Morgunblaðið - 26.11.1963, Qupperneq 22
MORGUN BLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. nóv. 1963
12
Bróðir okkar
ÁGÚST INGVARSSON
frá Vestmannaeyjum
andaðist 25. þ.m. í Landsspítalanum.
Systkini hins látna.
Móðir mín
GURÐRÚN PÉTURSDÓTTIR
frá Engey,
andaðist í Landakotsspítala iaugardaginn 23. nóv. —
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
28. nóv. kl. 2 e.h. Fyrir hönd systkina minna.
Guðrún Benediktsdóttir.
Móðir okkar
HELGA BOGADÓTTIR
andaðist þann 24. nóvember 1963. — Fyrir hönd
vandamanna.
Fjóla Nielsen.
Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi
MAGNÚS hákonarson
Laugateig 14,
andaðist sunnudaginn 24. nóv. sl. Jarðarförin auglýst
siðar.
Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir
JÓNA GEIRMUNDSDÓTTIR
andaðist á heimili sona sinna á Hofsósi sunnudaginn
25. þessa mánaðar.
Gunnar Baldvinsson, Margrét Þorgrímsdóttir,
Friðrikka Baldvinsdóttir, Heimir Br. Jóhannsson,
Bergur Baldvinsson.
Hjartkær eiginmaður minn
ELÍAS ÁRNASON
Stóragerði 14,
andaðist í Landsspitalanum 24. nóv. Jarðarförin auglýst
síðar.
Fyrir mína hönd, sonar og systkina.
Jngibjörg Guðmundsdóttir.
Jarðarför sonar okkar
KRISTINS ÓLAFSSONAR
sem andaðist 17. þ. m. fer fram frá heimili okkar Jaðri,
Þykkvabæ, miðvikudaginn 27. þ. m. kl. 13.00 e.h.
Bílferð verður frá B.S.Í. kl. 10 f.h.
Guðríður Þórðardóttir,
Ólafur Friðriksson
Jarðarför
SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Eyrarbakka, Bergstaðarstræti 6 C,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 26/11 kl. 1,30.
Jarðsett verður í Gamla kirkjugarðinum við Suður-
götu.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna hinnar
látnu.
Ingibergur J. Guðbrandsson.
Bróðir minn,
KJARTAN BJÖRNSSON
frá Fagurhól,
sem andaðist aðfaranótt 18. nóv. í Sjómannaheimilinu
Hrafnistu, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið
vikudagínn 27. nóv. kl. 13,30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu
minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna.
Guðrún Björnsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður
og ömmu
BERGLJÓTAR HELGADÓTTUR
Þorsteinn Ingvarsson,
Ingvar Þorsteinsson, Steinunn G. Geirsdóttir,
Viðar Þorsteinsson, Lilja G. Eiríksdóttir,
Kristinn B. Þorsteinsson, Hulda Eiríksdóttir,
Þorsteinn H. Þorstéinsson, og barnabörn.
Ástríður M. Eggertsdottir
ÁSTRÍÐUR Marta Eggertsdótt-
ir, ekkja Jóns E. Bergsveinsson-
ar, aðalhvatamanns að stofnun
Slysavarnafélags íslands og
fyrsta framkvæmdastjóra fé-
lagsins, lézt hinn 16. þ.m. á 78
aldursári og verður hún jarð-
sungin í dag.
Ástríður fæddist 21. júní 1885
að Fremri-Langey á Breiðafirði
dóttir Eggerts Thorbergs Gísla-
sonar og konu hans Þuríðar Jens
dóttur er þar bjuggu til æfi-
loka. Að henni standa merkir og
kunnir ættstofnar um Breiða-
fjörð, systkini hennar voru mörg
og allt myndarfólk, en yngsti
bróðir hennar, Kjartan, býr nú
á föðurleifðinni, Fremri-Lang-
ey.
Ung að árum giftist Ástríður
Jóni E. Bergsveinssyni, skip-
stjóra frá Hvallátrum, systursyni
Björns ráðherra Jónssonar frá
Djúpadal, enda sögðu kunnugir
hann svipa mjög til hans í sjón
og reynd. Jón var þjóðkunnur
fyrir forgöngu sína í ýmsum
framfaramálum. Hann beitti sér
fyrir því að upp var tekið op-
inbert mat á síld og var skipað-
ur hinn fyrsti yfirsildarmatsmað
ur hér á landi. Þá er og öllum
kunnug forusta hans í stofnun
Slysavarnafélags íslands og allt
hans mikla og óeigingjarna starf
fyrir það félag meðan honum
entist líf og heilsa, en í því var
eiginkonan honum samhent í
einu og öllu.
Þess mun lengi minnzt með
þakklæti af þeim, sem til þekktu
hve þessi hjón lögðu á sig fyr-
ir þetta þeim hjartfólgna mál-
efni. Fæstir gera sér í hugar-
lund, hve mikil áreynsla fylgdi
því starfi að vera ávallt viðbú-
inn að veita hjálp og aðstoð,
þeim er lentu í nauðum, jafnt
á nóttu sem degi. Á slíkum
stundum verður fáum í fjölskyld
unni svefnsamt og mikil hug-
raun við að búa þegar erfitt var
að útvega hjálpina og tvísýnt um
áiangurinn, en þeim mun meiri
var líka gleðin þegar vel hafði
tekizt. Þá var alltaf mikil á-
nægja fólgin í því að vinna að
fjársöfnun til aukins og bætts
útbúnaðar til björgunar manns-
lífum. Á hverju ári í um þrjá-
tíu ár hefur frú Ásta margar
stundir setið með öðrum góðum
konum við að útbúa sölumerki
fyrir Kvennadeild Slysavarna-
félagsins í Reykjavík, en um
vökunætur hennar og varðstöðu
meðan maður hennar var aleinn
forsvarsmaður fyrir hjálparbeiðn
um til Slysavarnafélagsins veit
enginn og verður aldrei talið, en
minnzt með þakklæti af þeim, er
þess urðu aðnjótandi.
Jón E. Bergsveinsson var mik-
ill aufúsugestur í heimsóknum
sínum til félagsdeilda. Bæði var
meðfætt glaðlyndi hans og eld-
legur áhugi á þjóðmálum og þá
ekki sízt á hinu góða málefni,
sem hann boðaði og barðist fyr-
ir. Fáa hef ég þekkt honum vilj-
ugri til að liðsinna vinum sín-
um, hvort sem var í orði eða
verki. í því naut hann fyllsta
stuðnings konu sinnar. Hús
þeirra var jafnan opið, jafnt á
nóttu sem degi og þar var kunn-
ugum og ókunnugum vel fagn-
Innilegt þakklæti til allra, er minntust mín 70 ára
12. þ.m. með heimsóknum, gjöfum, skeytum og hlýjum
kveðjum. — Lifið heil.
Einar Guðmundsson, Vesturvallagötu 7.
Við flytjum okkar hjartans þakkir öllum þeim, er
hafa veitt okkur ómetanlegan stuðning í sambandi við
læknishjálp handa syni okkar.
Guð blessi ykkur öll.
Anna og Böðvar Eyjólfsson,
Saurbæ.
Eiginmaður minn
ÓLAFUR H. SVEINSSON
frá Firði,
fyrrv. sölustjóri, Þinghólsbraut 47, Kópavogi,
sem andaðist 18. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 28. þ.m. kl. 10,30 árdegis. — At-
höfninnni verður útvarpað. — Þeir sem vilja minnast
hins látna vinsamlegast láti Krabbameinsfélagið njóta
þess.
Guðrún Ingvarsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför móður minnar og ömmu
GUÐFINNU EINARSDÓTTUR
Vífilsgötu 11
Gyða Halldórsdóttir,
Halldór Karlsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför og heiðruðu minn-
ingu móður okkar, tengdamóður og ömmu
HÁVARÐÍNU BORGHILDAR KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Bolungarvík.
Þökk sé öllum er glöddu hana og heimsóttu í veik-
indum hennar og sýndu henni hlýjan vinarhug. Þökk
sé einnig hjúkrunarliði og læknum, er stunduðu hana
af mikilli alúð og nærgætni.
Hávarður Karl Reimarsson,
Guðný Minný Hávarðsdóttir, Fjóla Reimarsdóttir,
Hávarður Karl Hávarðsson, Guðmundur B. Jónsson,
Kristján B. Hávarðsson, Gunnar. Guðmundsson,
Kristín Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Kristinn Guðmundsson,
Sóley Björk og Sverrir Kr. Bjarnason.
að, éftir því sem efni stóðu tiL
Húsfreyjunni var ljúft að fagna
gestum og ræða við þá og hlýjaa
sem þeim mætti á þessu heim-
ili, sköpuðu þau vináttubönd, er
entust alla æfi.
Þeim hjónum varð 9 barna
auðið og tókst þeim að koma
þeim öllum til góðs þroska og
gegna sum þeirra þýðingarmikl-
um störfum í þjóðfélaginu.
Með Ástríði Eggertsdóttur er
horfin svipmikil kona, sem
aldrei lét liggja á liði sínu fyr-
ir gott málefni. 1 nafni Slysa-
varnafélags íslands og persónu-
lega vildi ég flytja þakklæti fyr-
ir óeigingjarnt starf hennar í
þágu félagsins. Börnum hennar
og aðstandendum flyt ég inni-
legustu samúðarkveðjur.
Henry A. Hálfdansson.
Látið ekki dragast að athuga
bremsurnar séu þær ekki i
lagi..
Fullkomin bremsupjónusta.
fjölskylduna
s) , >
^reiursfhdressonar
Æaug'nvegi /7¥r*mnesvc<ji Z *
Hretmum
apasklnn, rúttkinn
og aðrar tklnnvörur
EFNALAUGIN 616 R G
Sólvollagötu 74. Simi 13237
BormehtiS 6,. Simi 23337
Dömur!
„Amaro" nærfatnaðurinn
kominn.
Verz/. Dettifoss
Hringbraut 59.