Morgunblaðið - 10.09.1964, Blaðsíða 28
| Meiri síld á miðunum en |
I í fyrra — en verra veður 1
Um 1700 nemendur
í menntaskólum
°g menntadeildum
Samtal við Eggert á Sigurpali
f GÆR var batnandi veður
fyrir Austurlandi og flest skip
in á leið út á síldarmiðin.
Morgunblaðið átti samtal við
Eggert Gíslason, skipstjóra á
Sigurpáli, og spurði hann tíð
inda af miðunum.
Eins og kunnugt er hefur
Eggert á Sigurpáli verið ýmist
aflahæstur eða með þeim
aflahæstu á síldveiðum fyrir
Norðurlandi undanfarin ár, og
mikið orð farið af fengsæld
ha.ns. í sumar hefur hann feng
ið' 29.400 mál og tunnur og er
það lítið eitt minna en afli
hans var sl. sumar. En talan
á ugglaust eftir að breytast,
því vertíð er ekki lokið enn,
og eftir því sem hann segir
sjálfur er það veðrið en ekki
síldin, sem hefur hamlað veið
um á þessu sumri.
Það hefur verið mikil ó-
tíð upp á síðkastið, sagði Egg
ert, nema síðasta vika var
góð, en þar á undan var hálfs
mánaðar landlega. Nú er batn
andi veður og flest skipin á
útleið.
— Hvar eruð þið staddir
núna?
— Við erum að fara út á
Eggert Gíslason,
Reyðarf j arðardýpi.
— Hvað vildurðu segja okk
ur um vertíðina í heild?
— Ja, hún hefur verið ó-
gæftasamari en undanfarin ár.
Það hefur verið töluvert mik
il síld á miðunum og vaxandi
síld hérna út af Austfjörðun
um, að því er manni virðist.
Það er greinilega meira af
síld í sjónum núna heldur en
í fyrra á sama tímabili, og
hennar víðar orðið vart. Síld
in er gríðarlega misjöfn og
mikið blönduð. Það er ekki
mikið af stóru, gömlu síldinni,
og ber meira á milliárgöngum
l svona 5 ára gamalli síld, sem
er á takmörkunum að vera
söltunarhæf.
— Hefur meira farið í
bræðslu hjá þér en salt?
— Ætli það sé ekki nokkuð
svipað, við höfum landað í
bræðslu og salt til skiptanna,
eftir því hvernig á stendur.
Löndunarskilyrðin á Aust-
fjörðum, þar sem síldin hefur
veiðzt að langmestu jeyti í
sumar, eru nokkuð takmörk
uð og höfum við stundum orð
ið að fara með aflann vestur
á Eyjafjarðarhafnir.
— Ertu nokkuð farinn að
hugsa til heimferðar
— Nei, síldveiðarnar ganga
aldrei eftir fyrirframgerðri á-
ætlun.
MR fær nýja skólahúsið í vetur
í MENNTASKÓLUNUM í Reykja
vík, á Akureyri og Laugarvatni
og í menntadeildum Verzlunar-
skólans og Kennaraskólans verða
í vetur um 1700 nemendur alls og
má reikna með um 320 nýjum
stúdentum í vor.
Menntaskólinn í Reykjavík er
fjölmennastur með um 950 nem-
endur í 41 bekkjardeild og um
70 kennara. Býst rektor, Kristinn
Ármannsson, við að þegar skól-
inn hefst 1. október verði hægt að
taka í notkun efri hæðina í nýja
skólahúsinu, sem er í byggingu,
fyrir ofan gamla skólann, og
neðri hæðina seinna í vetur. Á
efri hæðinni eru 4 kennslustofur
og bókaherbergi, á þeirri neðri 3
stofur. Menntaskólinn mun einnig
hafa Þrúðvang í vetur, en þar
verður tvísett í 5 stofum. Þó að
bæði Þrúðvangur og öll nýja
byggingin- komist í notkun í vet-
ur, er samt langt frá því að hægt
verði að einsetja í skólann. —
Bekkjardeildir eru 41 talsins, en
stofufjöldi 26 alls, 12 í aðalbygg-
ingunni, 2 í Fjósinu svokallaða,
5 í Þrúðvangi og 7 í allri nýju
byggingunni. Verður því enn
þröngt í Menntaskólanum, þrátt
fyrir nýtt skólahús. Næsta skref
í byggingarmálum er svo bygg-
ing nýs menntaskóla í Öskjuhlíð-
inni, og er byrjað að teikna
hann. — Fjöldinn er orðinn svo
mikill í Menntaskólanum gamla,
að nú vantar nýjan menntaskóla,
sagði Kristinn Ármannsson í sím-
tali við blaðið. Erlendis er talið
að borg á borð við Reykjavík
þurfi a.m.k. 3 menntaskóla.
Framhald á bls. 27
Haf&i mikilvæga þý&ingu
fyrir okkar kirkju
segir biskup um fund Lútherska
heimssambandsins
SÍÐUSTU stjórnarnefndarmenn-
irnir, sem sóttu fund Lútherska
heimssambandsins í Reykjavík,
fóru í gær, og síðasta skrifstofu
fólkið er um það bil að fara. Að
afloknum þessum stjórnarfundi
Lútherska heimsambandsins,
hringdi fréttamaður Mbl. til
herra Sigurbjarnar Einarssonar,
biskups, í gær og spurði hvað
„Siöstafakverið"
eftir Laxness væntanlegt
Skrifar smásögur eftir 20 ára hlé
„Ég tel að þingið hafi haft
mjög mikilvæga þýðingu fyrir
kirkju okkar. Við höfum komizt
í nánara og lífrænna samband
við kirkjuna í heiminum og henn
ar starf og líf. Það er mikill á-
vinningur að því, og með því
móti höfum við lifað okkar eig-
in kirkju, þessa heimakirkju
okkar hér, á nýjan hátt. Við höf
Framhald á bls. 27.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiimiiiii
Anna-María, Konstantín og Friðrik konungur á Kastrup-
flugvelli.
Stefán Jóhann afhenti
hann vildi segja af því tilefni.
Biskup svaraði:
HALLDÓR Kiljan Laxness er að
ganga frá 7 smásögum, sem hann
hefur skrifað í sumar, en þær
koma í vetur út hjá Helgafelli í
smásagnasafninu „Sjöstafakver-
ið“. Hefur Laxness ekki skrifað
emásögur í 20 ár, en tók upp á
þessu aftur í vor, eins og hann
orðaði það í símtali við frétta-
mann Mbl. í gær.
Sjöstafakverið verður stutt
bók, innan við 200 síður að stærð.
Um efni bókarinnar upplýsti
skáldið það eitt, að hún saman-
gtæði af 7 smásögum, sem eigin
lega séu þó nokkurs konar sam-
hangandi verk, þar sem hug-
myndirnar eru dálítið sentrali-
eeraðar utan um vissan punkt.
Þar sé þó ekki endilega um einn
ákveðinn punkt að ræða, heldur
sé þar átt við þessi vanalegu lífs
problem, komplex af hugmynd-
um, sem eru að brjótast í mönn
um nú á dögum, eins og Laxness
komst að orði.
Laxness byrjaði í vor á fyrstu
sögunni, sem birtist þá í tímariti,
og hefur svo haldið áfram að
vinna hinar, sem hvergi hafa
birzt enn. Kvaðst hann enn vera
með sögurnar á handritablöðum
í kringum sig og mundi líða mán
uður áður en hann gæti skilað
handritinu til útgefandans. Síð-
asta smásagnasafn Halldórs Lax-
ness var „Sjö töframenn", sem
kom út fyrir um 20 árum, en í
því eru smásögurnar 7 talsins,
eíns og verður í nýju bókinni
„Sjöstafakverið".
| Önnu Maríu skilnaðargjöf (
fyrir hönd sendiherranna í Kaupmannahöfn
= VIÐ MÓTTÖKU í Amalien-
= borg á þriðjudaginn, þakkaði
3 Anna-María Danaprinsessa
S fulltrúum þeii.-ra f jölmörgu
3 aðila, sem hafa sent henni
E skilnaðargjafir, í tilefni þess
3 að hún kveður föðurland sitt
2 og verður drottning. Grikk-
= la.nds.
H Meðal fulltrúanna, sem
| gengu lyrir prinsessuna, var
| Stefán Jóhann Stefánsson,
= sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn, en hann hefur
gegnt embætti lengst núver-
andi sendiherra í borginni og
kemur því fram fyrir þeirra
hönd.
Fréttamaður blaðsins ræddi
stutta stund við Stefán Jó-
hann í síma í gær og bað hann
að segja okkur frá móttök-
únni og öðrum hátíðahöldum
vegna brottfarar prinsessunn-
ar, sem hann hefur verið við-
staddur.
— Það var á þriðjudaginn, =
sem ég gekk fyrir Önnu Maríu =
og Konstantín Grikkjakon- 3
ung og afhenti prinsessunni s
formlega gjöf frá erlendum 3
sendiherrum í Kaupmanna- 3
höfn, sagði Stefán Jóhann. 3
— Hinar fjölmörgu skiln- 3
aðargjafir, sem prinsessunni 3
bárust, voru sendar til Ama- 3
iienborgar nokkrum dögum áð 3
ur, en á þriðjuiaginn þökk- 5
Framhald á bls. 17. 3