Morgunblaðið - 10.09.1964, Side 27
Fimmtudagur 10. sept. 1964
MOKGUN BLADIÐ
27
Létt á matarskömmtun
til tyrkneskra Kýpurbúa
Nicosia, Kýpur, 9. sept.
— AP-NTB —
RÍKISSTJ ÓRNIN á Kýpur
hefur fallizt á að afnema að-
flutningsbann á matvælum til
tyrkneskra íbúa í borgunum
Famagusta og Laranca. — Er
þetta gert vegna eindreginna
og ítrekaðra tilmæla fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna á eyj-
unni. í borgum þessum búa
um 15 þúsund tyrknesk-ætt-
aðir menn.
Ekki hefur verið afnumið
aðflutningsbann á matvælum
og vistum til tyrkneskra
manna í Nicosia, Lefka og
Kokkina, og segja leiðtogar
Tyrkja á Kýpur að hungurs-
neyð vofi yfir þessum Kýpur-
búum. Þessu neita fulltrúar
stjórnarinnar.
íbúar á bannsvæðunum fá
skömmtuð matvæli, og er hverj-
um manni ætlað að fá ákveðinn
fjölda hitaeininga á dag, sem Al-
þjóða Rauði krossinn hefur við-
urkennt að væri nægilegur. Galo
Plaza, sérstakur fulltrúi U
Thants, framkvæmdastjóra SÞ, á
Kýpur, sagði í dag að vonir stæðu
til að Kýpurstjórn slakaði enn til
á aðflutningsbanninu. Kn hann
taldi hugsanlegt að ef tyrkneskir
Kýpurbúar ættu við hungur að
stríða þá gæti það stafað af því
að matvæli, sem þeim eru send,
komist ekki á leiðarenda. Væri
þar aðeins Tyrkjum sjálfum um
að kenna, því þeir eiga að sjá um
dreifinguna.
Plaza sagði að ekki væri vitað
um nein tilfelli þar sem tyrk-
neskir Kýpurbúar beinlínis liðu
af hungursneyð, en að sjálfsögðu
hefði aðflutningsbannið skapað
örðugleika. Ástandið hefði þó
mjög batnað, því nú kæmust yfir
leitt matarsendingar Kýpurstjórn
ar til Tyrkjanna á áfangastað,
hvað sem svo um þær yrðu í hönd
um þeirra, sem sjá eiga um að
skipta sendingúnum milli íbú-
anna. En áður áttu grískir her-
foringjar það til að tefja eða jafn
vel stöðva matarsendingarnar. —
Sagði hann að fulltrúar SÞ
mundu halda áfram að vinna að
því að draga úr viðskiptabann-
inu og úr spennunni á Kýpur.
- Leyndardómar
Framhald af bls. 3.
— Já, og rannsóknarstörf-
tim, svarar Guðmund-ur. Við
erum að fylgjast með karli á
Laugaveginum, sem þykist
vera leynilögga. Hann tekuir í
vörina og eltir eiturlyfj asmvgl
ara. Hann þykist líka eiga tal-
stöð heima hjá sér, en hann
hefur bara segulbandstæki í
sambandi við talstöðvarkassa.
Svo sagðist hann einu sinni
hafa hent sér í höfnina til að
bjarga svertingja. Þegar hann
tók sundtökin, fann hann, að
eitthvað m.júkt kom í höndina
ó honum. Hann segir, að það
hafi verið veski með 50.000
kr. dönskum — allt í seðlum,
sem hann straujaði.
— Þekkið þið leyndairdóma
öskju'h-líðar?
— Já, nokkra. Það er nú
búið að setja rauða grind fyrir
einn. Það eru göngin inn und-
ir hitaveitugeymana. En
veiztu um neðanjarðarbyrg-
ið? Komdu, við skulum sýna
þér það. Og svo gekk öM hers
ingin yfir urð og grjót í átt-
ina að neðanjarðarbyrginu.
Ofanjarðar eru aðeins sýnileg
ar inngöngudyr, en síðan taka
við margar tröppur þangað
til komið er niður í hvítmáluð
salarkynni. Eyjólfur Sigurðs-
son slóst í hópimn með vasa-
ljósið sitt til að vísa okkur
veginn.
— Hérna voru Bretarnir,
maður Þetta 'eru fjögur her-
bergi, eitt með borði og arni
segir Guðmundur.
Á veggjunum ha.fa verið
ýmsar áletranir, sem búið er
að krota yfir. Á einum veggn-
um eru gular og rauðar rend-
ur, sem hafa kannski haft
gríðarmikla hernaðarlega
þýðingu. Á öðrum má lesa:
„Hjarta er ekki til,“ og okkur
dettur fyrst í hug svindl í
póker eða, að hérna hafi ein-
hvern tíma verið útsala á slát
urafurðum.
— Og svo er hægt að skríða
'hérna út um göng, segir
Eyjólfur okkur.
Strákarnir taka upp hlera á
gólfinu og smeygja sér iinn í
rör, sem liggur út úr byrginu,
og þreifa sig áfram 1 myrkr-
inu.
— Er þetta ekki frárennslis
rör úr snyrtiherberginu?,
spyrjum við.
— Eruð þið vitlausir? Þetta
er eina leiðin, sem Bretarnir
gátu flúið um, ef Þýzkararnir
befðu konuð.
Réttindalaus
drukkinn öku-
maður fær 2ja
mán. fangelsi.
DÓMUR hefur verið kveðinn
upp í Sakadómi Reykjavíkur
yfir ungum pilti, sem lögreglan
tók drukkinn og ökuréttinda-
lausan undir stýri og að auki
með stolið bilhjól aftur í. Fékk
hann tveggja mánaða fangelsis-
dóm, óskilorðsbundið.
Löigreglumenn veittu athygli
ógætilegum akstri á götu
Reykjavík og ætluðu að stöðva
bifreiðina, og tókst það eftir
nokkurt þóf. Kom þá í ljós að við
stýrið var piltur, sem hafði ver-
ið sviftur ökuleyfi æfilagt. Var
hann undir áhrifum áfengis og
í aftursætinu var bílhjól, sem
hann hafði skrúfað undan öðr
um bíl og var á leið með það
upp í Rauðhóla, til að nota hið
stolna hjól á annan bíl.
Dálítil síldveiði
í Eyjum
Vestmannaeyjum, 9. sept.:
ENGIN síldveiði hefur verið
september fyrr en í gær. Þá
fengu 3 bátar dálítinn afla austur
í Bugtum. Gullborgin kom inn
með 700 tunnur af síld, sem fór
í frystingu. Huginn fékk 300 tunn
ur og þriðji'báturinn 150. Marg-
ir bátanna fóru austur, er aflinn
tók að glæðast þar aftur og eru
nú innan við 10 bátar á síldveið-
um frá Eyjum. — Sigurgeir.
— Hafði mikilvzega
Framhald af bls. 28.
um kynnzt lútherskri kristni í
stærra þroti en við erum vanir
hér heima fyrir og innan lands
Og hin alþjóðlega lútherska
kirkja hefur orðið okkur áþreif
anlegri veruleiki en áður.
Margir af fremstu mönnum lút
herskrar kristni hafa látið til sín
heyra í okkar landi, predikað í
kirkjum og kynnzt einstökum
mönnum og ég tel að þetta sé allt
mjög jákvætt. Mér hefur skilizt
að gestir okkar hafi verið mjög
ánægðir með dvölina hér og þótt
allt vel takast um undirbúning
af okkar hálfu og ég geri mér
vonir um að úr þessu verði mjög
víðtæk og jákvæð landkynning
fyrir ísland.
Á heimleið
í SUMAR var sett upp í
Hljómskálagarðinum högg-
myndin „Á heimleið“ eftir
Gunnfríði Jónsdóttur, mynd-
höggvara, en þessa mynd
keypti Reykjavíkurbær af
listakonunni fyrir nokkrum
árum. Var myndin þá send til
Kaupmannahafnar í steyp-
ingu og hefur henni nú verið
komið fyrir. — Þetta er ágæt-
ur staður, sem henni hefur
verið valinn, sagði Gunnfríð
ur í símtali við Mbl. — Henni
er ekki í kot vísað, með Þor-
finn karlsefni á vinstri hönd
og Thórvaldsen og Jónas Hall
gj ímsson á hina.
Gunnfríður kvaðst hafa
unnið myndina á árunum 1S44
og 1945. Tildrögin voru þau,
að löngu áður eða árið 1933
hafði hún mætt telpu niðri i
bæ og telpan situr svo undar
lega á tröppum, eins og hún
sé leið og vilji komast heim.
— Hún sat svo undarlega með
hægri fótinn bærra, stelling-
in svo eðlileg á barni sem
leiðist mikið, segir hún. Þet'ta
sat svo í mér og ég býrjaði
á myndinni, sem ég kallaði
„Á heimleið.', árið 1944. —
Myndni fór svo á Norðurlanda
sýninguna í Stokkhólmi 1947.
Myndin Landsýn fór til Nor-
egs til að höggvast, en ég fór
með þessa styttu og myndina
af móður minni til Stokk--
hólms. Ég steypti svo mynd-
ina af telpunni í garðinn minn
þar sem hún hefur verið síð-
an 1952, steypti hana sjálf í
sement og sand. Og nú hefur
Reykjavíkurbær látið steypa
hana og setja upp í Hljóm-
skálagarðinum.
— Að hverju eruð þér. að
vinna núna, Gunnfríður?
— Ég er að stækka Síldar-
stúlkurnar upp í 1,40, þrisvar
sinnum það sem þær eru nú.
Það er mikið verk fyrir ga-mla
konu, svarar listakonan og
hlær við og á hlátrinum heyr
ist að hún er ekkert bangin
við að takast á við erfitt verk
efni.
Enn hreyfingar á
stiórn S.-Vietnam
Saigon, 9. sept. (AP-NTB).
NGUYEN Khanh, forsætisráð-
herra Suður-Vietnam, tók í dag
við embætti varnarmálaráðherra.
Þá skipaði hann nýjan borgar-
stjóra í Saigon, nýjan innanríkis-
ráðherra og nýjan yfirmann ör-
yggisráðs hersins. Einnig hefur
Khanh nú afnumið ritskoðun við
dagblöðin og leyst úr haldi fimm
hershöfðingja, sem setið hafa í
stofufangelsi frá því í janúar sl.
Breytingar þessar voru til-
kynntar á fundi, sem þriggja
manna herforingjaráðið í Suður-
Vietnam átti með fréttamönnum
Minningarsióður
Olavs Brunborgs
ÚR sjóðnum verður íslenzkum
stúdent eða kandídat veittur
styrkur árið 1964 til náms við
norskan háskóla.
Styrkurinn er að þessu sinni
2200 norskar krónur.
Umsóknir skulu sendar skrif-
stofu Háskóla íslands fyrir 1. októ
ber 1964.
Æskilegt er, að umsækjendur
sendi með umsókn skilríki um
námsferil sinn og ástundun. (Frá
Háskóla Islands).
Lciðrétting
INN f minningargrein um Hlöð-
ver Ágúst Árnason frá Oddsstöð
um, sem birtist í blaðinu í gær
slæddust tvær villur. í 16.
línu í þriðja dálki átti að standa
. . . að heyra nið árinnar eða
lindanna sem falla ..." Og
fyrsta ljóðlínan í kvæðinu í nið
urlagi greinarinnar er rétt svona:
„Enn kveður foss í háum
hamrasal“.
í dag. Hershöfðingjarnir þrír,
sem sæti eiga í ráðinu, voru allir
mættir á fundinum, en þeir eru
Khanh, Duong Van Minh og Tran
Hien Khiem. Fráfarandi varnar-
mála- og innanríkisráðherrar
höfðu verið sakaðir um andstöðu
við Búddatrúarmenn, *g er því
talið að breytingarnar hafi verið
gerðar til að þóknast þeim.
Aðspurðir hvort hernaðar-
ástandi yrði aflýst í landinu eftir
þessar breytingar svaraði Khanh
að svo yrði ekki. Bæði væri það
vegna þess að í landinu væri nú
150 þúsund manna skæruliðaher
Viet Cong kommúnista, og
svo væri hitt að margs-
konar hættur steðjuðu að utan
lands frá, sérstaklega frá Kam
bodia, sem hann sagði að væri
leppríki kommúnista.
Litið er svo á í Saigon að þess
ar breytingar Khanhs á stjórn-
inni ættu að auðvelda honum að
ráða fram úr því vandræðaá-
standi, sem skapazt hefur vegna
sífelldra óeirða og óánægju í
landinu að undanförnu.
- Um 7700
Framhald af bls. 28.
Miðskóli felldur niður í MA
í Menntaskólanum á Akureyri
verða 430—440 nemendur í vetur.
Miðskóladeildir verða felldar þar
niður í vetur. en 140 nemendur
verða í þriðja bekk. Kennarar
eru um 20 í skólanum.
f Menntaskólanum á Laugar-
vatni verða 107 nemendur í vet-
ur. Þar eru 7 fastráðnir kennarar,
auk skólastjóra.
í Verzlunarskólanum eru 50
nemendur í stúdentadeild, þar af
t,
AThUGití
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunbiaðinu en öðrum
blöðum.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
SVANFRÍÐAR AÐALBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Ólafsvík.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Jarðarför eiginkonu minnar og móður okkar
GUÐRÚNAR PÁLMAEH3TTUR CLAUSEN
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. þ.m.
Hjörtur Clausen og dætur.
Jarðarför móður minnar,
RÍKEYJAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Lækjargötu 6C, Siglufirði,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. septerh-
ber kl. 3 e.h. — Blóm afþökkuð.
Fríða Sigurðardóttir.
Innilegar kveðjur og hjartans þakkir til allra þeirra,
sem glöddu mig á einn eða annan hátt á sjötugs afmæli
mínu 7. september sL
Helgi Einarsson.