Morgunblaðið - 11.02.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.02.1964, Blaðsíða 1
28 siður 51. árgangur 34. tbl. — Þriðjudagur 11. febrúar 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsins Forsætisráöherrar Bretlands og íslands ræðast viö á Keflavíkurvelli Sir Alec lét ekki uppi kosmngadaginn Home varð fyrir vonbrigðum af að 1 Bretlandi - Lady sjá ekki Surt FORSÆTISRÁÐHERRA Bretlands, Sir Alec Douglas Home kom til Keflavíkurflugvallar s.l. sunnudag á leið vest- ur um haf og var í fylgd með honum hið fríðasta föruneyti, þar á meðal Richard Butler, utanríkisráðherra Bretlands. Meðan ráðherrarnir stöldruðu við á Keflavíkurflugvelli, ræddu þeir við íslenzku ráðherrana, Bjarna Benediktsson, forsætisráðherra og Guðmund í. Guðmundsson, utanríkis- ráðherra, en auk þess áttu þeir stuttan fund með blaðamönn- um. Þar sagði Sir Alec að hann væri mjög ánægður með að vera komin til íslands og hitta íslenzku ráðherrana að máli. Hann ræddi nokkuð um tilgang farar sinnar og sagði að þeir Johnson, Bandaríkjaforseti mundu n.k. miðvikudag ræða þau vandamál, sem nú krefðust úrlausnar í heiminum. Þeg- ar hann var spurður að því, hvort hann héldi að takast mundi ©ð leiða Kýpurdeiluna til lykta, áður en langt um liði, svar- aði hann brosandi: „Við höfum gert það sem við höfum get- að.“ FRÉTTAMAÐUR Morgunblaðsins spurði Bjama Benediktsson, forsætisráðherra, hvað hann vildi segja um heimsókn Sir Alecs til íslands og viðræður þeirra ráðherranna. Forsætisráðherra svaraði: „Heimsóknin hingað var ráðin fyrirvaralaust og fengum við ekki vitneskju um hana fyrr en svo seint, að ekkert færi gafst á að undirbúa málefnalegar viðræður, enda engin sérstök ástæða til þeirra nú. Hins vegar spurðu brezku ráðherrarnir nokkuð um ís lenzka landshagi og reyndum við að leysa úr spurningum þeirra. Þá var rætt nokkuð um þau helztu vandamál sem efst eru á baugi í alþjóðasamskiptum og ástand og horfur í Bretlandi. Brezki forsætisráðherrann rifjaði upp ýmis kynni sín af þeim stjórnmálamönnum, sem hann hafði unnið með, og hafði ég gam- an af þeim frásögnum hans. Annars má segja, að hér hafi mest verið um að ræffa rabb um daginn og veginn, eins og þegar menn hittast á förnum vegi. Við minntum Brctana á aff þeir hefðu þegiff heimboff til íslands meffan íorseti íslands var úti og spurðu þeir, á hvaffa árstíma menn nytu bezt íslandsferðar. Þær ráffagerffir verffa aff sjálfsögffu mjög háffar því, hvenær kosningar fara fram í Bretlandi, og hver úrslit þeirra verffa. En um kosningadaginn lét Sir Alec ekkert uppi.“ að því að friður og öryggi ríktu þar áfram. Ennfremur benti hann að brezkar hersveitir vaeru á eyjunni samkvaemit ósk Kýpur- stjórnar. Svar Sir Alecs var ó- venju harðort og segja frétta- menn að það hafi verið samið og sent Krúsjeff á óvenju stutt- um tíma. Til Keflavíkur Flugvél Bretanna, sem var af gerðinni Comet 4, vax rennt upp að flugvallarhótelinu 15 mín- útum yfi.r sex síðdegis á sunnu- dag. Þ-á var mjög dimmt þar suð- urfrá, enda mugga og skyggni slærnt. Þegar flugvélin var kom- in á stæðið íyrir frarnan flug- vallarhótelið gengu íslenzku ráð- herrarnir og fylgdarlið þeirra að vélinni, þeir Bjarni Benedikts- son, fdrsætisráðherra, Guðmund- ur í. Guðmundsson, utanrikis- ráðherra, Agnar Klemenz Jóns- Framhald á bls. 15. Formóso slífui sljórnmúla- sumbundi við Frukku Taipei, 10. febr. (NTB) Stjórn Formósu ákvað í dag að slíta stjórn- málasambandi við Frakk- land, vegna þeirrar ráð- stöfunar frönsku stjórnar- innar á dögunum að viður- kenna Pekingstjórnina. Bretarnir voru alls 23 að tölu, þeirra á meðal Lady Home og frú Butler. í hópnum voru marg- ir helztu samstarfsmenn og sér- fræðin.gar ráðherranna beggja, blaðafulltrúi brezku ríkissjórnar innar, leynilögreglumenn frá Scotland Yard og ýmsir aðrir sem að venju taka þátt í slíkum ferðalögum. Áður en lengra er haldiö er vert að geta þess, að Kýpurdeil- an hefur verið hin erfiðasta við- fangs, frá því bardagar blossuðu upp aftur á eyjunni. í síðustu viku sakaði Krúsjeff, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, Vestur- veldin um að skipuleggja hern- aðarlega íhlutun í málefni Kýp- u.r og reyna að hindra að Mak- aríos erkibiskup legði Kýpur- iriiálið fyrir Öryggisráðið. Sendi hann Vesturveldunum orðsend- ingu þessa efnis. Kvað Krúsjeff éstandið á Kýpur geta leitt til átaka milli annarra þjóða og mmundu Sovétríkin ekki geta horft aðgerðalaus á slíka þróun. Sir Alec var fljótur að svara sovézka forsætisráðherranum. Það gerði hann strax á laugar- dagskvöldið og sagði m.a., að á- sökun Krúsjeffs um hern- aðairinnrás og hernám Vest- urveldanna á Kýpur væri (jain móðgandi og hún I væri ógrunduð.“ Sagði Sir Alec í svari sínu, að einasti tilgangur Breta á Kýpur væri sá að stuðla bir F > ■ Douglas Home, forsætisraffherra Breta, og Bjarni Benediktsson, forsætisráffherra, í flug- vallarhótelinu á Keflavíkurflugvelli. — Ljósm.: Gísli Gestsson. Ingólfur Jónsson í samtali við M orgunblaðið: „Kemur ekki ti Norðurlanda láti minnsta bróðurnum hugar, að ríkisstjórnir óánægju SAS bitna á Skyndifundur flugmálastjóra Norðurlanda 1 Stokkhóbni Morgunblaðið spurði Ing ólf Jónsson, flugmálaráð- herra, um það gærkveldi, hvað hann vildi segja um skyndifund þann, sem flug málastjórnir Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar hafa boðað til í Stokkbólmi vegna væntanlegrar far- gjaldalækkunar Loftleiða. Ráðherrann komst svo að orði: „Flugmálastjórar Norð- urlandanna þriggja hafa óskað eftir viðræðum við flugmálastjóra íslands. 1 tilefni af því stendur nú yfir fundur í Stokkhólmi, þar sem rædd er fargjalda- lækkun Loftleiða, sem á að ganga í gildi 1. apríl næstkomandi. Lítur út fyr ir, að SAS sé eitthvað hrætt við samkeppnina við Loftleiðir. Vitanlega geta Loftleið- ir ekki hopað og íslcnding ar munu ekki sætta sig við það, að lagður verði steinn í götu Loftleiða, eða sú að- staða, sem Loftleiðir hafa á Norðurlöndum sam- kvæmt samningum verði á nokkurn hátt skert. Þessi stóra flugfélagasamsteypa SAS, ætti ekki að gera eins mikið úr þessu máli og gert hefur verið, þótt Loftleiðir flytji nokkur þús und farþega yfir Atlants- haf til og frá Norðurlönd- um, um Reykjavík. Mér kemur ekki til hug- ar“, sagði Ingólfur Jóns- son, flugmálaráðherra að lokum, „að ríkisstjórnir Framh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.