Morgunblaðið - 09.02.1964, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 9. febr. 1964
20 þús. nemendur
frá 13 tíl 69 ára
Námsflokkar Reykjavikur 25 ára
NÁMSFLOKKAR Reykjavíkur
Kafa starfað í 25 ár, hófu starf-
semi sína 10. febrúar 1939. Var
Ágústi Sigurðssyni þá falið að
veita þeim forstöðu, sem hann
hefur gert síðan. Skipulagði hann
námsflokkana eins og þeir eru
enn í dag. Fram að þessu hefur
sérstöfc forstöðunefnd séð um
starfsemi námsflokkanna, en nú
hefur verið ákveðið að þeir falli
undir fræðsluráð Reykjavíkur. í
gær áttu blaðamenn tal við Jónas
B. Jónsson, fræðslustjóra og
Ágúst Sigurðsson, skólastjóra í
tilefni af þessu.
Ágúst skýrði frá starfsemi
námsflokkanna, en þá hafa frá
upphafi sótt um 20 þús. nemend-
ur. Árið 1939 innrituðust 84, en
síðan 1957 hafa alltaf verið yfir
1000 nemendur á ári. Þeir sem
sækja um námsvist ákveða í
rauninni hvað kennt er, því
flokkar eru stofnaðir um ieið og
nægileg þátttaka fæst. Nú í vet-
ur eru kenndar 28 námsgreinar
og eru flokkarnir 67 talsins. Lang
mest þátttaka hefur frá upphafi
verið í enskunámi og þar sem
hægt er að veita meiri framihalds
kennslu eftir því sem flokkurinn
stækkar er nú 6 ára samfellt
enskunám. Nýjustu flokikarnir
eru foreldrafræðsla, sem tekin
var upp fyrir tveimur árum, og
leikhúskynning, sem byrjað var
á í vetur. Hið síðarnefnda miðast
við að aðstoða leikhúsgesti við að
njóta leiklistar og skilja það sem
fram fer á leiksviðinu. En með
foreldrafræðslu gefst foreldrun-
um kostur á að kynnast sérfræði
legri meðferð uppeldismála og
er kennsla í samtölum, auik þess
sem sálfræðingur tekur nám-
skeið í barnasálarfræði. Á tíma-
bili var mikil aðsókn að föndur-
kennslu, en nú hefur dregið úr
því aftur, þar eð svo mörg fé-
lög hafa tekið hana upp.
Fékk nýja stöðu eftir
vetrarnám.
Ágúst sagði að nemendur, sem
sótt hafa Námsflokka Reykjavík
ur sóu á aldrinum 13—69 ára.
Sem dæmi um nemendur og
námsáhuga sagði skólastjórinn
frá skrifstofumanni um fimmtugt
sem var vel metinn hjá fyrirtæki
sínu og langaði til að sækja um
verzlunarstjórastarf er hann vissi
að stofnað yrði til áður en árið
væri liðið. En hann kunni etoki
bókfærslu, sem var nauðsynleg.
Um veturinn stundaði hann svo
nám í fyrsta og öðrum flokki.
Hann fékk stöðuna og hefur rækt
hana með prýði.
Bóndi nokkur á fimmtugsaldri
hóf þar líka nám. Hann var þar
í 7 ár og sótti hvern tima í 10
flokkum. En metið á stúlka, sem
nú er dömuklæðskeri. Hún sótti
tima í 16 flokkum, tók ágætis-
einkunn í öllu og ástundunin var
óbrigðul.
Starfsviðið fært út.
Námsflokkarnir voru upphaf-
lega stofnaðir fyrir tillögu
Helga Hermanns Eiríkssonar og
Gunnars Thoroddsen og var til-
gangurinn með stofnuninni að
veita fólki, sem stundar atvinnu,
heppilegt tækifæri til þess að
auka við menntun sína án þess
að þurfa að leggja í tilkostnað
við að kaupa tímakennslu eða
þurfa að missa atvinnutekjur.
Hafði Ágúst Sigurðsson kynnzt
slíkri starfsemi í Svíþjóð. Kennt
er á kvöldin frá 7.45. Til að
byrja með voru Námsflokkaxn-
ir til húsa í Atvinnudeildarhús-
inu og í Kennaraskólanum, en
lengst af hafa þeir verið í Mið-
bæjarskólanum. Skólagjald er
nær ekkert, aðeins 75 kl. innrit-
unargjald.
Reykjavíkurborg stendur
straum af fjárhagslegum rekstri
að ríflega hálfu, annan kbstnað
greiða irmritunargjöld og svo-
lítill ríkisstyrkur.
Aðspurður um l að hvort það
nýja fyrirkomulag að fella
Námsflokka Reykjavíkur undir
fræðsluráð, táknaði einhverjar
breytingar á tilhögun þeirra,
sagði Jónas B. Jónsson, að til-
lögur frá Ágústi Sigurðssyni um
reglugerð um starf Námsflokk-
anna lægi fyrir fræðsluráði og
yrði það tekið til meðferðar í
vor. Raddir væru uppi um að
e.t.v. væri rétt að breikka svið
námstflokkanna. Fræðsluráð
teldi að þessi starfsemi hafi tek-
izt vel og í rauninni sinnt fleiri
verkefnum, sem aðrar stofnanir
hefðu á hendi erlendis og þró-
un í einkaskólahaldi gæfi vís-
bendingu um að gefa ætti náms-
flokkunum meira svigrúm, en
þrengsli standa starfseminni m.
a. fyrir þrifum. — Ég hef fylgzt
með starfseminni síðan 1943,
■.V.VtfS/A
Nemenrtur að vinnu við gufuvélina gömlu, sem fyrir áratugum var sett upp í fiskþurrkhúsi Alli
ance. Vélin var gefin skólanum fyrir nokkrum árum.
Of fáir nemendur helzta
vandamál Vélskólans
„Skrúfudagurinn46 haldinn
háiíi'legur á miðvikudag
HINN árlegi hátíðisdagur Vél-
skólans í ReykjavtK, „Skrufu-
dagurinn“, sem nefndur hefur
vetið eftir nierki skolans, skips-
skrúfunni, verður næstkomandi
mioviKUuag. tr þessi dagur al-
mennur mótsdagur yngri og
eldri nemenda skolans. Að ha-
tiðahöldunum standa Vélskólinn
og Vélstjórafélag Islands, sem
styrkir framkvæmd þeirra með
fjárframlögum.
Dagskrá „Skrúfudagsins" verð
ur, sem hér segir:
• Kl. 14—16.30 verður starf-
semi Vélskólans kynnt. Verða þá
nemendur að störfum í verkleg-
um deildum skólans, sem eru
Framh. á bls. 14.
Ágúst Sigurðsson, skólastjóri, afhendir bónda, sem stundað
hefur nám í 7 ár í ' 1 flokkum hjá Námsflokkum Reykja-
víkur, skirteini sitt.
sagði hann og veit að þetta er
mjög mikilvæg stofnun fyrir
fjölda hópa, ungra og fullorð-
inna.
í tilefni af afmælinu verður
haldið afmælishóf í Klúibbnum
á mánudag og hefst kl. 8.30. Þeir
sem vilja tryggja sér miða geta
'hringt í Agúst Sigurð&son (sími
15155).
H júkrun arkonur
óánœgðar
með úrskurð kjaranefndar um laun
KJARADÓMUR hefur kveðið
upp fysta úrskurð sinn í ágrein-
ingsmáli samningsaðila um skip-
un einstakra starfsmanna í
launaflökka kjarasamningsins, en
það varðar 15—20 hjúkrunarkon
ur. Ágreiningurinn reis um það
hvort viðkómandi hjúkrunar-
kona, sem er skurðarstofulhjúkr-
unarkona, skuli bera starfsheitið
sérlærð hjúkrunarkona og þiggja
þá laun skv. 15. .aunaflökki ríkis
starfsmanna eða hvort hún á að
taka laun skv. 13. laiunaflotoki,
þar eð hún hefur aðeins hlotið
9 mánaða sérnám á skurðstofu
eftir hjúkrunarpróf, en í kjara-
dómi er sagt að hjúkrunarkon-
ur skuli taka laun eftir 13. launa
flokki nema sérlærðar hjúkrunar
konur eftir framhaldsnám eitt ár,
sem verði í 15. launaflokki.
Kjaranefnd varð ekki sam-
mála um niðurstöðuna. Meiri-
— Johnson
Framhald af 1. síðu.
spyrja de Gaulle um. einstoK
atriði stefnu hans. Ég skil
hana þó þannig, að einungis
sé um að ræða hlutleysi S-
Vietnam, ekki allt þetta svæði
(SA-Asía). . . .“
Er Johnson hafði sagt þetta,
kom upp kurr meðal frétta-
manna, einkum þeirra frönsku
og töldu sumir þeirra, að for-
setinn hefði ekki kynnt sér
efni yfirlýsingar de Gaulles.
Svo mun þó ekki hafa verið,
því að Johnson hafði fyrr um
daginn setið á fundi með Dean
Rusk utanríkisráðherra og þeir
rætt málin. Heldur þótti
þó flestum, að illa hefði
tekizt til, á þessum fundi
með fréttamönnum, og hafa
blöð vestra gert þennan
fund að sérstöku umræðu-
efni.
Þess hefur verið farið á leit
við Johnson, að hann héldi
blaðamannafundi reglulega, í
líkingu við þá fundi, sem
Kennedy gerði, en ekkert hef-
ur af því orðið, enn sem kom-
ið er.
hlutinn kvað upp þann úrskurð
að viðkomandi hjúkrunarkonu
vanti þriggja mánaða nám til að
fullnægja ákvæðinu um árs sér-
nám. Páll S. Pálsson, Ragnar
Ólafsson og Ólafur Björnsson
voru í meirihluta. Kristján
Thorlacius og Jón Þorsteinsson
skiluðu sératkvæði. Sá síðar-
nefndi var samþykkur niður-
stöðu meirihluta, en á öðrum
forsendum og sá síðarnefndi
ósammála.
Þær hjúkrunarkonur sem þetta
varðar munu vera mjög óánægð-
ar með úrskurðinn og sumar þeg-
ar sagt upp starfi.
— Gagnráðstafanir
Framh. af bls. 1.
Ákvarðanirnar um aðgerðir á
Kúbu voru teknar eftir langa
fundi í bandaríska utanríkisráöu
neytinu í gærkvöldi. Var þar jafn
framt bent á að hugsanlegt væri
að Castró gripi til víðtækari að-
gerða gegn flotastöðinni. Skýrði
Dean Rusk, utanríkisráðherra
svo frá að hugsanlegt væri að
Castró hyggðist með aðgerðum
þessum reyna að hrekja Banda-
ríkjamenn frá flotastöðinni á
Kúbu. Sagði Rusk að tilgangs-
laust væri fyrir Castró að reyna
þetta, því Bandaríkjamenn færu
hvergi.
Osvaldo Dorticos forseti Kúbu
hefur svarað þessari yfirlýsingu
Rusk. Sagði hann í ræðu, sem út-
varpað var frá Havana, að það
væri ekki ætlun Kúbustjórnar að
yfirtaka flotastöðina nú. „Við
munum krefjast þess að fá flota-
stöðina afhenta þegar okkur þyk
ir það tímabært, og munum þá
snúa okkur til þeirra alþjóða-
samtaka, sem við teljum að geti
orðið okkur að liði“.
Leiðréttin»
f FRÉTT um heimsókn menntá-
skólanema til Akureyrar mis-
prentuðust nöfn tveggja sunnan-
manna. Þeir heita Þráinn Bertels
son og Júníus Kristinsson.
Dorion bldsarnkvintettinn heldur
tónleikn d mónudng
HINN þekkti bandaríski Dorian
blásarakvintett sem undanfarna
mánuði hefur verið á tónleika-
ferðaiagi um Evrópu og Afríku,
mun halda eina tónleika hér á
landi. Þeir verða í Súlnasai,
Hótel Sögu mánudaginn 10. febr.
kl. 21:00. Kvintettinn hefur hvar
vetna leikið við mikla hrifningu
og hlotið frábæra dóma.
Aðgöngumiðar verða seldir 1
hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga
dóttur, Vesturveri og Mokka-
kaffi Skóiavörðustíg.