Morgunblaðið - 20.08.1964, Blaðsíða 1
24 síður
G1 árgangur
193. tbl. — Fimmtudagur 20. ágúst 1964
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
l 32 Ssí?;
Barizt á göt-
nm Bukavo
Kongóstjórn vísar erlendum
borgurum á brott úr landinu
Leopoldville, Kongó, 19. ágúst — (AP-NTB) —
í KVÖLD bárust til Leopoldville fregnir um götubar-
daga í Bukavu, höfuðborg Kivu-héraðs og síðustu mikilvægu
borginni í Norð-austur Kongó, sem enn er í höndum stjórn-
arinnar. Sóttu uppreisnarmenn að borginni að norðan og
norð-vestan. í Bukavu er fyrir til varnar um 800 manna her-
lið stjórnarinnar, þar á meðal fallhlífarhermenn. Stjórnar-
herinn hafði um helgina stöðvað framsókn uppreisnarmanna,
sem komnir voru fast að útjaðri borgarinnar.
Flestir Evrópumenn sem í
Bukavu voru yfirgáfu borgina
fyrr í þessum mánuði, þeijar
11 Surtsey
i
f í GÆR flutti þyrla af Kefla- ;
| víkurflugvelli 12 vísindamenn j
É út í Surtsey og aftur í land ;
| er þeir höfðu lokið störfum ;
1 sínum. Er mikill munur fyrir ;
É þá sem erindi eiga í eyna að ;
| þurfa ekki að vera upp á veð- j
| ur og lendingarskilyrði komn- ;
1 ir. — Sjá frétt annars staðar í j
i blaðinu.
Líðan Segnis
óbreytt
Róm, 19. ágúst. NTB.
LÍÐAN Segnis Ítalíuforseta var
óbreytt í dag, að því er lseknar
hans sögðu. Forsetinn hefur ekki
komizt til meðvitundar síðan á
laugardag.
Olympíustjarnan" komin
II
út í geiminn
Syncom 3 skotið á loft skömmu
fyrir hádegi
Cape Kennedy, 19. ágúst — (NTB) —
SYNCOM-gervihnettinum, sem menn vona að flutt geti
Bandaríkjamönnum beinar sjónvarpssendingar frá Olympíu-
leikunum í Tókíó í október, var skotið á loft frá Cape Kenn-
edy í morgun kl. 11,15 eftir ísl. tíma.
Allt gekk samkvæmt áætlun
og fór hnötturinn þegar á fyrir-
hugaða sporbaugsbraut sína, sem
er 1120 til 36.640 km. frá jörðu.
Merki frá hnettinum eru skýr og
greinileg.
Betri horfur á Kýpur
Nicosía, Ankara, Aþenu og Moskvu, 19. ágúst — (NTB-AP) —
SVO virðist sem nú sé að draga úr spennu þeirri, sem ríkt
hefur á Kýpur undanfarið. Stjórnin hefur nú heimilað flutn-
inga á vatni og vistum til tyrkneskumælandi manna í Ktima
héraðinu á suðvesturhluta eyjarinnar og jafnframt lýst því
yfir að sams konar flutningar verði einnig leyfðir til annarra
héraða sem Tyrkir ráða.
Er þetta árangur viðræðna
fulltrúa U Thants í Nicosíu,
Ecuador-mannsins Galo Plaza,
og fulltrúa Rauða Krossins
við Makarios Kýpurforseta í
gær. Á morgun, fimmtudag,
koma þeir aftur saman til
fundar, Makarios erkibiskup
og Galo Plaza, til að ræða
möguleika á frekari tilslök-
un í málinu.
^ Herjum skilað
Frá Ankara berast þær frétt
lr að Tyrkir hafi skilað Atlants-
hafsbandalaginu aftur hluta flug
hers þess, sem þeir höfðu tekið
fyrir skömmu. Fastaráð banda-
lagsins hefur rætt Kýpurvanda-
málið á reglulegum fundi í dag
og mun ræða það frekar á öðrum
fundi, þar sem Manilo Brosio,
eðalritari samtakanna, mun gefa
ráðinu skýrslu um viðræður sín-
ar við utanríkisráðherra Grikkja
og Tyrkja.
Griska stjórnin ákvað í dag, að
afhenda Atlantshafsbandalaginu
Framhald á bls. 23.
Eftir 12 daga verður ljóst
hvort tekizt hefur að fá hnöttinn
staðsettan samkvæmt áætlun, en
það er á stað yfir Kyrrahafinu,
35.700 km. út í geimnum, á hring
braut umhverfis jörðu, þar er
hnettinum svo fyrirhugaður stað
ur til frambúðar því að hraði
gerfihnattarins og jarðarinnar er
sá sami.
Gefihnettinum, sem kallaður
hefur verið Olympíustjarnan,
var skotið upp með endurbættri
útgáfu af Delta-eldflaug. Hann
er þriðji hnötturinn í röðinni af
Syncom-gerð. Syncom nr. 2 er
enn í góðu gengi úti í geimnum
ásamt Telstar 2 og Relay 2, sem
einnig eru virkir þar enn.
Um það bil 28 tímum eftir
geimskotið verður Syncom-gerfi
hnettinum komið á hringbraut
umhverfis jörðu með aðstoð lít-
illar eldflaugar, sem hann hefur
meðferðis og vegur 37.6 kíló.
Næstu 12 daga verða síðan gerð-
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
Ofsagt um
I auð Johnsons 1
Washington, 19. ágúst,
(AP-NTB)
JOHNSON, Bandarikjaforseti
sagði í dag, að fjölskylda sín
hefði yfir að ráða samtals
tæplega 3 og hálfri milljón
dala. Þar af á kona Johnsons,
Lady Bird, rúmar 2 milljónir
og dæturnar tvær tæpa
500.000 dala hvor. Fé þetta er
bæði fast og laust, búgarðar
og aðrar fasteignir i Texas,
Alabama og Missouri, út-
varpsstöð, skuldabréf o.m.fl.
Forsetinn ákvað að gefa út
yfirlýsingu um auðæfi sín og
fjölskyldunnar eftir blaða-
skrif, þar sem því var haldið
fram að eignir hennar næmu
um 14 milljónum dala.
Þetta er ekki í fyrsta sinn
Framhald á bls. 23.
iiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiii
ar ýmsar flóknar tækjastillingar
með aðstoð lítilla eldflauga sem
gerfihnötturinn hefur meðferðis
og er ætlunin að reyna að koma
honum á braut yfir miðbaug og
nákvæmlega í þeirri hæð að
saman fari hraði gerfihnattarins
og jarðarinnar. Ef þetta heppn-
ast, verður Olympíustjarnan
fyrsta gerfi-fastastjarna heims.
Forstöðumaður þessara geim-
rannsókna á Kennedyhöfða,
Leonard Jaffee, sagði í gær, að
ef ekki tækist vel til um að
koma Syncom 3 inn á fyrirhug-
aða braut, væri útilokað að hægt
yrði að sjónvarpa beint fró
Olympíuleikjunum í Tokíó.
Aðal-hlutverk gerfihnattarins
er þó ekki að flytja sjónvarps-
myndir frá 400-metrunum eða
öðru því sem fréttamatur er í ó
Olympíuleikjunum. Hann á fyrst
og fremst að afla vísindamönn-
um nýrra upplýsinga, sem varp-
að geti ljósi á spurninguna um
það hvort hugsanlegt sé að
koma á fót alheims-fjarskipta-
kerfi, með aðstoð gerfifasta-
stjarna. Einnig er ætlunin að
nota hann til firðtals og til flutn
ings á símamyndum og mynd-
prentunum milli stöðva á Filipps
eyjum á Guam og í Kaliforníu.
Syncom 1 var skotið upp 14.
febrúar í fyrra og starfaði ekki
eins og ráð hafði verið gert.
Syncom 2 var skotið á loft 26.
júlí sama ár og hefur starfsemi
hans verið með eðlilegum hætti.
Evrópusamband útvarpsstöðva
hefur gert áætlanir um upptöku
mynda frá Olympíuleikjunum í
Tokíó, með milligöngu Syncom
3. Frá móttökustöð í Point Mugu
í Kaliforníu verða myndirnar
sendar til Montreal á micro-
bylgjum og þaðan flugleiðis til
Evrópu með leiguþotum. Takist
vel til um allt þetta, geta sjón-
varpsnotendur í Evrópu fengið
að sjá myndir frá Olympíuleikj-
unum 12 tímum fyrr en ef senda
þyrfti myndirnar flugleiðis frá
Tokíó til Evrópu.
Sendiherra í
Rúmeníu
HINN 18. þ.m. afhenti dr. Krist-
inn Guðmundsson, sendiherra,
forseta rúmenska alþýðulýðveld-
isins trúnaðarbréf sitt, sem sendi
herra íslands í Rúmeníu-
fréttist um sókn uppreisnar*
manna að henni úr vestri. Enn
eru þó í henni einhverjir Evrópu
menn, a.m.k. tveir starfsmenn
S.Þ. og 7 eða 8 bandarískir sendi
ráðsstarfsmenn. Þannig hagar til
í Bukavu, að hægt er að flýja
borgina með örskömmum fyrir-
vara, á hrað'bát yfir Kivu-vatn,
því hún stendur á nesi í vatn-
inu, fjöllum girt á flesta vegu
aðra.
Stjórnarherinn er sagður láta
undan síga í átt til landamær-
anna að Rwanda, sem eru tæpa
5 km. í burtu. Flugvöllur
Bukavu-borgar liggur í Rwanda
og gæta hans hermenn þess
lands, undir stjórn belgiskra
liðsforingja. Flugvallarvarnar-
liðið hefur verið aukið, ef til
árásar uppreisnarmanna handan
íandamæranna kynni að koma.
Mangir telja ,að árásarmenn
í Bukavu séu ekki allir utan
boa-gar heldur hr.fi þar verið
fyrir „fimmta herdeild" upp-
reisnarmanna innan borgarinnar
og hafi hún látið til skarar
skríða i dag. í Bukavu eru nú um
89.000 flóttamenn. Borgin var
áður vinsæll ferðamannastaður.
Félli Bukavu í hendur upp-
reisnarmanna ætti Kongóstjórn
Framhald á bls. 23.
Goldwater
ógnað
Washington, 19. ágúst.
— (AP-NTB) —
FLUGVÉL, sem flutti forseta-
efni repúblikana, Barry Gold-
water, öldungadeildarþing-
mann, áleiðis til Washington,
frá Springfield, Illinois, var í
dag gert að lenda á Dulles-
flugvellinum skammt utan
borgarinnar í stað National
flugvallarins eins og ráð hafði
verið fyrir gert.
Kom þetta til af því, að
spurnir höfðu borizt um fyrir-
hugað tilræði við forsetacfnið
við komuna til Washington.
Ekki var neitt látið uppi um
það hvers eðlis tilræðið væri,
en það var bandaríska leyni-
lögreglan (FBÍ) í Chicago,
sem tilkynninguna sendi og
bað um að flugáætluninni
væri breytt. Goldwater sagði
sjálfur að sér hefði skilizt, að
honum hefði verið búið
sprengjutilræði á flugvellin-