Morgunblaðið - 18.01.1964, Síða 2

Morgunblaðið - 18.01.1964, Síða 2
< 2 MORGUNBIAÐID Laugardagur 18. jan. 1964 * Kosið verður í félaginu um aðra helgi Starfsmenn Grandavers, sem framkvæmdu skoðunina við gúmmíbát Hringvers. (Ljósm. Mbl.: Ól.K.M.) Gúmmíbátur Hringvers viriist í fullkomnu lagi Gúmmíbjörgunarbátur sá, sem var um borð í Vest- mannaeyjabátnum Hringver, er skipið fórst á síldarmið- unum s.l. mánudagsmorgun, kom með Vatnajökli til Reykjavíkur í fyrrinótt. Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, blés aðeins efri loft- hringur bátsins upp, og varð skipshöfn Hringvers að liggja ofan á tjaldi því, sem yfir bátnum á að vera, vegna þessa. Báturinn var þegar at hugaður af Skipaskoðun rík- isins, og skýrði skipaskoðun- arstjóri, Hjálmar B. Bárðar- son, fréttamönnum svo frá í gær, að báturinn virðist vera i fullkomnu lagi. Bátar af þessari gerð eru útbúnir með einni flösku af samþjöppuðu lofti, sem blæs þá út, er kippt er í streng. Tveir ventlar eru í sambandi við loftflöskuna, sinn fyrir hvorn lofthring bátsins. Svo virðist að er Hringversmenn kipptu í umrseddan streng, hafi loftið af einhverjuim á- stæðum, sem mönnum er ráð- gáta, farið framhjá öðrum ventlinum og eingöngu í efri lofthringinn. Hringvei-smenn reyndu að blása út bátinn á þilfari skips ins en í leiðbeiningum segir, að sétja skuli bátinn í sjó, áð- ur en kippt er í strenginn. Ef þeim reglum er fylgt, verður kæling minni við blásturinn úr loftflöskunni, en hennar gætir jafnan nokkuð. Kvað skipaskoðunarstjóri enga skýr ingu geta gefið á því, að skipsmönnum skyldi ekki tak ast að blása út bátinn, sem skoðaður hafði verið tveim- ur döguim fyrir slysið. Hjálmar R. Bárðarson sagði, að þó hefði verið hægt að blása út bátinn með hand- dælu, sem er inni í gúmmí- bátnum, og því engri rýrð kastað á gildi hans sem björg unartækis. Til þessa hefði þó ekki komið, þar sem Hring- versmönnum var bjargað áð- ur. f GÆR var útrunninn frestur til að skila framboðslistum í Verka- mannafélaginu Dagsbrún til stjórnarkjörs í félaginu, sem auglýst hefur verið að fram fari 26. og 27. janúar næstkomandi. Tveir listar verða í kjöri í félaginu: B-listi, sem borinn er fram af andstæðingum kommúnista í félaginu og skipaður er lýðræðis- sinnum, og A-listi, sem borinn er fram af fráfarandi stjórn og er skipaður sömu kommúnistum og setið hafa í stjórn Dagsbrúnar undanfarin ár. Varastjórn Styrktarsjóðs: Steinberg Þórarinsson, Teiga- gerði 8, Guðmundur Kristinsson, Sólheimum 27. Endurskoðandi: Sigurður Þórðarson, Hútúni 19. mmm—mw—íi s j Skera upp herör gegn Hallgríms- kirkju „Stúdentabiað“, gefið út af Stúdentaráði Háskólans, er komið út og að þessu sinni helgað Hallgrímskirkju og segir í orðsendingu frá rit- stjórninni, að nú séu síðustu forvöð fyrir almenning að mótmæla byggingu kirkjunn- ar, sem muni gnæfa yfir borg ina „í allri sinni smekkleysu“. „Stúdentablað“ leitar álits ýmissa þekktra manna og eru þeir flestir þeirrar skoð- unar, að útlit kirkjunnar og stíll geri það að verkum, að ekki sé afsakanlegt að hrynda slíku verki i framkvæmd frekar en orðið er. Þeir, sem svara spurning- um blaðsins eru: Sigtryggur Klemenzson, Þórir Kr. Þórð- arson, Skúli H. Norðdahl, Hannes Kr. Davíðsson, Pét- ur Benediktsson, Sigurður Líndal, Örn Ólafsson og EJS. Ennfremur er þar grcinarstúf ur eftir Thor Vilhjálmsson úr óútkomnum Birtingi. Listi lýðræðissinna er þannig skipaður: Aðalstjórn: Björn Jónsson, form., Fríkirkju vegi 1; Karl Þórðarson, varafor- maður, Flókagötu 14; Haukur Guðnason, ritari, Veghúsastíg 1A; Tryggvi Gunnlaugsson, gjaldkeri, Melgerði 26; Sigurjón Bjarnason, fjármálaritari, Álftamýri 44; Þor- grímur Guðmundsson, Sólheim- um 27; Sumarliði Ingvarsson, Sogavegi 136. Varastjóm: Gunnar Sigurðsson, Skipholti 45, Halldór Runólfsson, Hverfis- götu 40, Þorbjörn Sigurhansson, Skólabraut 7, Seltjarnarnesi. Stjórn Vinnudeilusjóða: Sigurður Guðmundsson, Freyju götu 10 A, Guðmundur Sigurjóns- son, Gnoðavogi 32, Þórður Gísla- son, Meðalholti 10. Varastjórn: Jón Arason, Ökrum v/Nesveg, Guðmundur Jónsson, Baldurs- götu 36. Endurskoðendur: Guðmundur Sigurðsson, Digra- nesvegi 54, Kristinn Engilberts- son, Skúlagötu 74. Varaendurskoðandi: Agnar Guðmundsson, Bjarnar- stíg 12. Stjórn Styrktarsjóðs Dagsbr únarmanna: Daníel Daníelsson, Þinghóls- braut 31. Kópavogi, Halldór Blön- dal, Baugsvegi 25, Örn Aðalsteins son, Eskihlíð 35. jæmdur Fálkaorðunni FORSETI íslands hefir í dag sæmt Óttarr Möller, forstjóra hf Eimskipafélags ísilands, riddaira- krossi hinnar íslenzku fálkaorðu í tilefni af 50 ára afmæli félags ins. (Frá orðuritara) Lýðræðissinnar leggja fram lista til stjórnar- kjors ■ Uagsbrun S j ólf stæðisf ólk! Varðarkaffi i Valhöll kl. 3—5 í dag 12 KvUosb! / Hihtki NA !5 hnúiar I SV50hr.úisf -* Oi! - H Sn/iioma (7 Skirir Z Þrumur H H*l LJsd. EINMUNA blíða er nú uim allt land dag eftir dag. Eink- anlega er þó skemimtilegt veð ur um norðanvert lamdið, því að vindur er þar hægur og veður bjart og nlýtt. Um há- degið var 10 stiga hiti í Vopna firði og 9 stig á Akureyri, Sauðárkróki og Galtarvita. Sunnan lands er miklu vætusamara. Til dæmis mæld ist næturúrkoman 16 mm ó Kiirkjubæjarklaustri, 12 á Fagurhólsmýri c- 10 á Þing- völlum í fyrrinótt. Þá var líka hvassviðri suðvestan lands. Verkfallsverðir hindra akstur Landleiða hf. milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Lögðu þeir bif- reiðum fyrir strætisvagninn í Lækjargötu í gærmorgun. (Ljósm.: Sv. Þ.) — Verkfall Framhald af bls. 24. Hafnarfjarðar og Reykjavíkur eða frá kl. 7 að morgni til kl. 9 f.h., frá kl. 12 til kl. 2 e.h., frá kl. 6 til kl. 9 e.h. og fara eina ferð kl. 11 e.h. frá Reykjavík og kl. 11.30 frá Hafnarfirði. Ekið verð- ur á heilu tímunum frá Reykja- vík, en hálfu tímunum frá Hafn- arfirði. Framkvæmdastjóri Norður- leiða hf. fór í áætlunarferð til Akureyrar í gærmorgun og mun reyna að halda uppi áætlun að einhverju leyti. Kaupfélag Árnesinga á Sel- fossi hefur sámið við sína starfs- menn og mun halda uppi ferðum á sínum áætlunartímum, en hins vegar er verkfall gegn Steindóri, sem einnig heldur uppi áætlunar- ferðum austur fyrir Fjall. Strætisvagnar Kópavogs halda uppi sínum áætlunarferðum, enda eru bifreiðastjórar fyrir- tækisins bæjarstarfsmenn og eru ekki í verkfalli. Morgunblaðið hefur fregnað, að sérleyfishafar hafi boðið kjara dóm í málinu í fyrrinótt, en því ekki verið sinnt. Ekki hafði sama ingafundur verið boðaður í gær-> kvöldi. Verkfall bifreiðastjóra hefur valdið miklum erfiðleikum fólks, einkum þeirra, sem þurfa að ferðast milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, og til Suðurnesja vegna vinnu sinnar. »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.