Morgunblaðið - 21.05.1964, Side 8
MORGU N QLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. maí 1964
Þjóðleikhúsi ð:
Sardasfurstinnan
Óperetta í þrem þáttum eftir E. Kálmán
Leikstj. og hljómsveitarstj. István Szalatsy
Óperetta í þrem þáttum eftir
Emmerich Kálmán. Leikstjóri
og hljómsveitarstjóri István
Szalatsy
I’AÐ ER réttilega fram tekið í
leikskrá Þjóðleikhússins að þess-
ari sýningu, að dagar óperett-
unnar eru taldir í flestum lönd-
um, þótt músíkin úr fáeinum
þeirra hafi reynzt furðu lífseig.
Almennin.gur hefir ekki lengur
áhuga á að gægjast inn í glæsi-
hallir aðalsfóliksins gegn um þann
glugga, sem óperettan opnaði
fram í frásögnum blaðanna af
undirbúningi að sýningu Þjóð-
leikhússins á Sardasfurstinn-
unni: Leikstjórinn kom með nýj-
an „endurskoðaðan“ textá, og
vegna þeirra breytinga, sem á
verkinu voru orðnar, þurfti hann
fremur á að halda leikurum en
söngvurum. Samkvæmt því taka
tveir leikarar við hlutverkum,
sem söngvurum höfðu verið ætl-
uð, og er ástæðulaust fyrir
sömgvarana að taka það nærri
sér, eins og málum er háttað.
Lárus Fálsson og Guðmundur J ónsson í hlutverkum.
honum; aðallinn heldúr varla til
lengur, og hallirnar til sýnis
hverjum sem er fyrir nokkra
aura. Lífsmarki hefir þó verið
haldið í einstaka verki þessarar
tegundar með því að snúa text-
unum til nútímalegra horfs, nær
undantekningarlaust í þá átt
að útkoman hefir orðið farsi,
stundum jafnvel með svip af
revíu; hlutverk tónlistarinnar
hefir orðið minna en áður var,
og aðrar kröfur eru gerðar um
flutning hennar.
Oll þessi þróun kom óbeint
enda þótt æskilegt hefði verið,
að meiri fyrirhyggja nefði verið
höfð um þetta.
Sardasfurstinnan er ek'ki mik-
ið bókmenntaverk, heldur gam-
anleikur af léttustu gerð, og
„brandararnir" sumir svo „bill-
egir“, satt að segja, að reyndum
og ágætum leikurum er vork-
unn að þurfa að láta þá út úr
sér. Tónlistin hefir ekki heldur
mikinn boðskap að flytja, en hún
er einkar á/heyrileg og ísmeygi-
leg og breiðir yfir margan galla
á leiknum, sem án hennar mundi
verða áberandi. Að öllu saman-
Auglýsi ng
um skoðun bifreiða í lögsagnar-
uindæmi Kópavogs.
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hérmeð, að aðal-
skoðun bifreiða fer fram 25. maí til 12. júní n.k., að
báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir:
Mánud. 25. maí Y-1 til Y-100
þriðjud. 26. maí Y-101 — Y-200
miðvikud. 27. maí Y-201 — Y-300
fimmtud. 28. maí Y-301 — Y-40O
föstud. 29. maí Y-401 — Y-500
mánud. 1. júní Y-501 — Y-600
þriðjud. 2. júní Y-601 — Y-700
miðvikud. 3. júní Y-701 — Y-800
fimmtud. 4. júní Y-801 — Y-900
föstud. 5. júní Y-901 — Y-1000
mánud. 8. júní Y-1001 — Y-1100
þriðjud. 9. júní Y-1101 — Y-1200
miðvikud. 10. júní Y-1201 — Y-1300
fimmtud. 11. júní Y-1301 — Y-1400
föstud. 12. júní Y-1400 og öll hærri nr.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar
að Félagsheimili Kópavogs, og verður skoðun fram-
kvæmd þar daglega, kl. 9—12 og kl. 13—17,30.,
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram
fullgild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vá-
tryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1964 séu greidd,
og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi.
Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki
framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru
greidd. Gjöld af viðtækjum í bifreiðum skulu greidd
fyrir skoðun.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar
á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og
bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn í Kópavogi, 19. maí 1964.
Sigurgeir Jónsson.
lögðu er hér saklaust og stund-
ura talsvert fjörlegt gaman á
ferðum: góð kvöldstundar
skemmtun, heldur ekki meira.
En allt byggist það á því, að
flutningurinn sé lifandi, fágaður
og mér liggur við að segja inn-
blásinn; um annan innblástur er
hér ekki að ræða en þann, sem
góðir flytjendur leggja af mörk-
um. Og óheppilega valinn leik-
ar.di í einu hlutverki getur ger-
spillt skemmtuninni, eins og
berlega kom í ljós á frumsýn-
ingunni í Þjóðleikhúsinu og enn
verður að vikið.
Þeir, sem stóðu með pálmann
í höndunum að sýningunni lok-
irini, voru leikararnir Bessi
Bjarnason og Lárus Pálsson, og
talar það sínu máli um það, að
hér er á ferðinni gamanleikur
með músík fremur en óperetta í
venjulagum sikilningi. Þeir sköp-
uðu skemmtilegar og eftirminni-
legar persónur úr þeim rýra
efniviði, sem þeim var fenginn
í hendur, og þeirra einna vegna
hefði sýningin verið þess virði
að sjá hana. Bessi reyndist einn-
ig hafa talsverða söngrödd, en
á það reyndi ekki hjá Lárusi.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Valur Gíslason og Ævar R. Kvar-
an skiluðu einnig sönglausum
hlutverkum með mikilli prýði
og áttu ríkan þátt í að auka á
skemmtunina. En um allt þetta
hefði leikdómari Mbl. verið
betur bær að dæma en sá sem
þessar línur ritar.
í aðalsönghlutverkunum voru
ungverska sópransöngkonan Tat-
jána Dubnovszky og Erlingur
Vigfússon tenorsöngvarí. Hin
bjarta og fagra rödd Erlings naut
sín hér vel, og framkoma hans
á sviðinu var falleg og frjáls-
mannleg, þótt sjá mætti að hann
skortir sviðsreynslu á við með-
leikendur sína. Og víst má telja,
að það hafi háð honum nokkuð,
hve mótleikandi hans var óheppi
laga valinn. Það verður því mið-
ur ctö :»egja umbúðalaust, að
ungverska söngkonan, sem hefði
átt að vera „stjarna kvöldsins",
Lokaatriði, Tatjana Dubrovszky, Bessi Bjarnason, Herdís Þor-
valdsdóttir og Erlingur Vigfúss on.
var mjög fjarri því að fylla
þær kröfur, sem til hennar hljóta
að vera gerðar í þessu hlutverki,
en þar sem hér er um erlendan
gest að ræða, verður látið hjá
líða að fara þar um fleiri orðum.
Þjóðleik'hússtjóri mun hafa
óskað eftir annarri ákveðinni
söngkonu frá Budapest til þess
að fara með þetta hlutverk, en
af einhverjum ástæðum hefir
sú stjórnarskrifstofa, sem um
slík mál fjallar þar í landi, ekki
séð sér fært að verða við þeirri
ósk. En þessi „skakka afgreiðsla“.
ef nefna má slík mistök því
nafni, geta orðið Þjóðleikihúsinu
ærið dýr, ef þar verður ekki ráð-
in bót á sem fljótast.
í smærri sönghlutverkum voru
Herdis Þorvaldsdóttir leikkona,
sem bauð af sér ágætan þokka
en skorti raddstyrk á móti öðru
söngfólki og kaus stundum
heldur að segja fram texta sinn,
oig Guðmundur Jónsson óperu-
söngvari, sem skilaði snoturlega
sviplitlu hlutverki en tókst ekki
að blása í það verulegu lífi.
Fjöldi annara leikenda kom fram
í smærri hlutverkum, en hér
verður látið staðar numið í upp-
talningunni.
Nokkrar dansmeyjar sýndu
líkamsvöxt sinn á sviðinu, og
sýndist hann vera lýtalaus, en
can-can-dansinn var ekki eins og
er á Lido í París. Elizabeth Hodg-
shon samdi og æfði dansana.
Þjóðleikhúskórinn gegndi sínu
sönghlutverki með prýði. Carl
Billich hafði æft kórinn.
Ungverski leikstjórinn og
hljómsveitarstjórinn István Szal-
atsy hafði að sjálfsögðu, í tvö-
földum skilningi, veg og vanda
at sýningunni. Um sviðsetning-
una eru aðrir dómbærari en
undrritaður, en hún sýndist gerð
af hugkvæmni og smekkvísi, og
mörg hópatriðin, sem jafnan
munu vera erfiðust viðfangs í
slíkum sýningum, voru fjörleg
og skemmtileg. Gisli Alfreðsson
hafði verið leikstjóranum til að-
stoðar á æfingum. István Szal-
atsy er röggsamlegur hljóm-
sveitarstjóri og var allur tón-
listarflutningurinn með myndar-
brag. Sinfóníuhljómsveit íslands
aðstoðaði við sýninguna.
Þýðinguna gerði Egill Bjarna-
son, og mun hafa vel tekizt.
Söngtextarnir voru lipurlegir og
sungust vel og taltextinn oft all-
hnyttinn. — Leiktjöld og bún-
inga hafði Lárus Ingólfsson
gert.
Jón Þórarinsson.
Höfum á boðstólum fallegasta og fjölbreyftasta
úrvalið af teppum, sem eru á marka ðnum í dag
— Nýjung sem slœr í gegn —
ir Ný gerð af óuppúrskornum tízkuteppum. — Lóast ekki.
Hrinda bezt frá sér og haldast bezt.
Það er álit arkitekta að þau séu mest í tízku í dag,
vegna þess að það sé meiri efniskennd í því að horfa
á flötinn.
ir Nýju gerðirnar af óuppúrskornu teppunum ættuð þér að
hafa í huga, þegar þér teppaleggið.
■k Komið, sjáið og kynnist nýju gerðinni af óuppúrskornu tepp
unum okkar, sem eru mest í tízku á markaðnum í dag.
100% alullarteppi 100% nælonteppi.
Vegna afkastnmikilla véla og meiri tækni en þekkst
hefur áður hér á landi, getum við boðið teppi með
hagkvæmu verði.
it Teppi sem eru á boðstólum hiá okkur
eru hvergi fáanleg annarsstaðar.
TÍZKAN E R í
Austurstræti 22.
Sími 14190.