Morgunblaðið - 20.08.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.08.1964, Blaðsíða 16
sn tf / 5 16 frftfc *♦*< * Vrt %>i ■ %. 4TÍ #-V *V*'. MORCU N BLAÐID Fimmtudagur 20. ágúst 1964 Viktor Guðnason Póst- og símstjóri í Flatey d Breiðafirði ÞEGAK ég spurði lát Viktors Guðnasonar í Flatey, komu mér í hug orð Bólu-Hjálmars: „Mínir vinir fara fjöld“. Þannig er það þegar árin færast yfir. Þá verð- um við á bak að sjá mörgum góðum samferðamanni, sem við höfðum bundið tryggðir við og nutum að eiga að vini. Og sú skuld, sem við stöndum í við forsjónina fyrir trausta og góða vini, verður aldrei að fullu greidd. — Kynni okkar Viktors hófust, er ég kom til Flateyj- ar 1928, og öll mín ár þar vor- um við nánir vinir og samstarfs menn, og minningarnar um sam verustundir okkar verða mér ætíð mjög kærar. Hann var slík ur mannkostamaður, að öllum hlaut að þykja vænt um hann og báru til hans verðskuldað traust. Það er því skarð fyrir skildi, er slíkur maður fellur frá fyrir aldur fram, að okkur finnst, skarð fyrir skildi í fá- mennu sveitarfélagi, þar sem hann var svo að segja allt í öllu. Viktor Guðnason var fæddur 10/9 1899 á Þingeyri við Dýra- fjörð. Foreldrar hans voru þau hjónin Guðni kaupmaður Guð- mundsson og Kristin Aðalheið- ur Bjarnadóttir. Þau hjón voru bæði ágætis manneskjur og sér- staklega vel kynnt. Guðni kaup maður var löngu dáinn, er ég kom vestur, en Kristínu Aðal- heiði kynntist ég vel og dáði hana. Hún var ástúðleg kona, afburða dugleg og gædd mikilli hetjulund í meðlæti og mótlæti. — Viktor ólst upp með foreldr- um sinum á Þingeyri og fluttist með þeim til Flateyjar á Breiða firði ungur að aldri, ásamt syst kinum sínum, sem munu hafa verið fimm alls, en eitt dó korn- ungt. Viktor missti föður sinn 1910, en var eftir það með móð- ur sinni í Flatey, þar til hann stofnaði sjálfur heimili. Kristín Aðalheiður, móðir hans dó 20. okt. 1940 og hafði þá orðið á bak að sjá öllum börnum sínum nema Viktori. Viktor gekk í Verzlunarskóla íslands og útskrifaðist þaðan. Þá lagði hann’ einnig stund á loftskeytafræði hjá Guðmundi Jóhannessyni, stöðvarstj. í Flat- ey, en tók þó aldrei próf í þeirri grein. En hann var sérstakur hæfileikamaður og lagði á margt gjörva hönd, og öll störf, er hann tók að sér, leysti hann frá- bærlega vel af hendi af skyldu rækni og stakri samvizkusemi. Viktor var heilsuveill á yngri árum og þurfti oftar en einu sinni að dvelja á spítala. Komst þó til sæmilegrar heilsu, en þurfti alltaf að gæta nokkurrar varúðar. Árið 1950 varð Viktor póst- og símstjóri í Flatey og gegndi því starfi til dauðadags. Leysti hann það starf af hendi með sérstakri prýði, svo að ann áluð var reglusemi hans, lipurð og greiðvikni. Þá var Viktor odd viti Flateyjarhrepps síðustu ár- in, einnig sparisjóðshaldari. Org anisti Flateyjarkirkju var hann ir.örg undanfarin ár. Viktor \*r kvsfentur Jónínu Ólafsdóttur, mikilli dugnaðar- og gæðakonu, og eignuðust þau tvo syni, Ingólf, loftskeytamann og Ottó, verkam. i Rvík. Viktor Guðnason var fríður maður og framkoman fáguð. Ég hef aldrei fyrir hitt svo hátt- prúðan mann, snyrtilegan og kurteisan. Hann var sérstæður persónuleiki, sem eftir var tekið, hvar sem hann fór. Hógvær, og jafnvel dulur, en barnslega glað ur í góðra vina hópi og lýsti upp umhverfi sitt með sinni kyrr- látu gleði. Hann átti svo margt ,gott fram að bera úr góðum sjóði. Greindur og menntaður vel, músikalskur, samdi lög og útsetti önnur. Stjórnaði bæði karlakórum og blönduðum kór- um í Flatey og var virkur þátt- takandi ; félags- og skemmtana- lífi Flateyjar um langan tíma. Hann kastaði ekki höndum til neins þess, er honum var trúað fyrir. Alltaf boðinn og búinn til starfa og fús til að leysa vand- kvæði manna. Aldrei var hann með vangaveltur um það, hvort alheimt væru daglaun að kveldi. Skapstilltur maður og fastur fyrir, en hörku átti hann ekki til. Honum var eðlilegast að leysa öll mál með lipurð og lægni á friðarins vegum. Hann ávann sér líka óskorað traust og velvild sveitunga sinna og ann- arra Samferðamanna. Og hann átti það skilið. „í rósemi og trausti skal yðar styrkur vera“. stendur einhversstaðar. Það voru sannmæli um Viktor. Viktor Guðnason var heimilis vinur minn og fjölskyldu minn- ar alla tíð, meðan við vorum í Flatey, eg margar yndislegar minningar eigum við frá sam- verustundum okkar. Það eru minningar um bjartar stundir, hljóðfæraslátt og söng, ljóð og lög, gleðibrag og gamanmál og græskulausa kímni og á stund- um umræður um alvarleg mál- efni. — Við eigum undur margs góðs að minnast frá veru okk- ar í Flatey. Einna hæst ber þar kynnin og samskiptin við þann góða dreng, Viktor Guðnason. Hann bar birtu og yl í bæinn. Við fáum það ekki fullþakkað, er fram berum hér okkar fátæk iegu þökk. Og um leið og við hjónin þökk um Viktori, vottum við vinkonu okkar, Jónínu Ólafsdóttur, son- um hennar og öðrum ástvinum innilegustu samúð og biðjum guð að blessa þau og styrkja. Þau hafa mikið misst. En það sannast þá líka hér, að „aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni að eigi geti syrt eins sviplega og nú, og aldrei er svö dimmt yfir dánarranni, að eigi geti birt fyrir eilífa trú.“ GLERADGNAHðSID TEMPLARASUNDI3 (homið) Sigurffur S. Haukdal. Auglýsing um skoðun bifreiða í logsagnarumdæmi Reykjavskur Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með, að síðari hluti aðalskoðunar bifreiða fer fram 4. ágústtil 20. októ- ber 1964, að báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir: Þriðud. 4. ágúst R-7951 til R-8100 Miðvikud. 5. — R-8101 .— R-8250 Fimmtud. 6. — R-8251 — R-8400 Föstud. 7. — R-8401 — R-8550 Mánud. 10. — R-8551 — R-8700 Þriðjud. 11. — R-8701 — R-8850 Miðvikud. 12. — R-8851 — R-9000 Fimmtud. 13. — R-9001 — R-9150 Föstud. 14. — R-9151 — R-9300 Mánud. 17. — R-9301 — R-9450 Þriðjud. 18. — R-9451 — R-9600 Miðvikud. JX — R-9601 — R-9750 Fimmtud. 20. — R-9751 , — R-9900 Föstud. 21. — R-9801 — R-10050 Mánud. 24. — R-10051 — R-10200 Þriðjud. 25. — R-10201 — R-10350 Miðvikud. 26. — R-10351 — R-10500 Fimmtud. 27. — R-10501 — R-10650 Föstud. 28. — R-10651 — R-10800 Mánud. 31. — R-10801 — R-10950 Þriðjud. 1. sept. R-10951 — R-11100 Miðvikud. 2. — R-11101 — R-11250 Fimmtud. 3. — R-11251 — R-11350 Föstud. 4. — R-11351 — R-11500 Mánud. 7. — R-11501 — R-11650 Þriðjud. 8. — R-11651 — R-11800 Miðvikud. 9. — R-11801 — R-11950 Fimmtud. 10. — R-11951 — R-12100 Föstud. 11. — R-12101 — R-12250 Mánud. 14. — R-12251 — R-12400 Þriðjud. 15. — R-12401 — R-12550 Miðvikud. 16. — R-12551 — R-12700 Fimmtud. 17. R-12701 — R-12850 Föstud. 18. — R-12851 — R-13000 Mánud. 21. — R-13001 — R-13150 Þriðjud. 22. — R-13151 — R-13300 Miðvikud. 23. — R-13301 — R-13450 Fimmtud. 24. — R-13451 — R-13600 Föstud. 25. — R-13601 — R-13750 Mánud. 28. — R-13751 — R-13900 Þriðjud. 29. — R-13801 til R-14050 Miðvikud. 30. — R-14051 R-14200 Fimmtud. 1. okt. R-14201 R-14350 Föstud. 2. — R-14351 — R-14500 Mánud. 5. — R-14501 — R-14650 Þriðjud. 6. — R-14651 —- R-14800 Miðvikud. 7. — R-14801 R-14950 Fimmtud. 8. — R-14951 — R-15100 Föstud. 9. — R-15101 R-15250 Mánud. 12. — R-15251 — R-15400 Þriðjud. 13. — R-15401 — R-15550 Miðvikud. 14. — R-15551 R-15700 Fimmtud. 15. — R-15701 -— R-15850 Fötsud. 16. — R-15851 — R-16000 Mánud. 19. — R-16001 R-16150 Þriðjud. 20. — R-16151 — R-16300 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til Bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun framkvæmd þar daglega, kl. 9—12 og kl. 13—16,30, nema fimmtudaga til kl. 18,30. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi vörubif- reiða skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vátryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1964 séu greidd og lögboðin xátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreiðum sínum, skulu sýna kvittun fyrir greðslu afnotagjalda til ríkisútvarpslns fyrir árið 1964. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki fram- kvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam- kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt - og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 29. júlí 1964. SIGURJÓN SIGURÐSSON. Í.S.Í. LANDSLEIKURINN ÍSLAND — FINNLAND fer fram á Laugardalsvellinum n.k. sunnudag 23. ág úst og hefst kl. 4. Dómari: P. J. Craham frá Irlandi K.8.I. Forsala aðgöngumiða hefst í dag kl. 13 í sölutjaldi við Útvegsbankann. Þórólfur Beck leikur með ísl. landsliÖinu Kaupið miða tímanlega. —- Forðist biðraðir. Verð aðgöngumiða: Stúkusæti .. Kr. 125.00 Stæði ......... — 75.00 Barnamiðar .. — 15.00 Knattspyrnusamband íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.