Morgunblaðið - 09.04.1964, Side 6

Morgunblaðið - 09.04.1964, Side 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 9. apríl 1964 % ÚTVARP REYKJAVÍK FYRIR HÁDEGI á páskadag hlýddi ég á þróttmikla og heita messu hjá Óskari J. Þorláks- syni. Annars missti ég af heil- miklu þennan dag. Um kvöldið hlustaði ég á ritgerð Tryggva Emilssonar, í „17 ára keppninni". Nefndi hann hana: „Eyðibýlið var enn í byggð“. Var þar lýst einyrkjabúskap í einum af inn- dölum Eyjafjarðarsýslu á önd- verðri þessari ölá Raunsönn lýs- ing á persónulegri reynslu sveitapilts, reynslu, sem þús- undir íslendmga munu eiga sameiginlega í höfuðatriðum, þótt tilbrigði séu a'ð sjálfsögðu mörg. Tryggvi gerði sinni reynslu góð skii í svo stuttu máli. Á mánudagskvöldið setti Svavar Gests svip sinn á dag- skrána. Ekki kann ég við það hátterni Svavars að „sproksetja" menn svo mjög - sem hann gerir, ;| þegar hann er | að spyrja um uppruna þeirra og lífshlaup. Það er allt of mikill einstefnu akstur og „sýn- ing“ þar sem allir „brand- arar“ eru sagðir á kostna’ð þess, sem spurður er. Auðvitað sér Svavar ávalt til þess, að þetta er sakiaust grín, sem engan skaðar i neinu tilliti, að ég fái greint, þ. e. a. s. engan þeirra, sem spurðir eru, en ég held að þetta verki svolítið þreytandi á hlustendur, þegar til lengdar lætur. Svavar ætti að fara að æfa sig í að segja brandara annað slagið á eigin kostnað, því ekki vantar hann humorinn. Og þættir hans eru í heild ákaflega skemmtilegir, og svo var einnig að þessu sinni, enda hefur hann líka ágæta sam- starfsmenn. Á þriðjudagskvöldið var fram haldið „17 ára keppninni' og að þessu sinni var lesið tillegg Benjamíns Sigvaldasonar til keppninnar. Nefndi hann þáð „í hungursneyð*. Var þar lýst Íífskjörum, sem óþekkt eru nú hérlendis, sem betur fer en ýmsar þjóðir heims hafa ennþá talsvert af að segja. Það eru þau lífskjör, sem hungurvotf- an útmælir mönnum. Menn gera sér liklega ekki almennt grein fyrir því, að ekki eru liðin nema um 180 ár síðan fjórði hver íslendingur varð þeirri ófreskju að bráð. Astand ið var að vísu farið að lagast allmikið á þeim tíma, sem Benjamín fjallaði um, en þó mun það staðreynd, að talsvert fram á þessa öld hefur fólk búið við þröngan matarkost víða um land, þótt fæstir muni beinlínis hafa soltið. Hlustend- ur hafa gott af að hrökkva upp frá „ljúfum perluleik" nú- tímans og minnast þeirra tíma, er einstaklingar og fjölskyldur tókust á við hungurvofan í tví- sýnni baráttu fyrir lífi sínu. Hafi Benjamín þökk fyrir hugvekjuna. Þá var fram haldið á leikrit- inu „Oliver Twist“ og síðan hóf Eiður Guðnason lestur út- varpssögunnar „Sendiherra Norðurslóða“ eftir Le Bourdais, er fjallar um ferðir Vilhjálms Stefánssonar og er hin fróð- legasta. Á kvöldvökunni á miðviku- dagskvöldið hélt Helgi Hjörvar áfram lestri Víga Glúms sögu, en síðan flutti Gunnar Guð- mundsson frá Heiðarbrún í Holtum erindi: „Endalok þjóð- veldisins og uppreisn Rangæ- inga 1264“. Var erindið hið fróð legasta, fjallaði um þau örlaga- ríku ár, er ísland gekk Noregs- konungi á hönd og gekkst þar með undir það ok, er eigi létti næstu 600 árin. Segir hann þar meðal annars frá drápi „síð- asta Oddaverjans” 1264. Mér finnst, að útvarpið mætti gjarn an flytja meira en gert er af slíku sagnfræðilegu efni, kynna mönnum enn betur þætti úr sögu þjóðarinnar. Ég held, að slíkt sé mjög vinsælt meðal mikils hluta þjóðarinnar. Ég vil ekki staðhæfa, að allar álykt- anir Gunnars hatfi endilega verið háréttar, svo sem er hann taldi ísland sögualdarinnar „merkilegasta þjóðfélag í heimi“. Maður hefur svo sem heyrt þetta orðað svo fyrr, en sennilega hefur staðhæfing þessi hvergi festu nema í hug- arheimi stöku íslendinga. Svona óvísindalegar staðhæif- vegna ingar í sagnfræðilegum erind- um eru heldur til spillis. En sem sagt: meira af sagnfræði- legu efni. Líklega stendur þetta til bóta því seinna á kvöldvök- unni flutti Oscar Clausen, rit- höfundur, fróðlega frásögu um svonefnda Kríumál eða Stokksmál 1691. f 'í'~' Segir það frá spaugilegum málferlum er upphófust vegna íslenzks prests annars vegar og bættisgræðgi hégómaskap og einfeldni dansks valdsmanns hins vegar. Skyldi það ekki vera merkilegasta hugdetta í heimi þegar ofan- greindur prestur sendir Dana- drottningu bréf í á tréstokki, sem hann varpar í hafið og biður hana um fulltingi til að fá veitingu fyrir ákveðnu brauði. En Oscar Clausen er allra manna lagnastur að draga sérkennilegar persónur fram á sjónarsviðið, sem hafa þó sann- fræðilegar heimildir sér að bakhjarli. Prestasögur hans margar eru meistaraverk, sem munu verða langlífar í bók- menntum okkar. Á fimmtudagskvöld flutti Hákon Guðmundsson hæsta- réttarritari þáttinn „Af vett- vangi dómsmálanna". Ræddi hann um forráðarétt yfir börn- um og skaðabótamál. Þættir Há- kons eru yfirleitt hinir fróð- legustu, skipulega framsettir og af frásagnargleði. Kannske er það úr lausu lofti gripið, en ég hefi einhvern óljósan grun um, að fólk notfæri sér ekki sem skyldi þann fróðleik, sem þátt- ur þessi veitir. Hæstiréttur hefur stundum verið gagnrýnd- ur fyrir sína úrskurði, enda orka úrskurðir flestra dóm- stóla tvímælis á stundum. En þarna er gullið tækifæri fyrir menn að kynnast því hvernig Hæstiréttur starfar, og hvernig hann metur og vegur rök hvers máls, áður en hann kveður upp úrskru-ð. Líklega sættu menn almennt minna baknagi og rógburður væri ekki jafn- arðsamur atvinnurekstur, ef menn temdu sér að meta og vega meðrök og mótrök á svo nákvæman hátt, þegar menn kveða upp dóma yfir meðbræðr um sínum. Þetta kvöld flutti Friðjón Stefánsson, rithöfundur, prýði- legt erindi eftir Þorstein Stef- ánsson rithöfund (bróður sinn) um danska ærvintýraskáldið H. C. Andersen. Því næst sá Ingólfur Kristjánsson rithöf- undur um þáttinn „Raddir skálda". Var hann helgaður Kristjáni Einarssyni skáldi frá Djúpalæk og Birni Ólafi Páls- syni rithöfundi. Var þetta ágætur þáttur að vanda. Sér- staklega þóttu mér hugnæm- ar ástalífslýsingar Bjöms Páls- sonar úr bókinni „Hjá Búa- steinum". Ýmsir rithöfundar gætu af því lært, hvernig hægt er að fjalla um duldustu helgi- dóma ástarlífsins á nákvæman Á þönum Kunningi minn, sem er að fara til nokkurra ára dvalar er lendis, leit inn til mín í gær og var súr á svipinn. Hann var bú- inn að eyða hálfum öðrum tíma í að endurnýja vegabréf og öku skírteini — og honum hafði enn ekki orðið neitt ágengt. Ég fór í afgreiðsluna á Lög- reglustöðinni til að fá vegabréf- ið afgreitt og var sagt að fara og fá vottorð hjá Gjaldheimt- unni í Tryggvagötu, sagði hann. Ég fór þangað — og var sagt að fara á Skattstofuna og láta leggja á mig í flýti úr því að ég væri að fara til langdvalar. Síðan á ég að koma með seð- ilinn frá Skattstofunni í Gjald- heimtuna og fá þar vottorð til að fara með til Lögreglunnar. Ég er viss um að þeir biðja um eitt plaggið í viðbót, þegar þetta verður loks komið í kring, sagði hann. Fleiri plögg Og ökuskírteinið. Til þess að fá það endurnýjað verð ég að sitja á biðstofu hjá augnlækni til þess að fá vottorð, verð að ná í sakavottorð að Hverfisgötu 6 — og fara á ljósmyndastofu til myndatöku. Koma með tvær myndir. Og til þess að fá al- þjóða ökuskírteini verð ég að koma með eina mynd í viðbót og fá eitthvert plagg á skrif- stofu FÍB við Bolholt. Hann sagði, að þetta væri að- eins brot af öllum þeim sendi- ferðum.sem hann þyrfti að fara til þess að fá öll sín skilríki afgreidd. Samkvæmt erlendri fyrirmynd? Þetta er sennilega ágætt dæmi um það hvernig skrif- finnskan stelur tímanum frá fólki nú á dögum. Hve margar vinnustundir ætli fari daglega í hlaup á milli skrifstofa og stofnana eftir skilríkjum og plöggum — jafnvel í okkar litla þjóðfélagi? Og alltaf verður þetta flóknara og flóknara. Annars hljóta að vera tak- mörk fyrir því hve hægt er að senda menn á milli margra stofnana og skrifstofa vegna einföldustu útréttinga. Bágt á ég með að trúa, að Bandaríkja- maður, sem þarf að fá vega- bréf sitt fullgilt, sé látinn hlaupa um þvera og endilanga Manhattan — eða að slíkt ger- ist í London eða öðrum Evrópu borgum. Einhver kann að segja, að þetta sé ekki sambærilegt. En ef hægt er að hafa skipu- lag á slíkum hlutum meðal milljónaþjóða, hví skyldi það ekki vera hægt hjá okkur hér — fáeinum hræðum? Væri ekki hægt að hafa þetta „samkvæmt erlendri fyrirmynd?" Fyrirgreiðsla Við getum tekið ökuskírtein- ið sem dæmi. Auðvitað ætti að vera aðstaða til skyndimynda- töku þar, sem ökuskírteini eru afgreidd, í jafnstórum bæ og Reykjavík er annars. Þar ætti augnlæknir líka að vera til viðtals eina, tvær stundir á dag. Og ef menn leggðu um- sókn um alþjóða ökuskírteini fram með nokkurra daga fyrir- vara, þá ætti viðkomandi skrif- stofa að útvega nauðsynleg plögg. Slíkt gæti gengig sjálf- krafa, þyrfti ekki að taka lög- regluna langan tíma: Skrifa nafn umsækjanda á spjald, sem útbúið yrði í þessu skyni, og stinga því í póst. Og hvað snert ir FÍB í þessu tilefni: Þangað þarf að sækja alþjóðaskírteinið. Það eina sem FÍB gerir, er, að skrifa nafn umsækjanda á plaggið og innheimta gjald fyr ir. Hví getur FÍB ekki sent þetta plagg niður á lögreglu- stöð umsækjanda til hagræðis. Og svo fær FÍB sína þóknun í pósti. Eða getur lögreglan ekki gef- og „nærgongulan“ hátt, án þess að hreifa grófu orði. Á föstudagskvöldið fluttu þeir Björgvin Guðmundsson og Tómas Karlsson þáttinn „Efst á baugi“ en hann hefur náð miklum vinsældum og ekki að ástæðulausu, því þetta er ljóm- andi góður fréttaþáttur og með skemmtilegu sniði. Hann kemur að nokkru í stað þáttanna „Frá útlöndum“, sem þeir Axel Thorsteinsson og Jón Magnús- son gerðu svo vinsæla á stríðs- árunum. Slíkir yfirlitsþættir yfir erlenda viðburði eru bæði fróðlegir og skemmtilegir. Ætli það væri útilokað að gera inn- lendu fréttaefni sambærileg skil? Sama kvöld flutti séra Pétur Magnússon erindi, sem hann nefndi: „Áhrif negralaganna á menninguna“. Taldi séra Pétur, að hin svonefndu „negralög1* vofðu eins og Damoklesar- sverð yfir and- legri velferð og siðmenningu hvíta kynstofns- ins. Skrambi er hún eitthvað viðkvæm og opin fyrir hin- um annarleg- ustu hæ.ttum hin rómaða menn- ing okkar hvítmenninga. Hún minnir á óvita barn, sem alltaf þarf að vera að passa að hlaupi ekki fyrir bíl. Pétur lét illa af mönnum, sem hæfu dömur sín- ar í dansi upp I axlarhæð eða meira og viðhefðu hin klúrleg- ustu látbrögð. Kenndi hann þetta að miklu leyti „negralög um“. Ekki kann ég við þá siðvenju margra að vera ávalt Framhald á bls. 14. ið út alþjóðaökuskírteini alveg eins og það íslenzka? Mætti lengi telja Þetta er aðeins smádæmi — og ýmsum finnst það e.t.v. ekki veigamikið. En þannig er þetta í stóru sem smáu. Ég tala nú ekki um, ef menn eru að byggja hús, kaupa hús eða selja. Því- lík hlaup um bæinn þveran og endilangan. Hve margar vinnu- stundir ætli fari forgörðum í slíka vitleysu, hve mikið benzin hve mikið slit á bilum? Þannig mætti lengi telja. Þá er það síldin Ég sá hér í blaðinu í fyrradag að þeir spá góðri síld í sumar. Vonandi rætist spáin. Þá geta menn byrjað að veðja og leggja undir. Annars hefur verið land- burður af þorski hér syðra und- anfarna daga og mér finnst það ekki síður merkilegt en góð síld veiði ag sumrinu. En blöðin minnast rétt stöku sinnum á þor9kinn. Ef landburður væri af síld í Vestmannaeyjum ætl- aði allt af göflunum að ganga — og Surtur mundi gleymast með öllu. Fólk gleypir við síld- arfréttunum og hárin rísa á höfði þess þegar minnzt er á síld. — En þegar þorskurinn kemur á land í þúsundum tonna, þá halda menn á fram að ræða um veðrið og út- varpsdagskrána. Ef Keflavíkur- sjónvarpið gerði út einhverja kollu til síldveiða er ég viss um að jafnvel þessir 60 fengju sér sjónvarpsökutæki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.