Morgunblaðið - 27.08.1964, Side 17

Morgunblaðið - 27.08.1964, Side 17
Fimmtudagur 27. águst 1964 MORGUN BLAÐIÐ 17 Kristilegt s|ó mannastarf Þessi mynd er af sýningunni áLaugavegi 26 og sýnir hún tillögu Björns Olafs, sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.) Sýning á verð- launateikningum ALLIR sem eitthvað þekkja til sjómennsku, vita um hinar erf- iðu aðstæður sem sjómenn oft eiga við að búa. Margir eru fjarri heimilum sínum um lang- an tíma, og fara því margs á mis sem annars væri. Oft reynir á þrek og dug í samskiptum við hamfarir náttúrunnar, og sjálf- sagt finnur þá margur til van- xnáttar síns og viðurkennir að sá er einn sem ræður yfir vindi og sjó, og að hann hefir mátt til að lægja hinar hæstu öldur, og vísa skipinu heilu og höldnu til hafnar eins og á Genesere- vatninu forðum. En hvað tekur þá við? Ef til vill eru þeir eftir sem áður, fjarri öllum vinum í ókunnri höfn. Margir velja þá samfylgd með Bakkusi, og reyna með að- stoð hans að skemmta sér og hafa það gott þann frítíma, sem gefst, en oftast fer það svo að Bakkus tekur sér alræðisvald yfir þess- um mönnum, og þeir verða því nauðugir, viljugir að hlíða í einu og öllu. Afleiðingarnar verða því dapurlegar ef ekki sorglegar, svo þegar aftur er komið til skips, hefir pyngjan létzt tU muna, en vonbrigði og söknuður aukist að sama skapi hið innra með mann- inum. Aftur er svo haldið út á hafið, og beðið næsta tækifæris til þess að endurtaka þennan sorgarleik. AUt er gert til að auðvelda þessum mönnum, ásamt allri þjóðinni, aðgang að sölum Bakk- usar konungs hins grimma. Svo virðist sem það sé orðið stórt kappsmál hjá bæjar- og sveitar- félögum að hafa sem flesta slika staði innan sinna vébanda, og gera það meira að segja í nafni menningarinnar. Rikið er látið vérzla með áfengi, og þjóðinni hefir jafnvel verið fluttur sá boðskapur um áratugi að hún geti ekki Ufað mannsætmandi lífi án þeirra fölsku tekna sem þessi verzlun gefur af sér. Oft er svo langt gengið til að greiða fyrir þessum óheiUavænlegu viðskipt- um, að jafnvel opinberir aðilar, haldi hlífiskildi yfir leynivínsöl- um sem afgreiða almenning á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Það ber þvi ekki sjaldan við er sjómenn koma til hafnar að næturlagi að þeir séu orðnir drukknir þegar dagur rís. En er þá ékkert gert til að hjálpa sjó- mönnum í þessum efnurn? Jú, á nokkrum stöðum eru sjómanna- stofur eða heimili, auk þess starfs sem ég undirritaður hefi aðallega séð um í nafni Selem safnaðar- ins á ísafirði, og 'nánar verður vikið að síðar. Öllum þeim aðil- um, og öðrum sem að þessu mál- efni vinna, ber að þakka. Þetta eru spor í rétta átt. En betur má ef duga skal. Það þurfa að risa upp mikið fleiri sjómannastofur og þær eiga að vera reknar á kristilegum grundvellL þar sem gætt sé fyllstu reglusemi og sið- gæðis, í beinni andstöðu við drykkjukrárnar. Þar eiga sjó- menn að geta verið óhultir fyrir hinum skaðlegu áhrifum og freist ingum Bakkusar, en notið hollra veitinga, lesið góðar bækur, eða blöð, skrifað til vina sinna o.s.frv. Einnig er þeim veitt margvísleg iþjónusta og fyrirgreiðsla, t. d. með póst, peninga o. fl. Þá er þeim að sjálfsögðu gefið tæki- færi til að vera á kristilegum samkomum, en það eitt getur haft ómetanlega þýðingu. Hefi ég þar fyrir mér, mína eigin reynslu og margra annarra. Á einni slíkri sjómannasamkomu sem haldin var fyrir 31 ári síðan á norska sjómannaheimilinu á Siglufirði, urðu hin mestu straumhvörf í lífi mínu. Þá mætti ég Jesú Kristi sem mínum per- sónulega Frelsara, og hainn frels- aði mig frá glötuninni og leysti mig undan ofurvaldi áfengis og tóbaks og margra annarra synd- samlegra nautna. Þetta gat ekki gerzt fyrir minn eigin kraft, en aðeins fyrir hans frelsandi mátt. Jesús er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það“. Lúk 19:10. L<ofað sé hans blessaða nafn! Þetta rætist bókstaflega hvar sem við honum er tekið. Samanber orðin í Jóhannesar- guðspjalU 1:12. Þá skal með nokkrum orðum vikið að Selem sjómannastarfinu. Við höfum ekki sjómannastofur hér, en ég trúi því, að það sem gert er, verði undanfari þess að hér eigi eftir að rísa af grunni veglegt sjómannaheimili, fyrir Guðshjálp og góðra manna. Við höfum að- eins fremur lítinn samkomusal, en þangað hafa þó æðimargir ARKITEKTAFÉLAG íslands stendur um þessar mundir fyrir sýningu á verðlaunateikningum úr samkeppni um tillögur um heimavistarskóla, sem fyrirhug- að er að byggja að Reykjum í A-Húnavatnssýslu. Efndu fræðslu ráð A-Húnavatnssýslu og fræðslu málastjórnin til þessarar sam- keppni í apríl sl. Tíu tillögur bár- sjómenn lagt leið sína, bæði á samkomur, og svo er þeim hefir verið sérstaklega boðið á stór- hátíðum, og eftir því sem ástæð- ur hafa verið til, og menn hafa verið lengi fjarri heimilum sín- um. Eru þá frambornar ókeypis veitingar, lesið Guðs orð, sungið og ræðst við. Hafa það verið blessaðar samverustundir, sem margir munu eiga góðar minn- ingar frá. Á jólahátíðinni er út- býtt pökkum til þeirra sjómanna sem eru hér í höfn og ekkert athvarf eiga hér, einnig til þeirra skipa sem til næst, og vitað er um að verði á hafi úti um há- tíðina. Sl. ár var t. d. útbýtt jólapökk- um til 92 íslenzkra sjómanna og 227 erlendra. Á aðfangadag var farið á sjúkrahúsið með pakka til þeirra sjómanna sem þar voru, en alls var á árinu vitjað 75 sjómanna á sjúkrahúsinu svo oft sem auðið var og þeim lánað bækur og blöð o. fl. Fylgt hefir verið þeirri reglu að gefa kristileg blöð og rit í öll skip sem náðst hefir til, og var á síðastliðnu ári gefið Guðs orð til 6130 erlendra manna frá 27 þjóðum, íslenzkir sjómenn hafa ekki verið taldir, en þeir eru af eðlilegum ástæðum marg- falt fleiri. Þá hefir það komið ust og voru þrjár þeirra verð- launaðar. Fyrstu verðlaun, 75 þús. krónur, hlaut tillaga Björns Ólafs, Ránargötu 29, en hann hefur undanfarin ár stundað nám í byggingarlist í París. Önn- ur verðlaun, 50 þús., hlaut til- laga Jörundar Pálssonar, arki- tekts, Háteigsvegi 12, Þorvalds S. Þorvaldssonar, arkitekts, fyrir þegar mörg skip hafa verið í höfn, að rýmt hefir verið til í salnum, borð sett fram, og gnægð góðra bóka og ritföng, til frjálsra afnota, hafa menn notað sér þessi tækifæri. Hér skal einn- ig notað tækifærið að þakka utansafnaðarfólki sem veitt hefir oss hjálp í sambandi við jóla- pakkana, svo og öllum öðrum sem á einn eða annan hátt hafa sýnt þessu starfi vinarhug og góðan skilning. í þessu sambanli langar mig til að vekja sérstak- lega athygli á því sem tíðkast mikið erlendis en það er að kvenfélög og saumaklúbbar vinna mjög mikið að því að útbúa jóla- pakka til sjómanna, oft eru þá skrifaðar persónulegar kveðjur eða árnaðaróskir með. Er þetta svo sent til næsta sjómannaheim- ilis sem svo sér um dreifingu þess. Einnig er tekið á móti ó- pökkuðum gjöfum, er það þá pakkað á sjómannaheimilinu. Þessu beini ég hér með til ís- lenzkra kvenna til athugunar. Væri mér ljúft að taka á móti slíkum gjöfum og koma þeim til sjómanna sem ekki eiga þess kost að dvelja með ástvinum sín- um um jólin. Undirbúningur að þessu ér oft hafinn strax að sumrinu, enda getur það valdið erfiðleikum að fá mikið í hend- Dunhaga 19 og Jóns Haraldsson- ar, arkitekts, Mímisveg 8. Þriðju verðlaun hlutu Helgi Hjálm^ps- son, arkitekt, Bogahlíð 13 og vil- hjálmur Hjálmarsson, arkitekt, Kvisthaga 29. Heimild til þátttöku i sam- keppni þessari höfðu allir með- limir Arkitektafélags íslands og námsmenn í byggingarlist, sem lokið hafa fyrri hluta prófi við viðurkenndan háskóla í bygging- arlist. Sýningin á verðlaunateikning- unum verður opin þessa viku í húsakynnum Byggingaþjónustu Arkitektafélags íslands að Lauga vegi 26. ur rétt fyrir jól, og útilokað að ná til þeirra sem úti verða um hátíðina. Yfirleitt má segja að því hafi verið vel tekið meðal sjómanna, iþegar Guðs orði hefir verið útbýtt á meðal þeirra, um iþað bera vitni góðar viðtökur um borð í skipunum og mikill fjöldi þakkarbréfa, sem berast frá inn- lendum og erlendum sjómönnum, eða aðstandendum þeirra. Það er bæn vor, að þeir meigi ávallt hafa Guðs orð sem „leiðarstein I stafni“ og taki af hjarta undir með skáldinu sem kvað þannig. Og stundum sigli ég blíðan byr. Og bræðra samfylgd þá hlýt ég; og kjölfars hinna, er fóru fyrr. Án fyrirhafnar þá nýt ég. í sólarljósi er særinn fríður. Og sérhver dagurinn áður líður. Er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má. í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á. Svo naumast hægt er að verjast. Ég greini ei vita né landið lengur. En ljúfur Jesús á öldum gengur. Um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór. Og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór. Því skipi er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður; því valdi er særinn og stormur háður. Hann býður: „Verði blíðalogn!“ Að lokum skal það tekið fram til að fyrirbyggja allan misskiln- ing að allt þetta starf er unnið sem sjálfboðastörf án nokkurra launa, jafnhliða þeim störfum sem hinn venjulegi verkamaður verður að vinna sínu heimili og fjölskyldu til framfæris. Eigi að síður sagði Jesús, að launin væru mikil í himninum öllum þeim til handa sem á einn eða annan hátt getur leitt eina mannssál inn á mjóa veginn sem liggur til eilífa lífsiss. í þeirri trú verður þetta starf rekið hér eftir, sem hingað til. Að endingu vil ég svo senda mína beztu kveðju til allra sjó- manna fjær og nær. Guðs náð og blessun sé með ykkur öllum. fiíirfús R. Valdimarsston. FLÍSALÍIVi er ódýrt og auðvelt í notkun. Fæst í flestum byggingavöruverzlunum. Stúlka óskast frá 1. sept. í mjólkurbúðina Langholts- vegi 49, einnig sendisveinn frá 15. sept. A £Uli n IXcUcli, Langholtsvegi 49. TIL SÖLIJ STRAX JAFNVEL FALLEGRI EN NÝR. Upplýsingar: SVEINN BJÖRNSSON & CO. Garðastræti 35 Sími 24204.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.