Morgunblaðið - 29.04.1964, Síða 28
l&ug'&vegi 26 8Jmi 206 70
96. tbl. — MiSvikudagur 29. apríl 1964
VORUR
★ ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★■*
BRAGÐAST BEZT
Tveir ntenn játa
líkamsárás og rán
EINS og skýrt hefur verið frá
í frétum fannst maður liggjandi
rænulaus á Flugvallarvegi að-
faranótt laugardags, og lék grun
Játaði á sig
sex innbrot
FYRIR nokkru gaf sig fram á
lögreglustöðinni í Reykjavík
maður nokkur og játaði að vera
valdur af innbrotum í Reykja-
vik og nágrenni. Fékk rannsókn-
arlögreglan mál hans til með-
ferðar, og að því er Mbl. var
tjáð í gær hefur maðurinn með-'
gengið innbrot í Hressingarskál-
ann, Radiover, Skólavörðustig 8,
Trésmiðju Austurbæjar, Tóna-
bió, Verzlun Nonna og Bubba
í Sandgerði og hús, sem nefnt
er Skýlið í Sandgerði en þar
hafa aðsetur sitt rafveitan og
lögregluþjónn staðarins. Mestu
var stolið í Radioveri, en þaðan
hurfu 11 útvarpstæki. Atta
þeirra eru komin til skila en
svo virðist sem þrjú hafi hrein-
lega týnst. — Maðurinn greindi
einnig frá því að annar maður
hefði verið í vitorði með sér í
einhverju af innbrotum þessum.
Hefur sá maður náðzt og játað
brot sin. — Sjaldgæft er að
menn gefi sig fram að fyrra
bragði og játi á sig innbrot, en
þó er slíkt ekki einsdæmi, segir
rannsóknarlögreglan.
ur á að hann hefði verið barinn
í óvit og rændur. Á mánudaginn
handtók rannsókn ar lögreg'l a n
mann nokkurn, og í gær annan,
en menn þessir voru bograndi
yfir hinum slasaða er bílstjóra
bar að, en hurfu síðan á braut
Annar þessara manna hefur nú
viðurkennt að hafa slegið mann-
inn niður og hinn hefur játað að
hafa rænt liðlega 1500 krónum
úr veski hans.
Árásarmennirnir tveir þekktu
ekkert til þess, sem fyrir barð-
inu á þeirn varð Höfðu þeir
hitzt þarna og lenti brátt í orða
skaki, enda allir undir áhfifum
áfengis.
Árásarmennirnir tveir sitja nú
í gæzluvarðhaldi Báðir hafa þeir
komizt í kast við lögin áður_
Lnndburður nf
fiski d Akrnnesi
Akranesi, 28. apríl.
BÆJARBÚAR urðu allir að eyr
um er þeim var tilkynnt, meðán
þeir voru að gleypa í sig litla
skattinn, að fimm nótabátar
hefðu komið inn í morgun með
samtals um 170 tonn. Mestan
fisk hafði Höfrungur III 70 tonn,
Sigurður 39 tonn, Höfrungur II
35 tonn og Heimaskagi 25 tonn.
Afli var mjög tregur í þorska-
netin í gær. — Oddur.
Á MYNDINNI er frú Ragn-
heiður Þorgilsdóttir ásamt
syni sínum, Ara Jökulssyni,
sem hún bjargaði frá drukkn-
nn í fyrradag, svo sem skýrt
var frá í Mbl. í gær. Hafði
snáðinn, sem er aðeins 2 ára
gamall, fallið í sjóinn við
sjávarkamb undan heimili
sínu, og náði móðir hans að
bjarga honum á síðustu
stundu. Er fréttamaður Mbl.
á ísafirði kom að Aðalstræúi
11 í gær, var drengurinn hinn
hressasti, og virðist honum
ekki hafa orðið meint af. Um
volkið vildi hann ekki annað
segja en: „Óinn, óinn“ — en
þess ber að gæta að vér er-
um 'aðeins tveggja ára.
(Ljósm. Mbl.: H.T.)
9 útlendingar gista
Surtsey í 2 tjöldum
Landganga gekk vel i gær
Þetta lamb sá dagsins Ijós í ■
fyrsta sinn í gærmorgun úti
í Örfirisey. Nokkrum klukku
stundum siðar bar ljósmynd- i
ara Mbl. að garði, og var
lambið sett út í sólarylinn
andartak, meðan nokkrar
myndir voru teknar Ekki var
lambið þó orðið dús við ver-
öldina og umhverfið, sem
eðlilegt var, og var það held-
ur óstöðugt og reikult í spori.
Það lagast þó vafalaust brátt.
(Ljósm. Mbi. Ól. K M.).'|
Vestmannaeyjum 28 apríl.
í MORGUN lagði vélbáturinn
Haraldur enn í Surtseyjarleið-
angur, að þessu sinni með leið-
angur níu útlendinga, sem sett
hafa upp tvö tjöld í Surtsey og
hugðust dvelja þar í nótt. Hér
er um að ræða útlendinga, sem
unnið hafa i Vestmannaeyjum í
vetur, og hafa þeir undirbúið
leiðangurinn vel og lengi. Lætur
nærri að menn af níu þjóðern-
um gisti nú Surtsey. Þarna eru
m.a. á ferð Bandaríikjamaður,
Skoti, íri og Marokkóbúi svo
eitthvað sé nefnt.
Leiðangur þessi var míiög vel
útbúinn, með tvö tjöld, vatn,
vistir og allan viðleguútbúnað.
Ráðgert er að leiðangurinn verði
sóttur til Surtseyjar á morgun,
en vistir hefur hann til nokk-
Urra daga dvalar, ef útaf skyldi
bera með veður.
Mæla með
draonótaleyfi
ISAFIRÐI, 28. apríl. — Bæj-
arstjórn ísafjarðar hefur ný-
lega samþykkt að mæla með
því að leyfðar verði dragnóta
veiðar á • svæðinu Snæfellsnes
Látrabjarg, eða á takmarkaða
svæðinu á þessu ári á tíma-
bilinu 15. júní til 31. október.
Landtaka fór fram um eitt-
leytið í dag, og gekk hún að ósk-
um að sögn skipstjórans á Har-
aldi Minntust menn fyrri leið-
angra í eyna, og gerðu því leið-
angursmenn allt að einu ráð fyrir
því að blotna, svo þeir voru á
stuttbuxum við landgönguna, en
höfðu hlífðarföt í vatssheldum
umbúðum með Létu þeir bátinn
damla við fjöruna við eyna norð
anverða, en hlupu síðan í land og
selfluttu útbúnað sinn.
Er Haraldur hélt frá í dag
hafði þessi kynlega samsetti leið
angur reist tjöldin tvö norðantil
á eynni og virtist allt leika í
lyndi.
UM hálf sjöleytið í gærkvöldi
varð umferðarslys í Keflavík, á
mótum Faxabrautar og Hring-
brautar. Þar varð 6 ára telpa,
Sigríður Birna Sigurhansdóttir,
Faxabraut 31A, fyrir bíl með
þeim afleiðingum að hún við-
beinsbrotnaði og slasaðist á
höfði.
Nánari atvik voru þau að
Ekiö
á dreng
LAUST fyrir kl. hálfniu í gær-
kvöldi varð 7 ára drengur, Sig-
urður Grétar Sigurðsson, Réttar-
holtsvegi 57, fyrir bíl á mótum
Réttarholtsvegar og Bústaðaveg-
ar. Sigurður slasaðist á höfði og
var fluttur í slysavarðstofuna. —■
Mbl. tókst ekki að afla sér nán-
ari upplýsinga um meiðsli Sig-
urðar i gærkvöldi.
börn voru þarna að leik á göt-
unni. Mun Sigríður Birna hafa
hlaupið skyndilega fyrir bíiinn
sem þarna bar að, með fyrr-
greind afleiðingum.
Lögreglan kom þegar á stað-
inn, og reyndist ökumaður um-
rædds bíls vera kvenmaður um
tvítugt, ökuréttindalaus. Hefur
hún aldrei lokið ökuprófi.
Ökuréttindalaus
kona veldur slysi
Sameiginleg hátíðahöld
verkalýðs í Rvík 1. maí
FULLTRÚARÁÐ verkalýðsfélag-
anna i Reykjavik gengst fyrir
hátiðahöldum hér í borg hinn
fyrsta maí Ráðið kaus sex
manna nefnd til þess að vinna
að undirbúningi hátíðahaldanna,
og hefur náðst samkomulag i öll
um meginatriðum um tilhögun
hátiðahaldanna og samningu
„Ávarps dagsins“ Ráðið skipa:
Eðvarð Sigurðsson, Guðjón Jóns
son, Guðjón Sigurðsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Jóna
Guðjónsdóttir og Óskar Hall-
grímsson.
Eins og kunnugt er ræður Full
trúaráð verkalýðsfélaganna á
hverjum stað á landinu tilihög-
un 1. maí-hátíðahaldanna. Undan
farin ár hafa kommúnistar klofið
einingu verkamanna hér í Reykja
vík, o.g er það því reykvískum
verkalýð sérstakt fagnaðarefni,
að samikomulag skuli nóst nú.
Lklegt má telja, að fundar-
stjóri á útiíundi verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík 1 maí verði
formaður Fulltrúaráðs verkalýðs
félaganna í Reykjavík, Óskar
Hallgrímsson, formaður Félags
íslenzkra rafvirkja, en ræðu-
menn verði Jón Sigurðsson, íor
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur, og Eðvarð Sigurðsson, for
maður Verkamannafélagsins
Dagsbiúnar.