Morgunblaðið - 21.05.1964, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÚ
Fimmtudagur 21. maí 1964
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 emtakið.
DEILUR KOMMÚN-
ISTARÍKJANNA
Fkeilur kommúnistaflokka^
hinna ýmsu landa magn-
ast nú stöðugt. Sérstaklega
ganga klögumálin milli rúss-
neskra og kínverskra komm-
únista. í sambúð þeirra er nú
svo komið að segja má að op-
inber fjandskapur ríki milli
Peking og Moskvu.
Michail A. Suslov, sem tal-
inn er hægri hönd Nikita
Krúsjeffs og er einn helzti
„hugsjónafræðingur“ rúss-
neskra kommúnista, hélt ný-
lega ræðu á 17. flokksþingi
franska kommúnistaflokks-
í þessari ræðu sakaði hann
Mao Tse tung og aðra for-
ystumenn kínverskra komm-
únista um að fylgja stefnu,
sem gæti leitt til kjarnorku-
styrjaldar.
Þessi ummæH Suslov, sem
sumir hafa talið hugsanlegan
eftirmann Krúsjeffs, eru ein-
hver þau harkalegustu, sem
fallið hafa af munni- rúss-
nesku kommúnistaleiðtog-
anna í garð Rauða Kína. Er
auðsætt að deilurnar milli
Peking og Moskvu eru komn-
ar á það stig, að leiðtogarnir
eru löngu hættir að reyna að
dylja hinn djúpstæða ágrein-
ing sinn. Bæði rússneskir og
kínverskir kommúnistaleið-
togar vinna nú að því af kappi
að afla sér fylgis meðal komm
únistaflokka hinna ýmsu
landa. En af átökunum milli
Peking og Moskvu hefur síð-
an leitt mikinn ágreining og
deilur innan kommúnista-
flokkanna um heim allan. Enn
sem komið er virðist meiri-
hlutinn styðja stefnu Krús-
jeffs en Mao Tse tung hefur
hins vegar ýms spjót úti til
þess að veikja aðstöðu
Moskvumanna.
Krúsjeff og félagar hans
leggja nú mikla áherzlu á, að
efnt verði til alþjóðlegrar ráð,-
stefnu kommúnista úr öllum
heiminum. Mundu rússnesku
kommúnistaleiðtogarnir
sennilega gráta þurrum tár-
um, þótt kínversku „félag-
arnir“ tækju ekki þátt í ráð-
stefnunni. En greinilegt er að
Rússarnir hyggjast nota hana
til að styrkja aðstöðu sína.
Margt bendir til þess að
deilurnar milli Moskvu og
Peking og klofningurinn, sem
þær valda innan kommúnista-
flokka einstakra landa muni
veikja hinn alþjóðlega komm
únisma á næstu árum. Sjást
þess raunar víða merki að
togstreitan og illindin innan
kommúnistaflokkanna hafa
valdið þeim fylgistapi og gert
alla aðstöðu þeirra veikari og
erfiðari.
OFRIÐLEGT
l ASÍU
|?remur virðist horfa ófrið-
lega í Asíu um þessar
mundir. Átökin í Suður-
Víetnam færast í aukana og í
hinu „hlautlausa“ Laos hafa
kommúnistar enn einu sinni
svikið samkomulag um vopna
hlé og hafið sókn gegn hlut-
lausum og hægri mönnum.
Hefur þar enn einu sinni
sannazt að hið svokallaða
hlutleysi er kommúnistum
aðeins tæki til þess að villa
um fyrir andstæðingum sín-
um og draga úr árvekni
þeirra. .
Ekki þarf að fara í neinar
grafgötur um, að það eru
kínverskir koinmúnistar sem
standa að baki sókn kommún-
ista í Suður-Víetnam og La-
os. Þeir hafa um langt skeið
kynt elda ófriðar og upp-
lausnar í þessum löndum. Er
nú svo komið að raddir eru
farnir að heyrast um að
Bandaríkin verði að hefja
virkari andstöðu gegn sókn
kommúnista í Laos. En eins og
kunnugt er hafa Bandaríkin
stutt andstæðinga kommún-
ista í Suður-Víetnam með
stórfelldum fjárframlögUmj
vopnasendingum og jafnvel
þátttöku amerískra hermanna
í bardögum við skæruliða
kommúnista.
Reynslan í Suður-Vietnam
og Laos hefur sanað að griða-
og friðasamningar við komm-
únista þýða lítið. Þeir eru til
í að semja um grið og frið,
þegar það hentar þeim. En
um leið og þeir telja sér ann-
að henta byrja byssurnar að
skjóta að nýju 'og kommún-
istar rjúfa griðin. Útþenslu-
stefna hinna kínversku komm
únista dylst engum og allt
bendir til þess að fyrr en var-
ir fái Sovétríkin, sem ráða
yfir geysilegum strjálbýlum
en auðugum landssvæðum í
Asíu að kenna á landvinninga
stefnu kínversku kommún-
istanna.
NÝR FRAM-
KVÆMDASTJÓRI
NATO
TVTATO hefur fengið nýjan
’ framkvæmdastjóra. Heit-
ir sá Manlio Brósio, fyrrver-
andi sendiherra ítala hjá
samtökunum. Hinn nýi fram-
Stefna Kínverja getur leitt
til kiarnorkustyrialdar
|- segir M. Suslov
3 • Mikhail Suslov, hinn
1 kunni hugtakafræðingur
3 sovézka kommúnistaflokks
S ins, hélt ræðu á ársþingi
3 franska kommúnistaflokks-
3 ins fyrir nokkrum dögum
3 og lýsti því þar yfir, að
H kínverskir kommúnistar
3 fylgdu nú stefnu, sem bein
3 línis gæti leitt til kjarn-
3 orkustyrjaldar.
3 Fulltrúar á ársþinginu, sem
3 er hið sautjánda í röðinni.
H voru 800 talsins. Var þar lýst
3 eindreginni samstöðu komm-
3 únistaflokka Frakklands og
3 Sovétríkjanna, og Suslov af-
5 henti leiðtoga flokksins, Maur-
= ice Thorez, fána með mynd af
3 Lenín, sem vináttugjöf frá
3 Sovétstjórninni.
3 í Tæðu sinni ræddi Suslov
3 um þá tillögu N. Krúsjeffs, for
M. Suslov. — Myndin var tek-
in er hann hélt ræðu sína í
París.
sætisráðherra Sovétríkjanna,
að halda alþjóðlegan fund
kommúnista til þess að gera 3
upp deilumálin við Kinverja. =
Sagði hann leiðtoga flestra 3
kommúnistaflokka heims fylgj 3
andi þeirri hugmynd — þeir 3
væru þeirrar skoðunar, að 3
slíkur fundur væri heims- 3
hreyfingu kommúnista bein- 3
línis nauðsynlegur.
Suslov drap á þau ummæli M
Pekingstjórnarinnar á dögun- 5
um, að mörg ár kynnu að líða =
áður en unnt væri að halda 3
sáttafund deiluaðilanna og 3
sagði það Ijóslega ætlun Kín- 3
verja að reyna að vinna tíma. 3
Þeir legðu allt kapp á að efla 3
sundrungarstarf sitt innan 3
hinna ýmsu kommúnistaflokka 3
heims. „Kínverskir kommún- 3
istar líta með fyrirlitningu á 3
friðarbaráttuna og gera í 3
raun og veru allt sem þeir 3
mega til þess að ýta undir 3
vopnakapphlaupið. Þeir fylgja 3
stefnu, sem getur leitt til kjarn 3
orkustyrjaldar“. 3
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimi(iiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!i!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiHt!iiiiiim!iiiiiiiiiinmi
Rockefeller sigraði í Oregon
Milúð veltur d úrsliíunum í Kaliíorníu
PRÓFKOSNIN GAR fóru
fram í Oregon-ríki í Banda-
ríkjunum sl. laugardag um
það hverjir skyldu verða fram
bjóðendur flokkanna við for-
setakosningarnar í haust. Fyr-
ir kosningar var því almennt
spáð að Henry Cabot Lodge,
sendiherra í Suður-Vietnam,
fengi flest atkvæði repúblik-
ana, en auk sendiherrans voru
fimm frambjóðendur aðrir í
kjöri fyrir flokkinn. Úrslitin
komu mjög á óvart, því Nel-
kvæmdastjóri er talinn mjög
hæfur og dugandi maður.
Manlio Brasio var fyrst og
fremst studdur til þessa starfs
af Bandaríkjamönnum og
Frökkum, sem þó hefur greint
á um margt innan NATO síð-
ustu mánuði.
Enda þótt Manlio Brasio sé
mikilhæfur maður, er hann
ekki eins stór í sniðum og
fyrirrennarar hans. Fyrsti
framkvæmdastjóri NATO
var eins og kunnugt er, Ismay
lávarður, er var hægri hönd
Churchills á styrjaldarárun-
um.
Eftirmenn hans voru Paul
Henry Spaak, utanríkisráð-
herra Belgíu og Stikker, ut-
anríkisráðherra Hollands,
sem nú hefur látið af störfum.
Frámkvæmdastjórn NATO’s
hefur því ávallt verið í hönd-
um mikilhæfra og reyndra
manna. Vonir standa til þess
að hinn nýi framkvæmda-
stjóri muni reynast farsæll í
starfi, enda þótt hann njóti
ekki fyrirfram þeirrar frægð-
ar og álits sem fvrirrennar-
ar hans nutu.
son Rockefeller, ríkisstjóri í
New York, sigraði með tals-
verðum yfirburðum.
Atkvæði sklptust þannig að
Rockefeller hlaut 92 þúsund at-
kvæði, Lodge 77 þúsund, Barry
Goldwater, öldungadeildarþing-
maður frá Arizona, 46 þúsund,
Richard Nixon, fyrrum varafor-
Nelson Rockefeller,
seti, 44 þúsund, Margaret Chase
Smith, öldungadeildarþingmaður,
8 þúsund, og William Scranton,
ríkisstjóri, 5 þúsund.
Prófkosningar þessar eru að
því leyti athyglisverðar að þarna
voru í fyrsta sinn nöfn allra sex
frambj óðendanna á kjörseðlinum,
hingað til hafa kjósendur þeirra
Lodge, Nixons og Scrantons orðifS
að skrifa nöfn þeirra á seðlana.
Hjá demókrötum var aðeins
einn maður í framboði, Lyndon
B. Johnson forseti. Hlaut hann
229 þúsund atkvæði, en 926 kjós-
endur rituðu nafn George Wall-
ace, ríkisstjóra i Alabama, á kjör-
seðla sína. — Öllu betur tókst
Wallace í prófkosningunum í
Maryland-ríki á þriðjudag. Þar
var Daniel Brewster, öldunga-
deildarþingmaður, í kjöri fyrir
hönd stuðningsmanna Johnsons,
og hlaut rúmlega 264 þúsund at-
kvæði, eða 53,23%. Þar hlaut
Wallace rúmlega 212 þúsund at-
kvæði, eða 42,66%. Wallace ríkis-
stjóri hefur mikið komið við sögu
i baráttunni gegn jafnrétti kyn-
þáttanna í Bandaríkjunum, og er
svarinn andstæðingur jafnréttis-
stefnu Johnsons.
Eftir kosningarnar í Oregon
sagði Rockefeller við fréttamenn
að úrslitin sýndu það að kjósend-
ur létu sér nú á sama standa um
skilnað hans og síðara hjónaband.
Ennfremur væru úrslitin sigur
fyrir framfarasinnaða og ábyrga
repúblikana, og sýndu að stefna
Barry Goldwaters nyti ekki
stuðnings méirihluta flokksins.
Goldwater var sjálfur í Los
Angeles þegar úrslit urðu kunn í
Oregon. Er hann þar að undirbúa
prófkosningarnar, sem fram fara
í Kaliforníu 2. júní, og mikið velt
ur á. Ekki gerði Goldwater mikið
úr sigri Rockefellers í Oregon, en
sagði við fréttamenn: „Þótt ég
dytii niður dauður í dag, yrði
Rockefeller ekki kjörinn fram-
bjóðandi flokksins".
I prófkosningum þessum eru
kosnir kjörmenn frá hverju ríki.
sem svo kjósa frambjóðendur
flokkanna á flokksþingum í sum-
ar. Fer fjöldi kjörmanna hvers
ríkis eftir íbúatölu. Talið er að
Goldwater hafi þegar tryggt sér
nærri sex hundruð kjörmenn á
þingi repúblikana, en til að ná
kosningu þarf 655. Veltur mikið á
úrslitunum í Kaliforníu, því þar
verða kosnir 86 kjörmenn repú-
blikana.
Sæmd riddara-
krossi
FORSETI íslands hefur í dag
sæmt eftirfarandi riddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu:
1. ólaf Þórðarson, framkv.-
stjóra, Reykjavík, fyrir störf I
þágu hraðfrystiiðnaðarins ogsaia
göngumála.
2. ólöfu Bjamadóttur, ráðu-
neytisstjórafrú fyrir störf í þágu
landsins heima og erlendis.