Morgunblaðið - 09.02.1964, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.02.1964, Blaðsíða 10
V 10 MORGU N BLAÐIÐ Sunnudagur febr. 1964 ^ „Framundan bíða mörg verkefni“ Fréttamaður „Aktuelt44 ræðír við Carl Th. Dreyer 75 ára FRÆGI danski kvikmynda- leikstjórinn Carl Th. Dreyer, varð 75 ára 3. febrúar síðast liðinn. Jlér á landi þekkja menn hann t.d. af myndum hans „Heilagri Jóhönnu“ og „Orðinu“ eftir sögu Kaj Munks. Dreyer hóf kvikmyndaleik- stjóm 1918 eftir að hafa starf að nokkur ár við klippingar í tæknideild Nordisk film. Fyrsta kvikmynd hans var „Forsetinn“ gerð eftir sögu Franzos og síðan hefur hann stjórnað myndum, er hafa hlotið heimsfrægð til dæmis „Heilagri Jóhönnu" með frönsku leikkonunni Falcon- etti i aðalhlutverkinu. Drey- er er nú að undirbúa töku kvikmyndar, sem nefnist „Gertrud“, á vegum Nordisk film. Taka myndarinnar hefst í apríl n. k. Viðtalið við Dreyer, sem hér fer á eftir örlítið stytt, birtist í danska blaðinu „Aktuelt" í tilefni afmælis hans. Viðtalið skrifaði Björn Ra.ssmu.ssen og hefst það á því, að hann spyr Dreyer um ástæðuna til þess að hann tók að starfa við kvikmyndir. — I>egar ég var unguf blaðamaður við ,-,Extra- bladid", hefur Dreyer frá- sögn sína, ók ég dag einn með kvikmyndastjóranum A. Kii- hle út í kvikmyndaverið til Olaf Ussing snoðklipptur í „Degi Reiðinnar“. þess að fylgjast með nokkr- um atriðum úr kvikmynd, sem verið var að taka. Ég ætlaði að skrifa um þetta í blaðið. Mér fannst Kúhle dapur á leiðinni og fámáll og ég spurði hann hvort éitt- hvað amaði að. Hann svar- aði játandi og sagðist fyrir stuttri stundu hafa lokað leik konuna Gudrun Houlberg inni í tumi, þ.e.a.s. í kvik- myndinni, en hann vissi ekki hvemig hann ætti að segja henni á hvern hátt hún kæm- ist út aftur. Þá datt út úr mér: „Það eru til bréfdúf- ur.“ Bréfdúfur þurfa auðvit- að að vera kunnugar umhverf inu til þess að geta flutt skila boð, en Kúhle féllst á hug- mynd mína. Skömmu síðar sagði hann: „Þér hljótið að geta skrifað kvikmyndahand rit.“ Ég herti upp hugann og svaraði játandi. Hann bað mig þá um að skrifa handrit, sem hann sagðist þurfa að nota eftir þrjá daga. Hann setti þrjú skilyrði um efnið. Dans- meyjabrunnurinn átti að sjást í kvikmyndinni, mestur hluti hennar átti að gerast heima hjá Hansen bruggara í Glostrap, og í þriðja lagi átti að vera eitt atrið þar sem hestum var naumlega bjarg- að úr eldsvoða. Hansen, brugg ari í Glostrup, var góður vin- ur Kúhlers, sem hafði lofað honum, að næsta kvikmynd skyldi tekin heima hjá hon- um. Við Viggo Cavling Á AFMÆLI Dreyers birt- ust í danska blaðinu „Poíitiken“ kveðjur til hans og ummæli um hann, skrifuð af leikurum og öðrum, sem starfað hafa með honum við kvik- myndirnar. Hér á eftir fer úrdráttur úr þessum um- mælum. Hamingjuóskir Leikonan Clara Pon- toppidan, sem lék m.a. í „Blöð úr bók Satans“, sendir Dreyer eftirfarandi kveðju: „Kæri Carl Th. Dreyer! Ég er stolt af að hafa upplifað með yður eitt hinna listrænu hamingju- augnablika, þegar allt gleymist nema listsköpun- in. Ég er yður þakklát fyrir þetta augnablik og svo margt annað.“ Ský á rangri leið Preben Lerdroff Rye sömdum hið umbeðna kvik- myndahandrit á einni nóttu, skiluðum því daginn eftir og fengum borgað orðalaust. — Úr því varð kvikmyndin — „Dóttir bruggarans". Kúhler var mjög snjall og hafði til- finningu fyrir kvikmyndum. Fyrirtæki hans gerði marg- ar spennandi og athyglisverð- ar kvikmyndir og við þau eintök, sem send voru til Rússlands, var skeytt óhugn anlegum endi. Jæja, nú hef ég stagt frá fyrstu kynnum mín- um af kvikmyndum. — Það leið ekki á löngu þar til þér réðust til Nordisk film? — Nei, það var skömmu síðar. Fyrst samdi ég texta, sem fluttir voru með þöglum myndum, las kvikmynda- handrit, sem bárust, og skrif- aði nokkur sjálfur. Síðan starfáði ég um skeið við klippingar í tæknideild Nor- disk film, fyrst sem aðstoð- armaður Stæhrs, forstjóra. lék bæði í „Orðinu" og „Degi reiðinnar“. Hann segir: „Frá því að ég lék í myndum Dreyers, eru mér minnisstæð mörg einstök smáatvik, sem hvert um sig ber þvi glöggt vitni, að hann lætur ekkert fram hjá sér fara og hugsar jafnt um það minnsta sem stærsta. Þegar verið var að taka „Orðið“ í Vedersö, rigndi stanzlaust í hálfan mánuð, en þegar loksins stytti upp kom glampandi sólskin. Framleiðandinn, Tage Nielsen, kom einmitt í heimsókn þann dag og sagði ánægður: „Nú getið þið haldið áfram.“ En Dreyer svaraði: „Nei! Við verðum að bíða eftir skýj- unum.“ Nielsen benti þá upp í himinn og sagði: — „Þarna er ský“. Dreyer hristi höfuðið: „Þetta ský er ekki á réttri leið, það fer inn yfir land, en okk- — Fylgdust þér með upp- tökum á þessum tíma? — Aldrei.' Þegar upptöku var lokið, sendu leikstjór- arnir hráefnið í klippinga- deildina og við klipptum myndirnar. — í samráðf við leikstjór- ana? — Það var ekki venja. En þegar mér datt í hug að gera verulegar breytingar, ákvað ég oft að ræða þær við leik- stjórana, en ég hafði fullt vald til þess að breyta öllu eins og ég vildi. Stæhr var mjög strangur en einnig rétt- látur. Ég lærði mikið af hon- um. — Hvernig var framleiðsl- unni háttað. hjá Nordisk film? — Kvikmyndirnar voru teknar á sumrin meðan bjart var lengi dags, en hætt á haustin þegar dimma tók. Á veturna unrium við ekkert. Við klipptum filmurnar jafn- óðum og kvikmyndunum var lokið og það tók ekki langan tíma því að margir urjni við það. Leikstjórarnir Robert Dinesen og Holger Madsen kepptu um hvor gæti lokið ur vantar ský, sem stefnir út yfir hafið.“ Ef til vill var þetta aukaatriði, en það og önnur slík hafa trúlega átt sinn þátt í sköpun meistaraverka Dreyers . . . .“ Góðir menn Eftirfarandi kveðja er frá Birgitte Federspiel, leikkonunni, sem fékk Bodilverðlaunin fyrir leik sinn í „Orðinu": „Kæri Carl Th. Dreyer! Margir og ólíkir menn verða á vegi okkar á lífs- leiðinni. Við gleymum nokkrum þegar í stað, aðra munum við stutta stund, en svo eru hinir, sem með rósemi sinni, mannkærleika og þolin- mæði hafa mikil áhrif á okkur og við gerum okk- ur síðar grein fyrir því hve mikilsvert hefur verið Framhald á 19. síffu. Carl Th. Dreyer. við fleiri myndir á sumri og stundum tóku þeir 17 eða 18 hvor. Þeir voru oft ekki nema fimm daga að ljúka við mynd, það gekk eins og á færibandi. Um leið og annar hætti kvikmyndatöku, hóf hinn störf og þannig koll af kolli. Stundum var haegt að nota tjöld og skreytingar úr síðasta atriði einnar myndar í fyrs'ta atriði þeirrar næstu og þótti slíkt mjög hagkvæmt. Væri sviðið stofa með hús- gögnum, var röðun þeirra að- eins breytt. Húsgögnin feng- um við alltaf að láni hjá sömu húsgagnaverzlun bæði í stofur, borðstofur, svefn- ■herbergi og eldhús af ýmsum gerðum. Starfsmenn verzlun- arinnar voru orðnir svo vanir viðskiptunum við okkur, að þeir spurðu aðeins hvort það ætti að vera sú græna eða rauða, þegar við hringdum og báðum um stofu. Kvikmynd- irnar voru ekki langar og sjaldan þurfti að klippa mik- ið úr, oft ekki nema 50 metra af 350 metra filmu. Ég nýt' enn góðs af því, sem ég lærði meðan ég vann við klippingarnar. Þegar ég vinn að flóknu atriði, klippi ég það í huganum á meðan á tök- unni stendur. — Þér hófuð leikstjórn 1918? — Já. Fyrsta mynd mín var „Forsetinn" eftir sögu Franzos. Ég fékk að reyna einfaldara skreytingaform en áður hafði tíðkazt Oíg mynd- irnar urðu fegurri. Einnig fékk ég að ráða gamalt fólk til þess að leika gamla fólk- ið í myndinni. Það þótti mjög óvenjulegt. Áður voru ungir leikarar alltaf útbúnir með grátt hár og skegg, ef leika þurfti öldunga og þeir litu hræðilega út. Já, ég lærði mikið á þeim fimnj árum, sem ég sat og klippti myndir annarra og átti því betra með að gera mér grein fyrir skoð- unum mínum á kvikmynda- töku. Mér fannst t.d. stofurn- ar eiga að endurspegla per- sónuleika íbúanna, þannig er það í lífinu. Þegar komið er í fyrsta skipti’ inn í stofu horf ir maður ósjálfrátt í kringum sig og fær fyrstu hugmynd um persónuleika íbúans. — Úr næstu mynd yðar „Blöð úr bók Satans“, er Clara Pontoppidan minnis- stæðust í finnska atriðinu. Þar beittuð þér áhrifamikilli tækni. Framhald á 19. síffu. Falconetti í hlutverki Heil agrar Jóhönnu. Ummæli samstarfsmanna Dreyers ú afmæli hans \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.