Morgunblaðið - 09.02.1964, Blaðsíða 5
Sunnudagur 91. febr. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
GAMALI oc cott
Tígulkóngurinn kæri
kominn vildi ég væri,
lagður í lófa mér.
Allt mér að óskum gengi,
ef ég tvistinn fengi,
og fjarkinn fylgdi með-
Sigurjón Björnsson sálfræðing
nr velur sér ljóð dagsins að
þessu sinni,
Læknar íjarverandi
Einar Helgason fjarverandi 3.—8.
febrúar. Staðgengii) er Jón G. Hall-
grimsson. ,
Eyþór Gunnarsson fjarverandi
óákveðið. Staðgenglar: Björn t>.
þórðarson, Guðm. Eyjólfsson, Erling-
ur Þorsteinsson, Stefán Olafsson og
Viktor Gestsson.
Kristjana Heigadóttir læknir fjar-
verandi um óákveðinntíma. Stað-
gengill: Ragnar Arinbjarnar.
Páll Sigurðsson eldri fjarverandi
um óákveðinn tima. Staðg. Hulda
Sveinsson.
Stefán Guðnason verður fjarverandi
nokkrar vikur. Staðgengijl Páll Sig-
urðsson yngri.
Óiafur Ólafsson læknir Klappar-
stíg 25 símt 11228 verður fjarverandi
um óákveðinn tíma. Staðgengill:
Björn Önundarson læknir á sama
stað.
EKKi veit ég hvuð.i ijóðmæli mér finnst bezt. Ég gæti valið
úr allmörg kvæði og sagt, að mér þætti mjög vænt um þau,
en samt verið ófær um að gera upp á milli þeirra. Svipað og
foreldrar sem geta ekki mismunað börnum sínum- Kvæðið,
sem hér fer á eftir, verður fyrir valinu vegna þess hve oft
xnér hefur komið Það í hug á undanförnum árum. Það bregð-
ur upp einkennilega raunsannri mynd af þeim veruleika sem
við hrærumst í. Látlaus en bitur kaldhæðni Steins hittir vel
í mark og minnir óþyrmilega á ógreidda reikninga okkar við
samtíðina. Og ætli það sé mikil hætta á, að við gleymum Mið-
vikudegi Stems á næstunm.
MIÐVIKUDAGUK
Mi'ffvikudagur — Og lififf gengur sinn gang.
eins og .guff hefir sjálfur í öndverffu hugsaff sér þaff.
Manni finnst þetta dálúið skrítið, en samt er það satt,
því svona hefir þaff verið og þannig er það.
Þér gangið hér um með sama svip og í gær,
þér stgrandi fullhugar dagsins, sem krónuna stýfið.
í morgun var haldið uppboð á eignum manns,
sem áiti ekki nóg fyrir skuldum. — Þannig er lífið.
Og mennirnir græða og mennirnir tapa á víxl,
og mónnum er lánað, þó enginn skuld sína borgi.
Um malbikuð strætin berst múgsins háværa ös,
og Morgunblaffið fæst keypt niðr’ á Lækjartorgi.
Miffvikudaguf. — Og lífið gengur sinn gang,
og gangur þess verður víst hvorki aukinn né tafinn.
Dagb.iartur múrari eignaðist dreng í gær,
I dag veröur herra Petersen kaupmaður grafinn-
Steinn Steinarr.
Orðuregn
Þjóðviljinn þykist nú heldur en ekki hafa fengið sannanir fyrir
því hverjir séu vinir íslands — og hverjir ekki. Segir blaðið í fyrra-
dag, að Alexandrov, sendiherra Rússa, hafi hlotið heiðursmerki,
þegar hann fór héðan, en Ragnar Gunnarsson hafi enn ekkert
merki fengið.
Það hefur áður komið fram í Velvakanda — og er greinilega
éstæða til að endurtaka það — að öllum erlendum sendiherrum
„er gefinn kostur á orðu“ þegar þeir fara héðan, samkvæmt upp-
lýsingum utanríkisráðuneytisins. En vegna hinnar skemmtilegu
athugasemdar Þjóðviljans mætti e. t. v. segja þetta:
Ef öllum erlenaum njósnurum væri líka gefinn kostur á orðu
um leið og þeir færu héðan rr.jndu ekki aðeins Rússarnir tveir, sem
fundust við Hafravatn, hafa farið með orður úr landi, heldur hefði
háttvirtur Alexandrov þá sennilega farið heim með fleiri en eina.
sd N/IST bezti
Um leið og Hagstofan hafði birc bráðabirgðatölur um fólksfjölda
á Islandi, þar sem í Ijós kom að karlmenn eru um það bil 2000
fleiri á íslandi en kvenmenn, en í öðrum löndum, er það öfugt,
sem sjálfsagt stafar af striðinu og annarri óáran, sást einn blaða-
maður Mbl. ganga um gólf tauta fyrir munni sér:
„Sjáum til, við erum ennþá ofaná, við erum ennþá ofaná!“
Æskulýðsvika
K.F.U.M. og K. hafa um
. margra ára skeið haft æsku-
lýðsviku einu sinni á hverjum
vetri. Eru þá samkomur hvert
kvöld frá sunnudegi til sunnu-
dags og reynt að vanda sér-
staklega til þeirra bæði talað
mál og söng. Samkomur
æskulýðsviknanna hafa verið
mjög vel sóttar og það stund-
um svo, að hinn stóri sam-
komusalur félagsins hefir
ekki getað rúmað alla s'am-
komugesti.
Æskulýðsvika þessa vetrar
hefst að þessu sinni í kvöld
kl- 8.30. Aðalræðumaður er I
síra Bjarni Jónsson, vígslu- ]
biskup. Blandaðir kórar syng-
ja. Síðan verður nýr ræðu-
maður hvert kvöld og fjöl- 1
breyttur söngur, bæði ein-
söngur, tvísöngur, þrísöngur ]
og kórsöngur.
Þótt samkomurnar séu ser-
staklega ætlaðar æskufólki
eru allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Orð spekinnar
Þúsund orð ná ekki áhrifum
einnar dáðar.
Ibsen.
hvort Ólafsvíkingar sitji nú með sárt ENNIÐ
eftir að nýi vegurinn var lagður ?
VISUKORN
Stöfnum vendir stjórnarknör
stýrt af hendingunni.
Fólk með blendið bros á vör,
bíffur í lendingunni.
Pétur Jónsson frá
Nautabúi.
EINN kunningja minna kom heim
til mín í gærdag, dró upp úr vasa
sinum Morgunblað frá 29. f.m., benti
mér á mynd af tveim mönnum — |
öðrum hempuklæddum — og spurði,
hvort ég hefði séð petta.
Ég kvað nei við pvl.
..Lestu það, sem stendur undir ]
myndinni.''
Ég gerði það, og rétti honum svo
aftur blaðið. — ,,Nú. þetta er brand- ]
arinn um bá Pál og séra Bjarna —
afturgenginn.'
„Heldurðu að þetta sé sett i blaðið |
þér til miska.'
„Það er ósennilegt. Til þess þyrfti
þvf að vera treyst, að menn séu bún-
ir að gleyma hvernig málinu lauk.
— Eins og þú manst, sannaðist, að
ég kom þarna hvergi nærri, og hinn
brotlegi lögregluþjónn hlaut dóm og
missti stöðu sína — og ríkinu var
gert að greiða mér 30 þúsund krónur |
í bætur fyrir næturheimsóknina —
sem jafngildir nú ca. 150 þúsund- ]
um."
„Heldurðu þá, að þetta hafi verið |
sett í blaðið til að hrella þá, sem
stóðu að hinu misheppnaða tilræði við
þig?“
„Sé svo, hefir starfsmanninum við
blaðið sennilega verið ókunnugt um,
að hann var að brjóta hegningarlögin. |
— Þar eru ákvæði, sem eiga að tryggja
það, að ekki sé verið að angra menn
út af gömlum brotum, sem þeir eru
búnir að taka út refsingu fyrir.“
„Heldurðu ef til vill, að þetta sé
gert til leiðinda fyrir þá Dr. Pál og
séra Bjarna?"
„Ég veit ekki. — Eg verð fyrir ]
mitt leyti að játa, að ég vildi ekki
eiga svona mynd aí mér — við jarðar-
för.
i Pétur Magnússon.
UTSALA - UTSALA
Mikið úrval af ódýrum og góðum vörum.
Miklatorgi.
Árshátið
heldur Vélskólinn í Reykjavík í Súlnasalnum
Hótel Sögu miðvikudaginn 12. febr. 1964 kl. 7
stundvíslega.
NEFNDIN.
Aðalfundur
Tæknifélags íslands verður haldinn í Klúbbnum
við Lækjarteig þriðjudaginn 11. febrúar n.k.
kl. 20,30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Onnur mál.
STJÓRNIN.
Hafnfirðingar
Félagar óskast til stofnunar félags um rekstur 6 kiör
bíla sem staðsettir verða á verzlunartíma
við Arnarhraun, Hringbraut, Hvaleyr'arbraut,
Sundlaug, Norðurbraut, Strandgötu og
Garðahrepp.
Þeir sem áhuga hafa sendi nöfn og heimilisföng
til blaðsins fyrir 20. febrúar ’64 merkt: „6 bílar —
9980“.
SKOGRÆKTARFELAG REYKJAVIKUR
Frœðslukvöld
Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur fræðslufund
í Sigtúni, þriðjudaginn 11. febrúar (sprengidag),
kl. 8,30 síðdegis.
★ Guðmundur Marteinsson, form. félagsins
flytur ávarp.
★ Haukur Ragnarsson, tilraúnastjóri segir frá
ferð til Alaska og sýnir litskuggamyndir.
★ Frjálsar umræður að erindi loknu.
Aðgangur ókeypis. — Félagar og aðrir áhugamenn
um skógrækt velkomnir meðan húsrúm leyfir.
STJÓRNIN.
íbúðir óskast
Höfum kaupendur
að nýjum og nýlegum 2ja — 6 herb. íbúð-
um, einbýlishúsum og raðhúsum. —
Útb. frá kr. 250 — 850 þús. — Ennfremur
eldri íbúðum af öllum stærðum. —
Háar útborganir.
Gjörið svo vel og hafið samband við okkur
sem fyrst, ef þér ætlið að skipta fyrir
vorið. — Eignaskipti oft möguleg.
Einar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4. — Sími 16767.
Kvöldsími 35993.