Morgunblaðið - 21.05.1964, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
23
Fimmtudasur 21 maí 1964
Fegrun Hafnarfjarðar
LANDSLAGIÐ við Hafnarfjörð
er sérkennilegá fallegt, þótt það
sé hrjóstugt og úfið.
Hafnarfj arðarbær hefur skil-
'yrði til þess að vera einn af feg-
urstu bæjum þessa lands, ef þeir
sem bæinn byggja ber gæfu til að
skapa umgengnismenningu til
fegrunar bæjarins.
Flestir bæjarbúar hafa áhuga
á því að hafa umhverfi sitt fag-
urt og þrifalegt, en þó eru því
miður margir, sem ekki gæta
þess sem skyldi að halda um-
hverfi sínu í því ástandi, sem
hverjum húseiganda ber.
Því miður sést víða, jafnt hjá
einstaklingum sem á vegum hins
opinbera, að sóðaskapur og hirðu
leysi er í hávegum haft.
Við sjáum ryðgaðar og opnar
oskutunnur stundum tyllt út á
götu með ruslið fjúkandi í allar
áttir, þegar blæs. Þetta veldur
sóðaskap í umhverfinu og óholl-
ustu, sem í kjölfar hans fylgir.
Hér fylgist að ómenning fárra
einstaklinga og vanræksla hins
opinbera um að kippa í taumana.
Algertg .sjón er að sjá börn,
unglinga og fullorðna fleygja frá
sér á götuna eða inn á næstu lóð
hverskonar drasli, umbúðum og
évaxtaberki, svo fátt eitt sé
nefnt. Víða á fögrum stöðum,
meðfram vegum eða í gróðursæl-
um hraungjótum, blasir við
hverskonar rusl, sem hent hefur
verið, svo sem mjólkurhyrnur,
dósir, brotnar flöskur, spýtna-
drasl o. fl. o. fl.
Umgengni á byggingarstað
þarf víða að bæta. Úrgangstimb-
ur, tómir sementspokar og annað
frá byggingunni er á víð og dreif
og jafnvel langt út fyrir lóðar-
mörk. Einnig má sjá efni úr
grunnstæðinu í haugum á lóð-
inni, eða jafnvel úti á götunni,
löngu eftir að flutt er í húsið.
Þetta og annað eins megum við
ékki láta sjást á okkar fagra
bæjarstæði.
Við þekkjum húsbyggjendur,
sem til fyrirmyndar eru um alla
umgengni á byggingarstað og við
vitum að meginþorri bæjarbúa
vill fagurt og þrifalegt umhverfi.
Við vitum, að örfáir einstakl-
ingar getá haft aðstöðu til að
eyðileggja viðleitni hinna mörgu
til þrifnaðar og fegrunar í þess-
um bæ.
Góðir Hafnfirðingar!
Tökum höndum saman og ger-
um herférð gegn öllum sóðaskap,
hirðuleysi og ómenningu á okkar
fagra bæjarstæði.
Stjórn
Fegrunarfélags
Hafnarfjarðar.
Framih. af bls .22
hálfleik áttu Keflvíkingar áber-
andi bétri leik í síðari hálfleik.
KR-VALUR.
Valsmenn tóku völdin í leikn-
lim gegn KR á dúnmjúkum og
óvenjulega fallegum Laugardals
vellinum. Að vísu voru tækifærin
ekki hættuleg en KR iiðið átti
Cannarlega i vök að verjast, og
lékk engu áorkað til sóknar.
Mark skorar Valur á 20. mín.
Hermann Gunnarsson spyrnti
fallega og fast af vítateig eftir
þófspil Vals þar og fékk Her-
mann knöttinn meira áð segja
frá einum varnarmanna KR.
Mín. síðar var hlé á leiknum —
boltinn hafði gefið vind og reynd
ist sprunginn, fór kannski sprung
inr/í KR-markið, eða sprakk ef
til vill við það.
Tvö „dauðafæri” átti Valur
næsta stundarfjórðunginn og var
Ingvar Elísson í bæðí skiptin
kominn einn inn fyrir KR-vörn,
en skaut framhjá. Með betri skot
hæfileikum hefði Valur því hæg-
lerga getað verið kominn í 3-0 og
tryggan sigur — en getan eða
heppnin reyndist ekki næg er á
reyndi.
Á 41. mín. jafnaði KR. Innkast
var út undir miðju, Sigurþór
brýzt fallega í gegnum Valsvörn-
ina sendir laglega fyrir og Gunn
ar Felixsson notfærir tækifærið
é bezta hátt og skoraði laglegt
mark.
1-1 stóð í háifleik.
Eftir markið færðist KR-liðið
lallt í aukana og hafði undirtökin
eftir það í ölíu spili og lítil hætta
varð við KR markið ef vítaspyrn
an er undan skilin, sem greint
veður síðar.
Á 12. mín skora KR-ingar sig-
urmarkið. Löng sending var gef-
in frá hægri fram að vítateigs
Vals. Gunnar Guðmannsson
fylgdi henni fast og ákveðið þó í
upphafi virtust litlir möguleikar
á að hann næði sendingunni.
Hann komst að knettinum er
miðvörður Vals ætlaði að senda
til markvarðar — notaði tæki-
færið vel og tryggði sigur KR.
Á 31. mín. var réttilega dæmd
vítaspyrna á KR fyrir hindrun
er Bergsteinn var í markfæri.
Bergsteinn framkvæmdi spyrn-
una en Heimir varði vig mikinn
fögnuð. Dómarinn fann eitthvað
athugavert og lét endurtaka
vítaspyrnuna. Aftur framkvæmdi
Bergsteinn — en Heimir varði
enn. Bæði skotin voru nálægt
miðju marki, hið fyrra laust en
það síðara allfast.
Þarna fóru síðustu tækifæri
Vals og Bergsteinn gekk eiigin-
lega af velli með stigið sem Val-
ur hefði átt að fá í þessum leik
— en KR fékk þau hæði í stað-
inn.
Leikurinn var á köflum
skemmtilegur — þó alltof oft
sæjust klaufaspörk sem aíls
ekki aéttu að sjást hjá 1. deildar-
mönnum. Valsmenn voru fram-
an af betra liðig og hefði gftir
tækifærum getað tryggt sigur
sinn. En liðið er enn ekki nógu
samstillt, þó betra sé en áður
með He'rmann sem innherja.
Sennilega ætti Ingvar að fara á
kantinn en Bergsveinn að bæt-
ast í miðtríóið. Kantarnir eru nú
illa eða ekki nýttir.
KR komst í gang við markið
og átti liðið spil leiksins eftir
það. Athygli vakti Þorgeir Guð-
mundsson nú framvörður —-
vaxandi og athyglisverður leilc-
maður. Vörnin þéttist.með aftur-
komu Harðar — en ennþá vantar
þc á að KR sé á borð við þá
leiklist er þeir sýndu hér á árum
áður.
Evrópa
vann 4-2
EVRÓPUÚRVALIÐ vann úrvals-
lið Norðurlanda með 4-2 í Kaup-
mannahöfn í gær, en leikurinn
var þar haldinn til heiðurs 75 ára
Knattspyrnusambandi Dang. Tvö
mörk Jimmy Greeves í fyrri hálf
leik tryggðu sigurinn. Það voru
einu mörk hálfleiksins.
Dennis Law og Eusibio frá
Portúgal skoruðu mörk Evrópu-
úrvalsins í síðari hálfleik. Finn-
inn Peltonen (v. úth.) og Svíinn
Harry Bild (v. innh.) skoruðu
mörk Norðurlandaliðsins.
Leikurinn var vel leikinn á
köflum en greinilegt að Evrópu-
úrvalið beitti sér ekki til hins
ýtrasta. Forðuðust leikmenn ná-
vígi, enda allir dýrir leikmenn,
sem ekki vilja taka áhættu á að
meiðast í leik sem þessum. En
sendingar þeirra og knattmeð-
ferð var á stundum stórkostleg.
í síðari hálfleik lék Evrópuúr-
valið sér að mótherjum sínum.
45000 manns voru á vellinum,
þar á meðal öll danska konungs-
fjölskyldan. En auk þess sáu
milljónir Evrópubúa leikinn á
sjónvarpsskerminum.
Sýslufundur
E y j a f jj a r ðar sýslu
' Akureyri: —
SÝSLUFUNDUR Eyjafjarðar-
sýslu var haldinn á Akureyri dag
ana 6.—11. maí. Helztu liðir fjár
hagsáætlunar voru þessir:
Til vegamála .... Kr. 580.000 -
Til búnaðarmála .. — 208.000,-
Til Laugal.skóla . . — 204.000,-
Til heilbrigðismála — 85.000,-
Til Minjasafnisins f
Akureyri.... — 45.000,-
Til Arntsbókas. .. — 23.000,-
Fundurinn gerði nýja sam-
þykkt um sýsluvegasjóð sýslunn
ar. Sýslunefndin samþykkti að
hvetja til þess að hafizt verði
handa hið allra fyrsta um bygg-
ingu héraðssKóla' í sýslunni, sem
veitt geti unglingum fræðslu til
gagnfræðaprófs og landsprófs, en
ungmenni í sýslunni eiga nú mjög
undir högg að sækja um inn-
göngu í gagnfræðarskóla.
Þá samþykkti sýslunefnd að
vinna að því, að Húsmæðraskól-
inn að Laugalandi verði gerður
að ríkisskóla. — Sv. P.
i----,-----L.
Mikið píanóleik-
araefni
AKUREÝRI, 20. maí. — Nem-
endatónleikar Tónlistarskóla Ak-
ureyrar voru haldnir á laugar-
dag og á hvitasunnudag. — Lar
komu fram margir efnilegir nem-
endur, einkum á seinni tónleik-
unum, en þá léku á píanó þeir
þrír, sem lengst eru komnir:
Hólmfríður Gísladóttir, Jón
Hlöðver Áskelsson og Jóhannes
Örn Vigfússon. Sérstaka athygli
vakti leikur Jóhannesar, sem nú
þreytir lokapróf frá skólanum.
Á efnisskrá hans voru nokkur
píanóverk,' mjag ólík að aldri og
eðli og kröfðust bæði tæknilegrar
kunnáttu og tónlistarþroska
flytjandans. Er skemmst af að
segja að Jóhannes skilaði hlut-
verki sínu með stakri prýði, þótt
ungur sé að árúm. Fer varla milli
mála að þar fer efni í mikinn
píanóleikara. Kennari hans er
Kristinn Gestsson. Skólastjóri
Tónlistarskóla Akureyrar er
Jakob Tryggvason. — Sv. P.
Osló, 20. maí (NTB)
Tilkynnt var í aðalstöðvum
NATO í París í dag, að sam-
eiginlegar heræfingar . sex
ríkja bandalagsins verði haldn
ar í Norður-Noregi dagana 2.
—20. júní n.k. Nefnast heræf-
ingar þessar „Northern Ex-
press“.
Mótmæla
MBL. HEFUR borizt eftirfarandi
f réttatilkynning:
„Fjölmennur fundur í Sjó-
mannafélagi Hafnarfjarðar, sem
haldinn var 19. maí 1964 gerði
einróma eftirfarandi samþykktir:
1. „Fundur haldinn í Sjómanna
félagi Hafnarfjarðar 19. maí
1964, skorar á sjómenn að vinna
ekki við útbúnað til síldveiða og
skrá sig ekki á síldveiðar fyrr
en gert hefur verið upp full-
komlega eftir gildandi samning-
um félagsins“.
2. „Almennur félagsfundur
Sjómannafélags Hafnarfjarðar
haldinn 19. maí 1964, mótmælir
óeðlilega lágu fiskverði á íslandi
og sérstaklega þó þeim vinnu-
brögðum, sem átt hafa sér stað
undanfarið í störfum verðlags-
ráðs sjávarútvegsins, þar sem
ekkert tillit hefur verið tekið til
útgerðarkostnaðar , né aukinnar
dýrtíðar og þar af leiðandi vax-
andi framfærslu kostnaðar, - sjó-
manna og fjölskyldna þeirra. Þá
krefst fundurinn þess, að verð
ákvörðun verði alltaf lokið áður
en veiðar hefjast. Þá skorar fund
urinn á sjómenn að hefja ekki
síldveiðar fyrr en verð á sumar-
sílck liggur fyrir“. _
3. „Almennur fundur í Sjó-
Angi af einum sýningarsalanna í Táte Gallery.
1 — Málarar
Framh. af bls. 3
H þetta hefur verið róttækt á
H sínum tíma!“
H Næsti salur er fullur af
H myndúm eftir Turner og Con
H stable. „Það' er margt, sem
H maður botnar lítið í á Tate
ff sýningunni, en vafasamt ef,
j§ að nokkuð af því, sem þar
§§ hangir á veggjum, sé eins rót
§§ tækt og verk Turners voru á
f; sínum tíma (fyrir u.þ.b. einni
2 öld). Það furðulega er, að
5 Turner naut hylli, en Consta
= ble, sem virðist hafa staðið
§§ mikhi nær venjum síns tíma,
H átti mjög erfitt uppdráttar.
S Þeir voru báðir djarfir' lista-
S menn og skildu hvor annan.
§§ Þeir hengdu stundum upp
S málverk sín hlið við hlið á
= sýningum og löguðu stundum
= myndirnar eftir að þær voru
H komnar á vegginn. Eitt sinn
ys var Constable að laga mynd
= eftir sig. Þá kom Turner inn
H í salinn og gekk að mynd eft
= i^ sig, sem hékk við hlið Con
H stables, brá pensli sínum og
H málaði rauða skellu á miðja
H myndina. Þá sagði Constabie:
S Nú skaut hann af fallbyssu“.
|§ Þegár við ásamt Gunnlaugi
= etum komnir út í sólskinið og
S blíðuna á tröppum National
S Gallery og horfum yfir Traf
H felgar Square krökt af fólki,
= sem gengur letilega kringum
gosbrunnana eða gefur dúf- §§
um, segir Valtýr: „Mér finnst =
mjög áberandi á sýningunni í §§
Tate, hve-Bretar virðast standa §§ -
framarlega í nútímamynd- s
list. Þeir eiga framúrskarandi =
góða einstaklinga. Bretar hafa H
af íhaldsemi þeirri, sem þeim H
er í blóð borin, beðið átekta, =
meðan fyrstu holskeflur nýrra ^
stefna dynja yfir, en nota sér H
síðar hið bezta af þeim, er §§
hismið er tekið að skiljast §§
frá kjarnanum. Og ég las ný- s
lega í Sunday TimeSj að á |
sínum tíma hafi það ekki tek ||
ið Englendinga nema 6 ár að H
viðurkenna abstrak'ta list. Nú H
eru úm 18 ár, ef ég man rétt, H
síðan fyrsta septembersýning H
in hljóp af stokkunum heima, H
og sumir eru énn í sjálfstæðis s
baráttu við Dani“.
„Hafið þér komið til Lond jg
on áður?“ spyr ég Gunnlaug, §j
er við göngum niðirr tröpp- §
urnar. „Nei, því miður. Mér H
þykir slæmt að við skulum H
vera að fara heim á morgun, H
því að hér er margt, sem ég =
vildi gjarna skoða betur“. „Það H
er nq tími til kominn fyrir mig §§
að halda heim“, segir Valtýr ý
— „ég er að opna sýningu á ^
* morgun“. , H
„Hvað finnst yður merkileg =
ast í London?“ spyr ég Gunn H
laug, er við kveðjumst. Hann H
verður fyrst hugsi, en brosir §§
svo glettnislega til Valtýs og §§
svarar: „Valtýr Pétursson". H
iilmmiiiininiiiminiiniimmiiimiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimimiiMmiMiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiuii
.mannafélagi Hafnarfjarðar hald-
inn 19. maí 1964, telur að þar
sem ferskfiskmat á að fram-
kvæma við Iöndun, sé ekki hægt
að taka til greina við kaupupp-
gjör „ferskfiskmat“, sem fram-
kvæmt er í annarri höfn en
landað er í. Fundurinn telur að
ekki sé hægt að taka til greina
við kaupuppgjör „ferskfiskmat",
sem framkvæmt er löngu eftir að
fiskurinn kemur í hús, og byrj-
að er að vinna hann. Fundurinn
telur að setja eigi þær reglur að
á matsnótur og vigtarnótur skuli
auk dagsetningar setja tímasetn
ingu, svo hægt sé að sjá hve
gamall fiskurinn er þegar hann
loks er tekinn í mat“.
Auk þessara samþykkta kom
skýrt í ljós vilji félagsmanna fyr
ir því að næst þegar gerðir yrðu
kaupsamningar, yrði sett í þá
ákvæði sem bannaði að hefja
veiðar fyrr en verð lægi fyrir,
og jafnvel að ekki yrðu gerðir
samningar fyrir lengra tímabil,
en verðið gilti. Einnig kom fram
að setja þyrfti í samninga ákvæði
um að óheimilt væri að hefja nýj
ar veiðar, fyrr en kaupuppgjör
og launagreiðslur fyrir síðasta
úthald væri að fullu lokið“.
— Rússar lofa
Framhald af bls. 1.
Fulltrúar erlendra ríkja 1
Moskvu hgfa ekki látið neina
undrun í ljós vegna hljóðnema
fundarins k bandaríska sendi
ráðinu. Talið er að hlustunar-
tækjum hafi verið komið fyrir
í öllum stærri sendiráðum er-
lendra ríkja í Moskvu. Bent
er á, að sérfræðingar séu
fengnir öðru hvoru til að leita
að földum hljóðnemum í sendi
rgðunum. Eru erlendir sendi-
fulltrúar vanír því að hittast
í sérstaklega einangruðum
herbergjum, er þeir þurfa að
ræða saman áríðandi mál. Oft
er útvarpstæki í gangi í fund
arherbergjum til að erfiðara
sé að hlusta á samtölin. Ekki
er nægilegt að leika hljóm-
plötur, því unnt er að deyfa
tónlistina út af hugsanlegum
segulbandsupptökum. Segja
talsmenn sendifulltrúanna að
þeir geti ekki einu sinni ver-
ið öruggir á götum úti, því
þar geti verið komið fyrir sér-
staklega wni'œ hlióðnem-
um.