Morgunblaðið - 20.08.1964, Page 23
Fimmtudagur 20. ágúst 1964
MORGU N BLAÐIÐ
23
SVR reisir þriggja hœða
hús fyrir starfsemi sína
Framkvæmdir hefjast sennilega á næsta vori
Á FUNDI borgarráðs sl. mánu-
dag voru lagðir íram frum-
uppdrættir að fyrirhugaðri verk
— Kýpur
Framhald af bts. 1.
eftur herlið það sem hún kvaddi
heim áður, að sögn Papandreous,
forsætisráðherra. Var þetta gert
skömmu eftir að Tyrkir höfðu
tilkynnt Atlantshafsbandalaginu
að þeir hygðust senda aftur sitt
herlið, sem var á vegum samtak-
anna.
I I,ondon þykir mönnum
sem framvinda mála á Kýpur
sl. sólarhring spái góðu um
framtíðarhorfur á lausn deilu
mála þar.
Aðstoð Krúsjeffs þökkuð
Tass-fréttastofan í Moskvu
ekýrir frá því að Makarios hafi
6ent Krúsjeff forsætisráðherra
kveðju og þakkað honum boð
um aðstoð til handa eyjaskeggj-
um. í skeytinu segir m.a. „Kýpur
búar trúa því fullt og fast, að
með styrkri aðstoð yðar mikla
lands muni þeir ná rétti sínum
til sjálfsákvörðunar í eigin mál-
um og fullu frelsi“.
Tyrkir gáfu út yfirlýsingu á
mánudag um viðhorf þeirra í
Kýpurdeilunni og segir þar m. a.
að þeir voni að Grikkir virði
vopnahlé það sem komið hafi
verið á á eynni, en verði það
ekki, muni tyrkneska stjórnin
grípa til sinna ráða til að verja
saklausa Tyrki á eynni. í yfir-
lýsingu þessari segir Inönu, for-
sætisráðherra að Tyrkir geri
allt sem þeir geti til þess að
reyna að leysa deilurnar á frið-
samlegan hátt. „Við höfum allt
frá byrjun stutt sáttasemjara
S.h. í viðleitni hans“, segir í yfir
lýsingunni oig tekið fegins nendi
aðstoð vinveittra ríkja til máia-
miðlunar“.
■jk Loka Bosporus
Utanríkisráðherra Tyrklands,
F. C. Erkin, sagði í dag, að ef
hætta væri á stríði, gæti komið
til mála að loka Bosporus-sund-
inu. Tilefni yfirlýsingar ráðherr
®ns voru fregnir um að sovézkt
skip hlaðið hergögnum hefði far
ið um Bosporus-sund áleiðis til
Kýpur. Kvað ráðherrann stjórn-
ina ekki hafa um slíkt neinar
upplýsingar en þeir myndu grípa
til sinna ráða, ef Sovétríkin færu
eð senda hergögn til eyjarinnar.
Utanríkisráðherrann sagði að
ástandið á Kýpur hefði batnað
að mun síðan aflétt var við-
skiptabanni Kýpur-Grikkja og
sagði að langt væri síðan svo
kyrrt hefði verið á Kýpur.
ýt í New York
í aðalstöðvum SÞ I New
York er skýrt frá því að fulltrúi
Tyrkja hjá samtökunum, Orhan
Erlap, sendiherra, hafi lagt til í
bréfi er hann ritaði formanni Ör-
yggisráðsins, Norðmanninum Si-
vert Nielsen, að herlið SÞ á
eynni fái aukið umboð til að-
gerða þar. Gera tillögurnar ráð
fyrir því að herliðið fái „fullt um-
boð til þess að stöðva allan flutn
ing hergagna og herliðs" til Kýp
ur, að sett verði á laggirnar
nefnd er í eigi sæti fulltrúar
Tyrklands, Grikklands og landa
þeirra sem leggja SÞ til herlið,
sem hafi eftirlit með höfnum,
flugvöllum og öðrum þeim stöð-
iim er komast megi um til eyjar
innar, að grískir menn o>g tyrk-
neskir á eynni fækki herliði
eínu og afvopni það smám sam-
en undir eftirliti svipaðrar nefnd-
er, og loks að leiðtogar grískra
og tyrkneskra manna á eynni
lýsi yfir því að þeir hafi fullan
htig á að fara að landslögum og
halda gildandi samninga og áð
þeir muni styðja viðleitni sátta-
semj arans með ráðum og dáð.
stæðis- og . skrifstofubyggingu
Strætisvagna Reykjavíkur á lóð
fyrirtækisins við Kirkjusand.
Féllst borgarráð á uppdrættina í
megindráttum og fól forstjóra
SVR að annazt frekari undirbún
ing. Mbl. átti í gær samtal við
Eirík Ásgeirsson, forstjóra SVR,
og spurðist fyrir um fram-
kvæmdir þessar.
Eiríkur sagði, að frumupp-
drættir hefðu nú verið gerðir að
byggingunni, sem alls væri áætl-
uð 15,000 rúmmetrar á þremur
hæðum. Væri ráð fyrir því gert
að húsið yrði byggt í þremur
áföngum, ein hæð í áfanga. í
fyrsta áfanga yrði lokið við sjálf
virka þvottastöð, smurstöð og
aðsetur til viðhalds og eftirlits
á vögnunum. í öðrum áfanga
yrði byggð rafmagns- og mótor
verkstæði svo og verkstæði til
að annazt viðhald á yfirbygging
um vagnanna.
Þriðja hæð hússins og síðasti
áfanginn yrði tvískipt. í öðrum
enda yrði matsalur og eldhús, að
staða til félagsstarfsemi, bún-
ingsherbergi og böð. í hinum
endanum yrðu skrifstofur SVR
til húsa, en til bráðabirgða, þar
— Johnson
Framhald af bls. 1'
sem auður forseta Bandaríkj
anna eða forsetaefnis er til
umræðu þar á opinberum
vettvangi. í forsetakosning-
unum 1952 gaf Adlai Steven
son, forsetaefni demókrata,
út yfirlýsingu um fjárhag
sinn oig sama gerði nokkru
síðar andstæðingur hans
kosningunum forsetaefni repú
blikana, Dwight D. Eisen-
hower.
Goldwater git upp fjár-
hagsskýrslu sína 13. ágúst sl.
og eru þau hjón þar talin
eiga 1.7 milljón dala.
sem ráðgert er að reisa síðar á
lóðinni sérstakt hús fyrir skrif-
stofur fyrirtækisins.
Eiríkur Ásgeirsson sagði, að
vonir stæðu til þess að bygging
in yrði tilbúin til útboðs um
næstkomandi áramót, og vonast
væri til að framkvæmdir við
fyrsta áfanga gætu hafizt á önd
verðu næsta vori.
Þá gat Eiríkur þess, að nýlega
væru komin til landsins upphit
unartæki fyrir vagnana. Væri
nú unnið að undirbúningi þess
að koma tækjunum fyrir. Hér
er um að ræða aðalæð eða
slöngu, með 60 gráðu heitu vatni,
sem lögð verður út að vagna-
stæðinu. Frá aðalæðinni kvísl-
ast greinar í hitakerfi hinna ein
stöku vagna, og heldur kerfið
vélum þeirra heitum. Hið nýja
hitunarkerfi gerir því frostlög
óþarfan, og auk þess er að því
margt annað hagræðL
iiiiiiiiiiiiiiifimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifH
( Á Kýpur
§j MYNDIN er tekin í Ktima a
= Kýpur á dögunum, er Grikkir
1 höfðu lokað þar fyrir vatnið
i og íbúar þorpsins urðu að
Í sækja sér nauman vatns-
Í skammtinn í borgarbrunnana.
| Brunnarnir voru nær tómir er
I Grikkir heimiluðu að hleypa-
S aftur vatni á kerfið í gær-
= kvöldi.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiii,iiiiiii,iii,iI,i,iiiii,iiii„i„„„iii,iiii >iiliiii(iiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiii>.iiiiiiiiiiiiiiiiu..iiiiiiiiii;»míiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuilii
— Til Finnlands
Framh. af bls. 2.
Nádendal. Síðan var haldið til
Ábo (Turku) í boði Lehto, for-
sætisráðherra, sem kom til Gull
randa úr sumarleyfi. í Ábo voru
skoðaðir merkir staðir. í kvöld
sitja utanríkisráðherrahjónin
sámsæti Norræna félagsins í
Ábo. — Heimsóknarinnar er ýtar
lega getið í blöðum og útvarpi og
atriði sýnd í sjónvarpi.
Spinelli tekur við
starfi Tuomioja
—- til bráðabirgða
SÞ, New York og Genf, 19. ágúst. — (AP) —
U THANT, aðalritari SÞ, sagði í gærkvöldi, að hann hefði
farið þess á leit við ítalann Pier P. Spinelli, að hann tæki
að sér um stundarsakir starf sáttasemjara Sl* í Kýpur-
deilunni. —
Ráðstöfun þessi var gerð með
tilliti til hinna alvarlegu veik-
inda skipaðs sáttasemjara S.þ.,
Sakari Tuomioja, sem fékk heila
blóðfall í Genf á sunnudag, og
er enn mjög þungt haldinn.
Spinelli er forstöðumaður
Evrópuskrifstiofu S.Þ. sem hef-
ur aðsetur í Genf. Hann hefur
dvalizt í Yemen undanfarið og
er sérlegur fulltrúi U Thants
þar. Hann kemur til Genf í dag.
Talsmaður S.Þ. sagði, að Spin
elli myndi annast um öll em-
bættisstörf Tuomioja og sjá til
þess að allt þeim viðvíkjandi
gengi eðlilega, en hann myndi
ekki annast sáttaumleitanir. Þær
myndu hafa á hendi aðstoðar-
menn Tuomioja, Ný-Sjálending-
urinn Robin Miller og Michel
Virelli frá Frakklandi. Skipun
Spinellis gildir meðan Tuomioja
er veikur.
Tilkynningunni um skipun
SpinelLis fylgdi yfirlýsing U
Thants um að hann hefði jafnan
í huga ástand það sem skapazt
hefði fyrir veikindi Tuomioja
sendiherra og að hann myndi
gera nauðsynlegar ráðstafanir
vegna þeirra og tilkynna þær
jafnharðan.
Síðustu fregnir herma, að
Tuomioja hafi hrakað og sé nú
sem næst meðvitundarlaus. —
Segja læknar að honum hafi
versnað í morgun og kenna um
heiftugri lungnabólgu. Er nú ótt
ast um líf sáttasemjarans.
— Næturfrost
Framhald af bls. 24.
arins, í gær vegna þessara frétta.
Kvað hann líkur benda til þess,
að meiri eða minni skaðar hefðu
orðið í kartöflugörðum á öllu
Suðurlandsundirlendi aðfaranótt
miðvikudags. Ekki sæist þó fyrr
en á föstudag, hvort grösin réttu
sig við, svo að ekki væri enn
vitað, hvort um algera eyðilegg-
ingu væri að ræða eða alvarlegar
skemmdir.
Mjög ólíklegt væri, að nokkur
offramleiðsla yrði í haust, svo
að of snemmt væri að gera því
skóna, hvað gera ætti við hana.
Þetta væri þriðja sumarið í röð,
sem frostnætur spilltu kartöflu-
uppskeru.
Útlitið er mjög alvarlegt, sagði
Jóhann að lokum.
— Goldwater
Framh af bls. 9
afmælis fyrri heimsstyrjald-
arinnar og aldarfjórðungsaf-
mælis hinnar síðari með því
að taka upp í Bandaríkjunum
stefnu, sem veikir vonir um,
að vestræn menning sigri
hinn kommúnistíska heim með
friðsamlegum hætti.
2) í öllum löndum skiptir
verulegu máli, hvaða ein-
staklingar veljast til forystu
í stjórnmálum. Vegna stjórn-
kerfis Bandaríkjanna skiptir
það þó meiru þar en annars
staðar, og á þetta ekki sízt
við um persónuleika forset-
ans. Goldwater hefur marga
góða kosti, en mér virðist
hann skorta hæfileika til að
leita nægilega víða og djúpt
eftir forsendum gerða sinna,
til að samræma þær og kom-
ast að skynsamlegum niður-
stöðum. Hann má vafalaust
kallast vel greindur maður,
en það dugir ekki til. Hvorki
Bandaríkin né önnur ríki hafa
efni á að hafa annað en af-
burðagáfnaljós í Hvíta húsinu.
— Bukavo
SJÓSTANGAVEIÐIMOT
í KEFLAVÍK
SÍÐASTI INNRITUNARDAGUR fyrir þátttak-
endur í dag.
Lagt verður af stað frá Aðalbílasölunni, Ingólfs-
stræti kl. 7 á morgun.
Framhald af bls. 1
óhægt um vik að gera loftárásir
a lið uppreisnarmanna, en til
þess hefur hún notað tvær
bandarískar T-2® flugvélar,
sem kúbanskir flugmenn í þjón-
ustu Kongó-hers fljúga. Vélarn-
ar höfðu bækistöð á Kamemtoe-
flugvellinum, skammt fyrir inn
an landamæri Rwanda. í Leo-
poldville óttast menn nú, að ef
Bukavu falli uppreisnarmönnum
í hendur verði gengið hart eftir
því við Rwanda að Kongó-stjóm
fái ekki afnot af flugvellinum.
Einnig óttast menn það í
Rwanda að Watusi-hermenn
þeir sem flýðu til Kongó frá
Rwanda áður fyrr og berjast nú
í liði uppreisnarmanna, muni
sjá sér leik á borði að fara með
skæruliðahernað á hendur stjórn
inni í Rwanda, ef þeir eru svo
nærri.
Komið hefur til tals að vísa
úr landi um 25.000 útlendingum,
aðallega frá Kongó-lýðveldinu
(sem áður hét franska Kongó og
hefur Brazzaville að höfuðborg)
og frá Burundi, að sögn tals-
manna Kongóstjórnarinnar í
Leopoldville. Síðari fregnir
herma að brottvísunin nái einn-
ig til borgara Mali-lýðveldisins.
Lögregla og herlið hefur tek-
ið til við að handtaka fólk það
sem hér um ræðir. Er því safn-
að saman í búðir og skrásett
áður en það er flutt úr landinu.
Líklegt er talið að fyrsti hópur-
inn fari yfir Kongófljótið til
Brazzaville þegar á fimmtudags
morgun.