennileg þrúgandi þögn ríkti, er kista forsetans fór fram hjá mannfjöldanum. Enginn mælti orð af munni og það eina, sem heyrðist, var 5/kröltið í járnbentum hjólum líkvagnsins og hófdynur fák- anna sex, er drógu hann. Veikur klukknahljómur barst frá klukkum borgarinnar. Næst á eftir kistu forsetans var teymdur svartur gæðing- ur, gjöf frá Ayub Khan, Pak- istanforseta til frú Kennedy. í ístöðum voru svört stíg- vél með silfursporum og sneru öfugt. Þannig voru hestar teymdir á eftir fölln- um húsbændum sínum, er riddaraliðssveitir voru og hétu. Þannig mjakaðist líkfylgd- in, sem taldi hundruð, ef ekki þúsundir manna, eftir Penn- sylvaníu Avenue, Connecti- cut Avenue og að St. Mattheus ar-dómkirkjunni. Þar sáum við kistu forsetans flutta í kirkju, eftir að allir voru gengnir til sætis, heyrðum Cushing kardinála frá Boston messa og sáum síðan kistuna borna úr kirkju. Á eftir fylgdi frú Kennedy og leiddi börn sín tvö, Caroline og John junior, sem í dag átti 3ja ára afmæli. Tveir fyrrverandi forsetar, þeir Eisenhower og Truman, fylgdu á eftir, ræddu stuttlega við frú Kennedy, en síðan hélt geysileg lest svartra sendiráðsbifreiða á eftir lík- vagni forsetans til Arlington kirkjugarðar, þar sem hann er jarðsettur. Er gröfin í hlíð grænnar hæðar og veit að Washingtonborg. í kirkju- garðinum eru grafnir 126 þús- und Bandaríkjahermenn og einn forsetL Hroðalegt áfall Það var einkennilegt að koma Ul höfuðborgar Bandaríkjanna í morgun. Sól skein í bedði, logn Kennedys var, en strax á fluigvellinum varð þess vart, að á þessum fagra degi ríkti sorg í Washimgton. Menn genigu hljóðir um í flugstöðvar- byggingunni og hátíðlegur al- vörublær setti svip sinn á ailt og alla. Leigubílstjórinn, sem ók fréttamön nuim Morgunblaðsins frá flugvellinum til utanríkis- ráðuneytisins, talaði allan tím- ann um Kennedy. ,,l>etta er hroða legt áfall fyrir þjóðina," saigði hann, „fólkið er líka hrætt við afleiðingarnar. Alliæ eru hræddir við styrjöld, það einhvem veginn liggur í loftinu, þó ekki sé mikið um það rætt“ Bílstjórinn var negri, eins og er um 60% Was- hingtonbúa eða því sem næst. Aðspurður hvemig negtrum í Bandaríkjunum væri nú innan- brjósts sagði hann: „Þetta er mik- ið áfall fyrir okkur, hann var rétt að byrja baráttu sína fyrir mannréttindum. Okkur finnsit sem við séum nú aftur kiomnir til sama staðEtr." Er við komum að Hvíta hús- iniu laust fyrir kl. 11 í morgun var þar fyrir mikill mannfjöld meðfram Pennsylvania Avenue. Bandarískur fréttamaður taldi mannfjöldann ekki mikinn, en á íslenzkan mælikvarða rrnundi hann teljast stórkostlegur. Sí- fellt fjölgaði meðfram öllum göt- um þeim sem líkfylgdin fór um, og segja fréttastofur nú. að meira en ein milljón manna hafi verið saman komin í hjarta Was- hington til þess að kveðja hinn fallna forseta. Kveðjuathöfnin stóð hér raunar frá því á sunnudag, er lík forset- ans var flutt í þinghúsið. Stóð bronzkista hans á við- hafnarbörum, sem kista Abra- hams Linoolns hrvíldi á fyrir nær öld og gekk fóik þúsundum sam- an að kistunni til að kveðja ást- sælan forseta sinn í síðasta sinn. Síðustu fregnir herma, að alls hafi 240 þúsund manns gengið fram hjá kistunni á þessum stutta tíma ,og er fréttamenn Morgunblaðsins komu til Was- hington um kl. 10 f..h. sagði fyrr- nefndur bílstjóri frá því, að fimmföld röðin við þinghúsið væri mörg hundruð metra löng. í þinghúsinu Um kL 10.25 að staðartima 'lagði Jaqueline Kennedy af stað frá Hvita húsinu ásamt bræðr- um forsetans, öldungadeildar- þingmanninum Bdward Kenne- dy og dómsmálaráðherranum, Robert Kennedy. Ekið var ofur- hægt eftir Pennsylvania Avenue og Independence Avenue til torgsins fyrir framan þinghúsið. Meðfram leiðinni stóðu her- menn vörð. Kennedy-bræðurnir og Jaque- line gengu hægt upp tröppur þinghússins, hlig við hlið og krupu niður við kistu hins látna. Er þau höfðu staðið upp aftur og bjuggust til að fara, tók Ro- bert Kennedy þéttingsfast i handlegg Jaqueline og studdi hana. Kistunni var nú lyft upp á axl ir míu hermanna, er báru hana hægt úr úr þinghúsinu niður tröppurnar og komu henni vax- Jega fyrir á svörtum fallbyssu- vagni, er beið fyrir utan. Á eftir þeim gekk hermaður með fána forsetans. Meðan þessu fór fram lék h'ljómsveit strandgæzlulið- ins „Hail to the Chief“ og sálm. Heiðursvörður heilsaði með heið urskveðju er kistan kom í ljós uppi á tröppunum. Kluikkan mun hafa verið 10.48, að staðartkna, er líikfylgdin hélt frá þinghúsinu. Var farig hægt í áttina ti'l Hvíta hússins, sömu leið og Kennedy hafði farið, þá er hann tók við emibætti forseta í janúar 1961. . Mikill fjöldi hermanna úr öll- um herjum Bandaríkjanna, lög- reglumenn og þrjár hljómsveitir voru í fylgdinni. Um kl. hálf tólf kom líkfylgdin að Hvíta húsinu. Þar voru íréttamenn Morgun- blaðsins þá staddir. Tók likvagn inn sig þá út úr lestinni og var dreginn hliðarveg upp að hús- inu, en þar stigu forsetafrúin, ættingjar, þjóðhöfðingjar og aðrir út úr bilunum til þess að ganga á eftir kistu forsetans síð- asta spöiinn, að Mattheusar- kirkjunni í um það bil hálfrar málu fjarlægð. Ekki veit sá, er þetta ritar, hve líkfylgdin var löng, en hún var a.m.k. hálf- tíma að ganga hjá. Fremst fór flokkur lögreglumanna, þá 'hljómsveit, og síðan fylgdu fjöl- margiar sveitir hermanna og glóði á gljáfægða byssustingi í nóvembersólinnL — Yfinmenn Bandarúkjahers voru þar einnig, svo og liðsforingjaefni úr öllum 'herjunum. Er likvagninn lagði upp frá Hvíta húsinu og vax dreginn gegn um hliðið, fór á undan sekkja- pípuhljómsveit úr Bandarikjaher. Þá kom líkvagninn, dreginn af sex hvítum hestum og heiðurs- vörður fór fyrir á þeim sjöunda. Næst á eftir var teymdur svartur gæðingur, Sardar að nafni. Hest þennan gaf Ayub Khan, forseti Pakistan, J aequeline Kennedy, eir hún var þar í heimsókn á sín- um tíma. Heiðursvörður fylgdi hestinium, en enginn sat á baki. í istöðunum voru að gömlum sið svört stígvél og vissi táin aftur. Hestuirinn var allódæll, enda ekki vanur slíku, og átti vörðurinn stundum fullt í fangi með að hemja hann, einkum er líkfyigd- in staðnæmdist í um það bil hálfa mínútu örskammt frá Hvíta hús- inu. Fylgdust með Fréttamenn Morgunblaðsins voru í aðeins um 60 metra fjar- lægð frá kistunni og aðstandend- um sem gengu á eftir. Fylgdum við göngunni í þessari fjarlægð um 100 metra, eða þar til hún beygði inn á Connecticut Avenue, en þá varð ekki lengra komizt fyrir mannfjöldanum. Jacqueline Kennedy gekk milli bræðranna Edward og Röbert Kennedy, næst á eftir kisbunni. Eins ag fyrr getur bar hún svarta slæðu fyrir andlitinu, en þrátt fyrir það var ljóst, að hún bar sig vel. Var svo allan tímann meðan útförin fór fram. Næst á eftir kom Lyndon B. Johnson, Bandaríkjaforsetí, og var nú allur annar bragur á hon- um en fyrir tveimur mánuðum, ér fréttamenn MorgunblaðSins fylgdust með honum í íslands- heimsókn hans. Fas hins nýja for seta bar það með sér, að þetta voru þung spor. Á eftir komu síðan erlendir þjóðhöfðingjar, sendimenn erlendra ríkja og bandarískir ráðamenn. Fréttamað ur Mbl. horfði þar á de Gaulle, Frakklandsforseta, ganga hnarreistan en alvarlegan í broddi fylkingar, en á eftir komu aðrir keisarar, konurtgar, drottn- ingar, forsetar, prinsar, ráðherrar og sendimenn. Aldrei mun valda n.eiri hópur hafa gengið um stræti Washingtonborgar. Á etftir komu síðan bifreiðir með enn fleira fólk. í einni bifreiðanna voru böm forsetans, Caroline og John junior. Það sem blaðamanni Morgunblaðsins fannst hvað at- hyglisverðast voru viðbrögð fólks ins. Fólk stóð þögult og virtist sem Washingtonibúar séu nú komnir með báða fæturna á jörðina. Engan sáum við gráta, þótt við höfum heyrt síðan, að slíkt hafi foorið við. Ekki var vart við neina gremju eða reiði, fólk stóð hnípið, steinþegjandi og borfðL Þennan dag eihkenndi sorg og söknuður en ekki hatur eða vonleysi. Hafi sá sem þetta ritar nokkru sinni dáð&t að banda rísku þjóðinni þá var það í dag. Ave Maria Hin langa likfylgd mjakaðist framhjá í áttina til Mattheusar- kirkjunnar, sem er nálega hálfa mílu frá Hvíta húsirau. Kirkjan er eikki ýkja stór, en okkur vax sagt, að hún hafi orðið fyrir val- inu, þar sem hún sé stærsta ka- þólska kirkjan í miðborginni. Stærri kirkjur kaþólskar eru lengra frá. Mattheu6aar-kirkjan er rauð múrsteinskirkja með koparhvelfingu. Ekki þótti frétta mönnum mikið til hennar koma í útlití, en hún er sögð fögur innan. Kirkjan er í nábýli við stórar byggingar, eins og kleunmd milli þeirra. Okkur tóksit með að- stoð sérstakra vegabréfa frá bandariska utanríkisráðuneytínu að komast alveg að kirkjunni um það leyti, er líkfylgdin kom þar að. Kista Kennedys, sveipuð bandaríslca fánanum, beið á lík- vagninum, meðan fóik gekk tíl kirkju. Tók það um 20 mínútur eða svo. Á meðan stóð heiðurs- vörður þriggja hermanna fyrir framan kistuna og var sá í miðið svartur maður. Ave Maria hljóm- aði úr kirkjunni, sungið af ein- söngvaranum Luugi Wela firá Boston, en þetta sama verk söng hann fyrir allmörgum árum við hátiíðlegt tæíkifæri — er Jaque- line, Lee Bouvier og John Kenne Framhald á bls. 31 — Æviferill Framh. af bls. 13 Nokkrum dögum eftir að Oswald gekk á fund Bringui- ers, birtist hann á götu í New Orleans og hóf dreifingu spjalda, sem á voru letruð slag orð eins og t.d. „Látið Kúbu í friði", „Lifi Castro“, „Send- um Kúbubúum lyf og mat- væli í stað innrásarmanna." Bringuiers og nokkrir aðrir andstæðingar Castros fengu fregnir af framferði Oswalds og reyndu að stöðva hann. Lögreglan skarst í leikinn og handtók nokkra menn, þar á meðal Bringuiers og Oswald. Voru þeir dæmdir til að greiða 10 dala sekt fyrir ólæti á almannafæri. ^ Umræður í útvarpi 21. ágúst s.l. tók Oswald þátt í umræðum, sem útvarps stöðin WDSU í New Orleans gekkst fyrir. Sagðist hann vera ritari New Orleans-deildar nefnd- ar, sem gengur undir nafninu „Fair Play for Cuba.“ Vin- cent Theodore Lee, formaður nefndar þessarar hefur sagt, að engin deild hennar starfi í New Orleans og hann þekki ekki Oswald. í umræðunum í útvarpinu sagðist Oswald vera Marxisti en neitaði því, að hann væri kommúnistL Sagði hann, að mikill munur væri á þesSu tvennu. Margir ólíkir flokkar væru byggðir á Marxisma. Oswald sagðL að þriggja ára dvöl í Sovétrikjunum gerði sér kleift að vísa á bug ásökunum um að Kúba væri kommúnistaríki og nefndin, sem hann starfaði fyrir væri undir stjórn kommúnista. „Hugsjónirnar eru augljósar" Oswald sagði, að „Fair Play for Cuba“ berðist fyrst og fremst fyrir því, að stjórn- málasambandi við Kúibu yrði komið á og ferðamenn sendir þangað. „Við viljum reyna að fá Bandaríkjastjórn til þess að koma betur fram við kúbönsku þjóðina og hina nýju stjóm hennar, sagði Os- wald. „Marmið okkar og hug- sjónir eru augljósaf og þær samræmast lýðræðishugsjón- um Bandaríkjamanna." Oswald var spurður hvort hann áliti, að Castro hefði rétt fyrir sér, þegar hann sagði, að Kennedy forseti væri þorpari og þjófur? „Ég myndi ekki taka undir nákvæmlega þessi orð“, svar- aði Oswald. í júní s.l. sótti Oswald um vegabréf og sagðist ætla að fara til útlanda. Hann fékk vegabréfið. Að undanförnu hafa Oswald og kona hans búið í Irving, úthverfi Dallas, og lögreglan í Dallas segir, að þau eigi tvö börn. Móðir Oswalds Marguerite býr nú í Fort Worth. Þegar henni vax sagt, að sonur henn ar hefði verið handtekinn, sagði hún: „Ég er mjög hrygg yfir þessu. Hann er góður drengur." — Thor Thors Framh. á bls. 6 fjölda Snæfellinga, sem heimili þeirra Ágústu og Thors stóðu ávallt opið, fyrir alla þá vináttu og rausn, sem við nutum þar. Mér er ljúft og skylt að þakka Thor fyrir öll störf hans, þau ár, sem hann gegndi þingmanns- störfum fyrir Snæfellinga, þvi vissulega hafði hann ríkan áhuga á að ýta áfram málefnum kjör- dæmisins þau ár, sem hann var þingmaður okkar. Atvikin hög- uðu því á þann veg, að Thor var kallaður til enn meiri starfa fyrir þjóð sína. I því vandasama starfi sem hann hefir gegnt í Banda- ríkjunum í yfir 20 ár hefur hann notið óskipts trausts allra þeirra, sem á aðstoð hans eða fyrir- greiðslu hafa þurft að halda, jafnframt því að hann með per- sónulegu atferli sínu hefir not- ið trausts og virðingar, þar sem hann hefir mætt fyrir hönd Is- lands. Slíkir fulltrúar íslenzka ríkisins á erlendum vettvangi eru okkar fámennu þjóð ómetan- legir. Ég óska vini mínum, Thor, konu hans og sonum heilla og farsældar — og endurtek þakk- læti mitt fyrir vináttu aUa frá fyrstu kynnum. Sigurður Ágústsson. Thor Thors sendiherra mun verða staddur í New York í dag. Var gert ráð fyrir að hann kæmi til borgarinnar frá Washington í gærkvöldi. En þar hafði hann verið viðstaddur útför John F. Kennedy forseta, sem sérstakur fulltrúi forseta fslands. Heimilis- fang Thor Thors er: Hotel Beverly, at Lexington Avenue and 50th Street, New York, N. Y. U.S.A. — Almanna- tryggingar Framlhald af bls. 32 23. janúar sl. og aftur uim 7,5% frá 23. júní sl., eða launahækkun samtals 12,875% frá 23. júní sL Það verður ekki hjá þvi koimizt að hæikka bæfcuir almannatryigig- inganna tii samræmis við al- mennar launahækkanir, svo sem æfcíð hefur tíðkazt þegar þær hafa orðið. Lagt er til í 1. gr., að bætumar verði hækkaðar um 15% frá 1. júlí sL, en það lætur nærri að bótaþegar fái þá hlut- fallslega sömiu hækkun á árinu eins og almiennir launiþegar hljóta. í greininni eru fjölskyldulbætuir undantekinar þessari hæikkun. Segja má, að fjölsikyldubætuir hatfi lík áhrif og persómrfrádrátt- ur, sem veittur er vegna bama við álagmingu tekjuskafcts og út- svars. í því sambandi má benda á það, að í Dammörku og Svi- þjóð er emginin persónufrádrátt- ur vei'ttur vegna bama, en þess í stað eru veittar jafnháar fjöl- skyldubætux með öllum börnum og eru ekki lagðir skattar á þær. Ákvæðin um persónufrádrátt eru nú í athuigun hjá ríkisstjóminnL Með hliðsjón af þvi þykir ekki rétt að hækka upphæð fjöl- skyldubóta að svo stöddu, þvl síður sem gera má ráð fyrir að persónufrádrátfcur veaði hækkað- ur allverulega. Nýju lögin um almamnatrygg- ingar, nr. 40/1963, koma ekki til framkvæmda fyrr en um nk. ára- mót. Verður því að miða haekkun botamna á þessu ári við ákvæði þau, sem nú gilda, eins og gert er -í fyrri málsgrein. Síðari máls- grein fjallar um hækkum bótanna frá áramótum og er í fyrri máis- grein. Síðari málsgrein fjallar um hæk'kun bótanma frá áramótum og er þá miðað við iög nx. 40/1963,sem koima í gildi 1. jan- úar 1964. Ef um frekari laumalhækkanir verður að ræða, verður að sjálf- scgðu að emdurskoða hœkkun bótanna, þegar þær launahækk- amir liggja fyrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.