Morgunblaðið - 28.12.1963, Side 21
Laugardaglír 28. des. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
21
Ferhenda — Vísnasafn
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út vísnasafn eftir
Kristján Ólasón frá Húsavík. Vís-
urnar eru allar góðar og sumar
ágætar. Verka þær þannig á les-
andann að hann verður þó
nokkru vitrari en ella og í fullri
sátt við höfundinn um það, að
hvergi er móðurmáli misboðið né
verki hroðað af í einni einustu
vísu og er fengur að þessu einu
út af fyrir sig samanborið við þá
forheimskun, sem fylgir lestri
sumra annarra bóka, jafnvel úr
hópi ljóðasafna. Þetta er úrval
vísna eftir þennan höfund og þó
um leið hans fyrsta bók og mátti
lesmálið gjarnan vera meira.
Kverið er um 100 síður og
bruðlað með pappírinn. Saknar
kunnugur lesandi því margra
vísna, sem eru jafngóðar þess-
um, og þó enn meira smákvæða,
sem til eru eftir þennan höfund.
En hvað sem því líður, þá er
fengur að þessu safni, jafn vel og
til þess er vandað að efni og frá-
gangi. Hannes Pétursson skáld
hefur séð um útgáfuna og ritað
stutta greinargerð um höfundinn.
Kristján Ólason hefur aldrei
látið mikið yfir sér. En fyrir
löngu hafa vísur hans sumar orð-
ið landfleygar á þeim ósýnilegu
vængjum, sem stakan berst enn
landshorna á milli, rétt eins og á
dögum Vatnsenda-Rósu og Bólu-
Hjálmars, þegar hún er svo vel
úr garði gerð að hún nái fluginu
eins og t. d. þessi:
Sólin yljar mó og mel,
mönnum léttir sporin.
Svellin gráta sig í hel.
Sárt er að deyja á vorin.
Allt sem Kristján hefur látið
frá sér fara af þessu tagi ein-
kennist af vandvirkni og smekk-
vísi En helzt til oft andar frá því
dapurlegum hugleiðingum. En
um annað efni kemst hann þó
ekki betur að orði, t. d. þessi um
hrörnunina:
Þetta finn eg — því er ver
það er sinni og skinni
þrdut að kynnast sjálfum sér
sífelt minni og minni.
Eða tökum þessa um svipað
efni:
Litlir verða að lokum menn.
Lífið mína og þína
tekur eina og eina í senn
oftar rasgjöf sína.
Og þó mér finnist Kristján
binda huga sinn of oft og mikið
við „þriggja álna mold“, stilli ég
mig ekki um að tilfæra hér eina
vísu enn af þeirri tegundinni.
Hún er svo afbragðs vel gerð:
Sápuþvotti hættir hold,
hljóðir liggjum saman
undir þriggja álna mold
óhreinir í framan.
En þrátt fyrir alltíða svartsýni
og tal þar um, á hann og til gam-
ansemi og fyndni, helzt þó þegar
aðrir lundléttir eru á næsta leiti:
Við höfum gegnum þykkt og
þunnt
þinna kosta notið.
Og þá fer nú að gerast grunnt
getir þú ekki flotið.
Og þá er þessi staka meira en
lítið vel gerð um það eilífa ásök-
unarefni að hafa tekið skakkan
stíg:
Innst í brjósti átti eg
— eins og hinir fengu —
hnoða sem mér vísar veg
en virti það títt að engu.
Lokað
vegna vaxtareiknings 30. og 31. des.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis.
Nýársfagnaður
verður að Hótel Borg að kvöldi hins
1. janúar 1964.
MENU:
Grape Fruit Coctail
eða
Cremé Súpa Dumont
eða
Kjötseyði Celestine.
XXX
Fiskifilé Tout Paris
XXX
Lax í Mavonnaise
XXX
Kjúklingar s/c Financiere
eða
Svínahryggur Singapore
XXX
Tutti Frutti ís
eða
Nougat Fromage
XXX
Sígild tónlist undir borðhaldinu leikin af
Jónasi Dagbjartssyni o. fl. frá kl. 7.
Dansmúsik: Finnur Eydal og
Helena Eyjólfsdóttir.
Látið minningar frá ánægjulegu nýárskvöldi á
Hótel Borg gleðja ykkur í daglcgum önnum hins
komandi árs.
Borðpantanir hjá yfirþjóninum í síma 11440.
Þá mundi ég vilja segjá að
réttara mat á innsta gildi skáld-
skapar og annarra fagurra lista
væri óvíða að finna, né heldur
betur fram sett, en hér:
Ekki er bjart er þurrt og þyrst
þrumir svarta skar á kveiknum,
eins er margt um orðsins list
eftir að hjartað skerst úr
leiknum.
Kristján er Keldhverfingur,
bróðir Árna Óla rithöfundar og
allnáinn ættingi Kristján Jóns-
sonar, sem kallaður hefur verið
Fjallaskáld og mesta bölsýnis-
skáld íslendinga, snillingur sem
dó ungur. Eins og mörgum öðrum
sveitamönnum, sem burt hafa
flutt úr sveit sinni, verður hon-
um tíðlitið af mölinni til moldar-
innar og lýsir því víða vel, en þó
hvergi, að því er ég ætla, jafn
eftirminnilega og í þessari stöku:
Góða, mjúka, gróna jörð,
græn og fögur sýnum,
hví er alltaf einhver hörð
arða í skónu'm mínum?
Geri aðrir betur, þá er áreiðan-
lega vel ort.
En þó þessi Keldhverfingur líti
sitt á hvað til moldarinnar, öðr-
um þræði með fögnuði til gró-
andans, að hinu leytinu niður í
moldarskaflinn með of miklu von
leysi, þá lyftir hann huga sínum
þó hærra í lokin:
Kannað hef eg kalt og heitt,
kátur meðal gesta.
Nú er eftir aðeins eitt
— ævintýrið mesta.
Það er vel til fundið að gefa út
úrval ljóða þeirra manna, sem
hafa eins mikið til brunns að
bera og Kristján Ólason.
Bjartmar Guðmundsson.
Jdlatrésskemmtun
S|á9fs!æðisfél. í Hafnarfirði
verður í Góðtemplarahúsinu sunnudaginn 29. des.
Fyrir yngri börn kl. 3—6 e.h. og fyrir eldri börn
kl. 8 e.h. Jólasveinar koma kl. 4.
Nefndin.
Jólatré
Skipstjóra- og stýrimannafélagið ALDAN og
Stýrimannafélag íslands halda jólatrésfagnað sinn
að Hótel Borg föstudaginn 3. janúar kl. 3 e.h.
Aðgöngumiðar fást hjá eftirtöldurr. mönnum:
Guðjóni Péturssyni, Höfðavík, sími 15334.
Jóni B. Einarssyni, Laugateig 6, sími 32707.
Kolbeini Finnssyni, Vesturgötu 41, sími 13940.
Þorvaldi Ámasyni, Kaplaskjólsvegi 45, sími 18217.
Herði Þórhallssyni, Fjölnisvegi 18, sími 12823.
Jóni Strandberg, Stekkjabraut 13, Hafnarfirði
sínii 50391.
GLAUMBÆR
HAUKUR MORTHENS
Borðpantanir í síma 11777.
ið í kvöld
KVÖLDVERÐUR FRÁ KL. 6.
FJÖLBREYTTUR MATSEÐILL.
Söngkona Ellý Vilhjálms.
Tríó Sigurðar Þ. Guðmundssonar.
— Sími 19636 —
FLUGELDA
— Aídrei fjölbreyttara úrval —
ELD-
FLAUGAR
H AND-
BLYS
Skiparakettur
Stjörnurakettur
Skrautrakettur
(danskar)
Jokerblys
Bengalblys
Stjörnublys
Stjörnugos
Stjörnuljós
SÓLIR - GULLREGN - SILFURREGN
VAX-ÚTIBLYS - VAX- GARÐBLYS
loga */2 og IV2 klukkustund.
Hentug fyrir unglinga.
Verzlun 0. ELLINGSEN