Morgunblaðið - 22.10.1964, Side 8
8
MORGU NBLAÐIÐ
Fimmtudagur 22. okt. 1964
Rætt um atvinnuörðug*
leika sjávarplássanna
Einni milljón kr. úthlutað til Flateyrar vegna skipstapa
FXJNDUR var í Sameinuðu
þingi í gær. Á dagskrá voru ýms
ar fyrirspumir, sem fram hafa
komið. Sú tilkynning kom fram,
að formaður fjárveitingamefnd-
ar hefði verið kjörinn Jón Áma
son. Þá upit'ýsti Sigurður
Bjarnaison, að rikisstjómin hefði
▼eitt FLa.teyri eina millj. kr.
vegna hinna sviplegu skiptapa
þar.
★
Þórarinn Þórarinsson (Fy
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár
með þvi að skírskota til þings-
ályktunartillögu, sem hann hafði
éður borið fram um húsnæði Al-
þingis. Bar hann síðan fram
spurningu um, hvað liði áliti
nefndar, sem fékk málið til at-
hugunar.
Birgir Finnsson (A) varð fyrir
Svörum og sagði, að þingnefnd-
in hefði þegar haldið einn fund
um málið og það væri í athugun.
★
Þá hófust umræður um fyrir-
spurn frá Ragnari Arnalds (K)
um aukinn iðnrekstur í
kauptúnum og kaupstöðum
Hljóðar hún þannig: 1. Hvað líð-
ur störfum stjómskipaðraí
nefndar, er falið var að gera
tillögur um aukinn iðnrekstur i
kauptúnujn og kaupstöðum, þar
sem atvinna er ónóg? 2. Hvaða
ráðstafanir hyggst ríkisstjórnin
gera til að ráða bót á hinu í-
skyggilega atvinnuástandi á vest
anverður Norðurlandi?
Ragnar Arnalds gerði grein
fyrir fyrirspurn sinni. Ræddi
hann m.a. um bráðabirgðaálit
nefndar, sem iðnaðarmálaráð-
herra skipaði 12. maí s.l. til at-
hugunar á auknujm iðnrekstri
í kauptúnum og kaupstöðum,
þar sem atvinna er ónóg. Kvað
Ragnar atvinnuástand Norð
anlad víða vera mjög e’rf-
itt og þörf skjótra
úrbóta. Hann taldi hins
skjótra úrbóta. Hann taldi hins
vegar nefndina hafa innt af
hendi ágætt starf..
Iðnaðarmáiaráðherra, Jó-
hann Hafstein sagði að álit
nefndarinnar væri einungis
bráðabirgðarálit, enda hefði
Ifaún ekki getað kynnt sér allt
varðandi verkefni það, sem
henni var falið. Svar við 1. lið
Leitað hefði verið upplýsinga
víðs vegar að á landinu. í>að
væri hins vegar ekkert nýtt, að
um tímabundið atvinnuleysi
væri að ræða sumsstaðar og staf
aði það fyrst og fremst af ein-
hæfni atvinnuveganna. í þessu
efni hefði stjórnin einkum tvær
leiðir í huga, þ.e.a.s. að láta
þau fyrirtæki sem fyrir eru,
snúa sér að öðrum verkefnum, ef
unnt væri, til þess að halda
þeim gangandi t.d. iðnaði eða
þá að bæta aðstöðu þeirra um
öflim hráefnis t.d. með flutningi
síldaa- frá svæðinu fyrir Aust-
urlandi til Norðurlandshafna.
Þingmönnum yrði að vera það
Ijóst, að það væri ekki nóg að
mál væru komin inn á Alþingi,
það þýddi ekki sama og að at-
vinnutækin væru komin upp á
i viðkomandi stað á einu augna-
bliki.
RáðherTann taldi upp nokkrar
tegundir vara, sem álitnar væru
geta komið til greina með að
efna til framleiðslu á. Sá væri
hins vegar hængur á, að nú þeg-
ar væri framleitt um 90% af
þessum vörum í landinu sjálfu.
Sá iðnaður, sem einkum kæmi
til greina annax en fiskiðnaður
væri vinnsla annarra hráefna.
Ástandið myndi hins vegar ger-
breytast, ef einhverjar iðngrein-
ar okkar gætu rutt sér rúms á
erlendum vettvangi, en slíkt
væri ekki enn til staðar nema
að takmörkuðu leyti.
Meiri hluti iðnaðarins væri
staðsettur í Reykjavíku og ná-
grenni hennar. Slíkt væri ef til
vill ekki heppilegt, en ýmsar
ástæður hefðu ýtt undir þá þró-
un t.d. að þar væri vinnuafl
stöðugt og nauðsynleg þekking
fyrir hendi.
Ráðherrann ræddi sérstaklega
uim Siglufjörð og sagði, að á-
standið væri mjög slæmt þar.
Nauðsyn krefði, að þar fengist
úrlausn fyrir tilstilli opinberra
aðila. Hitt yrði að benda mönn-
um á, að á Sigluifirði væru næg
atvinnutæki fyrir hendi, ef ein-
ungis væri unnt að tryggja rekst
ur þeirra. Þau séu hins vegar
yfirleitt í sambandi við sjávar-
útveginn en nú hafi hann brugð-
izt og þar með grundvöllurinn
undir stöðugum rekstri þeirra.
Ástandið væri þó ekki slæmt
alls staðar á Norðurlandi t.d.
væri það mjög viðunandi á
Sauðárkróki. Á Vestfjörðum
væri það erfitt sumstaðar en
Vestfirðir væru til 'athugunar í
sérstakri nefnd, sem kennd hefði
verið við svo kallaða Vest-
fjarðaáætlun. Enn fremur sagði
ráðherrann, að ríkisstjómin
hefði nú þegar tekið til athug-
unar ýms atriði, eftir því sem
viðkomandi sveitarstjórnir hefðu
farið fram á og síidarflutningam
ir í sumar hefðu ekki sízt verið
hugsaðir með það fyrir augum,
að hjálpa einstökum byggðar-
lögum. Ríkisstjórnin myndi
byggja úrlausnir sínar á áliti
nefndarinnar, þegar endanlegt
álit hennar lægi fyrir.
Magnús Jónsson (S) sagði, að
orsök vandræðanna fyrir Norð-
urlandi væri einungis um að
kenna aflaleysinu. Hann taldi,
að skipun nefnda fyrir ákveðið
svæði væri ákaflega ófullnægj-
andi fyrirkomulag. Það sem
gera þyrfti, yrði að koma frá
öflum heima fyrir, en síðan ætti
ríkisstjórnin að greiða fyrir.
Það yrði að vinna kerfisbundið
að þessum máium, ekki með
nefndum heldur með öðrum víð-
tækuim úrlausnum.
Ingvar Gíslason (F) sagði, að
nú lægi við, að Dalvíkingar
misstu tvö skip sín á nauðung-
aruppboði. Taldi hann, að með-
al þeirra ráðstafana, sem gera
þyrfti til bjargar atvinnulífinu
Norðanlands, væri að koma í veg
fyrir, að þau atvinnutæki, sem
fyrir væru, yrðu seld til ann-
arra staða. Hann taldi flutning
síldar frá Austurlandi til Norð-
urlandshafna nauðsynlegan og
að komið yrði upp síldarverk-
smiðju á Þórshöfn.
Ragnax Arnalds sagði, að ver-
ið væri að álasa þingmönnum
fyrir að halda þessu máli vak-
andi. Taldi hann ófullnægjandi
að skipa nefnd á nefnd ofan í
þessu máli, því að úrlausnar
væri þörf strax.
Björn Pálsson (F) vildi þakka
nefndinni vel unnin störf. Hann
sagði, að það bæri ekki vott um
neina vesæld, enda þótt menn
yrðu að leita burtu úr byggðar-
lagi sínu uim tíma í ativinnuleit.
Ólafur Jóhann«sson (F) lét
í ljós ánægju með störf nefnd-
arinnar. Hann taldi óþarfa að
líta á fólk úr þeim byggðarlög-
um, sem nú þyrfti aðstoðar við,
s*m einhverja ölmusumenn, enda
þótt þeir þyrftu nú að ieita á
sjár ríkisvaldsins. Hann
aðilum, som setja vildu á stofn
atvinnurekstur á hinum ýmsum
stöðum.
Jón Þonsteinsson (A) ræddi
aðallega um síldarflutningana.
Taldi hann, að það bæri að auka
þá og vildi láta fresta byggingu
nýrra verksmiðja, meðan verið
væri að kanna, hverju mætti fá
áorkað með auknum síldarflutn-
ingum.
Sigurvin EinarsSon (F) ræddi
aðallega um atvinnulifið á Vest-
fjörðum. Kvaðst hann viður-
kenna það sjónarmið ráðherra,
að ekki væri unnt að taká ein-
staka staði út úr, heldur yrði
að skoða þessi mál í heild. Vildi
hann láta gera einhverjar skyndi
ráðstafanir til úrbóta.
Eysteinn Jónsson (F) beindi
orðum sínum fyrst og fremst
að Jóni Þorsteinssyni og taldi,
að hann hefði byggt ummæli
sín á ófullnægjandi upplýsing-
um. Kvað Eysteinn Sjálfstæðis-
menn nú miklu jákvæðari en
áður í þessu efni.
Sigurður Bjarnason (S) sagði,
að skjótrar úrlausnar væri þörí
á mörgum stöðum á Norðurlandi
og Vestfjörðum og skildu Sjálfst.
ismenn vel þá örðugleika, sem
þar væri við að etja og væru
reiðubúnir að finna lausn á
þeim, eftir því sem unnt væri.
Upplýsti hann meðal annars í
því sambandi, að ríkisstjórn-
in hefði úthlutað til At-
vinnubótasjóðs 1 millj. kr.
vegna hinna sviplegu skips-
tapa á Flateyri oig hefur stjórn-
sjóðsins þegar skrifað hrepps-
nefnd Flateyrar og skýrt henni
frá þessari sérstöku fjárveitingu
til byggðarlagsins.
Urðu enn nokkrar umræður
um þessi mál og töluðu þar
Jón Þorsteinsson, Skúli Guð-
mundsson og Eysteinn Jónsson.
TVEIMUR nýjum frumvörp-
um var útbýtt í gær.
Frumvarpi til laga um vinnu-
vernd, greiðsiu vinnulauna, upp-
sagnarfresti o.fl. Flutningsimað-
ur þess er Hannibal Valdimars-
son.
Frumvarpi til laga um sérstak
ar ráðstafanir til að stuðla að
jafnvætgi í byggð lndsins. Það er
flutt af 5 þingmönnuim Fram-
sóknarílokksins.
Bangkok, 14. okt. AP.
• ELL.EFU Thailendingar
biðu bana í dag, og sex sœrð-
ust, er bandarísk herflugvél
steyptist logandi til jarðar
þorpi nokkru, Tamuag inni í
miðju Thailandi. Flugmenn-
irnir sem voru sex náðu að
varpa sér út í faliihlítfum.
Bandaríkin geta ekki
sezt í dómarasætið
- í deilu íslands og Noregs um Leií heppna
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttafrásögn frá
Associated Press, þar sem
skýrt er frá því síðasta, sem
gerzt hefur í Leifs Eiríkssonar
málinu svonefnda.
Washington, 20. okt.
Associated Press.
BANDARÍSKIR embættis-
menn lýstu því yfir kurteis-
lega en ákveðið í dag, að þeir
gætu á engan hátt borið á-
byrgð á deilu þeirri, sem upp
væri komin um fæðingarstað
Leifs Eiríkssonar, víkingsins,
sem talinn er hafa funidð
Norður-Ameríku fyrir nær
1000 árum. Tvær þjóðir, Nor-
egur og ísland, bandalags-
þjóðir í Atlantshafsbandalag-
inu, gera háðar tilkall til
Leifs. „Bandaríkin geta ekki
sezt í dómarasæti , þessu
rifrildi milli norrænna
manna1', sögðu embættis-
menn hér í dag.
Upphaf máls þessa var það að
Johnson forseti lýsti 9. október
dag Leifs Eiríkssonar í samræmi
við ályktun Bandaríkjaþings þar
að lútandi.
Noregur greip strax tækifærið
til þess að helga sér málið, og
sendi Leif Eriksen, 16 ára pilt,
frá Noregi með gjöf til Banda-
ríkjanna, — ógnvekjandi, og að
sögn, ekta víkingaöxi.
í fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneyti Bandaríkjanna,
vildi I þar sem gjöfinni var lýst og til
ríksson hefði verið fæddur í Nor-
egi. — Nú, að hátíð lokinni
(„post festum“), fallast ýmsir
embættismenn á það sín í milli,
að flest rök hnígi að því að hinn
mikli víkingur hafi verið fædd-
ur á íslandi.
Sendiráð fslands gerði nokkr-
ar fyrirspurnir í utanríkisráðu-
neytinu þegar eftir athöfn þá 9.
október er Dean Rusk veitti við-
töku bardagaöxinni. Embættis-
menn utanríkisráðuneytisins
segja, að engin formleg mótmæli
hafi verið borin fram, heldur
hafi þetta einvörðungu verið í
fyrirspurnarformi. .
Að auki sendi Benjamín Ei-
ríksson, formaður fslenzk-amer-
íska félagsins í Reykjavík, boð-
skap til bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, og hélt ákveðið
fram því, að Leifur Eiríksson
væri íslenzkur.
Benjamin R. Tyler, aðstoðar-
utanríkisráðherra varðandi mál
er lúta að Evrópu, undirbýr nú
svar, sem senda á til höfuðborg-
ar íslands. Talið er að í svarinu
muni Tyler leggja áherzlu á
mikilvægi Dags Leifs heppna, —
og óbeint fallast á að víkingur-
inn hafi verið íslenzkur.
— /Jb róttir
setja á stofn leiðbeiningastofnun, ( efni þess að hún var gefin, sagði
sem veitti uppiýsingax þeim i að hinn upprunalegi Leifur Ei-
Framhald af bls. 25.
Þrír aðrir stukku 2,09, en
höfðu fleiri tilraunir, en þeir
tveir áðurnefndu. Sjö þeir naestu
fóru 2,06 eða sömu hæð og þurfti
til að komast í úrslitakeppnitia.
Sá lakasti fór 1,90 m í úrslitun,
um, hafði stokkið 2,06 daginn áð-
ur
— Krúsjeff
Framh. af bls. 1
Moskvu-útvarpið í dag, Er þar
hvatt til einingar innan heims-
kommúnismans og sagt, að fram-
gangur hans hafi alltaf byg(gzt
á einingunni, sem ríkt hafi. í
yfirlýsingunni er ekkert minnzt
á fundinn, sem Krúsjeff hafði
boðað til undirbúnings alþjóð-
legri ráðstefnu kommúnista, en
fundinn átti að halda 15. des.
Hins vegar er látið að því liggja*
að reynt verði að leysa deil-
urnar við Kínverja með því að
boða til nokkurra fámennra
funda fyrst, en halda síðan
alþjóðaráðstefnu.
Hér á eftir fara ummæli
kommúnistaflokka í fimm lönd-
um vaídhafaskiptin í Kreml:
• ÍSRAEL
Tel Aviv, 21. okt. (AP)
í fyrstu ummælum ísraelska
kommúnistaflokksins um leið-
togaskiptin í Sovétríkjunum,
sem birtust í dag, er lof borið á
Krúsjeff, fyrrv. forsætisráð-
herra og hinir nýju valdhafar
krafðir nánari skýringa á, a<5
honum var vikið úr embættl.
Segir, að upplýsingarnar, sem
miðstjórnin hafi gefið til þessa
séu ófullnægjandL
• BÚLGARÍA
Belgrad, 21. okt. (NTB)
Kommúnistaflokkur Búlgaríu
hefur lýst ánægju sinni með
ákvörðun kommúnistaflokks
Sovétríkjanna um að víkja
Krúsjeff úr embætti. Á fundi
miðstjórnar kommúnistaflokksins
í Sofiu í gær voru leiðtogaskipt-
in rædd og í tilkynningu, sem
gefin var út að honum loknum
segir, að miðstjórnin sé sann-
færð um að ákvörðun miðstjórn-
ar Sovétríkjanna verði til þess
að stefnu Lenins verði betur
fylgt en áður.
• SVÍÞJÓÐ
Stokkhólmi 21. okt. (NTB)
Carl Henrik Hermansson, for-
maður sænska kommúnista-
flokksins, gagnrýnir í dag harð-
lega þær aðferðir, sem notaðar
voru til að bola Krúsjeff frá
völdum, og segir, að þær stríði
gegn landslögum í Sovétríkjun-
um og tilheyri fortíðinni. Blað
sænska kommúnistaflokksins
krefst þess í ritstjórnargrein, að
skýrt verði nákvæmlaga frá um-
ræðunum, sem fram fóru í
Moskvu áður en Krúsjeff var
vikið frá.
• ÍTALÍA
Róm, 21. okt. (NTB-AP)
Blað kommúnistaflokks Ítalíu
,,L’Unitá“, gagnrýnir harðlega
hvernig Krúsjeff var vikið úr
embætti. Kveðst blaðið þeirrar
skoðunar, að eitthvert alvarlegt
atvik, sem enn ekki hafi verið
skýrt frá, hafi valdið leiðtoga-
skiptunum. Skorar blaðið á vald-
hafa í Sovétríkjunum að skýra
nánar tildrögin til brottvikningar
forsætisráðherrans.
• Frakland
París, 21. okt. (NTB)
Franski kommúnistaflokkur-
inn kvaðst í dag óska eftir nán-
ari skýringum á brottvikningu
Krúsjeffs úr embætti og lagði til
að hinir nýju leiðtogar Sovét-
ríkjanna byðu franskri sendinefnd
til Moskvu til þess að kynna sér
málin. Segir í yfirlýsingu flokks-
ins, að hann óski eftir nákvæmri
frásögn og útkýringum á ástand-
inu, sem ríkti fyrir valdhafa-
skiptin og aðferðunum, sera
notaðar voru til þess að víkja
Krúsjeff úr embætti.
Vatn komst í jarð-
símastreng í Rvík
f GÆRMORGUN komst vatn I
jarðsímastreng í Borgartúni, með
þeim afleiðingum að um 200 sím-
ar urðu sambandslausir í Tún-
unum og Höfðaborg og nokkuð
af Borgartúni. Komst vatn inn í
„múffuna“ á 200 línu streng.
Var unnið að því að setja
stykki í strenginn í allan gær-
dag og í gærkvöldi voru sumir
símarnir komnir í samband, og
búizt við að viðgerð yrði lokið
í gærkvöldi