Morgunblaðið - 10.09.1964, Page 14
14
MOHGUN BLABIB
Fimmtudagur 19. sept. 1964
Útgefandi:
Framk væmdas t j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
1 lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
UTANSTEFNUR
"Mýlega var stefnt til Rúss-
^' lands þeim félaga Einari
Olgeirssyni, félaga Lúðvík
Jósefssyni, félaga Guðmundi
Hjartarsyni, félaga Brynjólfi
Bjarnasyni og félaga Sigurði
Thoroddsen. Þeim var gert að
ganga á fund húsbænda sinna
og skýra þar ágreining þann,
sem verið hefur í kommún-
istaflokknum hér á landi, en
þessir menn eru umboðsmenn
fyrir allar þelztu klíkurnar í
flokknum.
Mikið var við þá haft, enda
mikið í húfi, því að 5. her-
deild Sovétríkjanna á íslandi
logar í innbyrðis deilum og
riðar til falls. Sjálfur ritari
miðstjórnar kommúnista-
flokksins í Rússlandi, Bresn-
ev, tók að sér hlutverk sátta-
semjarans, og er ekki að efa
að bæði hafi hann þreytt
samningamenn og beitt hót-
unum á milli blíðulátanna,
enda er heilaþvottur sú iðn-
grein, sem snurðulaust hefur
þróazt í kommúnistaríkjun-
um, þótt flest annað hafi
gengið á afturfótunum.
Enn hefur Morgunblaðið
ekki áreiðanlegar fréttir af
því, hvernig heilaþvotturinn
'hafi gengið, en líklegt er þó
talið, að sæmilega hafi horft
á fundunum austantjalds,
hvernig svo sem samninga-
mönnunum gengur að sann-
færa flokksmenn hér heima,
en þeir búa eðlilega ekki yfir
sömu reynslu og hæfileikum
í list þeirri, sem til slíks þarf,
eins og Bresnev og hjálpar-
menn hans.
LÉLEGT YFIRVARP
17' ommúnistar hafa sérstakt
lag á að gera sjálfa sig
broslega. Þeir taka sig álíka
alvarlega og börnin, sem
þessa dagana eru að hefja
skólagöngu í fyrsta sinni; en
fullorðnu fólki fer þetta hlut-
verk álíka illa og börnunum
fer það vel.
Nú hefur sýning verið sett
á svið. „Þjóðviljinn“ lýsir því
með andakt yfir, að fréttatil-
kynning um utanstefnuna til
Moskvu birtist samdægurs í
kommúnistablaðinu hér á
landi og sjálfu Pravda. Og
svo gefur að líta eftirfar-
andi:
„Að frumkvæði nefndar
Sósíalistaflokksins var rætt
um möguleika á auknum við-
skiptum milli íslands og
Sovétríkjanna. í þessum við-
ræðum kom í ljós, að góðar
horfur eru á aukningu slíkra
viðskipta.“
Þeir sendimennirnir hafa
sem sagt — þrátt fyrir allt —
haft einhvern snefil af sóma-
tiifinningu. Þeir hafa fundið
til þess, að þeir væru heldur
litlir karlar og mundu ekki
mikinn orðstír af því hljóta
hér á íslandi, að vera barðir
til ásta úti í Rússlandi. Þeir
hafa þess vegna leitað að yfir-
varpi, sem að haldi gæti kom-
ið — og sjáum til: Þeir ympr-
uðu á því að auka þyrfti við-
skipti Rússa og íslendinga.
Líklega hafa þeir líka haft
einurð til að skýra húsbænd-
um sínum frá því, að hylli
Rússa færi dvínandi hér-
lendis og af því meðal ann-
ars stöfuðu erfiðleikarnir í
kommúnistaflokknum.
Ekkert er ólíklegt að hinir
þrautreyndu áróðursmenn
austurfrá hafi skilið þetta
mætavel og boðizt til að
hlaupa undir bagga. Verður
nú fróðlegt að sjá hvaða
kostaboð íslendingum verða
boðin — hvaða bjarghring
verður kastað út til þess að
reyna að forða kommúnista-
flokknum frá upplausn. En
auðvitað munu íslendingar
meta slík tilboð eftir efni sínu,
þótt ljóst sé hvernig þau eru
til komin,
AFSTAÐA
HANNIBALS
TVTaumast verður því héðan
’ í frá mótmælt, að komm-
únistaflokknum er stýrt frá
Moskvu. Þangað er mönnum
stefnt til að leggja þeim lífs-
reglurnar og þaðan kemur
línan.
Af því tilefni er ekki úr
vegi að spyrja, hvað Hanni-
bal Valdimarsson geri. Ætlar
hann að vera hlýðinn, eins og
Einar Olgeirsson hefur haldið
fram að ætíð mætti treysta,
eða ætlar hann að hafa sjálf-
stæðar skoðanir.
Það er meira en lítil niður-
læging fyrir mann, sem verið
hefur mikill áhrifamaður í ís-
lenzkum stjórnmálum og m.a.
ráðherra, að vera gjörsamlega
settur hjá við allar ákvarðan-
ir, en síðan beitt fyrir vagn-
inn er til kosninga dregur.
Hvar er karlmannslundin?
Á UNDANHALDl
17’ins og skýrt var frá hér í
^ blaðinu í gær féll Kristj-
án Thorlacius, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, við kjör fulltrúa frá
Félagi starfsmanna stjórnar-
ráðsins á þing bandalagsins.
Hann náði þannig ekki kosn-
ingu í eigin félagi.
Kristján Thorlacius hefur
síðan hann var kosinn for-
maður Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja, beitt
þeirri áhrifastöðu til persónu-
legs framdráttar og til þess
Einn þekktasti hermaður fyrri heims-
styrjaldarinnar átti við langvarandi
vanheilsu að stríða
VERALOARSAGAN geymir
nöfn margra vaskra her-
manna, en flestir voru þeir
hershöfðingjar eða þjóðarleið-
togar, og ber þar litið á ó-
breyttum hermönnum. >ó
kemur það fyrir, og hafa fáir
einstaklingar getið sér jafn
mikillar frægðar og Alvin
York, sem var liðþjálfi í her
Bandaríkjanna í fyrri heims-
styrjöldinni. En York liðþjálfi
lézt í síðustu viku, 76 ára
gamall, eftir langvarandi veik
indi.
Alvin York var frá Tenn-
essee-ríki. Þegar Bandaríkja-
menn gerðust aðilar að heims-
styrjöldinni fyrri reyndi hann
öll brögð til að komast und-
an herþjónustu og kvaðst vera
andvígur styrjöldum og mann-
drápum. Mótmæli hans komu
þó ekki að notum, því hann
var tekinn í herinn og sendur
til vígstöðvanna í Frakklandi.
Þar var það hinn 8. október
1918 að hann vann frægðar-
verk, sem seint mun gleym-
ast.
Alvin York var þá undir-
liðþjálfi (corporal) og var
þennan morgun sendur ásamt
17 hermönnum öðrum til að
vinna á nokkrum vélbyssu-
hreiðrum Þjóðverjá í Ar-
gonne-skóginum. í fyrstu
gekk allt vel, og tókst her-
flokknum að hrekja nokkra
Þjóðverja á flótta. Þegar York
og félagar hans voru að elta
flóttann, komu þeir skyndi-
lega á bersvæði yfirmanna
vélbyssudeildarinnar, og var
þar fyrir fjöldi hermanna og
herforingja.
MAJÓRNUM NÓG BOÐIÐ
Bandarisku hermennirnir
komu Þjóðverjum að óvörum,
og gáfust nokkrir Þjóðverj-
anna þegar upp. En vélbyssu-
skyttur í nágrenninu hófu
skothríð á bandarísku her-
mennina af aðeins 25 metra
færi, og féllu þá margir Banda
ríkjamannanna, en þýzku
fangarnir vörpuðu sér til jarð-
ar til að verða ekki fyrir skot-
um landa sinna. Hörfuðu
bandarisku hermennirnir síð-
an inn í skóginn, þ.e. allir
nema Alvin York. Hann sat
kyrr þarna á bersvæði í skjóli
við nokkra særða Þjóðverja.
f heimalandi sínu var York
þekktur fyrir skotfimi, enda
uppalinn við fuglaveiðar. Og
nú kom leikni hans að góðum
notum. Hann lét það ekki á
sig fá þótt við ofurefli væri
að etja, heldur hóf skothríð á
vélbyssuskytturnar með riffli
sínum, og brást ekki boga-
listin. Varð mikið mannfall í
liði Þjóðverja, og tóku þeir
það til bragðs að sækja að
York með brugðnum byssu-
stingjum. York hélt skot-
hríðinni áfram, fyrst með
rifflinum, en þegar hann átti
ekki fleiri riffilskot, greip
hann til skammbyssunnar.
Skaut hann alltaf aftasta
manninn í árásarliðinu, sem
jafnan féll án þess að hinir
tækju eftir því. Fór svo að
aðeins liðsforinginn, sem
stjórnaði árásinni, stóð eftir.
Þá var þýzkum majór, sem lá
rétt hjá York liðþjálfa, nóg
boðið, og skipaði hann mönn-
um sínum að gefast upp.
Það voru 90 Þjóðverjar, sem
gáfust upp fyrir York, ber-
sýnilega í þeirri trú að hann
væri ekki einn, heldur hefði
fjölmennt herlið sér til stuðn-
ings. York lét á engu bera en
tókst að kalla til sín sjö af
bandarísku hermönnunum,
sem leitað höfðu hælis í skóg-
inum. Skipaði hann þeim að
vera á verði gegn þýzkum
leyniskyttum, en hélt sjálfur
af stað í broddi fylkingar
fanganna í gegn um víglínu
Þjóðverja. Hafði hann tvo
þýzka yfirmenn við hlið sér
til að fyrirbyggja árás úr laun
sátri.
FELLDI 25, TÓK
132 FANGA
Á leiðinni gegnum viglínuna §|
lét hann þýzka majórinn skipa =
hverju vélbyssuhreiðrinu á 3
fætur öðru að gefast upp, og =
bættust þessar skyttur í fylk- =
ingu fanganna. Þannig hélt 3
York áfram í áttina að banda- =
rísku víglínunni. Þegar Banda 3
ríkjamenn sáu Þjóðverjana 3
nálgast héldu þeir fyrst að 3
hér væri um nýja árás að 3
ræða, en á siðustu stundu 3
tókst York að sannfæra landa 3
sína um að allt væri í bezta 3
lagi. Þegar hann komst á leið- 3
arenda flutti hann með sér 3
132 þýzka fanga, en hafði auk =
þess fellt 25 Þjóðverja.
Þetta afrek Yorks þótti svo =
ótrúlegt, að fyrirskipuð var 3
rannsókn á atburðum dags- ð
ins. En rannsóknin leiddi að- 3
eins í Ijós að allt var rétt, sem 3
York sagði. Hann hafði afrek- 3
að þetta allt einn og án að- 3
stoðar. =
Eins og nærri má geta 3
breiddist fréttin óðfluga út og §§
næstu daga var nafn Yorks 3
liðþjálfa á allra vörum. Yfir- 3
maður herja Vesturveldanna, 3
Foch marskálkur, sagði að 3
þetta væri mesta hetjudáð,
sem nokkur hermaður í öllum =
herjum Evrópu hefði unnið. —
Og þégar York kom heim til =
Bandaríkjanna var tekið á =
móti honum sem þjóðhetju og 3
keppzt um að heiðra hann á 3
allan hátt. Var saga hans 3
skráð í bækur og kvikmynd 3
gerð um atburðina í október 3
1918. Lék Gary Cooper þar |j
hlutverk Yorks liðþjálfa. 3
York liðþjálfa var boðið =
stórfé frá kvikmyndafélögum 3
og útgáfufyrirtækjum fyrir 3
einkarétt á sögu hans, en 3
hann neitaði öllum boðunum. 3
Einnig neitaði hann tilboðum 3
um góðar stöður hjá ýmsum 3
stærstu fyrirtækjum Banda- 3
ríkjanna. Hann fluttist heim i=
til Tennessee og kvæntist þar. §§
Átti hann síðustu árin vi𠧧
mikla fátækt að búa þar til 3
hann lézt í hermannasjúkra- =
húsinu í Nashville á miðviku- 3
dag. 3
luiimiMimMmMummmiHmiiHimiiiimiMiimmiHiiiHiimmiiimumtuiiimimiiiiiiiiiiuimiiHumiHiuiimHmiiumiiiiMimiiummiiHiuMHmimiMmiiiiiHmiiiiimui
A-Þjóðverjar á eftirlaunaaldri fá að
heimsækja ættingja í V-Þýzkalandi
Berlín, 8. sept. (NTB)
FRÉTTASTOFAN ADN í A-
Þýzkalandi skýrði frá því í
dag, að framvegis fengju íbú-
að réyna að styrkja aðstöðu
Framsóknarflokksins — og
hefur raunar ekki grátið það,
þótt kommúnistar styrktust
á leiðinni. En sjálfur hefur
hann nú hlotið sín málagjöld
og er niðurlæging hans mikil.
Kosningar á þing Starfs-
manna ríkis og bæja hafa nú
staðið alllengi, og er ljóst, að
vinstri menn eru þar á und-
anhaldi, enda mundu naum-
ast heyrast miklir kveinstafir,
þótt yfirráðum Thorlacius-
anna lyki.
ar landsins, sem náð hafa eft-
irlaunaaldri, að heimsækja
ættingja sína í Vestur-Þýzka-
landi.
Fréttastofan segir, að Walter
Ulbricht, leiðtogi austur-þýzkra
kommúnista, hafi sent Moritz
Mitzesheim,. biskupi í Thuering-
en, bréf og tilkynnt honum, að
innanríkisráðuneyti A-Þýzka-
lands hafi fengið fyrirskipun um
að leyfa öllu fólki, sem komið sé
á eftirlaunaaldur, að ferðast til
ættingja sinna í V-Þýzkalandi
Biskupinn rædcU bréfið við frétta
menn og kvaðst líta á ákvörðun
stjórnarinnar, sem tákn góðvilja
og trausts. Biskupinn sagðist
hafa rætt þetta mál við Ulbricht
um miðjan ágúst sl.
Ekki hefur verið skýrt frá því
hvenær heimsóknirnar geta haf-
izt
í Vestur-Berlin líta borgaryfie
völdin á þessa ákvörðun austur-
þýzku stjórnarinnar sem tilraun
til þess að flýta fyrir því að satu
komulag náist um heimsóknir
milli Austur- og Vestur-Þýzka-
lands. Austur-Þjóðverjar hafa
sett skilyrði fyrir slíkum heim-
sóknum, sem stjórnin í Bonn tel
ur óaðgengileg. Viðræður um
heimsóknirnar hefjast í Bonn á
morgun.
Einnig telja menn í Vestur-
Berlín ákvörðun Austur-Þjóð-
verja lið í tilraunum þeirra til
þess að létta lífskjör fólksins. í
landinu eru hlutfallslega margic
á eftirlaunaaldri og ef einhverjir
þeirra nota tækifærið og fara til
Vestur-Þýzkalands, léttir það
byrðar ríkisins, en það borgar
eftirlaunin. Einnig losnar hús-
næði, og húsnæðisvandamál i
Austur-Þýzkalandi eru mikiL