Morgunblaðið - 21.05.1964, Síða 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. maí 1964
Sinfóníuhljómsveitin
hefur haldiö 32
hljómleika á starfs-
árinu
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
heldur 16. tónlcika sína í kvöld í
Háskólabíói. Á efnisskránni eru
verk eftir Jón Leifs, Schumann
og Tsjaikowsky. Einleikari með
hljómsveitinni verður ungur
bandariskur píanóleikari, James
IVIathis að nafni. Stjórnandi verð-
ur Igor Buketoff.
Gunnar Guðmundsson, fram
Jumes Mathis
kvæmdastjóri hljómsveitarinnar,
skýrði blaðamönnum frá því í
gær, að með hljómleikunum í
kvöld hefði hljómsveitin haldið
alls 32 hljómleika á þessu starfs-
ári, 19 reglulega hljómleika, eina
óperuhljómleika, 9 æskulýðs-
hljómleika, eina barnahljómleika
og hljómleika á Selfossi og í
Keflavík.
Gunnar kvað næstu hljómleika
verða 4. júní, en þá yrðu á efnis-
skránni tveir píanókonsertar, eft-
ir Bach og Beethoven, og væri
það í fyrsta skipti sem tveir slík-
ir hafi verið fluttir hér á sömu
hljómleikum. Einleikari verður
þá Vladimir Askenazi hinn rúss-
neski.
Á hljómleikunum í kvöld
verða flutt tilbrigði Jóns Leifs við
stef eftir Beethoven, konsert fyr-
ir píanó og hljómsveit í a-moll,
op. 54 eftir Robert Schumann og
sinfónía nr. 5 í e-moll op. 64 eftir
Peter Tsjaikowsky.
Hljómsveitarstjórinn Igor Buke
toff sagði blaðamönnum frá því
að hljómsveitarpallarnir í Há-
skólabíói hefðu verið færðir fram
til að fá hljóminn betur fram í
salinn og hefði þetta gefið góða
raun. Hljómburðurinn hefði batn
að til muna og næst yrði reynt
að breyta staðsetningu hljóðfær-
4
CRD RIKISINS
M.s. Skjaldbreið
fer vestur um land til ísa-
fjarðar 23. þ.m. Vörumóttaka
í dag til Ólafsfjarðar, Grundar
fjarðar, Stykkishólms, Patreks
fjarðar, Sveinseyrar, Bíldu-
dals, Þingeyrar, Flateyrar,
Suðureyrar, og ísafjarðar. —
Farseðlar seldir á föstudag.
anna til að bæta hljómburðinn
enn meir.
Buketoff sagði, að hann vildi
gjarnan koma aftur næsta haust
til að stjórna sinfóníuhljómsveit-
inni, en þetta væri ekki ráðið
enn, þar sem hann væri tíma-
bundinn heima, en nú væri i at-
hugun hvort ekki væri hægt að
hliðra til með það.
Píanóleikarinn James Mathis
er fæddur í Texas í Bandaríkjun-
um árið 1938 og er talinn meðal
frems.tu píanóleikara af yngri
kynslóðinni í Bandaríkjunum.
Nám stundaði hann við Juilliard-
tónlistarskólann og voru kennar-
ar hans Olga Samaroff, Roslyn
Tureck og Rosina Lhevinne. —
Frekara nám í píanóleik stund-
aði hann í Evrópu hjá Carlo
Zecchi og Ilona Kabos. Árið 1962
lék Mathis í fyrsta sinn í Carne-
gie Hall í New York og hlaut þá
afburðagóða dóma fyrir píanó-
leik sinn. Hann hefur ferðazt víða
um Bandaríkin og Evrópu og
haldið sjálfstæða tónleika eða
leikið með hljómsveitum og hvar-
vetna hlotið hið mesta lof gagn-"
rýnenda. James Mathis hefur unn
ið til verðlauna í mörgum tón-
listarkeppnum, meðal annars hjá
tónlistarklúbbasambandi Banda-
ríkjanna árið 1962, Chopin-verð-
laun Kosciuszko-stofnunarinnar,
1. verðlaun i alþjóðakeppni píanó
leikara í Múnchen og 2. verðlaun
í svonefndri Busoni-samkeppni á
Ítalíu. Mathis er Fulbright styrk-
þegi.
Hingað kemur Mathis frá
Bandaríkjunum á leið til Evrópu,
þar sem hann mun halda fjöl-
marga tónleika.
= Þeir félagar eru kátir við komuna til Esbjerg. Frá vinstri: K. V. Nielsen, Undén og Mortenseny
I Ekkert gott senditæki fyrir i
| skipbrotsmenn í gúmbátum j
EINS OG Þórarinn Björnsson
skipherra skýrði frá í grein
hér í blaðinu nýlega hafa
Danir verið að gera tilraunir
með dvöl manna í gúmmíbát
um á hafi úti og rannsakað
hvernig þeim tækist að ná
sambandi við umheiminn með
ýmsum talstöðvum og hvern
ig þeim tækist að lifa á þeirri
fæðu er skipbrotsmönnum er
ætluð á hrakningi í gúmbát.
Þrír yfirmenn úr danska
flotanum tóku þátt í tilraun
þessari J. E. Undén, S. Mort-
ensen og K. V. Nielsen.
Þeir félagar voru 6 daga i
gúmmbát úti á Norðursjó. í
nokkurri fjarlægð fylgdist
herskipið Daphne með þeim.
Þeir höfðu allmargar gerðir
loftskeytatækja með sér og
eitt af meginatriðum tilraun-
arinnar var að kanna hvernig
flugvélum tækist að miða sig
í sambandi við skipbrotsmenn
í gúmbát.
Þeir félagar telja að ekk-
ert þeirra senditækja, sem
þeir höfðu, sé hæft fyrir
skipbrotsmenn í gúmbátum
og aðeins einni flugvél tókst
að ná sendingum frá þeim í
90 sjómílna fjarlægð og 10
þús. feta hæ?S. SAS hafði ósk
að eftir að fylgjast með þess
ari tilraun og reyndu flugvél-
ar þess að miða gúmbátinn,
en tókst ekki. Þak bátsins ein
angrar sendingar.
Þeim félögum var ætlað að
neyta 100 gramma af kandís
daglega og 30 gramma af
vatni. Hafði þeim verið ætluð
500 gr. af kandís fyrir dvöl-
ina, en þeim tókst aðeins að
neyta 150 gramma.
— Þeir hafa ekki lifað í
þessi sex dægur, aðeins verið
til, sagði Henry Karstoft
læknir, sem rannsakaði þá fé
laga, er tilrauninni var lokið.
Samanlagt lögðu þremenn-
ingarnir af um 18 kg., Undén
4, Mortensen 6 og Nielsen 8
kg., meðan á tilrauninni stóð.
iiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmi
Hvað á að gera?
Einn þeirra, sem stunda kapp
reiðar Fáks kvartar yfir því,
að menn greiði þar háan að-
gamgseyri en sjái ekki neitt.
Segir hann í bréfi, að áhorf-
endasvæði vallarins hafi verið
ónot'hæft um margra ára skeið,
jafnvel þeir, sem fremstu stæð
in fái, sjái ekki neitt, því strák
ar setjist venjulega á girðimg-
una, sem aðskilur áhorfendur
og hlaupabrautina. Lögreglan
reki strákana frá, en þeir síð-
arnefndu fari aftur upp á girð
inguna strax og lögreglan er
komin fram hjá. Upphækkuðu
pallarnir séu til einskis nýtir,
ekki sé hægt að bjóða áhorf-
endum þetta lengur. Fólk fari
að hætta að ómaka sig til þess
að horfa á kappreiðar.
Þetta segir bréfritari. Sjálf-
ur hef éig engan áhuga á kapp
reiðum og hef aldrei farið til
að horfa á svo að ég ætla ekki
að leggja neinn dóm á ástand-
ið. Maðurinn virðist aðeins
eiga um þrennt að velja: Fara
upp á girðinguna eins og strák
arnir, ganga, í lögregluna og fá
þá tækifæri til að standa fyrir
framan strákana — eða að kom
ast í stjórn Fáks og fá ókeyp-
is aðlgang að kappreiðunum.
Fákur bætir áreiðanlega ekki
aðstöðu áhorfenda á meðan ein
hverjir fást til að borga að-
gangseyri fyrir að sjá ekki
neitt — og þeir, sem á annað
borð eru með hestadellu, fara
á kappreiðar hvort sem þeir
sjá eitt'hvað eða ekki.
Allt kostar peninga
Jónas stýrimaður, sem nú er
fasteignasali og ráðið hefur Ei-
rík Kristófersson í sína þjón-
ustu, hringdi í mig í gær — þó
ekki til að reyna að selja hús.
Hann sagðist ætla að leggja
fyrir mig eina spurnimgu og
var engu líkara en hann teldi,
að Velvakandi ætti svör við
öllu: ,,Hver á Akrafjall?“
spurði hann. Mér datt helzt í
hug að hann hefði kaupanda
að fjallinu og ég sagðist halda
að Guð ætti það eins og allt
annað. Jónas sagðist vera sömu
skoðunar, en samt auglýstu
bændur þar efra að bannað
væri að ganga á Akrafjall
vegna þess að gönguigarpar
mundu styggja sauðfé. Hins
vegar styggðist það ekki, ef
menn greiddu viðkomandi
bónda hundrað krónur fyrir að
klöngrast í hlíðum fja'llsins.
Sennilega er Jónas einn af
þeim, sem farinn er að ganga
sér til heilsubótar og lamglífis
— og finnst ekki nógu frumlegt
að ganga inn í Sundlaugar eða
upp að Árbæ, eins og aðrir. Nú
9- _io
,1 'C-' rt
ætlar hann að ráðast á Akra-
fjall.
Það er ekkert óeðlilegt þótt
sauðfé styggist við slíkar gesta
komur og mér þætti ekki mikið
að borga því hundrað krónur
fyrir að slappa af, ef ág væri
sannfærður um að hundrað
krónu gönguferð þar efra
lengdi lif mitt um nokkur ár.
En Jónas sagðist líka vera far
inn að spyrja sjálfan sig hve
mikið hann þyrfti að borga
landeigendum þarna fyrir að
horfa á Akrafjall. Hann sagðist
óttast að skuldin væri orðin há,
því eldhúsglugginn hans snéri
í norður. Hann sagðist þurfa
að fá sér rúllugardínu.
Sálmar
Og svo er hér bréf frá Guð-
mundi Kr. Guðmundssyni, sem
mælir með því að dagblöðin,
sem birta messutilkynningiar,
segi jafnframt frá númeri sálm
anna, sem sungnir verða. Segir
hann Akureyrarblöðin gera
þetta — og sú þjónusta sé vin-
sæl nyrðra. — Er þessum til-
mælum hér með komið á fram-
færi og sakaði sjálfsagt ekkert
að reyna þetta.
’J=
'Tó.C 1 j
*_> v -í
, •\\\
u
J'/K-
J\Srr
% ^
/
BOSCH
loftnetsstengurnar
fáanlegar aftur í miklu úrvali.
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3.