Morgunblaðið - 09.04.1964, Side 12
12
I
Fimmtudagur 9. apríl 1964
M0FLGUN6LAÐIÐ
i
Kristinn Jónsson
klæðskeri — Minning
Fæddur 7. júní 188G
Dáinn 2. apiii 1964
ÉG er einn af þeim mörgu, sem
íengu að kynnast þér og njóta
vináttu þinnar, og vil nú með
þessum fáu og fátæklegu orðum
senda þér mína hinztu kveðju.
Við vorum tveir skólapiltar ut
an af landi, sem leigðum her-
bergi í húsi handan við götuna.
Þaðan giátum við séð þig við
vinnu þína. Okkar fyrstu kynni
af þér voru þau, að við fengum
að nota símann hjá þór. Bkki
grunaði okkur þá, að á eftir
fylgdi ævilöng vinátta, þar sem
við vorum þiggjendur frekar en
veitendur. Og þeir munu ekki
vera fáir, sem geta sagt það sama
og við, að betri manni og félaga
höfum við ekki kynnst. f>ó að á
okkur væri nærri fjörutíu ára
aldursmunur skipti það ekki
máli, því þú varst alyltaf svo ung
ur á sál og líkarna, enda er ég
viss um, að þú kunnir hvergi
betur við þig, en í félagsskap
ungra, hraustra manna á fjöll-
um uppi, enda munu skíðamenn
bæjarins, og þá sérstaklega eldri
Ármenningar, minnast þín fyrir
þína glaðværð og góða skap. Og
alltaf varstu boðinn og búinn að
rétta þeim hjálparhönd, ef með
þurfti.
Annað var það, sem lýsti lund
þinni vel. I>að var áhugi þinn á
blómum. Öll blóm lifnuðu og
döfnuðu hjá þér, eins og fyrir
töfrásprota væri, Og ég er sann-
færður um, að þér leið vel síð-
ustu stundir þínar hér hjá okkur,
þar sem þú varst, á sólbjörtum
vormorgni, að hlúa að blómum
í garðinum fyrir utan húsið þitt,
þar sem þér leið svo vel.
Far vel, vinur, og þökk fyrir
allt. Hvíl í friði.
hvs.
OKKUR bregður misjafnlega við
þegar við fréttum um lát vina
okkar, en þegar ég frétti um lát
Kristins Jónssonar, fanns-t mér
sem ég væri lostinn höggi. Hann
hafði fallið niður skyndilega, þar
sem hann var að hlúa að blóm-
um í garðinum sínum. Þegar ég
svo jafnaði mig, þá á ég, að þessi
lífsglaði vinur minn gat ekki skil
ið við jarðlífið á betri máta en
þann, að dauðinn iar að á stund
inni.
Þessi fáu orð sem ég skrifa hér,
er örlítil kveðja frá mér og mörg
um öðrum vinum hans, sem höf-
um þekkt hann síðastliðin rúm
30 ár, en Kristinn var í mörg
ár starfandi félagi í Skíðadeild
Ármanns í Jósefsdal, og vann sér
þar hylli allra þeirra sem hon-
um kynntust, bæði fyrir Ijúf-
mennsku alla og hjálpsemi í hví-
vetna. Um margra ára bil var
heimili hans næstum sem annað
heimili margra ungra vina hans,
og ég má fullyrða, að hans beztu
stundir voru í félagsskap hinnar
ungu kynslóðar, enda fannst hon
um sjálfur vera yngstur allra,
þótt elztur væri.
Eftir að Kristinn flutti í hús
sitt við Grettisgötuna, sem hann
bjó í hin síðustu árin, undi hann
hag sínum svo vel, að honum
fannst oft að hann væri alsæll.
Ilans beztu stundir voru sem áð-
ur í vinahópi, og við að hlúa að
blómum í garðinum sínum. Mað-
ur með slíku hugarfari sem Krist
inn, hlýtur að vera velkominn
hinum megin, og honum fylgja
hjartkærar kveðjur hinna mörgu
vina hans.
Ólafur Þorsteinsson.
Stúlkur
Óskum eftir að ráða stúlku við
fatapressun og ýmis störf.
Laugavegi 178. — Sími 33542.
Skrifstofustarf
Ungur maður óskast nú þegar á skrifstofu vora.
Um framtíðaratvinnu er að ræða við nýjustu skrif-
stofutækni. Upplýsingar á skrifstofu vorri, Skúla-
götu 59, sími 20360.
Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar.
S krifs tofus tarf
Stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða stúlku
til skrifstofustarfa (vélritun og bókhaid) nú þegar
eða síðar. Vélritunarkunnátta og nokkur þekking
í bókhaldi, ensku og dönsku nauðsynleg. Um-
sóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf
sendist á afgreiðslu Morgunblaðsins merkt:
„Skrifstofustarf — 9516“.
Fermmgar kápur Heilsárs kápur NV T T
Apaskinns- jakkar Stretch buxur
Tízkuskemman Blússur Peysur Undirfatnaður
Hádegisfundurinn
er á morgun, föstudag kl. 12.15, á Sögu.
Dr. Max Kjær-Hansen, prófessor, flytur erindi
um framtíðarvandamál stórsölunnar.
Þátttaka óskast tilkynnt fyrir hádegi í dag.
FÉLAG ÍSLENZKRA IÐNREKENDA.
FÉLAG ÍSLENZKRA STÓRKAUPMANNA,
VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS.
KVENBOMSUR
Hinar vinsælu ensku
kvenbomsur, með einum
og tveimur hnöppum
komnar aftur.
Litur: Svartur.
Skóverzlun
Péturs Andréssonar
Laugavegi 17 — Framnesvegi 2.
íbúð til leigu
Nýleg 4ra herbergja íbúð í Heimahverfi til leigu.
Laus í byrjun maí.
Upplýsingar í síma 37080 kl. 7—8 e.h.
Sjómaður
Sjómann vantar á góðan netabát í Vestmanna-
eyjum. — Hátt kaup í boði.
Upplýsingar í síma 1394, 2273 eða 1481.
VANDIÐ VALIÐ -VELJIÐ VOLVO
Það er alltaf vandasamt að velja sér bifreið,
— en þó sérstaklega hér á landi, þar sem
veðurfar og vegir virðast ekki sem heppi-
legastir fyrir margar tegundir bifreiða. —
VOLVO er sérstakega byggður fyrir mal-
arvegi og erfitt veðurfar.
Komið og kynnið yður hinar ýmsu gerðir
af Volvo.
Þér getið valið um:
★ Amazon og P-544.
★ 3ja, 4ra hraða samstilltan gírkassa.
★ Fullkomna sjálfskiptingu.
Læst mismunadrif.
2ja og 4ra dyra bifreiðir.
VANDIÐ VALIÐ — VELJIÐ VOLVO.
f
SUBURLAMDSBRAUT 16 • REVKJAVÍK • SIMI 3520B