Morgunblaðið - 20.08.1964, Qupperneq 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. ágúst 1964
ntiiiiiiiiiiiwiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiinitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiitiiiwiiiiiiiiiHiiiiiiimiiiiiiiiiiifiiHiiNiiffl
HVAÐ SEGIÐ ÞER
UM FRAMBOD GQLDWATERS?
F R A M B O Ð Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum
á Barry Goldwater til forsetakosninga hefur vakið mikið
umtal víða um heim og ekki síður hér á landi en annars
staðar. Þess vegna hefur Morgunblaðið lagt eftirfarandi
spurningu fyrir nokkra borgara:
Hvað segið þér um framboð Goldwaters?
Birgir fsl. Gunnarsson, hdl.:
Ég held, að sú hræðsla, sem
virtist grípa um sig í Evrópu
eftir tilnefningu Goldwaters,
hafi verið ástæðulaus. Það er
að vísu rétt, að Goldwater
hafði látið hafa eftir sér ýmis
ummæli, sem verða að teljast
Birgir ísl. Gunnarsson
óábyrg, en þess ber þá að
gæta, að það tíðkast mjög
meðal stórþjóðanna, að stjórn-
málamenn, sem eru að brjóta
sér braut, reyni að vekja á sér
athygli með nokkuð stóryrtum
yfirlýsingum og fullyrðingum,
sem þeir geta e.t.v. aldrei
staðið við. Það ber að hafa í
huga, þegar skoðuð eru ýmis
ummæli Goldwaters frá fyrri
mánuðum.
Sem dæmi um þetta má t.d.
benda á ýmis ummæli Kenne-
dys, fyrrum forseta, er hann
var að berjast til valda innan
flokks síns og reyndar í kosn-
ingabaráttunni. Hann réðst þá
oft mjög harkalega á Eisen-
hower fyrir „linkind í barátt-
unni gegn kommúnismanum"
og í sjónvarpseinvígunum, er
fram fóru milli Kennedys o&
Nixons, var Kennedy mun
harðari og jafnvel öfgafyllri
en Nixon í afstþðu til utan-
ríkismála. Ástæðan fyrir því
var einfaldlega sú, að Nixon
var í stjórnaraðstöðu, en
Kennedy þurfti að vekja á sér
athygli með því að gagnrýna
aðgerðir hans.
Síðustu vikur sýna einnig
að Goldwater er mjög farínn
að draga í land. Hann er
greinilega farinn að finna til
þeirrar ábyrgðar að vera fram
bjóðandi til forsetakjörs í
Bandaríkjunum, og í síðustu
yfirlýsingum sínum kveðst
hann munu fylgja sömu stefnu
í utanríkismálum og Eisen-
hower-stjórnin, en það var
einmitt sú stjórn, sem Kenne-
dy gagnrýndi mest á sínum
tíma fyrir skort á hörku.
Ég held því, að utanríkis-
stefna Bandaríkjanna muni
ekki breytast verulega þótt
Goldwater yrði ‘forseti. Á
alvarlegum örlagatímum reyn
ir á það, að forseti Banda-
ríkjanna, eins og allir ábyrgir
' stjórnmálamenn, geti tekið á-
kvarðanir af víðsýni, en jafn-
framt af festu og einbeitni,
eins og Kennedy í Kúbu-deil-
unni. Að því leyti er Gold-
water óskrjfað blað — eins og
reyndar einnig Johnson.
Það er frekar í innanlands-
málum, sem stefnubreyting
gæti orðið, ef Goldwater kæm-
ist að. Hann hefur að vísu nú
lýst yfir fylgi við mannrétt-
indafrumvarpið, en það er
einkum í efnahagsmálum, sem
ágreiningur virðist vera.
Mörgum Bandaríkjamönnum
er illa við sívaxandi ríkisaf-
skipti, sem aftur krefjast auk-
inna skatta úr vösum einstakl-
inganna. Það er mjög tíma-
bært umræðuefni hér á ís-
landi þessa dagana, en við
skulum láta Bandaríkjamenn
um að leysa þau mál hjá sér.
Bjarni Guðnason, prófessor:
Val Barry Goldwaters til
frambjóðanda repúblikana við
forsetakosningar Bandaríkja-
manna í haust vil ég leyfa mér
að kalla sigur myrkursins.
Goldwater virðist — eftir um-
mælum sínum að dæma —■
vera nátttröll á atómöld. Frum
stæður hugsunarháttur hans
bendir fremur til 19. aldar-
innar en þeirrar tuttugustu. í
þessum fáu orðum er það mér
um megn að styðja þessi stór-
Bjarni Guðnason
yrði rökum, en ég vil minna á
afstöðu Goldwaters til mann-
réttindafrumvarps Kennedys
(og Johnsons) og þá háska-
samlegu hugmynd hans að láta
herforingja einráða um notk-
un atómsprengna í Suður-
Vietnam gegn uppreisnar-
mönnum þar eða jafnvel að
varpa þeim á hernaðarlega
mikilvæga staði fyrir norðan
landamærin. Goldwater leggur
mikið kapp á það í ræðum sín-
um, að efla beri eftir mætti
sjálfstjórn einstakra ríkja, en
draga að sama skapi úr valdi
stjórnar alríkisins í Washing-
ton. Ef þetta næði fram að
ganga, mundi eiga sér stað
stöðnun eða afturkippur í
ýmsum menningar- og mann-
úðarmálum í stórum hluta
Bandaríkjanna, því að stjórn-
in í Washington hefur oft átt
frumkvæði í slíkum málum.
Þegar Goldwater tók við
kosningu á þinginu í Los
Angeles, lét hann svo um-
mælt, að öfgastefna (extrem-
ism) gæti átt rétt á sér í stjórn
málum. Þegar ýmsir framá-
menn repúblikana vildu ekki
una við þessi orð og kröfðust
skýringar, bætti hann við —
til að mýkja andófsmenn sina
— að í einstökum tilvikum,
t.d. þegar um frelsið væri að
ræða, væri ekkert við það að
athuga að grípa til öfgastefnu.
Það er eins og þeir sálufélag-
arnir Hitler og Stalin hafi hér
orðið. Þeir voru, eins og kunn-
ugt er, alltaf að verja frelsið
og aðhylltust þessa fornu
heimspeki, að tilgangurinn
helgaði meðalið, en engin
kennisetning í framkvæmd er
jafn hættuleg lýðræðinu.
Goldwater ætlar að hefja
krossferð gegn kommúnistum,
en allar helgar vættir forði
okkur frá því, að hann beiti
sömu aðferðum og kommún-
istar hafa gripið. Krossfarinn
getur ekki dýrkað sömu guði
og villutrúarmaðurinn.
Að mínum dómi væri það
skelfilegt fyrir Bandaríkja-
menn og alla þá, er fylkja sér
um vestræna lýðræðishugsjón,
ef Goldwater næði kosningu í
valdamesta embætti veraldar.
Ragnar Jónsson, forstjóri:
Ég á nú því miður ekki
kosningarétt í Bandaríkjun-
um, þótt svo megi heita, að
Ameríkumönnum sé veittur
hann hér með heimildinni til
sjónvarpssendinga inn á heim-
ili okkar. En ef ég væri Amer-
íkumaður, mundi ég kjósa
repúblikana en ekki demó-
krata, eins og ég kýs hér Sjálf
stæðisflokkinn, en ekki sósíal-
ista, þó að margt sé nú að
verða líkt með þessum flokk-
um. Og ekki er það vegna
þess að ég ekki líti upp til og
dái menn eins og Roosevelt og
Kennedy, sem voru stórvitrir
mannvinir. En samúð mín, ótti
og aðdáun beinist að jafnaði
að náttúruöflunum og mann-
eðlinu fremur en tækni og
skipulagningu. Repúblikanarn
ir eru, eins og sjálfstæðis-
menn hér, fremur fulltrúar
fyrir frumkvæðið, hið ó-
trygga, áhættusama, skapandi
lífsstrit og vonlausa baráttu
einstaklingsins; hinir formæl-
endúr öryggis og þæginda. Ég
fyrirlít hið síðarnefnda, nema
til handa sjúklingum, börnum
og gamalmennum. Ég er ekki
fylgismaður Natósamtakanna
vegna þess að ég trúi, að þau
geti varið okkur í stríði eða
forðað okkur undan árásum
imperíalista í Kína og Rúss-
landi. Þvert á móti vegna hins,
að sá félagsskapur tryggir okk
ur aðild að því stríði, . sem
kynni að reynast óupiflýjan-
legt, því að ég vil ekki aðeins
lifa og njóta með vinum mín-
um, ég vil líka farast með
þeim. Og ég trúi ekki, að það
verði Barry Goldwater, sem
því stríði hrindi af stað, til
þess virðist hann of hugaður.
Ég hef ekki orðið var við
neinar landvinninga-tilhneig-
ingar hjá Barry Goldwater,
enda hefur hugaður maður ráð
á að vera mannúðlegur, þar
sem hugleysið er undirrót alls
ills.
Ragnar Jónsson
Það er hvorki æskilegt né
vænlegt til góðs árangurs, að
menn láti eitthvað ógert af
ótta við afleiðingarnar, fremur
en af því þeir álíti það rétt.
Og ég held, að þeir, sem ekki
eru haldnir stöðugum ótta
vegna hugsanlegra afleiðinga
gerða sinna, séu líklegri til að
gera það, sem rétt er, og njóti
til þess eðlilegs stuðnings vits-
muna og samvizku.
Ef þið getið útvegað mér
kosningarétt í U.S.A., kýs ég
Goldwater.
Þór Vilhjálmsson,
borgardómari:
Það leikur ekki á tveim
tungum, að Barry Goldwater
hefur margt sér til ágætis.
Hann er maður einlægur, heið
arlegur og kjarkmikill. Hann
hefur verið valinn til fram-
boðs fyrir atbeina fólks, sem
við eigum auðvelt með að
skilja, sem erum hægrisinnuð
í pólitík, — viljum byggja
hið nýja á grunni þess, sem
fyrir er og hefur reynzt vel;
ekki fórna því, sem er, fyrr
en' við vitum, hvað við tekur.
Fleira þarf þó að hafa í huga,
þegar taka á afstöðu til fram-
boðs hans, og eru það að mínu
mati tvö atriði, sem mestu
skipta frá sjónarmiði þeirra,
sem ekki eru Bandaríkja-
menn:
1) Margt bendir til, að nú
dragi til sátta milli Rússa og
vestrænna ríkja. Það virðist
mega gera sér vonir um, að
kalda stríðið muni fjara út af
þeirri einföldu ástæðu, að
evrópsku kommúnistaríkin
taki sönsum í þeim mæli, að
friðsamleg sambúð við þau í
félagsskap þjóðanna verði
möguleg. Orsakirnar virðast
vera tvær: einurð vestrænna
ríkja, m.a. starfsemi NATO,
og svo þrýstingur frá fólkinu
í kommúnistalöndunum, sem
vill frið og framfarir eins og
annað heilbrigt fólk. Ef sætt-
ir takast, mun skynsemin
vinna mikinn sigur yfir of- 3
stækinu í löndum kommún- =
ismans. í mínum augum 3
myndi í þessu koma fram H
ný sönnnun um gildi og þrótt §j
þeirra hugsjóna, sem eru und- =
irstaða vestrænnar menning- =
ar, en með henni hefur mann- 3
kynið náð lengst á þroska- =
brautinni. Þeir, sem lifa og =
starfa í þjóðfélögum, sem =
vestræn menning mótar, eru =
að mínu viti mikillar gæfu =
aðnjótandi. Því miður er =
þetta ekki stór hluti mann- 3
kynsins og margar tilraunir 3
til að starfa í anda þessarar 3
menningar í öðrum heimshlut- 3
um hafa farið út um þúfur. 3
Menning okkar er í sumu til- =
liti eins og veikbyggt ker, sem =
auðvelt er að sprengja og 3
brjóta. Þess vegna var, ekki =
sízt í tíð Stalíns, ástæða til að 3
óttast fjandskap hernaðarlega 3
öflugs kommúnistaríkis og 3
ekki að vita nema sú tilraun 3
til betra mannlífs, sem felst í 3
hinni vestrænu menningu, =
færi út um þúfur og við yrð- 3
um öll flutt nokkrár aldir aft- 3
ur í tímann. 3
Goldwater virðist ekki skilja =
þá þróun í sáttaátt, sem nú =
er. Hann vill taka upp nýjar 3
og harðari aðferðir í samskipt- 3
um við Rússa, hóta að slíta 3
við þá stjórnmálasambandi, 3
frelsa Úkraínu o.s.frv. Ef =
Bandaríkin, forysturíki vest- 3
rænna þjóða, tækju upp þá 3
stefnu, sem Goldwater boðar, 3
er hætta á, að sambúð Rússa 3
og vesturveldanna yrði slík, 3
að allt gæti farið í bál og =
Þór Vilhjálmsson
brand af litlu tilefni. Öfga-
öfiin í Rússlandi, sem áreið-
anlega eru enn öflug og önug
út af þróun mála, myndu efl-
ast og styrkjast og að litlu
verða vonir um, að þjóðir
kommúnistaríkjanna fengju
tækifæri til að tileinka sér
vestræna menningu smátt og
smátt. Mér þætti illa farið,
ef minnzt yrði hálfrar aldar
Framhald á bls. 23.
Barry Goldwater
SuillllHHIIIIMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIHIIIIIIIIIilHfflllllllllllllllHlilHIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIInillllllHllllllllllllllHlllllllllllllllimillllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIHIHIIIUIIHIIIIIIIIIIIIlBllllllllHlllllllllllllffllllllllHIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIHHIIIIHIIIIIIIIIIHHHIHIIB